Morgunblaðið - 26.04.1964, Page 27

Morgunblaðið - 26.04.1964, Page 27
*; ; Sunnudagun 26. apríl 1964 27 MOVr.nu** AÐW Nýtt skip, Mælifell, kom til landsins í gær f GÆR bættist nýtt skip í hinn íslenzka kaupskipaflota, Mæli- fell, Sambands íslenzkra sam- •vinnufélaga. Flutti það lausan á- burð til Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Mælifell er 2750 lest- ir brúttó, smíðað hjá skipasmíða stöðinni Aukra Bruk A/S í Nor- egi. Mæifell er einstakt í sinni röð n. ðal íslenzkra kaupskipa þar sem það er ætlað til flutnings farma einnar tegundar, eina kaupskipið, sem búið er skipti- skrúfu. Smíðalýsingu skipsins gerði Óttar Karlsson, skipaverk- fræðingur hjá skipadeild SÍS og hafði bann og með höndum bygg ingu þess. ,,Mælifell“ er vöruflutninga- skip, eins þilfars, 2750 burðar- lestir, sérstaklega byggt og ætl- að til flutnings farma einnar teg undar. >að er 1878 tonn brúttó og 979 tonn nettó. Skipið er afturbyggt, vélarrúm og mannabústaðir allir í aftur- skipi. í>að hefur tvær lestar að stærð 135 þús. rúmfet og eru lest arlúgur mjög stórar til hagræðis við lestun. og losun, með stál- lúguhlerum af MacGregor gerð. Skipið er byggt samkvæmt ströngustu kröfum Lloyd‘s. Sér- staklega styrkt til siglingar í ís. Kópavogur Það er styrkt og búið verulega umf-ram kröfur flokkunarfélags- ins með tilliti til hinna erfiðu hafnarskilyrða við íslandsstrend ur. Ganghraði skipsins í reynslu ferð var 15 sjómílur. Aðalvél skipsins er af Deútz-gerð 2150 hestöfl. Vélin er sérstaklega bú- in til þess að brenna þyngri eld- sneytisolíu en almennt gerist og gengur í íslenzika verzlunarflot- anum, þ.e.a.s., 200 Redwood sek úndu olíu. M.S. „Mælifell" er búið skipti skrúfu af gerð Liaaen-Zeise og er það fyrsta islenzka verzlunar skipið með slíka skrúfu. Kostir skiptiskrúfunnar umfram þá föstu eru ótvíræðir, en það sem réði einkum úrslitum um val hennar til þessa skips voru ósk- ir um aukna stjórnhæfni skips og betri hagnýtingu vélarafls við hin breytilegu skilyrði á siglingu. Eins og aðalvél skipsins, eru allar hjálpar-dieselvélar af gerð Deutz, þrjár 140 ha., sem hver um sig drífur 90 kw., riðstraums rafal, og ein 50 ha. hafnarvél er drífur 25 kw. rafal. Allar þilfarsvindur og vélar eru vökvadrifnar, en fyrirkomu- lag lestunar- og losunartækja er með hætti sem mun vera ný- lunda hér á landi og miklar von- ir eru bundnar við með tilliti til MATXHíAS Á. Mathiesen tal- »r á fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs, sem haldinn verður nk. þriðjudagskvöld í Sjálfstæðis húsinu í Kópavogi (Borgarholts- braut 6). í GÆR var sýnd skurðgrafa *f gerðinni HY—MAC 580, sem heildverzlunin Hekla flyt ur inn. Allur aflfærslubúnað- ur vélar þessarar er mun ein- faldari en áður gerðist, auk þess sem gröfutæki vélarinn- ar eru af annari gerð en áður hefur tíðkast. Vinna þau slétt an skáa á skurðina. Myndirnar sýna hvernig vél in vinnur skurðina og hvernig hún er tilsýndar að starfi. — Utsvarsmál Frh. af bls. 28 hækkun á útsvari áfrýjanda ógilda“. Þar sem nefndin lítur svo á, að í framtali yðar fyrir árið 1960 hafi ekki komið fram að fullu álagsstofnar til útsvars, og yður beri að greiða útsvar af réttum gjaldstofnunum eftir sömu reglum og öðrum gjaldend um hSr í bænum, telur hún ekki hjá því komizt að taka mál þetta upp að nýju. Nefndin tilkynnir yður því, að hún hefur í hyggju að hækka útsvar yðar árið 1960. . . .“. Kaupfélagi Skagfirðinga er veittur 14 daga frestur frá dag- setningu tilkynningarinnar til að skila nefndinni greinargerð um málið. — Hirm mikli afli Frh. af bls. 28 Þá er enn þess að geta að þessi fiskur er mjög stór og þykir vatnsmikill og bví kann svo að fara að hann rýrni mjög mikið, eða meira en annar fiskur. Mik- ið af þessurn fiski er saltað, þvi ekki er fært að hengja stórfisk upp. Ekki er þá heldur vitað hvernig salt gengur í svo þykkan fisk, því hann getur verið allt að þverhaindarþykkur flattur. Þessi stórfiskur gengur vel í hagræðingar við lestun og íosun. Skipið hefur þrjár einfaldar bóm ur auk eins krana, en bómurnar með tilheyrandi vélbúnaði hafa sömu athafnamöguleika og hann. Skipið er sérstaklega búið með tilliti til siglinga á amerísku vötn in og til flutnings á lausu korni. Skipstjóri á m/s „Mælifelli" er Bergur Pálsson og yfirvélstjóri Jón Örn Ingvarsson. — Kaup- verð skipsins var liðlega 36 millj. Er blaðamenn skoðuðu hið nýja skip í gær, gat Hjörtur Hjartar, forstjóri skipadeildar SÍS, að sambandsskipin væru nú átta. Hvassafell hefði að vísu ver ið selt fyrir viðunandi verð, og það hefði verið afhent einum mánuði áður en hið nýja skip Mælifell kom í gagnið. Skipa- stóll SÍS væri því óbreyttur eða átta skip. Hjörtur Hjartar gat þess, að á sl. ári hefðu Sambandsskipin siglt 400 þús. sjómílur samanlagt. Þá minntist hann á, að Sambands skipin flyttu til íslands 25-30% af flutningi til landsins miðað við síðasta ár, en gat þess um I leið, að olíuskipig Hamrafell I hefði eitt flutt til landsins á sl. ári 142 þús. tonn. Alls næmi inn- flutningur til landsins árlega, miðað við s.l. ár, milli 7-800 þús. tonn á ári. Loks gat Hjörtur Hjartar þess, að með hinu nýja skipi, Mæli- felli, opnuðust möguleikar á flutningi lauss korns til Islands, sem gæti haft það í för með sér, að íslendingar fengju nýrra og betra korn. Hefðu umræður um það staðið hjá SÍS, ag hagkvæmt væri að flytja korn á þeonan hátt til landsins og skipið væri við það miðað, að úr gæ'ti orðið ef því væri að skipta. frystihús þar sem handflökun er, en þar sem vélar eru notaðar ráða þær ekki við hann. Blaðinu er kunnugt um að þess hefur verið farið á leit við skips hafnir af útgerðarmönnum, að settir yrðu fleiri menn um borð í skipin og þar unnið að slægingu og fiskurinn settur í is, sem skips haínirnar hafa hafnað. Hins veg- ar er vitað að mikið af þessum fiski verður aldrei fyrsta flokks vara. Hrognin hefur gengið misjafn- lega að vinna, hafi þau verið runnin. Hins vegar er reynt að frysta það bezta af þeim til mann eldis, en annað grófsaltað til beitu, sem seld er til Spánar og Vestur-Frakklands, en þar eru þau notuð sem beita fyrir sardím ur. Er hrognunum hent í sjóinn og sardínurnar safnast þá utan um þau, en veiðimenn kasta síð- an litlum nótum kringum veið- ina. Blaðið hefur einnig haft af þvi spurnir að mikið magn af hrogn um sé fryst í refafóður, einnig mun til að þeim sé hent, þar sem þau eru bæði léleg vara orðin og ekki aðstaða til að vinna þau sómasam lega. Þá hefur blaðið einnig fregnað að bátar hafi komið að landi með þorsk, sem svo er orðinn lélegur að setja varð hann í mjölvinnslu. Talsvert hefur verið rnn það að fiski hefur verið landað anm- ars staðar en hann hefur verið unninn t.d. í Þorláksihöfn og hann síðan fluttur til Reykjavík- ur á bílum, dæmi eru þess að hann hefur verið fluttur allt upp á Akranes. Þetta hefur að sjálf- sögðu skapað mikinn aukakostn að og einnig spillir þetta vörunni, því allur er þessi fiskur óslægð- u;. Þá hefur skapazt enn eitt vanda málið við þessi miklu aflabrögð, en það er úthald minni báta, sem verða að nota önnur veiðarfæri en nót. Hefur því orðið að leggja þessum bátum, því ekki hefur reynzt fært að fá sjómenn á þá. Útgerðarmenn líta svo á að ráða verði á nótaveiðibátana eins og um netaveiðar væri að ræða. Hins vegar eru þessar veiðar svo nýjar að ekki hefur verið gert sérstaklga ráð fyrir þeim í samm- ingum. Er nú beðið eftir úrskurði í máli, sem upp kom vegna báts í Hafnarfirði, sem hafði gert út á net, en síðan farið meC nót og hafði við lok gert upp við áhöfnina eins og allt hefðu verið netaveiðar. Litið er á þetta mál sem eins konar prófmál á upp- gjörið við áhafnir hinna mörgu nótabáta. Horður úreksfur í Þorlúkshöín UM kl. 5 á laugardagsmorgun ók Ford Comet bifreið af miklum hraða upp bryggjuna í Þorláks- höfn og lenti á palli kyrrstæðrar vörubifreiðar. í bílnum voru 4 menn, bif- reiðastjórinn og landi hans auk tveggja Dana. Ekki er að fullu kunnugt um meiðsl mannanna en Danirnir voru fluttir í sjúkra- hús til Reykjavíkur, félagi bíl- stjórans var kominn á sjó í gær. Lögreglan á Selfossi hafði spurn ir af því að farþegar hefðu skorizt og hlotið minniháttar beinbrot, en nánari fregnir lágu ekki fyrir, er blaðið fór í prent- un. Verksmiðjuvinna Óskum eftir að ráða nokkra laghenta 'onn til starfa í verksmiðju okkar. Timburverzlunin Völundur hf. Klapparstíg 1 — Sími 1 8430.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.