Morgunblaðið - 12.06.1964, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. júní 1984
Skagf jörðsskúli ú X>órs-
mörk stækkaður
Vorhljómleikar
Karlakórs Keflavíkur
KARLAKÓR Keflavíkur hélt vor
hljómleika sína fimmtudaginn 4.
júní, og var Bíóhöllin þéttsetin.
Karlakórinn hafði að þessu sinni
óvenju glæsilega og vel byggða
söngskrá, og var greinilegt, að
styrkar hendur stjórna þar, en
þaer hendur eru Herberts Hrib-
erscheks Ágústssonar. Það er
undravert hversu langt karlakór-
inn hefur náð í fáguðum og
hljómrænum flutningi, þegar
þess er gætt að kórfélagar allir
eru menn úr dagsins önn, sem
Ieggja kvöld við kvöld til æfinga.
Að þessu sinni frumflutti kór-
inn Frelsisljóð — kanötu eftir
Árna Björnsson við ljóð Kjart-
ans Gíslasonar frá Mosfelli, og
fór þar saman frábær flutningur,
rismikil hljómlist og andinn frá
1944, en kantatan var samin
vegna lýðveldishátíðarinnar. Ein-
stök lög kórsins er ég vart dóm-
bær á, en þó var heillandi söng-
ur þeirra á Ökuljóðum, rúss-
neska þjóðlaginu fallega. Ein-
söngvarar kórsins, þeir Haukur
Þórðarson og Guðjón Hjörleifs-
son, eru fyllilega frambærilegir
hvar sem er; þeir eru ekki aðeins
söngvarar með karlakórnum í
Keflavík, heldur vaxandi söngv-
arar, sem unun er á að hlýða.
Ásgeir Beinteinsson annaðist
undirleik fyrir kórinn af mikilli
leikni en of miklum styrk.
Kvartett úr kórnum hafði sína
eigin söngskrá sem lið í hljóm-
leikunum, það eru fallegar radd-
ir — sérlega styrkar og mjúkar
— og gætu því valið sér verð-
ugri viðfangsefni.
Drengja-lúðrasveitin, sem Her-
bert Hriberschek hefur stofnað
og stjórnað, lék nokkur lög á
þessum tónleikum. Sú litla lúðra-
sveit er meira en góð, og sést þar
ljóslega, hvað unnizt getur úr
góðu efni undir styrkri stjórn.
Kórinn hefði ef til vill ekki
þurft að leggja með sér þessi
atriði hljómleikanna, því að
sjálfur er hann það góður, að
engan iðrar þess að hlusta á
hann sjálfan.
Mörg aukalög varð að syngja
og leika — en það var sannar-
lega ekki af átthagaást, heldur
vegna verðskuldaðrar hrifningar
þeirra, sem hlýddu á.
Söngstjóra og kórnum bárust
blómvendir og miklar þakkir, og
segir mér svo hugur um að end-
urtaka þurfi þessa hljómleika
oftar en ætlað er. — hsj.
Hvolsvelli, 8. jún.
í GÆR bauð Óskar Sigurjóns-
son, einn af eigendum Austur-
leiða, öllum karlmönnum á
Hvolsvelli í ferð til Þórsmerkur
með nýjum fjallvegabíl.
Fjallabíll þessi er frambyggð-
ur trukkur, Reo Studebaker, vel
útbúinn öllum nauðsynlegum
tækjum, svo sem spili og talstöð.
Bíllinn reyndist sérstaklega vel
í þessari reynsluför; var stöðug-
ur og þýður, þótt oft væri ekið
á stórgrýti.
Héðan var farið um kl. 16.30
og komið aftur um miðnætti. —
Tókst ferðin vel og ánægjulega í
alla staði, og voru allir sammála
UNNIÐ hefur verið að því að
undanförnu að stækka skála
Ferðafélags íslands, Skagfjörðs-
skála, í Langadal á Þórsmörk.
— Hefur Sigurjón Magnússon,
húsasmiður, séð um stækkunina.
Á annarri myndinni er Skag-
fjörðsskáli, og sést viðaukinn til
hægri. Á hinni myndinni er Sig-
urjón Magnússon.
(Ljósm. Mbl.: Ottó Eyfjörð)
Yfirsmlðurinn
Nokkrir boðsgesta, þegar hin n nýi bíll Austurleiða ok W
Þórsmerkur sL sunnudag.
Skagfjörðsskáli á Þórsmörk. Viðbótin til hægri.
Hlédrægni í kirkjugarði
MARTEINN Þ. Gísiason, yfir-
verkstjóri hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur, var í gær sæmd-
ur brezka heiðursmerkinu
„British Empire Medal“ í virð
ingarskyni fyrir umsjá sína
með leiðum brezkra her-
manna er féllu hér við land
í stríðinu. Heiðursmerki þetta
er sjaldan veitt og er Mar-
teinn annar íslendingurinn
sem það hlýtur. Marteinn
starfaði fyrir Breta í stríð-
inu og hefur unnið við Kirkju
garðana í 15 ár.
Við héldum suður í Foss-
vogskirkjugarð í sólskininu í
gær að ná tali af Marteini og
taka mynd af leiðum brezku
hermannanna. Það reyndist
torsótt, Marteinn vildi ekki
við okkur tala og varðist allra
sagna.
Svo við hrintgdum í Brian
Holt hjá brezka sendiráðinu
og hann var ekkert hissa:
„Marteinn er einstaklega hlé-
drægur maður og þetta kom
mjög flatt upp á hann,“ sagði
Brian. „Það var með naumind
um að okkur tókst að fá hann
hingað niðureftir til okkar að
taka við þessu.“
Brian Holt er fulltrúi stofn-
unar þeirrar í Bretlandi, er
sér um hermannagrafreiti
Breta 1 ýmsum löndum. Sú
stofnun hefur í ýmsu að snú-
ast, því tala brezkra þegna
sem fallið hafa í heimsstyrj-
öldunum báðum mun vera yf-
ir 1.669.000.
Bretar láta sér annt um her
mannagrafreiti sína og gera
vel til þeirra. Minningarat-
hötfn fer fram í Fossvogs-
kirkjugarði ár hvert 4 Degi
fallinna hermanna, 11. nóv-
ember og fjöldi fólks kemur
ríða vegu að til þess að vitja
um leiði látinna ástvina. Eina
konu kvaðst Brian Holt
þekkja sem kæmi á hverju ári.
Hún hefði misst hér á íslandi
einkason sinn.
Við gengum þarna í sól-
skininu í Fossvoginum og lás-
um á legsteinana. Þarna voru
brezk nöfn og kanadísk,
þarna voru Ný-Sjálendingar,
þarna var Kínverji (sem var
brezkur þegn), Norðmenn,
Ástralíumenn og einn Rússi
(sem var ekki brezkur þegn).
Leiði 210 brezkra hermanna,
mörkuð hvítum steinum í
löngum röðum og bióm á
milli.
Það var friðsælt og fallegt í
Fossvoginum í gær. Stúlkurn
ar sem voru að gróðursetja
blómin voru komnar í sund-
toodi og sólföt og það var
undarlegt til þess áð hugsa að
þarna undir hvítu steinunum
hvíldu ungir hermenn fram-
andi þjóðar, sem voru á lík-
um aldri og þær, þegar þeir
dóu í síðasta stríði.
HÖFN í Hornafirði, 4. júní. —
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
hélt aðalfund sinn 31. fyrra mán-
aðar. Fundinn sátu 19 fulltrúar,
auk framkvæmdastjóra, stjórnar
og endurskoðenda. Sigurður Jóns
son á Stafafelli, formaður félags-
stjórnar setti fundinn. Minntist
harni í upphafi látinna félags-
manna.
Síðar flutti hann skýrslu stjórn
arinnar og skýrði einstaka liði
hennar. Heildarvelta nam 97,2
milljónum og hafði aukizt um
13,1%. Sala erlendra vara nam
39,5 milljónum og landbúnaðar-
vara 22,6 milljónum, sjóvaraf-
urða 25 milljónum. Fjárfesting
var míkil á árinu eða 7,6 milljón-
ir. Framkvæmdastjórinn reikn-
aði með að svo til engin fjárfest-
ing yrði hjá félaginu á yfirstand-
andi ári. Afskriftir af fasteign-
um námu 2,5 milljónum, eftir-
stöðvar 125.000,11 var lagt í
varasjóð.
Kristján Benediktsson í Ein-
holti sagði af sér stjórnarstörf-
um að eigin ósk fyrir aldurssak-
ir. Hefur hann átti sæti í stjórn-
inni í 34 ár. í hans stað var kos-
inn Benedikt Bjarnason, Tjörn.
Aðrir stjórnarnefndarmenn, sem
úr stjórn áttu að ganga, voru
endurkosnir. Fulltrúi á aðalfund
SÍS var kosinn Óskar Helgason,
símstjóri, Höfn. — Gunnar.
Nýr fjallvegabíll reyndur
um, að bíllinn hefði staðið sig
með ágætum í þessari reynslu-
för. í fararlok þakkaði Pálmi
Eyjólfsson, sýslufulltrúi, Óskari
fyrir góða ferð og veitingar.
— O. E.
Heildorvelto Koupfélogs A-Sknft-
fellingu jókst um 13% ú sl. úri