Morgunblaðið - 14.07.1964, Blaðsíða 12
12
Þríðjudagur 14. júlí 1964
MORGU NBLAÐIÐ
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslust j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristi'nsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
BARRY GOLDWATER
|® UTAN ÚR HEIMI |
... §||il ■ | i | í-v:|||; ■'■■■■ ■■ : ' ■' ' . " • z' i ' - ■/ ' ' "' .... , . . . ■ ..... ■ : V//,' ' iiv'l'',/,/' ' ' " /; :v - S SÉÆ.4: v-x / \ . . m 'f' - ■ ' ■ "■ * ■ > */; O'i , *■•' pj ' <•' '■./ / ' '> s s ■ ,' 'í, , ‘i$ > 1 •
Á samveldisráðsaefnunni í
1 London ræðast þeir við Ayub
egar þetta er ritað er allt
útlit fyrir að öldunga-
déildarþingmaðurinn Barry
Goldwater verði tilnefnd-
ur frambjóðandi Repu-
blikánaflokksins í Banda-
ríkjunum við -forseta-
kosningarnar í nóvember
n.k. Barátta Goldwaters fyrir'
tilnefningu hefur verið rædd
í blöðum um allan heim og
naumast hafa aðrir pólitískir
atburðir vakið meiri eftirtekt
undanfarið en sígrar hans.
Barry Goldwater hefur gef-
ið hverja yfirlýsinguna af ann
arri, sem bandarísku blöðin
hafa yfirleitt fordæmt og
stjórnmálamenn og blaða-
metra víða um veröld hafa
talið uggvænlegar. Lengi
framan af var því spáð, að
barátta hans væri vonlaus, en
á daginn er komið, að hann
nýtur mun meira stuðnings
en menn gerðu sér fyrirfram
grein fyrir.
Ýmsar skýringar eru á sigr-
um Goldwaters. Þannig leik-
ur naumast vafi á því, að
stuðningsmenn hans hafa bar
izt betur en andstæðingarnir.
Þeir hafa skipulagt baráttuna
frá grunni og stefnt að á-
kveðnu marki meðan andstæð
ingafylkingarnar voru riðlað-
ar.
Þeir, sem kenna sig við í-
haldsstefnu í Bandaríkjunum,
hafa haft takmörkuð áhrif að
undanförnu, meðan hinir, sem
teljast frjálslyndir, hafa ráð-
ið í báðum bandarísku flokk
unum.
Að vísu er það svo, eins og
kunnugt er, að hugtök eins
og íhaldssamur og frjálslynd-
ur eru hvergi nærri glögg,
enda ekki furða þótt erfitt sé
að skilgreina stefnur borgara-
flokka, þegar höfð er hlið-
sjón af þeim umbyltingum og
hraða, sem við eigum við að
búa, þar sem stöðugt er við
ný viðfangsefni að fást. Þess
vegna eru líka víðast saman í
flokkum menn, sem telja sig
íhaldssama og frjálslynda, og
það er síður en svo, að allt af
sé auðvelt að greina í hverju
frjálslyndi hinna síðarnefndu
birtist og íhaldssemi hinna
fyrrnefndu.
Engu að síður er líklegt, að
það hafi hjálpað Goldwater
og hans mönnum, að þeir hafa
barizt undir þeim vígorðum,
að þeir ætluðu ýmsu að breyta
og hefðu nýmæli á stefnuskrá
sinni, en eins og kunnugt er
er það venja í lýðræðisríkj-
um, að þær stefnur og þeir
flokkar, sem við völd eru, tapi
fremur en vinni á, því að fólk-
ið er nýjungagjarnt og vill
auk þess veita stjórnarvöldum
aðhald.
Fram að þessu hefur Barry
Goldwater verið sigursæll. Ef
hann verður valinn frambjóð
andi repúblikana mun hann
vafalaust draga nokkuð í
land. Hann hefur sjálfsagt vilj
að vekja athygli á sér og bar-
áttu sinni með nokkuð víga-
legum fullyrðingum. En hvað
sem því líður þá munu flest-
ir vinir Bandaríkjanna óska
þess, að Johnson forseti fari
með sigur af hólmi í nóvem-
ber.
í stefnuskrá Repúblikana-
flokksins sem nú hefur verið
samin, gætir mjög áhrifa Gold
waters og ýmislegt er þar óað-
gengilegt, en stuðningsmenn
Goldwaters telja sýnilega að
eina vonin um sigur sé að
hafa nógu harða og ákveðna
stefnu, jafnvel óábyrga. Þetta
fyrirbæri þekkjum við svo
sem úr íslenzkum stjórnmál-
um.
HAGUR
LOFTLEIÐA
ryrir skömmu var frá því
skýrt, að Loftleiðir
hefðu á s.l. ári hagnazt veru-
lega á íslenzkan mælikvarða.
Þennan hagnað- notar félagið
til að styrkja samkeppnisað-
stöðu sína á alþjóðaflugleið-
um, og er vonandi að félagið
hagnist áfram ,svo að það geti
eflzt.
Stundum fárast menn yfir
því, ef atvinnufyrirtæki hagn-
ast, og sósíaiistar halda því
fram, að þá sé verið að arð'
ræna viðskiptamenn fyrirtæk
isins eða verkafólk þess. Loft-
leiðir hafa rækilega afsannað
þessa kenningu. Þeir fljúga
á lægri fargjöldum en aðrir.
Vegna starfa þessa flugfélags
er ekki einungis um hagnað
þess að ræða heldur líka við-
skiptavinanna, sem ella hefðu
orðið að greiða hærri far-
gjöld.
En Loftleiðamenn hafa líka
sannað að við getum verið
samkeppnisfærir við stórþjóð-
irnar, ef við þorum að ráðast
í stórverkefnin. Þess vegna
er fordæmi þeirra hvatning til
þess að leggja inn á nýjar
brautir og þar er ekki sízt um
að ræða stóriðjuna.
ÞJÓFNAÐUR
í KJÖRBÚÐUM
T¥ér í blaðinu var s.l. sunnu-
dag grein um þjófnað
í kjörbúðum, sem er meiri
Kahn, forseti Pakistan (t.h.)
Peking, 13. júlí (NTB-AP)
TVÖ af málgögnum kínversku
stjórnarinnar ráðast í dag harka-
lega á Nikita Krúsjeff, forsætis-
ráðherra. Biöð þessi eru „Dag-
blað þjóðarinnar“ og „Rauði
fáninn“, og segja þau að Krús-
jeff berjist fyrir því að innleiða
auðvaldsstefnuna í Sovétríkjun-
um og að hann sé leiðtogi nýrrar
forréttindstéttar borgaranna í
andstöðu við verkalýðinn.
Geinar þessar eru skrifaðar
með tilvísun til opins bréfs
kommúnistaflokks Sovétríkjanna
frá 14. júlí í fyrra, og er fyrir-
sögnin í 'báðum blöðunum: „Um
hinn falska kommúnisma Krús-
jeffs og sögulegar kenningar
hans fyrir heiminn". Er þar
„endurskoðunarklíka Krúsjeffs“
sökuð um að hafa afnumið ein-
ræði öreiganna og rutt brautina
en menn hefðu að óreyndu
trúað.
Kaupmenn eiga að sjálf-
sögðu að keppa um hylli við-
skiptavina sinna, en engu að
síður eru til þau svið, þar sem
þeir eiga að hafa samstöðu,
sem því miður hefur oft skort
nokkuð á, verzlunarstéttinni
sjálfri til tjóns.
Eitt af þessum sviðum er
það að koma í veg fyrir þjófn
að í kjörbúðum, ekki til þess
eins að gæta hags kaupmanna
sjálfra, heldur beinlínis af
og Robert Menzies, forsætis-
ráðherra Ástralíu. Á bak við
þá sjást Jomo Kenyatta, for-
sætisráðherra Kenya (t.v.),
íyrir endurreisn auðvaldsfyrir-
komulagsins. Blöðin visa á bug
þeirri „fáránlegu skoðun“ að
ekki sé lengur um neina stétta-
baráttu að ræða í Sovétríkjunum.
Segja þau ag ný forréttindastétt
borgara hafi risið upp í Sovét-
ríkjunum og tilheyri henni
dreggjarnar úr forustuliði flokks
ins, opinberum stofnunum,.fyrir-
tælfjum og frá samyrkjubúum.
Endurákoðunarklíka Krúsjeffs
er fulltrúi sovézlcu borgarastétt-
arinnar, einkum þess flokks
hennar, sem nýtur sérstakra for-
réttinda, segja blöðin.
— Skref fyrir skref hefur
Krúsjeff og klíka hans breytt
eignarrétti almennings í eignar-
rétt forréttindastéttarinnar, seg-
ir í greinunum. Afleiðingin af
endurskoðunarstefnu Krúsjeffs
er sú að fyrsta kommúnistaríki
þjóðfélagsástæðum, því að
það er hörmulegt til þess að
vita að þjófnaður skuli líðast
svo að segja fyrir allra aug-
um.
Auðvitað eiga kaupmenn
þegar í stað að kæra hvern
þann, sem uppvís verður að
þjófnaði í kjörbúðum. Hann
á að draga fyrir lög og dóm
og láta hann sæta réttmætri
hegningu. Það • er engum
greiði gerður með þvf að láta
þjófa sleppa við kæru. Það
getur þvert á móti leitt til
Milton Oboto, forsætisráð- =
herra Uganda, og Kwame 1
Nkrumah, forseti Ghana.
heims, sem hin mikla Sovétþjóð
byggði upp með blóði sínu og
sveita, stendur nú andspænia
hættunni af endurfæðingu kapi-
talismans.
Blöðin segja aS slagorð Krús-
jeffs um að koma á kommúnisku
samfélagi í Sovétríkjunum inn-
an 20 ára lýsi afturhaldssemi og
só röng. Vitna þau í ummæli Mao
Tse Tungs þegar hann sagði að
lokasigur kommúnismans vinn-
ist ekki á einum eða tveimur
mannsöldrum, heldur fimm eða
tíu mannsöldrum eða jafnvei
er.n lengri tíma.
Því er haldið fram í greinun-
um að allur fjöldi sovézkra verka
manna, bænda og menntamanna
sé andvígur þeirri kúgun og
nisrétti sem forréttindastéttin
beiti, og reyni að berjast gegit
stefnu Krúsjeffs. „Sögulegt fram
lag hinnar merku Sovétþjóðar
rnun ætíð standa sem lýsandi
fordæmi fyrir komandi kynslóð-
ir, og það geta svik Krúsjeffs-
klíkunnar aldrei eyðilagt", segja
blöðin.
þess, að ístöðulítið fólk taki til
við þjófnað, sem það ella
mundi ekki gera.
Þess vegna eiga kaupmenn
að taka höndum saman um
að hindra þessa ósæmilegu
iðju. Víða erlendis eru
speglar í kjörbúðum,
þannig að alls staðar
er hægt að sjá til við-
skiptavinanna. Þetta mætti
gjarnan gera hér, en umfram
allt að láta ekki þá, sem upp-
vísir verða að þjófnaði
sleppa.
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimijiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiniiiiiiS
Kínverjar saka Krúsfeff um
baraftu fyrir kapítalisma
Segja hann leiðtoga nýrrar forréttinda-
stéttar, sem beiti verkalíðinn kúgun
og misrétti