Morgunblaðið - 14.07.1964, Page 15

Morgunblaðið - 14.07.1964, Page 15
Þriðjudagur 14. júlí 1964 MORCU N BLAÐIÐ 15 Heimamenn í Stakkahlíð. Sigurður hreppstjóri annar frá vinstri og Magnús bóndi við hlið hans. Klukkan var farin að ganga tíu þegar við riðum í hlað og var vel fagnað og innilega af þeim mágum, konu Magnúsar, Ástu Stefánsdóttur, börnum þeirra fimm og öðru heimilis- fólki. Innan stundar var borin fyrir okkur gómsæt máltíð, og undir lágnættið komu börnin heim úr veiðiferð í ósnum með nokkra sindrandi sjóbirtinga til næsta dags, og var einn þeirra fimm punda hlunkur. Lágnættið leið við fjörlegar samræður. Sigurður hreppstjóri kom víða við ,enda margvís, og lét ýmislegt flakka um menn og málefni sem bragð var að. Varð honum tíðrætt um ávirðingar flokksbræðra sinna, Framsóknar- leiðtoganna, og taldi þeim helzt til foráttu þann mannlega breysk leik að hugsa meir um vífni en hag fólksins. Mundu orðræður hans ýmsar vafalaust hafa þótt feitir bitar í hinu pólitíska dæg- urþrasi, en þeim var fráleitt ætl- að að fara út fyrir hljóbæra vegg- ina í Stakkahlíð. . Sigurður virtist jafnvígur á flest umræðuefni, hafði mjög á- kveðnar skoðanir á bókmenntum, sem féllu í heldur grýttan jarð- veg hjá okkur „heimsmönnun- — Ausfurland Frahamhald af bls. 13 Guðrún hótelstýra hafði búið okk ur af mikilli fyrirhyggju og aust- firzku örlæti. Var hraustlega tek- ið til matar eftir fjögurra eða fimm stunda látlitla reið. Við áðum rúman klukkutíma í dal- botninum, en þegar skuggar fjall anna tóku að teygja sig til okkar, var haldið af stað á nýjum reið- nkjótum og riðið út dalinn. Við fórum að mestu með ánni, þar eem skiptust á rennsléttir vellir og votar pöldrur, riðum hjá tún- garði nokkurra býla sem lagzt hafa í eyði á síðustu áratugum (Bárðarstaðir, Klippstaðir, Úlf- staðir), og sáum brátt hilla undir „síðasta bæinn í dalnum“, Stakka hlíð, sem stendur nálægt árósn- um og er eina nytjaða jörðin í þessari gróðursælu sveit, þar sem áður voru níu býli. í Stakkahlíð var okkur fyrirhuguð gisting hjá Magnúsi bónda Sigurðssyni og Sigurði hreppstjóra Stefánssyni, mági hans, sem ríkir yfir sveit sinni fámennri og sögufrægu ætt- aróðali með heimspekilegu jafn- aðargeði þess manns sem ekki seðrast andspænis óumflýjanleg- um örlögum. um“, var vel inni í gangi alþjóða mála, sýndist nákunnugur völund arhúsi austfirzkra fjármáía og býsnaðist mikið yfir dálæti Rík- isútvarpsins á útlenzku sinfón- íunum. Sigurður var fyrr á árum póstur og kvaðst hafa misst heils- una í þeim svaðilförum, en hann afsannar rækilega niðurstöðu Páls skálds Ólafssonar, þegar hann kom úr veiðiferð á Loð- mundarfirði ásamt Birni Kalm- an syni sínum og var spurður í lendingunni: „Ertu vel fiskaður?“ Þá svaraði Páll með þessari fleygu visu: Það er engan þorsk að fá í þessum firði. Þurru landi eru þeir á, en einskis virði. Sigurður A. Magnússon Félagsheimili reist á Reykhól- um REYKHÓLASVEIT, 8. júlí — Almennur hreppsfundur var á sunnudaginn á Reykhólum. Var þar til umræðu bygging íþrótta- og félagsheimilis. Var bygging þess ákveðin og hreppsnefnd fal ið að hafa forgöngu um stofnun sérstaks félags og um öfhin tei'kn inga. Að félagsheimilinu munu standa kvenfélagið, ungmenna- félagið og hreppsfélagið. Einnig var á fundinum rætt um framtíð Reykhóla og sam- þykkt þakklæti til þingmanna Sjálfstæðisfloikksins vegna fram kominnar þingsályktunartillögu um uppbyggíngu Reykhóla. Ennfremur var samþykkt að fræðslulögin skyldu koma til fullra framkvæmda eins fljótt og •hægt værL — Sveinn. ATHVGIS að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. VDNDUÐ FALLEG ODYR IIB SiqiirþÖrJcmsson éc co JiafnarstnrH 4 Einbýlishús við Sólvallagötu Til sölu er húseignin Sólvallagata 63. - ast. — Nánari upplýsingar gefur: Tilboð ósk málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar. Aðalstræti 6. — Símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602. Stúlka eða kona Óskast til aígreiðslustarfa strax vegna sumarleyfa. Upplýsingar á skrifstofu SÆLA-CAFÉ, Brautar- holti 22, frá kl. 10—12 f.h. og kl. 2—5 e.h. R^flampaframleiðendtir Til sölu er lager til raflampaframleiðslu. Góðir greiðsluskilmálar. Tilboð sendist afgr. Mb. fyrir 18. júlí nk. merkt: „4834“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.