Morgunblaðið - 14.07.1964, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 14. júlí 1964
MORCU N BLAÐIÐ
15
Heimamenn í Stakkahlíð. Sigurður hreppstjóri annar frá vinstri
og Magnús bóndi við hlið hans.
Klukkan var farin að ganga
tíu þegar við riðum í hlað og
var vel fagnað og innilega af
þeim mágum, konu Magnúsar,
Ástu Stefánsdóttur, börnum
þeirra fimm og öðru heimilis-
fólki. Innan stundar var borin
fyrir okkur gómsæt máltíð, og
undir lágnættið komu börnin
heim úr veiðiferð í ósnum með
nokkra sindrandi sjóbirtinga til
næsta dags, og var einn þeirra
fimm punda hlunkur.
Lágnættið leið við fjörlegar
samræður. Sigurður hreppstjóri
kom víða við ,enda margvís, og
lét ýmislegt flakka um menn og
málefni sem bragð var að. Varð
honum tíðrætt um ávirðingar
flokksbræðra sinna, Framsóknar-
leiðtoganna, og taldi þeim helzt
til foráttu þann mannlega breysk
leik að hugsa meir um vífni en
hag fólksins. Mundu orðræður
hans ýmsar vafalaust hafa þótt
feitir bitar í hinu pólitíska dæg-
urþrasi, en þeim var fráleitt ætl-
að að fara út fyrir hljóbæra vegg-
ina í Stakkahlíð.
. Sigurður virtist jafnvígur á
flest umræðuefni, hafði mjög á-
kveðnar skoðanir á bókmenntum,
sem féllu í heldur grýttan jarð-
veg hjá okkur „heimsmönnun-
— Ausfurland
Frahamhald af bls. 13
Guðrún hótelstýra hafði búið okk
ur af mikilli fyrirhyggju og aust-
firzku örlæti. Var hraustlega tek-
ið til matar eftir fjögurra eða
fimm stunda látlitla reið. Við
áðum rúman klukkutíma í dal-
botninum, en þegar skuggar fjall
anna tóku að teygja sig til okkar,
var haldið af stað á nýjum reið-
nkjótum og riðið út dalinn. Við
fórum að mestu með ánni, þar
eem skiptust á rennsléttir vellir
og votar pöldrur, riðum hjá tún-
garði nokkurra býla sem lagzt
hafa í eyði á síðustu áratugum
(Bárðarstaðir, Klippstaðir, Úlf-
staðir), og sáum brátt hilla undir
„síðasta bæinn í dalnum“, Stakka
hlíð, sem stendur nálægt árósn-
um og er eina nytjaða jörðin í
þessari gróðursælu sveit, þar sem
áður voru níu býli. í Stakkahlíð
var okkur fyrirhuguð gisting hjá
Magnúsi bónda Sigurðssyni og
Sigurði hreppstjóra Stefánssyni,
mági hans, sem ríkir yfir sveit
sinni fámennri og sögufrægu ætt-
aróðali með heimspekilegu jafn-
aðargeði þess manns sem ekki
seðrast andspænis óumflýjanleg-
um örlögum.
um“, var vel inni í gangi alþjóða
mála, sýndist nákunnugur völund
arhúsi austfirzkra fjármáía og
býsnaðist mikið yfir dálæti Rík-
isútvarpsins á útlenzku sinfón-
íunum. Sigurður var fyrr á árum
póstur og kvaðst hafa misst heils-
una í þeim svaðilförum, en hann
afsannar rækilega niðurstöðu
Páls skálds Ólafssonar, þegar
hann kom úr veiðiferð á Loð-
mundarfirði ásamt Birni Kalm-
an syni sínum og var spurður í
lendingunni: „Ertu vel fiskaður?“
Þá svaraði Páll með þessari
fleygu visu:
Það er engan þorsk að fá
í þessum firði.
Þurru landi eru þeir á,
en einskis virði.
Sigurður A. Magnússon
Félagsheimili
reist á Reykhól-
um
REYKHÓLASVEIT, 8. júlí —
Almennur hreppsfundur var á
sunnudaginn á Reykhólum. Var
þar til umræðu bygging íþrótta-
og félagsheimilis. Var bygging
þess ákveðin og hreppsnefnd fal
ið að hafa forgöngu um stofnun
sérstaks félags og um öfhin tei'kn
inga. Að félagsheimilinu munu
standa kvenfélagið, ungmenna-
félagið og hreppsfélagið.
Einnig var á fundinum rætt
um framtíð Reykhóla og sam-
þykkt þakklæti til þingmanna
Sjálfstæðisfloikksins vegna fram
kominnar þingsályktunartillögu
um uppbyggíngu Reykhóla.
Ennfremur var samþykkt að
fræðslulögin skyldu koma til
fullra framkvæmda eins fljótt og
•hægt værL — Sveinn.
ATHVGIS
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
VDNDUÐ
FALLEG
ODYR
IIB
SiqiirþÖrJcmsson éc co
JiafnarstnrH 4
Einbýlishús við
Sólvallagötu
Til sölu er húseignin Sólvallagata 63. -
ast. — Nánari upplýsingar gefur:
Tilboð ósk
málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar.
Aðalstræti 6. — Símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
Stúlka eða kona
Óskast til aígreiðslustarfa strax vegna sumarleyfa.
Upplýsingar á skrifstofu SÆLA-CAFÉ, Brautar-
holti 22, frá kl. 10—12 f.h. og kl. 2—5 e.h.
R^flampaframleiðendtir
Til sölu er lager til raflampaframleiðslu. Góðir
greiðsluskilmálar. Tilboð sendist afgr. Mb. fyrir
18. júlí nk. merkt: „4834“.