Morgunblaðið - 02.08.1964, Qupperneq 9
Sunnudagur 2. ágúst 1964
MORGUNBLAÐIÐ
9
Bindindismót Vaglaskógi
NOKKCR félagssamtök og opin-
birir aðilar á Akureyri og í ná-
grannahéruöum hafa ákveðið að
gangast fyrir almennri samkomu
í Vaglaskógi um verzlunarmanna
helgina, þar sem höfuðáherzlan
er lögð á, að fólk skemmti sér án
áfengis. Verður þarna því um
bindindismót að ræða, og allt
gert, sem hægt er, til þess að fólk
brjóti ekki þessa meginreglu móts
ins.
Undirbúningsnefndin, sem skip
uð er fulltrúum frá Ungmenna-
■ambandi Eyjafjarðar, Héraðs-
■ambandi Þingeyinga, fþrótta-
bandalagi Akureyrar, Góðtempl-
arareglunni á Akureyri og Æsku-
lýðsráði Akureyrar, væntir þess,
eð fólk taki nú höndum saman
um það að skemmta sér á hollan
hátt á þessum fagra stað, og heit-
ir á alla, sem þangað koma, að
virða þær reglur, sem þar verða
■ettar.
Ýmislegt verður þarna til
■kemmtunar, íþróttir, kvöldvök-
ur, dansleikir, og á laugardags-
kvöld verður kveikt í bálkesti og
flugeldum skotið.
Veitingar verða seldar í Brúar-
lundi og tjöldum út um skóginn
alla mótsdagana.
Hér er um tilraun að ræða í þá
átt að fá fólk til að skemmta sér
án áfengis, og er skemmtun þessi
öllum ætluð.
Um verzlujiarmannahelgina
verður seldur aðgangur í Vagla-
■kóg, og er tjaldstæði og aðgang-
ur að öllum útisamkomum inni-
falið í verðinu, sem verður kr.
50.00.
Tjaldstæði og bílastæði verða á
•fmörkuðum svæðum, leik- og
íþróttasvæði verða merkt. Sjúkra
vakt verður í Brúarlundi, og
gæzlumenn verða á tjaldsvæðum
og víðar um skóginn. Þótt þessar
ráðstafanir séú gerðar, er það
von og ósk mótsnefndarinnar, að
eftirlitsmenn þessir fái ekki á-
■tæðu til að amast við neinum,
en geti hins vegar verið til leið-
beiningar og aðstoðar gestum
þeim, sem Vaglaskóg sækja um
verzlunarmannahelgina.
Dagskrá „almenna bindindis-
mótsins í Vaglaskógi" er þannig,
að klukkan átta á laugardags-
kvöld verður mótið sett, um kl.
10 hefst dansleikur í Brúarlundi
(hljómsveit H.H.), og á miðnætti
verður kveikt í bálkesti og flug-
eldum skotið. Dansað verður til
kl. 3. Á sunnudag er guðsþjón-
Óánægður skatt-
borgari í Kotka
tryllist
Helsingfors, 30. júlí — NTB
ÓÁNÆGÐUR finnskur skatt-
borgari gekk í dag inn á skrif-
stofu skattayfirvaldanna í
Kotka, til að ræða vandræði
sin. Maðurinn var ekki ánægð
ur með, að felldur hefði verið
niður frádráttur vegna barna,
en hann á nú í málaferlum út
af skiptum á búi. Hefur hann
af þeim sökum lent í hærra
skattflokki en áður.
Er í ljós kom, að skatbborg-
arinn og yfirvöldin voru ekki
á einu máli, missti maðurinn
á sér alla stjórn, kastaði sím-
tæki í höfuð eins skattstofu-
starfsmannsins, fleygði síðan
stól í skrifstofustúlku, en að
því loknu gekk hann um skrif
stofurnar, ag braut allt og
bramlaði, m.a. nokkrar reikni-
vélar.
Lögreglan kom á vetbvang
og tók manninn höndum, en
tvo starfsmenn varð að flytja
í sjúkrahús. Gert er ráð fyrir,
að annar þeirra verði um all-
langt skeið rúmfastur, vegna
áverka í baki.
usta klukkan hálfellefu um morg
unin, klukkan hálftvö lagt upp í
ferðalag, kl. 14 hefjast íþróttir,
knattspyrna og handknattleikur
(HSÞ, UMSE, KA Þór), og kl. 8
um kvöldið hefst kvöldvaka í
skóginum. Kl. 10 hefst dansleik-
ur í Brúarlundi, og verður dans-
að til kl. 2. Á mánudegi verður
dvalizt við leiki og íþróttir fram
yfir hádegi, en kl. 14 verður mót-
inu slitið.
Ð
N Einstaklingsferð
Skemmtiferð til
GLASGOW
8 daga ferð — flugferðir
gistingar—morgunverður
frá kr. 5870.00.
ÐroVtför alla daga.
LÖND LEIÐIR
Arfalstrœti 8 si'mar —
FerðaféSk
TJALDSIL
— Ferðafólk
Þornar á einni
klukkustund.
Höfum nú hafið fram-
leiðslu á Silieone þéttiefni.
TJALDSIL ver tjöld, bak-
poka, strigaskó og segl-
dúk, poplin og gerviefni.
Verð kr. 67,00 pr. dós
KÍSILLTt
Lækjargötu 6B.
Sími 1-59-60.
GRIINIDAVÍK
BÓK6ALI ÚSKAST
Bóksalafélag íslands vill ráða mann til að annast umboðssölu
á bókum félagsmanna sinna í Grindavík.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu starfi, sendi umsókn sína til Bók-
salafélags íslands, c/o OUver Steinn, Hafnarfirði.
BÓKSALAFÉLAG ÍSLAIMDS
NÝR
/r
NSU-PRINZ 1000 L
ÁRGERÐ 1965
+ Væntaníeg er til landsins ný og
stærri gerð af hinum vel þekktu
NSU-PRINZ-bilum
+ PRINZ 1000 er sérlega aflmikill
51 hestafl og vegur aðeins
620 kg.
' . . •
+ Vélin er 1000 cc 4-strokka
loftkæld 4-genais vél
+ Aksturseiginleikar PRINZ 1000
eru framúrskarandi
<■ Verð með vanalegum hemlabunaði kr. 142.000.oo
* Verð með diskahemlum kr. J46.500.oo
* Kynnið yður þennan glœsilega fjolskyldubíl, áður
en þér festið kaup á öðrum farkosti
* Orugg varahlutaþjónusta
+ PRINZ 1000 er sérlega
rúmgóður 5 manna bill
FÁLKINN HF. -
Laugavegi 24 — Simi 18670
bifreiðadeild
— Reykjavik