Morgunblaðið - 29.08.1964, Blaðsíða 19
Laugardagur 29. ágúst 1964
MORGUNBLAÐIÐ
19
a
Frú Sigríð'ur Björnsdóttir heilsar dætrum sánum á hafnarbakk-
anum við komuna til Heykjavikur í gær.
hálfti.“
— Skógræktarfélag
Framhald af bls. 13
skýrslu um starfsemi skógræktar
félaganna á árinu. Gat hann
þess, að á þessu ári hefðu skóg-
ræktarfélögin bætt við sig landi
sem er rúmlega 72 hektarar að
stærð, og lengd girðinga sem
nemur 9,2 km.
„Sé miðað við fyrri ár“, sagði
Snorri Sigurðsson, „þá hafa fé-
lögin nokkurn veginn haldið við
í horfinu hvað árlega aukningu á
landi snertir og kostnaður á
hvern hektara lands hefur farið
minnkandi að undanförnu, þrátt
fyrir síhækkandi verðlag á efni og
vinnu. Skýringarinnar á þessu er
að leita í því að lögð hefur verið
áherzla á að girða stærri og sam-
felldari lönd, auk þess sem éldri
girðingar hafa verið stækkaðar.
Er nú svo komið, að allflest fé-
laganna hafa komið sér upp girð-
ingu sem þau geta búið að til
næstu ára".
Þá sagði Snorri Sigurðsson, að
á árinu hefðu skógræktarfélögin
greitt til uppsetningár og við-
halds girðingum tæplega 150 þús-
und krónur. Vinna sjálfboðaliða
við uppsetningu girðinga væri nú
hverfandi lítil, en til girðingavið-
halds lögðu sjálfboðaliðar fram
rösk hundrað dagsverk, sem er í
minna lagi sé miðað við fyrri ár“.
„Að lokum skal þess getið“,
sagði erindrekinn, „að á árinu
fólu borgaryfirvöldin í Reykja-
vík Skógræktarfélagi Reykja-
víkur umráð yfir jörðinni Elhða-
vatni, en sú jörð liggur að Heið-
mörk. Með þessu bætist við land
Heiðmerkur töluvert land, auk
þess sem þetta bætir allar að-
stæður félagsins við starfið í
Heiðmörk. Á sl. ári gróðursettu
skágræktarfélögin 552 þús. trji-
plöntur, eða 190 þús. plöntum
minna en árið áður. Þrátt fyrir
þennan samdrátt í gróðursetningu
er þetta að plöntumagni röskur
helmingur þeirra plantna, sem af
greiddur var úr gróðrarstöð skóg-
ræktarfélaganna á stöðum Skóg-
ræktar ríkisins á árinu og hefur
þetta hlutfall haldizt nokkum
veginn óbreytt undanfarin ár.
Meginorsök þessa samdráttar í
gróðursetningu á sl. ári er sú, að
mjög dró úr framleiðslu gróðrar-
stöðvanna á Suður- og Suðvest-
urlandi sakir þess hversu plönt-
umar fóru illa í kuldakastinu í
byrjun aprílmánaðar. Auk þess
var lítið tii í stöðvunum a( öðr-
um tegundum, sem gátu komið í
stað sitkagrenisins, t.d. var mikill
hörgull á birki og furu‘\
Snorri Sigurðsson gat þess und
ir lok ræðu sinnar, að ef litið
væri á framlög skógræktarinnar,
sem hann hafði áður nefnt, léti
nærri að félagið hafi lagt af
mörkum fé er tilsvari röskum
5200 dagsverkum árið 1963, að
viðbættum tæpum 940 dagsverk-
um, sem unnin voru af sjálfboða-
liðum. Tilsvarandi tölur fyrir ár-
ið 1962 væru 770 dagsverk á móti
1490 dagsverkum sem unnin voru
af sjálfboðaliðum. „Þessar tölur
gæfu til kynna“, sagði Snorri Sig
urðsson, „að sjálfboðaliðum við
skógræktarstörf fækkaði öðum,
skógræktarstörf fækkaði óðum,
hann síðan um nauðsyn þess að
Stofna vinnuflokka, sem ferðuð-
ust á milli félaganna til þess að
létta þeim störfin, samkvæmt til-
lögu fyrri aðalfunda félagsins.
Að lokinni skýrslu Snorra Sig-
urðssonar las Einar E. Sæmund-
sen, gjaldkeri Skógræktarfélags
íslands, reikninga þess og gerði
grein fyrir fjárreiðum þess og
landgræðslusjóðs. Voru reikning-
arnir síðan samþykktir með sam-
hljóða atkvæðum.
Þá var kosið í nefndir, en síðan
voru lagðar fram tillögur, sem
stjórn Skógræktarfélagsins ber
fram á fundinum. Skrifaði Hákon
Guðmundsson, formaður Skóg-
ræktarfélagsins, tillögurnar. En
síðan var fundi frestað og siðari
hluta dags var farin kynnisför í
Haukadal. Var gengið um Aust-
mannabrekku í Haukadalshlíðum
og þar flutti Hákon Bjarnason,
skógræktarstjóri, erindi um sögu
Haukadals.
Um kvöldið kl. 7 var kvöld-
—Forsætisráðherra
Frahald af bls. 1
bergi brotnir. Harni minntist á
að um 200 manns hefðu verið
saman komnir í Edmonton, er
hann hefði verið þar, og sumir
langt að korrmir. í Klettafjöilum
kvaðst hann hafa gist hjá systur-
syni Kjarvals, sem þar byggi.
Um kvöldið hefði verið haldið
samkvæmi þar, og hefðu þar ver-
ið 50—60 manns, annað hvort af
íslenzku bergi brotið eða gift inn
í Islenzkar fjöLskyldur. Þetta
fólk hefði ferðast alit að 200
kílómetrum til þess að geta verið
þarna þessa kvöldstutid.
FI e s t Vestur-Islendinganna
kvað forsætisráðherra vera fólk
komið a£ íslendingum, sem flutt-
ust vestur um haf á áruraum 1870
til 1880 og til aldamóta. Þeir
þekktu landið litið, nema þá af
afspum, og þá raunar allt annað
ísland en nú væri. Við Kyrrahaf-
ið kvaðst hann þó hafa hitt
rtokkra unga menn, sem tiltölu-
lega nýlega hefðu flutzt vestur,
ig staðið sig þar mjög vel. AHur
þorri fólksins hefðí þó verið
vestra í 2—3 kynslóðir, og það
mæti mjög mikits tengsl sín við
ísland.
„Þó mér hafi persónulega ver-
ið tekið mjög vel, hvar sem ég
fór“, sagði forsætisráðherra, „vil
ég taka það fram, að mér var
fyrst og fremst fagnað sem full-
trúa þjóðarinnar. Ég get ekki á
stuttum fundi gert fulla grein
fyrir ferðalaginu öllu, þótt ég
muni e. t. v. gera það síðar, en
mér finnst staða íslendinga vest-
anhafs og það álit sem þessi fá-
menni hópur hefur aflað sér þar,
svo merkileg, að á því væri vert
að vekja athygli. Það er mikils
vert fyrir land okkar að eiga
þarna svo marga trygga vini,
marga hverja í trúnaðarstöðum.
Þetta er akur ,sem við eigum að
plægja, en láta ekk[ falia í ó-
rækt. En við verðum einnig að
láta Ves'tur-íslendinga verða vara
við áhuga og velvild af okkar
verður við Geysi og var komið
heim að Laugarvatni aftur um
kl. 9 í gærkvöldi.
í dag heldur fundinum áfram.
Hefst hann kl. 10,30 með erindi,
sem Ingi Þorsteinsson flytur. Þá
verða almennar umræður, síðari
hluta dags verður framhald fund-
arins og um kvöldið kvöldvaka.
Á sunnudag mun fundinum síðan
ljúka. Er gert ráð fyrir að stjórn-
arkosning fari fram á sunnudags-
morgun og fundinum verði slitið
um hádegi.
Fulltrúar frá öllum skógrækt-
arfélögum landsins sækja fund-
inn, auk allmargra gesta, og er
hann allfjöimennur.
Þá gat forsætisráðherra þess,
að sér hefði, sem fulltrúa lands
og þjóðar, verið mikil virðing
sýnd af kanadískum stjómvöld-
uib, og einnig bandarískum.
Hann kvað heimsókn sína til
Washington. hafa verið óform-
lega. Hann hefði átt leið um
landið, og hefði verið boðinn til
Washington í sambandi við það.
Kvað dr. Bjarni þetta órekan
vott virðingar af hálfu Banda-
ríkjanna fyrir landi og þjóð.
Hann kvaðst og vilja geta þess,
að auk þess, sem Loftleiðir hefðu
boðið þeim hjónum ferðina vest-
ur um haf, hefði félagið einnig
boðið þeim allar flugferðir innan
Kanada og Bandaríkjanna.
Forsætisráðherra var spurður
um heimsókn hatis í Hvíta húsið.
Hann sagði að þeir Johnson for-
seti hefðu spjallað um daginn og
veginn, en engin vandamál borið
á góina, enda hefði ferðin ekki
verið farin til þess. Hinsvegar
hefði Dean Rusk svarað öllum
spurningum sínum varðandi á-
atandið í alþjóðamálum í hádegis
verðarboði bandaríska utanrikis-
ráðherrans.
Þá sagði forsætisráðherra:
„Það er ótrúlegt, hvað ég hitti
marga menn vestra, sem komið
höfðu til íslands. Er Johnson for-
seti heilsaði fólkinu fyrir utan
hliðið á Hvíta húsinu, þá var þar
fyrir miðju maður, sem kvaðst
hafa verið í tvö eða þrjú ár á ís-
landi á stríðsárumum, og lét vel
yfir dvölinni“.
Loks gat forsætisráðherra þess,
að Grettir Jóhannsson, ræðismað
ur, og kona hans hefði fylgt þeim
hjónum á ferðalaginu í Kanada,
og lagt á sig mikið erfiði við
fyrirgreiðslu. „Ég get ekki nóg-
samlega rómáð viðtökur allar
vestanhafs,“ sagði forsætisráð-
herra að Iokum. „Svo margir
lögðu sig fram við að gera ferð
okkar sem ánægijulegasta að þeir
verða ekki upp taldir, né heldur
himir, sem báðu fyrir kveðjur og
góðar óskir hingað heim“.
— Bókasafnið
Framh. af bls. 2
kunna í enskri tungu, geta fund
ið þar efni til fróðleiks og
skemmtunar. En safnið getur
einnig orðið þeim að hði, sem
vilja nema enska tungu eða rifja
upp, því að það á margar kennslu
bækur, einnig nokkuð af bókucn
á léttu máli, auk góðs úrvals
bóka við hæfi barna og uniglinga.
Allt útlán er endurgjaldslaust.
Áætlað er að efna til tónlistar-
kvölda í safninu í vetur fyrir
ungt fólk. Verða kynnt banda-
rísk þjóðlög og ef til vill jazz.
AðaLbókavörður er Kristín Pét-
ursdóttir.
„Nimhus" tekur
skýjamyndir
San Fransisco, 28. ág. NTB
0 í dag var skotiS á loft frá
Vandenberig-flugstöðinni í
Kaliforníu gerfibnettinum
„Nimbus', sem samkvæmt
áætlun á aS sjá 59 stöSvnm
á jörSu niðri, í 21 landi fyrir
myndum af skýjalögum um-
hverfis jörðu og afla jafn-
framt upplýsinga um hitastig
í skýjalögunum. Er gerfi-
hnöttur þessi mikilvægasti
veðurathugunarhnöttur, sem
bandarískir visindamenn hafa
sent á loft.
„Nina>bus“ er búinn þrem
sjónvarpsvélum, er eiiga að
geta sent til jarðar 1200 skýja
myndir á degi hverjum —
auk þess sem fullkomin ljós-
myndunarkerfi eru í hnett-
inum. Er gert ráð fyrir, að
stöðvum á jörðu niðri
berist um tvö þúsund
myndir frá „Nim'bus“ á degí
hverjum meðan hann helzt á
braut. Samkvæmt síðustu
fregnum komst „Nimbus“ vel
á braut — að vísu er hún
ekki hringlaga, eins og ætlast
var, heldur sporbaugur en
það á entgin áhrif að hafa á
myndatökurnar, að sögn vis-
indamanna.
— Kýpur
Framhald aí bls. 1.
arinnar. Stóð til að herflutningar
þessir færu fram um þjóðveginn
milli Nicosiu og Kyrenia og til-
kynnti Makarios þá, að hann
mundi gefa fyrirskipun um beit-
ingu vopnavalds ef af þeim yrði.
Tyrklandsstjórn gæti kallað
menn sína heim frá Kýpur — en
öðrum yrði ekki hleypt í þeirra
stað til landsins.
Makarios í Egyptafandi
Makarios, forseti er raú farinn
til Egyptalands. Ræðir hann um
helgina við Nasser, íorseta, í
Alexandríu.
Haft er eftir áreiðanl agum
heimildum, að viðraeðurnar muni
fyrst og fretnst snúast um stjórn
málalega blið Kýpurdeilunnar,
þótt eftaust muni einnig drepið
i hernaðarlega aðstoð við Kýpur
stjóm.
Blaðið „Journal Americain" í
New York skrifar í dag um
þessa Egyptalandsför Makariosar
að hún geti haift viðtaekar og ai-
varlegar afleiðinga.r. íhlutun
Egyptalarads í Kýpurdeiluna geti
orðið tii þess, að ástandíS fyrir
botni Miðjarðarhafs versni veru-
lega. Tyrklandsstjórn muni án
efa líta íhlutun Nassers mjög
alvarlegum augum og ísraels-
menn, sem fylgist gjörla með
iþví sem fram fer, muni einnig
vera vel á verði.
Mótmæla afstöðn USA
í Ankara, þar sem afstaða
Bandaríkjanna í Kýpurdeilunni,
hefur valdið miklum vonbrigð-
um, kom til mótmælaaðgerða í
dag. Þúsundir manna, flest stúd-
entar, einnig almennir borgarar
og jafnvel einkennisklæddir her-
menn, fóru hópgöngu að banda-
ríska sendiráðinu undir tyrknesk
um fánum og spjöldum, þar sem
á stóð: „Burt með Bandaríkja-
menn“, „Við héldum þið væruð
vinir okkar, en þið eruð óvinir
okkar“, „Johnson er svikull vin-
ur“ o. s. frv. Ekki voru nein
spjöll unnin á sendiráðsbygging-
unni.
Hinsvegar lét fólkið öllu ófrið-
legar við sendiráð Grikklands,
lét grjóthríð dynja á húsinu og
braut rúður. Til nokkurs handa-
lögmáls kom í þessum mótmæla-
aðgerðum, áður en lögreglu tókst
að dreifa mannfjöldanum.
Utanríkisráðherra Grikklands,
Stavros Kostopoulos, hefur sent
tyrkneska utanríkisráðuneytinu
mótmæli vegna atburðanna við
sendiráðið. Segir þar meðal ann-
ars, að gríska lögreglan hafi feng
ið fyrirskipun um að verja tyrk-
neska sendiráðið í Aþenu
skemmdum og hafi þess verið
vænzt, að tyrkneska stjórnin við-
hefði sams konar varúðarráðstaf-
anir. Af hálfu tyrknesku stjórn-
arinnar hafa atburðir þessir ver-
ið harmaðir og fram boðnar
skaðabætur fyrir spjöll þau, er
á húsum voru unnin.
Gizenga stolnor
nýjnn flokk
Leopoldville 28. ágúst
AP—NTB
ANTOINE Gizenga, sem eitt
sinn var nánasti samstarfsmað-
ur Patrice Lumumba, sem myrt-
ur var, titkynnti í dag, að hann
hef#i stofnað nýjan stjórnmála-
flokk. Kallaði hann flokk þennan
.einingairftokk stuðningsmanna
l,umumba“.
Gizenga, sem er mikill vinstri
sinni hefur dvalizt í Leopold-
vilte frá því Moise Tshombe for-
sætisráðherra gekkst fyrir því,
að hann var látinn laus 17. júlí
sl. HafSi hann þá verið fangi á
eyju einni í Kongófljóti í háift
þriðja ár.
Á fundi með fréttamönnum í
dag skýrði Gizenga svo frá, að
hinn nýji flokkur mundi ná til
allra kongóskra þjóðernissinna,
er berðust fyrir því, að landið
yrði Iaust undan íhlutun ný-
lenduvelda og heimsveldasinna.
Réðist hann í því sambandi
harkalega á stjórnir Bandaríkj-
anna og Belgíu og sakaði þær
ura hernaðaríhlutun í Kongó.
Einnig réðist hann á Tshombe og
sagði hann daufheyrast við öil-
um tillögum um það, hvernig
binda mætti enda á vandræði
landsbúa — og fordæmdi þá
hörku sem stjórnin beitti upp-
reisnarmenn.
Samkvæmt fregnum AFP-
fréttastofunnar hefur Gizenga
tekið til bragðs að stofna nýjan
fiokk sökum þess, að hann hefui
ekki náð hylli flokksmanma
'þjóðernisflokksins, sem Lum-
umba sjálfur stofnaði og er
stærsti vinstri flokkur landsins.
— Saigon
Framhald af bls. 1.
í bifreiðum, reið- og mótorhj64-
um og hvarvetna, mátti sjá fólk
á harðahlaupum á flótta undan
hermönnum og lögreglu.
Óeirðir þessar hófust þegar í
morgun, er stór hópur uragmenna
og stúdenta Búddatrúar söfnuð-
ust saman á aðaltwrginu vopnaðir
öxum, járnstöngum, stöfum, lurk
um og fleiri álíka vopnum. Ka-
þól'skur piltur féll fyrir axar-
höggi eins Búddatrúarmannsins
og var þá ekki lengi að bíða þess,
að kaþólskir hefndu hans. í
fyrstu reyradu óvopnaðir lögreglu
verðir að skerast í leikinn en
þeir fengu ekki við neitt ráðíð og
geisuðu blóðugir bardagar um
borgina í allan dag.
Þriggja marma ráðið beindi
þeim tiimæium til borgarbúa að
stilla til friðar og sama gerðu
Ieiðtogar beggja Búddatrúar-
manna og Kaþólskra — en til-
niælum þessum var í engu hlýtt,
Síðdegis gaf menntamálaráðu-
neytið fyrirskipun um, að öllum
skólum borgarinnar skuli iotkað
um óékveðinn tíma.