Morgunblaðið - 04.09.1964, Page 2

Morgunblaðið - 04.09.1964, Page 2
MORG UN BLA&IIÐ Föstudagur 4. sept. 1964 Árás á mann í Stórholti miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiir- í FYRRAKVÖLD klukkan rúm- lega 11 var gerð skipulögð árás á mann í Stórholtinu. Voru þar tveir piltar að verki og hugðust þeir ræna af manninum, Hall- dóri Jóhannssyni, Stórholti 30, peningatösku, sem hann hafði með sér heim úr vinnu, en hann starfar við benzinafgreiðslu hjá vörubílastöðinni Þrótti. Sátu pilt arnir fyrir Halldóri í Stórholt- inu, og réðust á hann, ,en í stað peningatöskunnar, sem þeir hugð ust ræna, höfðu þeir á brott með sér innkaupatösiku með kaffi- brúsa og matarbita, sem Halldór hafði einnig meðferðis. jEr Halldór kærði þessa árás til rannsáknarlögreglunnax, akýrði hann svo frá, að í fyrra- kvöld hefði hann ætlað að aka heim frá benzínafgreiðslunni um ellefu-leytið. Þegar hann hafði ekið stuttan spöl, varð hann þess var, að einn hjólbarðinn var næst um vindlaus. Lagði Halldór því bílnum og fór af stað fótgang- andi heim á leið með töskurnar tvær. f Stórholtjnu veitti hann athygli pilti í ijósmóleitri, stuttri kuldaúlpu, og fylgdi sá Halldóri eftir. Á móts við Stórholtsbúð- ina kom annar piltur fram úr húsasundi og gekk í áttina að Halldóri og gaf hinum í kulda- úlpunni merki. Réðist hann þá að Halldóri og sló hann undir hökuna, þreif innkaupatöskuna um leið úr hægri hendi Halldórs og hljóp á brott, en Halldór hélt peningatöskunni eftir í handar- krikanum. Veitti hann ræningj- anum eftirför, en missti af hon- um. Hinn pilturinn hvarf aftur inn í húsasundið. Þegar þilturinn hafði slegið Halldór, ók bíll um Stórholtið og veifaði Halldór til han,s, en bíllinn var ekki stöðvaður. í peningatöskunni munu ha.fa verið 15—20 þús. krónur, en í innkaupatöskunni, sem ræning- inn hafði á brott með sér, voru kaffibrúsi, matarbiti og silfur- skeið merkt H.J. Hefur lögreglunni enn ekki tekizt að finna árásarmennina. Illlllllllllillllllllllllllllllllllllllilllllllillllllllllllllllllllll „sem aldrei hefur birzt á prenti“. Ræðunni fylgdi hann úr hlaði með handskrifuðum en fjölrituðum bréfum. Þá var það sem skrattinn fór á stúf- ana. Steinbeck sagði í bréfi sínu til Izvestia, að hánn hefði leit að til félagaskrár Rithöfunda- sambands Sovétríkjanna, sem stóð að heimsókn Steinbecks til Sovétrikjanna, um nöfn fjölda manna sem hann hefði kynnzt austur þar en ekki munað lengur hvað hétu. Ófyrirsjáanleg afleiðing þessarar kurteisisskrifa Stein- becks var 9Ú, að sérhver so- vézkur rithöfundur, sem fékk einta'k af ræðunni góðu og bréfinu sem henni fylgdi, virt Fundir heimssambands> ins héldu áfram í gær STJÓRNARFUNDUR lút- herska heimssambandsins hélt áfram í gær að Hótel Sögu, og voru ýmis mál til umræðu á fundunum bæði fyrir og eftir hádegi, svo sem útvarpsstöðin í Addis Abeba. Á fundinum var dr. Franklin Clark Fry kjörinn formaður Fjársvika- mál enn FASTEIGNASALI einn í Reykjavík hefur orðið uppvís að fjársvikum, og hefur sak- sóknari ríkisins mál hans nú til afgreiðslu. Mu* málið vænt- anlega ganga til sakadóms til meðferðar á næstunni. Málavextir eru þeir, að fast- éignasalinn hafði með höndum tvö skuldabréf að upphæð 660 þús. kr. Af þessu var búið að greiða vexti og afborganir að upphæð 90 þús. kr., sem við- komandi maður hafði ekki stað- ið skil á. Við rannsókn kom í ljós að fasteignasalinn hafði sett bréfin sem handverð fyrir tveimur víxilskuldum að upp- hæð samtals 310 þús. kr., og heimilað eiganda víxlanna að ef þeir yrðu ekki gzeiddir á gjald- daga í byrjun júní, mætti hahn selja skuldabréfin til lúkningar skuldunum. Fasteignasalinn greiddi ekki víxlana, en eigandinn gerði út- gefandanum aðvart um að sala bréfanna væri á nœstu grösum. Komst þá upp um svikin. NMiHHiMiiiniiHmiiiitiiiiiHiiiiiiimiitMiiiimimiiimH 1 Tuomioja !il j i Heisinki — I = Helsinki, 3. september | AP, NTB 1 SÁTTASEMJARI Sþ í Kýpur [ | deilunni, Finninn Sakari ; i Tuomioja, var í dag fluttur | = f ugleiðis frá Genf til Hels- : _ inki í einkaflugvél. Engin \ E ástæða var gefin fyrir heim- \ E flutningi Tuomioja, sem enn = | er alvarlega veikur, en hann ; I fékk heilablóðfall svo sem i i kunnugt er, 16. ágúst, fáum i i klukkustundum áður en i i hann sky.di leggja upp í sátta j i ferð til Aþenu, Ankara og j E Nicosíu. E Með Tuomioja var kona i E hans og dóttir og persónuleg- ; | ur aðstoðarmaður, svissneski | læknirinn sem stundað hefur | sáttasemjarann í veikindum i hans, yfirhjúkrunarkonan við i sjúkrahúsið í Genf og finnsk i hjúkrunarkona. útvarpsráðs lútherska heims- sambandsins í stað dr. Schi- toz. Þá var samþykkt að stofna sérstaka stofnun, sem annast skal aðstoð við hinar ýmsu kirkjur í sambandi við útvegun sjálfboðaliða og starfsmanna til stuttrar þjón ustu. í gærkjvöldi var síðan hald in samkoma'í Þjóðleikhúsinu og voru aðalræðumenn Mani- kan frá Indlandi og dr. Sig- urd Aske, útvarpsstjóri 1 Addis Ábeba. Biskup íslands flutti ávarpsorð og dr. Schi- otz og dr. Sohmidt-Clausen skýrði tilgang og starfsemi heimssambandsins. Þá söng Sigurður Björnsson, óperu- söngvari og ennfremur Poiý- fónkórinn. Að loknum fundum í dag verða fluttar kvöldbænir í Hallgrímskirkju af Bo Giertz, biskup í Gautaborg. Adsjubei límir aftur „eggið” Steinbecks Izvestia leiðréttir misskilning sprottinn af kurteisisskriíum rithöfundarins í NEW YORK TIMES í fyrra- dag segir frá því, að málgagn sovézku ríkisstjórnarinnar Iz- vestia, lagði sig í líma við það daginn áður, að leiðrétta mis- skilning þann, sem bandaríski rithöfundurinn og Nóbelsverð launahafinn John Steinbeok varð óvart valdur að. Birti blaðið langt bréf frá Steinbeck, þar sem hann biðst afsökunar á því sem hann kall ar „óskaplegan misskilning", sem hann hafi orðið valdur að eftir heimkomuna úr ferð sinni til Sovétríkjanna í fyrra haust. Sagði Steinbeck, að eftir heimkomuna hefði sig langað til þess að þakka í einhverju rithöfundunum, sem haft hefðu allan veg og vanda af heimsókninni og hefðu „öpnað hjörtu sín“ fyrir honum. En hann kvað sér hafa verið það fullljóst, að ætti hann að þakka hverjum og einum ein- stökum, myndi það „taka æv- ina alla“ og seinka kjörinni vinnu hans að sama skapi. Stokkhólmsræðan. Hann tók því það til bragðs að senda gestgjöfum sínum og öðrum kunningjum eystra ein tak af ræðu þeirri, er hann flutti í Stokkhólmi 10. des. 1962, þegar hann tók við Nóbelsverðlaununum. Stein- beck sagði um ræðu þessa, að hún væri „eina ræðan sem ég hef flutt um ævina“ og skjal ist ganga að því sem vísu, að g hann væri sá eini sem Stein- 3 beck hefði viljað sýna slíka = vinsemd. „Fjöldinn allur fór = með þetta beint í aðaldag- = , blaðið í heimabæ sínum og 3 báðu um að bréfið yrði birt“ 3 sagði Steinbeck, og bætti við 3 að þar hefðu þá einatt verið 3 komnir kollegar þéirra sömu 3 erinda, með sama bréfið í fór 3 um sínum og sömu ræðuna = — þá sem Steinbeck flutti í 3 Stokkhólmi við afhendingu 3 Nóbelsverðlaunanna í desem- 3 ber 1962. „Og það var ekki = nóg með það,“ sagði Stein- 3 beck, „heldur lenti þessi smá- 3 gjöf mín líka hjá fólki sem ég 3 hafði aldrei augum litið.“ Eins og eggjaskurn. „Orðsending min og ágætar 3 fyrirætlanir fóru í þúsund 3 Framh. á bls. 21 = iiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiimiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiimiiiniiKr iiiimiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiijiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiimiiiim Nokkrar verzlanir fá leyfi fil kvöldsölu frá borgarstjómarfuncl- inurn 1 gær Á borgarstjórnarfundinum í gær var samþykkt ákvörðun borgarráðs um að veita nokkrum vcrzlunum í borginni leyfi til þess að hafa opið til kl. 10 e.h. skv. bráðabirgðaákvæði, sem samþykkt var í vetur, þegar fja.ll að var um afgreiðslutíma söiu- búða. Þessi leyfi eru veitt sam- kvæmt umsókn viðkomandi kaup manna og var samþykkt í borgar ráði með 4 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðismanna og Framsókn- armanna gegn 1 atkv. Kommún ista. í borgarstjórn voru leyfin staðfest með 11 atkvæðum Sjálf- stæðisflokksins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins gegn 4 atkv. kommúnista og Sigurður Magnússonar. Verzlanirnar, sem fengið hafa kvöldsöluleyfi eru þessar: Hlíð- arkjör, Kambskjör, Matvörumið- 1715 tunnur til Akruness AKRANESI, 3. sept. — í nótt fengu sex bátar héðan 1715 tunnur síldar. Skírnir fékk 325 tunnur, Haraldur 280, Sigrún 260, Höfrungur III. 90, Anna hafði 450 tunnur og Sigurður 400. Þeir tveir síðasttöldu lönd- uðu í Reykjavík. Höfrungur II. fór í gær síðdegis á síld norð- ur eða austur. — Oddur stöðin, Jónskjör, Borgarkjör, Nesbúðin og verzlarnirnar Árni Einarsson, Kjöt og fiskur, Örn- ólfur og verzlunin Grundarstíg 2A. Ennfremur Kjalafell, Lög- berg, Hlíðakjör og Grensáskjör. Ekki er Ijóst hvort allar þess- ar verzlanir munu telja sig geta notað leyfið vegria samninga kaupmannasamtakanna við verzl unarfólk í Reykjavík, en þar er gert ráð fyrir því, að sölubúðum sé lokað eigi síðar en kl. 6 e.h. Um veitingu leyfa þessara urðu nokkrar Umræður í borgarstjórn. Sigurður Magnússon óskaði bók- unar á því áliti sínu, að leyfin mismunuðu verzlunum, vegna þess að yfirgnæfandi meirihluti verzlana treysti sér ekki til þess að hafa opið vegna samningana við Verzlunarmannafélag Reykja víkur. Þá ætti borgarstjórn ekki að stuðla að því, að einstakir kaupmenn gangi á samningana við verzlunarfólk um lokunar- tíma. Böðvar Pétursson, varafulltrúi kommúnista, tók mjög í sama streng. Væri varasamt að stuðla að því, að kaupmenn gangi á samningana við verzlunarfólk. Birgir Isl. Gunnarsson minnti á ýtarlegar umræður um þessi efni í vetur, þegar fjallað var um lokunartíma sölubúða, væri ekki ástæða til þess nú að end- urtaka það, þegar verið er að fjalla um þetta mál nu í sam- ræmi við fyrri samþykkt borgar- stjórnar og staðfestingu ráðu- neytis. Birgir mótmælti þeim fullyrð- ingum, að verið væri að etja saman kaupmönnum og verzlun- arfólki. Það væri óraunhæft að ætla, að samþykktir borgarstjórn ar og borgarráðs séu ávallt í sam ræmi við einstaka kjarasamn- inga eða samninga milli einstakl- inga. Borgarstjórnin sé stjórn- vald, sem verði að taka ákvarð- anir í samræmi við hlutverk sitt og kvaðst Birgir vona, að leyfin af hálfu borgarstjórnar verði að- ilum hvatning um að ná sam- komulagi um kaup og kjör vegna hinnar heimiluðu kvöldsölu. Guðjón Sigurðsson undraðist hótanir Böðvars f.h. verzlunar- fólks og efaðist um umboð hans. Það væri nauðsyn borgarbúa, að verzlanir væru opnar að kvöfdi til. Afstaða þeirra, sem stæðu gegn því væri óraunhæf og stríði gegn velferð borgarbúa. Kviknuði í heyi í Breiðdulshreppi BREIÐDALSVÍK, 3. sept. — í gærdag kviknaði í stórri hlöðu 1 Feilsási í Breiðdalshreppi. Bónd- inn þar, Er-endur Björgvinsson, telur, að um 700—800 hestar af heyi hafi verið komið í hlöðuna og allt að 100 hestar eyðilagzt við brunann. Hús skemmdust ekki. Heyið var ekki vátryggt gegn sjálfsíkveikju, svo að tjón er mikið. — Fréttaritari. Þr jár togara- sölur ÞRIR togarar seldu í Þýzkalandi s.l. miðvikudag. Hallveig Fróða dóttir seldi í Cuxhaven 116 tonn fyrir 70.800 mörk, Karlsefni seldi í Bremerhaven 118 tonn fyrir 78.000 mörk og Þormóður goði seldi í Kiel 121 tonn fyrir 80,011 mörk. Afli togaranna var aí heimamiðum, fyrir SA-landi. Þoka á miðunum TÍU skip höfðu tilkynnt síldar- leitinni á Raufarhöfn um afla sem veiðzt hafði í gærdag á mið- unum 56—100 mílur út af Lang* nesi. Var þar þoka í gær, ea logn. Veiddist síldin einkum er degi tók að halla. Þessi skip til« kynntu Raufarhöfn um afla: Skipaskagi 400 tunnur, Árni Magnússon 1800, Guðrún 1800 mál, Sigurður Bjarnason 1500, Ólafur Bekkur 1200, Ólafur Frið- bertsson 1100, Sæþór 900, Sigl- firðingur 2000, Gjafar 1600, Loft- ur Baldvinsson 1600 og Húni 700. Þá var einnig nokkur veiði ASA af Dalatanga. Seint í gær- kvöld voru þar nokkrir bátar í svartaþoku. Síldarleitinni á Dalatanga var kunnugt um afla þriggja skipa: Björg NK til- kynnti 950 tunnur, Seley 1400, Einar Hálfdáns 700 og Bergur 1900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.