Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 12
12 MOKGUNBLAÐIÐ Föstudagur 4. sept. 1964 Athugasemd ÚT AF yfirlýsingu, sem Ágúst Sigurðsson og kona hans hafa sett nöfn sín undir, og birt er í Morgunblaðinu 1. þ.m., vil ég taka þetta fram: Ég tel óþarft að svara þeim sökum, sem á mig og nokkra aðra menn eru bornar í þessu dæmalausa plaggi. Ég hefi áð- ur gert opinberlega grein fyrir afskiptum mínum af máli Ágústs Sígurðssonar. Auk þess er yfir- lýsingin þann veg úr garði gerð, að allflestir lesendur blaðsins munu geta áttað sig hjálparlaust á sannleiksgildi hennar. í>að öm- urlegasta við yfirlýsinguna er það, að líklega kemur hún -hart niður á hjónunum þannig, að þau verði fyrir of hörðum og ómaklegum dómum. Áður en ég hét Ágústi Sig- urðssyni aðstoð við að ná rétti sínum, reyndi ég af fremsta megni að grafast fyrir um trú- verðugleik hans og lofaði hon- um engri hjálp, fyrr en ég hafði uppgötvað, að hann hafði, með aðstoð löggilts endurskoðanda, talið afföllin til Jóhannesar Lár- ussonar fram til frádráttar á tekjum, á skattframtölum sínum árin 1962 og 1963 og að skatt- stofan og niðurjöfnunarnefnd höfðu tekið afföllin til greina bæði árin. Af viðtölum mínum við Ágúst Sigurðsson. bæði fyrr og síðar, sannfærðist ég um, að hann væri í eðli sínu sannsögull og heiðarlegur maður — og ég er enn ekki í neinum vafa um þetta. Hið sama hygg ég að megi segja um konu hans, þótt ég þekki hana minna. Það hefur því að minni hyggju þurft meira en lítið til að fá þau til að und- irrita fyrrnefnda yfirlýsingu. — Og allir skyldu, að órannsökuðu máli, varast að vera dómharðir í þeirra garð. Þau munu hafa orðið að heyja harða lífsbaráttu og komizt í mikla fjárhagsörð- ugleika, vegna örlagaríkra við- skipta við menn, sem ekki var á þeirra færi að sjá við. Slík óhöpp eru þungbær, ekki sízt fyrir þá, sem eru heiðarlegir og hrekk- lausir og taka sér nærri að geta ekki staðið skil á skuldum sín- um. Reykjavík, 2. sept. 1964. Páll Magnússon. Júníus Kr. Jónsson Rútsstöðum Fæddur 8. júní 1880. Dáinn 7. ágúst 1964. ÞAÐ var að haustlagi árið 1933, ég man það svo glöggt enn, móð- ir mín hafði ákveðið að notast við okkur yngstu bræðurna til að sækja mó, hin nýja öld raf- magns og þæginda hafði ekki enn haldið innreið sína á íslandi og allra sízt út í sveitunum, og mór- inn var enn það efni er vel dugði til þess að hita ketilinn og sjóða mat í eldhúsi, svo sem óþarft er að lýsa hánar. Það þarf svo ekki langa sögu af því, stærri bróðir var ekill- inn, við mamma farþegamir og mórinn var sekkjaður og haldið aftur heimleiðis en brautin lá fram hjá bænum Rútsstöðum og móðir okkar átti þar kunningja- konu, húsfreyjuna Jóhönnu Jóns- dóttur. Hún var búin að ákveða að nota nú tækifærið og koma við hjá henni hverju við bræð- urnir vorum afar spenntir fyr- ir. Kannski fengjum við kaffi og sætar kökur. Og það brást heldur ekki. Meira að segja súkkulaði og heitar pönnukök- ur. Ég held að mér hafi aldrei þótt eins gott súkkulaði á ævi minni eins og þarna hjá Jóhönnu á Rútsstöðum. En ég man líka að þegar við nálguðumst bæinn, þá kom kotroskinn maður fyrir fjóshornið og reykti pípu sína. Það var húsbóndinn á bænum, Júníus Kr. Jónsson. Ósköp gekk hann hart, eða hvað rauk úr píp- unni. Þetta hafði ég aldrei séð áður og glápti eins og naut á nývirki. En hví er ég að rifja þetta upp? Það er vegna þess að þetta var það fyrsta sem ég man eftir Júníusi á Rútsstöðum. Hann var þá á góðum aldri og sikvikur við hin og önnur verk heima og að heiman. Nú er hann látinn, fluttur yfir landamæri lífs og dauða og enginn verður fram- ar aðnjótandi hans lifandi minn- is um eitt og annað, né heldur gamanyrða og gáska hverju hann var ríkari af en flestir aðrir sam- tíðarmenn. Engan vandalausan hefi ég átt að einlægari vin held- ur en Júníus á Rútsstöðum, því það er sannleikur, að vinátta mín og hans varð meiri heldur en aðdáun á súkkulaði og sætum kökum, sem smökkuðust vel í munni níu ára drengs. Drengur- inn óx úr grasi og þurfti margt að skipta við þennan nágranna, bæði í föðurgarði og sem hús- bóndi á föðurleifðinni. Öll þau viðskipti voru góð og eftirminni- leg og fullkomlega virðuleg af hendi hins látna vinar míns. Ég þykist því mega með nokkr- um rétti biðja Morgunblaðið fyr- ir fáein minningarorð, enda þótt að ég hafi eigi fyrr lagt í að rita þess háttar, en það er sahn- arlega gjört í vissu þess að Júní- us fyrirgaf mér svo margt, þótt að augljóst væri að betur mætti gjöra, meðan hann var og hét og dæmdi um verk mín. Júníus var fæddur í Fjalli á Skeiðum 8. júní 1880. Foreldr- ar hans voru Jón Ólafsson í Fjalli og Helga Eiríksdóttir frá Litlu-Reykjum. Honum varð ekki auðið að njóta umönnunar foreldra sinna en var fluttur fárra vikna að Helgastöðum í Biskups- tungum þar sem hann ólst upp hjá ástríkum fósturforeldrum, Kristínu Árnadóttur og Eiríki Jó- hannssyni. Á Helgastöðum átti Júníus litrika og eftirminnilega bernsku og æskudaga þar sem saman fór gott viðmót og viður- gjörningur húsbóndans og mikil vinna og að því er hann oft sjálf- ur minntist, mikið félagslíf heim- ilisfólksins, en þar var að jafn- aði margt í heimili. Hann lofaði lengst af líf og starf sitt á Helgastöðum og taldi sig þar hafa fengið andlega og líkamlega þjálfun við þau störf er honum voru þar falin eftir að hann óx úr grasi. En þar voru smalamennskurnar stór þátt ur en þær voru í þann tíð í miklu fjallendi, 'ekkert gaman- mál og þó heillaði minningin um fjallakyrrð og óþægar ær hug- ann, þegar Júníus rifjaði þær endurminningar upp. Árið 1905 giftist Júníus unn- ustu sinni, Jóhönnu Jónsdóttur frá Hákoti í Villingaholtshreppi og settu þau fyrst bú saman að Helgastöðum, en fluttust árið 1907 að Rútsstöðum í Gaulverja- bæjarhreppi, hvar þau bjuggu til ársins 1945, er elzti sonur þeirra, Kristinn og kona hans, Margrét Guðnadóttir, tóku við búsforráð- um. Hjá þeim voru Jóhanna og Júníus til heimilis meðan líf ent- ist, en Jóhanna lézt í ágústmán- uði árið 1952 en Júníus hinn 7. ágúst þessa árs. Júníus og Jóhanna eignuðust átta börn og komust sex þeirra yfir fermingu, en tveimur þeirra urðu þau að sjá á bak í blóma lífsins, Hallfríði innan við tvítugs aldur og Hallberg liðlega tvítug- um, hvoru tveggja hinum mestu mannkosta unglingum. Þau er imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiii Halldór Sigurðsson: AÐ tTAN = Töluverður ágreiningur M hefur lengi ríkt með Banda- = ríkjunum og bandamönnum M þeirra varðandi viðskipti við M Kúbu. Nú virðist ágreining- M ur þessi hafa færzt mjög í = aukana og það land, er hér = á einkum hlut að máli, er = nágrannastórveldi Bandaríkj- EE anna á meginlandi Ameríku, | Kanada. = Það hefur nú verið látið H uppskátt, að Sovétríki'n ætla = að ráðstafa töluverðu magni H af hinum gífurlegu hveiti- S birgðum sem þau hafa fest = kaup á í Kanada — lang- = mestu hveitisölu Kanada er- S lendis til þessa — til Kúbu s og hyggjast láta senda hveit- {§ ið þangað beint frá Kanada. = Krúsjeff lét svo um mælt við H kanadiska blaðajöfurinn Roy = Thompson fyrir skemmstu, = að hveitiuppskeran í Sovét- = ríkjunum hefði verið ríkuleg S og sagði að Rússar myndu {§ ekki þurfa að flytja inn = hveiti úr þessu. = Á því leikur enginn efi, að §j Kanada muni i þessu máli =§ fara að óskum Sovétríkjanna, = í trássi við hið volduga sam- S bandsríki sitt innan Atlants- S hafsbandalagsins, Bandaríkin. S í fyrra seldi Kanada Kúbu S einnig hveiti. upp á eigin M spýtur, þó það væri í mun H minna mælf en nú. S Það hefur áður verið mönn S um mikil hneykslunarhella = í Washington, hvern skiln- = ing Kanada hefur haft á hin = um umdeildu viðskiptum við = kommúnistalöndin. Kanada = hefur m.a. selt Kína hveiti S fyrir milljarði dala í beinu trássi við verzlunarbann Bandaríkjamanna á Kina, en Bandaríkjamenn hafa á Kína algert verzlunar- og við skiptabann eins og á Kúbu. Ósamkomulagið milli Washington og Ottawa stafar þó framar öllu af Kúbu og stjórn Castros á eynni, þegar Bandaríkjamenn settu. við- skiptabann sitt á eyríkið, gripu Kanadamenn tækifærið fegins hendi að ná í sinn skerf af hinum ábatasömu viðskiptum Bandaríkjanna við Kúbu, sem numið höfðu allt að 500-600 milljónum dala árlegal Kanadiskir *g kúbanskir kaupsýslumenn notuðu sér dyggilega tíðar flugsamgöng ur milli Havana og kana- disku borganna og verzlunar- málaráðherra Kanada lýsti því yfir í Havana, að leit væri á eins góðum viðskipta- vinum og Kúbönum, þeir væru alveg fyrirtak. Efnahagsmálaráðherra Kúbu og helzti aðstoðar- maður Castros, Ernesto „Che“ Guevara, brosir líka í kampinn og lætur svo um- mælt, að „sumir Norður- Ameríkumenn eru leiknir í að sniðganga verzlunarbann- ið. Ekki er ýkja langt síðan það komst í hámæli, að bandarískir verzlunarmenn héldu sumir hverjir áfram að senda vörur sínar til Kúbu, rétt eins og ekkert hefði í skorizt, með því smá- vægilega fráviki einu sam- an, að umskipa varninginn í Kanada. Það er athyglisvert I þessu sambandi, að Kanada er eina landið á meginlandinu Norð- ur- og Suður-Ameríku sem ekki er aðili að samtökum Ameríkuríkja (OAS), sem nú fyrir skömmu samþykktu að beita Kúbu refsiaðgerðum, fyrst og fremst viðskiptalegs eðlis en jafnvel hernaðarlegs eðlis síðar meir. Viðskipti Kanada og Kúbu námu í fyrrá að vísu ekki nema rúmum 12 milljónum dala, en mikilvægi þeirra má hverjum manni ljóst vera af því, hve Bandaríkín leggja mikið upp úr því og mikið á sig til þess að £á bandamenn sína í Evrópu — einkum England, Frakkland og Spán- til þess að hætta viðskiptum við Kúbu. Efnahagur Kúbu og þó eink um landbúnaðurinn er nú í svo hörmulegu ásigkomulagi, að ekki veitir af kanadiska hveitinu til þess að brauð- fæða þjóðina næsta árið. Varla mun standa á svari í Washington við síðustu að- gerðum Kanadamanna varð- andi Kúbuviðskiptin, John Diefenbaker, fyrrverandi for- sætisráðherra Kanada hafði þegar skapað töluverða spennu í sambúðinni við Bandaríkin, er hann áskildi sér og stjórn sinni fullan rétt til að framfylgja sjálfstæðri og óháðri stefnu í utanríkis- málum. Eftirmaður hans, Lester Pearson, núverandi forsætisráðherra, hefur verið vinveittari Bandaríkjunum en fyrirrennari hans og hefur það komið niður á vinsældum hans heima fyrir. Hann getur ekki lengur leitt hjá sér al- menna gagnrýni á þessa stefnu hans, því stjórnin er engan veginn örugg í sessi. Það er ekki fjarri lagi að geta þess að lokum,. að Kanada hefur látið að því liggja að ekki væri allt með felldu varðandi utanríkismálastefnu Bandaríkjanna sjálfra, þar sem er töluverð sala þeirra á kornvöru til austantjaldsland- anna. = 3 | Kaupsýslumenn í Kanada | | vingast við Kúbustjórn | = = iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiii(iiiiiMi!iiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii;iiiiiiiiiiíiut:iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu lifa foreldra sína eru: Kristinn, nú verkamaður í Reykjavík, iHelga, húsfreyja í Reykjavík, Sigurjón, verkamaður í Reykja- vík og Sesselja húsfreyja í Sand- gerði. Dóttir Jóhönnu, Ágústa Guðmundsdóttir, ólst upp á heim ili þeirra hjóna og var Júníus henni jafnan sem bezti faðir. — Ágústa er nú húsfreyja í Rvík. Búskaparsaga Júníusar er saga þúsundanna er á landi hér hófu búskap upp úr aldamótunum og bjuggu fram yfir síðari heims- styrjöldina. Mikil vinna, lítil eft- irtekja og hægfara þróun til létt- ari starfa. Og þó miðaði í áttina hægt og hægt. Júníus var elju- maður mikill, enda léttur á fæti og léttur í lund. Með eindæma viljaþreki og dugnaði sótti hann sjó í margar vertíðir til þess að afla viðbótarfanga í heimili sitt, enda var hann einn af skútu- körlunum, sem kunni frá svo ótal mörgu og ævintýraríku að segja, að okkur sem ekki þekkjum til þeirra tíma, blöskrar að mann- legur hugur og hönd skyldu kom- ast fram úr þeim aðbúnaði og vinnukröfu. En ærnar og fjöll- in á Helgastöðum höfðu hert Júníus í skóla lífsins og hann vandist því fljótt að ekki dugði að hopa, enda tókst hann, með styrkri stoð konu sinnar og barna, á við vandann og barg heimili sínu með seiglu og dæmafáu létt- lyndi, sem aldrei brást, 'þótt að fátækt, ástvinamissir og marg- háttað þess tíma andstreymi bæri að garði. Júníusi varð alls staðar vel til vina, því að hann ekki einasta vildi öllum vel þar til hann hafði reynt hið verra, held- ur og að hann hafði alltaf eitt- hvað nýtt og skrýtið að segja, sem ekki var í allra huga. Hann var að vísu ekki frekar en aðrir menn, rétt skilinn af öllum og sumum kunni að þykja spjall hans nýstárlegt, en slíkt varði ekki lengi, því hver sem hann þekkti komst fljótt að því sanna, að hann var einlægur í hugsun og leyndi aldrei skoðunum sínum ef hann taldi rétt að láta þær á þrykk út ganga. Hann var vel greindur og kunni skil á ótrúlega mörgu, sem lá langt út frá hans verkahring. Þannig var hann fróðari um þjóðfélagsmál en margur sem við bóklestur situr dag út og dag inn og ekki varð honum flíkað um skoðun og fylgi við þjóðmálastefnur. Frelsi og at- höfn einstaklingsins mat hann meir en allt annað og foragtaði múgmennsku og ríkisafskipti af hlutum er hann taldi einstakling- ana geta ráðið við og beitt hyggju viti sínu að. Hann var einlægur Sjálfstæðismaður. Hafi hann af minni hálfu þökk fyrir. Júníus var unnandi sveitalífa og starfi sveitamannsins af ein- lægum huga. Ekki sem birtist í kurfshætti eða úrtölum, heldur sem birtist í framförum og ein- lægum vilja til að heyja starf sitt við ástríki móðurmoldar og hóflegum kröfum til fegurra ver- aldlegs lífs. Hann kunni ekki að meta kröfuna um daglaun að kveldi, en mat því meira farsæla þróun fyrir öruggari afkomu og þakklæti til alföður fyrir batn- andi aðstöðu. Hann skildi aldrei Guð sinn í sínum huga fyrir utan garð. Það voru honum því ill örlög er hann þeirra vegna varð að flytja burt úr sveitinni sinni eftir að hún hafði fóstrað hann í hálfa öld. En hann fluttist árið 1957 með syni sínum og hana fjölskyldu til Reykjavíkur. Þar Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.