Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 16
16 M O RG U N BLAÐIO Föstuöagur 4. sept., 1964 Verkstæðispláss óslcast Verkstæðispláss 50—100 ferm. óskast til leigu eða kaups. — Uppl. í síma 24-700. 5 herb. íbúð óskast til ieigu fyrir 1. október. — Uppl. í síma 33929. Hjúkruiiarkoviur Deildarhjúkrunarkonu vantar á Sjúkrahús Skag- firðinga, Sauðárkróki. Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir sjúkrahússins. AfgieiSsIustúlka óskost Óskum eftir duglegri afgreiðslustúlku nú þegar. — Upplýsingar á skrifstofunni milli kl. 3—4 í dag. Marteinn Eínarsson & Co. Foto- t gardínudeild Lougavegi 31 - Sími 12816 Starísstúlka óskast Upplýsingar hjá yfirhjúkrunarkonunni. SjúkraKúsið SÓL.HEIMAR. Bókbandsnám Reglusamur og duglegur piltur óskast strax til náms í bókbandi. Svar, merkt: „Bókband — 4137“, send- ist afgr. Mbl. HÖFUM VERIÐ BEÐNIR AÐ SELJA J J ^ <-J f / - bifreið árg. 1963. Bifreiðin er tvílit, hvít með gráan topp, teppi á gólfum; útvarp, plötur undir „variomatic“. Ekin 8. þús. km. Bifreiðin er til sýnis hjá okkur frá kl. 2 — 4 e.h. í dag. Þeir, sem hefðu áhúga á þessu eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Gunnlaug Jóhannsson í síma 24000. : Johnson &Kaaber % Sætúni 8 — Sími 24000. Sfötugur í dlag Guðmundur Marteinsson rafmagnseftirlitsstjóri rikisins GUÐMUNDUR Marteinsson, raf magnseftirlitsstjóri ríkisins er sjötugur í dag. Er þetta bar á góma meðal vina hans, drógum við í efa að þetta gæti rétt verið, því, engin ber hann þess merki, hvorki í sjón né raun. Hann er jafn léttur í spori og léttur í iund eins og við vinir hans mun um hann undanfarin 30 ár, eða frá því hann hvarf aftur heim til lósturjarðarinnar, eftir að hafa dvalið meira en helming ævi sinn ar með öðrum þjóðum. Guðmundur er fæddur í Rvík 4. sept. 1894. Ungur að árum fer hann utan, tekur stúdentspróf í Stavánger 1917 og lýkur prófi í x-afmagnsverkfræði í Þrándheimi 1922. Hann starfar sem verkfræð ingur hjá Norsk Siemens A/S um eins árs skeið, heldur þá vestur um haf og vinnur að verk- fræðistörfum í 12 ár samfleytt hjá ýmsum þekktum fýrirtækj- um í Ameríku, allt fram til árs- íns 1935, er hann kemur aftur heim til íslands. Guðmundur byrjar að starfa hjá Raftækjaeinkasölu ríkisins og verður forstjóri hennar 1936-1940, eða þar til hún hættir störfum. Á þeim árum erum við samstarfsmenn og tókust þá strax með okkur góð kynni, er haldist hafa æ síðan. Frá 1940—1945 starfar Guðmundnr aðallega að verzlunarstörfum, stofnsetur eigið heildsölufyrir- tæki 1945, vinnur hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur öðnx hverju 1948-52, hjá Metcalí Hamilton á Keflavíkurflugvelli 1953-54, unz hann er ráðinn rafmagnseftirlits- stjóri rikisins 1954. Þetta fer nú að bera keim af eftirmælum og er því bezt að víkja máli sínu eitthvað nær hinum síkvika og glaðværa manni. Við heimkomu Guðmundar 1935, var hér margt með öðru sniði en nú er. Þá voru hér kreppuár með atvinnuleysi og mun þrengri kosti en nú þekkist. Mér er enn í minni, að skömmu eftir að fundum okkar bar fyrst saman og ég hafði verið að spyrja Guðmund um fortíð hans, og hann var að segja mér frá er- lendum fyrirtækjum er hann hafði unnið hjá, að mér varð á að spyrja, hvort hann sæi nú ekki eftir því að hafa horfið frá þessu og flutt sig hingað heim í allsleysið. Ég minnist alltaf hins ákveðna svars hans og augnatil- lits, er hann sagði: „Nei, það er siður en svo“. Mér var þá ekki Kunnugt um hve mörg hugðar- efni hann átti, en varð þess brátt var, við nánari kynni. Hann hafði mikinn áhuga á öllum ræktunarmálum og ekki hvað sízt skógrækt. Félagslynd- ur hefur Guðmundur alla tíð verið, enda tekið mikinn þátt í félagsstarfsemi, verið formaður Verkfræðingafélags íslands, í stjórn Skógræktarfélags Islands og formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur frá stofnun þess 1946. _ Guðmundur er söngmaður ágætur og hefur verið sjáifsagð- ur forsöngvari í góðra vina hópi, á samkomum og skemmtifundum verkfræðinga og skógræktar- manna. Er hann þá hrókur alls fagnaðar, og liggur ekki á liði sínu. Hann er einarður í skoðunum, óhræddur að segja áiit sitt og ver mál sitt drengilega. Við vinir Guðmundar sendum honum, hans ágætu konu, frú Ólafiu Hákonardóttir og dætrum þeirra, okkár beztu árnaðaróskir og vonum að hann megi enn um ókomin ár búa við góða heilsu til líkama og sálar. Jón Á. Bjarnason. Velrarkáptir — hellsárskápur DRAGTIR — REGNKÁPUR. — Ný sending af enskum vetrar- og heilsárskápum með skinnum og skinnlausar, bæði fyrir ungar og eldri dömur. — Tweet-dragtir, regnkápur. Mjög hagkvæmt verð. Dömubúðin Laufið, Austurstræti 1. Rösk stúlka óskast til afgreiðslustarfa í matvöruverzlun. Birglsbúll Ránargötu 15. — Sími 13932. Shólolólk vekjoiak lukkox Vandaðar vekjaraklukkur nýkomnar. MAGNÚS E. BALDVINSSON Laugavegi 12 og Hafnargötu 35, Keflavílc. LAUGAVEGSíEÍIaPÓTEK Bieytingoi d símunt Frá og með föstudeginum 4. september breytast símar okkar á eftirfarandi hátt: Laugavegs Apótek 24045 Samband frá skiftistöð: — receptur (læknasimi) — almenn afgreiðsla — skrifstofa — apótekari — yfirlyf jafræðingur — fulltrúi — skrifstofustjóri Eftir kl. 17: — receptur 24046 — aimenn afgreiðsia 24047 Beint samband: — receptur og nætursími 24049 Heimasímar: Oddur C. S. Thorarensen apótekari 23832 Werner I. Rasmusson yfixlyfjafræðingur 36316 Helgi Þorvarðarson lyfjafræðingur 18466 Guðjón B. Jónsson fulítrúi 19408 Árni Ágústsson skrifstofustjóri 50709 GARÐAR GÍSLASON H F. 11500 BYGGINGAVÖRUR Mófavír Bindivír H V E RFISGATA 4-6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.