Morgunblaðið - 04.09.1964, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Fostudagur 4. sept. 1964
Olympíufarar fslands
valdir á mánudag
í GÆR var í ráði að velja end-
anlega Olympíuþátttakendur ís-
lands í leikunum í Tókíó. Kom
Olympíunefndin Saman til fund
ar, en þegar til átti að taka var
endanlegu vali frestað. Mun í
ráði að gefa Guðmundi Gísla-
syni kost á að sýna hæfni sína
í 4x100 m fjórsundi og Jón Þ.
Ólafsson á eftir eina hástökks-
keppni í Svíþjóð, en þessir tveir
eru fast við lágmörkin, sem sett
voru til þátttöku í leikunum.
Endanlegu vali var frestað og
mun næsti fundur Olympíu-
nefndarinnar verða á mánudag-
inn.
Þegar hafa þau Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, ÍR og Valbjörn
Þorláksson KR náð tilskildum
lágmörkum sem sett voru, Hrafn
hildur í 100 m skriðsundi og Val-
Aðgöngumið-
inn kostnr
vikuloun
BEZTU sætin á fyrsta leik-
inn í keppninni um heims-
nvejstaratitil félaga í knatt-
spyrnu munu kosta 25 dali
eða 1075 kr. ísl. Fyrsti leik-
urinn fer fram 9. september
og verður á milli Indipendi-
ente frá Buenos Aires og
Internationale frá Milan.
Völlurinn tekur 91 þús.
manns. Verð dýrustu sætanna
svarar til meðal vikulauna í
Buenos Aires.
björn í tugþraut.
Olympíunefndin hefur annað
og erfiðara verkefni að vinna
en aðeins að velja þátttakend-
urna. Þátttakan kostar mikið fé
og fer endanlegt val að sjálf-
sögðu eftir þeim fjármunurh sem
nefndin hefur yfir að ráða.
Tékkur unnu
Norðmenn 112:98
TÉKKAR unnu Norðínenn í
landskeppni í frjálsum íþróttum
sem lauk á Bislett í gærkvöldi
með 112 stigum gegn 98. Bezti
árangur kvöldsins var í stang-
arstökki, þar sem Tékkinn Rud-
olf Tomasek stökk 5 metra og
setti tékkneskt met. Annars var
keppnin eins og svipur hjá
sjón miðað við fyrra kvöldið þar
sem heimsmetið í spjótkasti var
hápúnkturinn.
Kjartan Guðjónsson er einn af efnilegustu frjálsíþróttamönn-
um okkar. Hann varð nýlega í 4. sæti á þrilandakeppninni.
Olympíueldinum
víða fagnað
OLYMPÍUELDURINN er á leið
sinni til Tókíó. Flugvélin, sem
eldinn flytur nefnist „Tókió-
borg“ og hefur víða viðkomu. —
í gær kom vélin með eldinn til
Manila á Filippseyjum frá Kuala
Lumpur, höfuðborg Malaysiu.
Eldurinn hefur haft viðkomu
í allmörgum borgum síðan flug-
vélin hóf sig til flugs með hann
af grísKri gruúd. Hvarvetna hef-
ur viðbúnaður verið mikill þar
sem áð hefur verið með eld-
inn. Ávörp og ræður hafa verið
flutt og íþróttafólk hlaupið með
blysið frá flugvöllum inn í höf-
uðborgirnar þar sem eldsins hef-
ur verið . gætt á virðulegasta
stað hverrar borgar og vakað yf-
ir honum næturlangr..
í Kuala Lumpur, þar sem sið-
ast var áð með eldinn, var blys-
ið geymt í glæsilegasta íþrótta-
húsi borgarinnar. Var heiðurs-
vörður íþróttafólks yfir eldinum
næturlangt og síðan var 5 manna
boðhlaup með hann á flugvöll-
inn aftur.
siiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiRuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.iiiiiiiiiiiiiiiiiHiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinin
S e
I Hvar liggur hundurinn grafinn? I
S MÁL íslenzkrar íþróttahreyf-
H ingar eru ofarlega á baugi um
= þessar mundir, einkum vegna
S slakrar og tilviljanakenndrar
M frammistöðu ísl. knattspyrnu
S manna. Ýmsir hafa rætt um
= málið í blöðum og fundið
= marga ágallana á okfcar knatt
S spyrnumálum og íþróttamál-
n um yfirleitt og úrbætumar
S sem flestir benda á, er að Is-
£ lendingar verði að taka upp
S atvinnumennsku í einhverri
H mynd, í það minnsta að taka
= upp greiðslur fyrir vinnutap,
= sem verður vegna þjálfunar
S o.s.frv.
S íslenzka þjóðin ann iþrótt-
S um og vill eiga góða og
M frækna iþróttamenn. Það
M stendur ekki á almenningi ^ð
S koma til kappmóta og styðja
= íþróttirnar þannig m.eð að-
= gangseyri. EF um góða og
H skemmtilega keppni er að
S ræða. Hér fyrr á árum komu
= þúsundir á frjálsíþróttamótin
H og nutu þeirra. Við áttum
= fræknar stjörnum, hverra met
H standa sum hver enn í dag og
= sýnir það bezt hve góð afrek
= þeirra vom að met þeirra eru
S 10—15 ára gömul. Stjörnur
= okkar á þeim tímum áttu hins
H vegar betri velgengni að fagna
= á erl. grund, því á árunum
S eftir stríðið — þegar okkar
j| menn unnu flesta sigra erlend
M is — hafði íþróttahreyfing
= annara landa ekki risið úr
rústum styrjaldarinnar.
Það er afar algengí hér á
landi að fólk fyllist ólýsan-
legri gleði og aðdáun á ilþrótta
mönnum, ef þeir sigra erlenda
aðila. Sigurinn skiptir öllu, en
getan hverju sinni, afrekið
sem unnið var, skiptir minna
máli. Það kann að vinnast sig
ur þó ekki liggi mikið afrek
að baki. Það kann líka að
liggja stórt og mikið afrek að
baki þó sigur vinnist ekki.
Það er þessi óhlutlægi dóm-
ur almennigs á iþróttafólki,
sem hér skortir tilfinnanlega
— og hann skortir því miður
einnig hjá íþróttamönnunum
sjálfum.
Góð afrek vinnast ekki af
tilviljun, hvorki í einstaklings
íþrótt eða flokkaíþrótt. Það er
heldur ekki hægt að „kaupa“
menn til afreka, ef þeir hafa
éngan áhuga. Það er þessi
„ÁHUGI“ sem verður alls
staðar að vera fyrir hendi, ef
árangur á að nást. Vanti hann
vinnst ekkert afrek, hversu
miklir peningar sem eru í spil
inu, hversu fín og flott íþrótta
mannvirki eru byggð. Vænleg
ast þykir mér að happasælast
yrði að styðja áhugann hæfi-
lega, láta skóinn ekki kreppa
— hlúa að áhuganum, skapa
tækifæri. Og þetta er það sem
hefur verið gert — hvort það
hefur verið gert í nægilegum
mæli, skal hins vegar ekki um
fjallað nú, en okkar íþrótta-
fólki hafa verið sköpuð allgóð
skilyrði að mörgu leyti — en
við kalsaveður, kulda og rign
ingu ræður enginn.
Eitt hefur orðið illilega út-
undan og þar er kannski
grundvöllinn að finna að allri
ógæfunni. Þjálfun er vanrækt
svo, að oft er þess alls ekki
að vænta að árangur náist.
Það má undravert kallast, hve
langt ýmsir ísl. íþróttamenn
hafa náð með sáralítilli þjálf
un og fáknkenndri. Hvað
hefðu þeir ekki getað ef undir
staða þjálfunar væri eðlileg,
svo ekki sé sagt góð? Fæst
liðanna í 1. deild ísl. knatt-
spymu hafa þjálfara nema
tíma og tíma. Kann slíkt góðri
lukku að stýra? Og hvað þá
um að komast í 1. deild. Sum
ir þeirra sem hér keppa í í-
þróttum, vita vart hvað til-
sögn er. Hjá öðrum, sem þjálf
ara hafa, fá þjálfararnir sjald
an eða aldrei tækifæri til að
auka þekkingu sína. Sá sem
fékk þjálfarapróf íyrir 10 ár-
um, er ekki endalaust góður
þjálfari, eL.hann ekki fylgist
með. Það skiptir sama máli
um þjálfarastörf og öll önnur
fagstörf.
Meðan svona er I pottinn
búið, meðan ungu piltamir
og meyjarnar ekki fá grund-
vallarþjálfun á unga aldri,
verður aldrei um toppárangur
að ræða.
Sumir segja að iþróttin sé
leikur, og það er rétt. En
landsleikur er ekkert grín. Þá
er kominn metnaður í spilið
og landskeppni er smásjá þjóð
araugans, sem viðkomandi í-
þróttagrein leggur sig i. Takist
vel eykst hróður íþróttarinnar
og öfugt ef illa fer. Það á að
vera metnaður knattspymu-
manna og allra annarra
íþróttamanna að standa sig
vel, sýna að grundvöllur er
fyrir að sköpuð séu stór verk
efni fyrir ísl. íþróttamenn. Sig
urinn skiptir ekki öllu máli.
Að falla með sæmd er engin
hneisa. En eins og ágætur rit-
stjpri sagði á dögunum: „Að
sjá ísl. knattspyrnu finnst
mér hliðstætt og ég færþ á
frjálsíþróttamót og enginn ís-
lendingur stykki hærra en 1,60
í hástökki ,enginn hlypi 100
m. undir 12 sek. eða varpaði
kúlunni meira en 10 m. Geta
ísl. knattspyrnumanna er svip
uð“.
Framundan er knattspyrnu-
þing, þar sem rædd verða
vandamál knattspyrnunnar. —
Vonandi verða þjálfunarmálin
þar ofarlega ábaugi, því þar
liggur að mínum dómi hundur
inn grafinn, auk þess sem
finna má að mótafyrirkomu-
lagi, niðurröðun leikja og
ýmsu, sem ekki er eins þungt
á metaskálunum. — A. St.
uuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin= uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
M0LAR
RÚSSINN Prokopenko settl
á fimmtudag nýtt heimsmet í
100 m bringusundi, synti á
1.06.9. Hann átti sjálfur eldra
metið 1.07.4.
•------
RÚSSINN Juri Vlasov setti I
gær þrjú ný heimsmet í þunga
vigt lyftinga. Samanlagt lyfti
hann í 3 tilraunum 580 kg.
•------•
SVETLANA BABNINA, Rúss-
landi, setti í gær heimsmet í
100 m bringusundi kvenna á
1.17.2. — Gamla metið áttl
Claudia Kolb, USA, 1.17.9.
Finnar hafa endanlega val-
ið Olympíulið sitt. Senda
Finnar 57 íþróttamenn, 13
leiðtoga og dómara auk æðstu
fararstjórnar til Tokíó. I
hópnum eru m. a. 9 körfu-
knattleiksmenn og 2 körfu-
knattleiksleiðtogar.
Á sundmóti í Madgeburg
25. ágúst setti A-Þjóðverjinn
Gunter Gregor Evrópsumet í
1-0 m flugsundi, synti á 59.3
sek. Tíminn er 2/10 hetri en
eldra met Hollendingsins
Jiskoot.
Kokichi Tsuburaya einn af
Maraþonhlaupurum Japana á
OL vann nýlega 10 km hlaup
á 28,52,6 mín. Kimihara annar
Maraþonhlaupari Japana varð
2. á 29.01.0. Þeim fyrrnefnda
er lýst sem líklegum sigurveg
ara í Maraþonhlaupinu.
Spánska knattspyrnuliðið
Zaragosa sigraði Olympíulið
Mexico með 2—0 í Caracas
á laugardaginn.
Jastremski heimsmethafinn
í bringusundi tryggði sér
glæsilegan rétt til veru i
Olympíuliði Bandarikjanna er
hann á laugardaginn tvívegis
bætti gildandi heimsmet sitt
í 200 m bringusundi. 1 undan-
rás synti hann á 2.28.2 mín. en
i úrslitum á 2.28.7. Heimsmet
hans er 2.29.6.
Þjóðverjar senda 101 þátt-
takendur í frjálsíþróttakeppni
OL í Tokíó. 18 eru A-Þjóð-
verjar, 47 vestur-þýzkir.
Alsír og Colombía hafa
tilkynnt þátttöku i OL í Tokió
— eftir að frestur rann út, en
fá að vera með. Þar með er
fjöldi þátttökuþjóða kominn
í 96.
I. deild og
bikurinn
UM helgina fara fram tveir leiik-
ir í 1. deild Islandsmótsins. Á
laugardaginn kl. 4 leika á Njarð
víkurvelli Keflavík og Valur. Á
sunnudag leika á Laugardalsvelli
KR og Þróttur.
Þá fer og fram leikur í Bi'kar-
keppni KSÍ kL 4 á laugardag á
Akureyri. Þar keppa Akuxeyr-
ingar pg Víkingar.