Morgunblaðið - 05.09.1964, Page 12
12
MORGUN BLAÐIÐ
Laugardagur 5. sept. 1964
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 5.00 eintakið.
*
ÖFUNDAR OG
SVARTSÝNIS-
STEFNA FRAM-
SÓKNARFL OKKSINS
T\Tú um skeið hafa verið
’ nokkrar umræður í blöð-
um um bréf, sem birt var í
Mbl. frá bónda norður í landi.
í bréfinu segir, að barlómur
og svartsýni sú, sem Tíminn
er sífellt að reyna að ala upp
í bændum, sé tilxþess fallin
að draga kjark úr mönnum til
sveita og stuðli því síður en
svo að jafnvægi í byggð lands-
ins.
Viðbrögð Tímans við birt-
ingu bréfsins voru þau, að slá
því föstu, að það væri upp-
spuni Mbl. og aðeins ósk-
hyggja þess um hugsunarhátt
bænda. Bréfið og blaðaskrif
um það hafa vakið athygli
manna á baráttuaðferðum
Framsóknarflokksins, einkum
þeirri hlið, sem snýr að sveita
fólki.
Framsóknarflokkurinn hef-
ur lengi talið það vatn á sína
pólitísku myllu að efla ó-
ánægju til sveita og ala á tor-
tryggni milli sveitafólks og
þess, sem býr við sjávarsíð-
una. Tíminn ritar sífellt um
slæma tíma, en gerir lítið úr
framförum. Þessi barlómur og
hugsverta blaðsins er ekkert
einsdæmi nú, því að raddir
hafa oft heyrzt hvaðanæva
um þá hvartsýni og óánægju,
sem Framsóknarmenn vilja að
ríki í sveitum landsins, í þeirri
von, að það muni færa þeim
nokkur atkvæði í næstu kosn-
ingum.
Framsóknarmönnum er tíð-
rætt um hollustu sína við
bændur og málefni sveitanna,
en hvað er framlag þeirra?
Niðurdrepandi barlómur, sem
er lítt í samræmi við trú ís-
lenzkra bænda á landið.
Landbúnaðurinn og bænd-
ur eiga sína sérstöðu og sér-
hagsmuni um ýmis mál. Þeim
málum er vissulega sýndur
mikill skilningur við sjávar-
síðuna, því að hvert á fólkið í
þéttbýlinu annað að leita um
nauðsynlegustu matvæli en
einmitt til sveitanna? Þessir
sameiginlegu hagsmuni tengja
því alla landsmenn saman og
eru vænlegri vaxtarbroddur,
en sundrungar-, öfundar- og
svartsýnisstefna Framsóknar-
flokksins. Það vita bændur
bezt, að það er ekki auðvelt að
breyta íslandi í véltækt flæði-
engi í einu vetfangi. Þeir vita,
að það er ekki af stjórnmála-
ástæðum, sem allar ær á ís-
landi eru ekki tvílembdar.
Það virðist þó oft mega skilja
það á Tímanum að svo sé
vegna stakrar óvildar voudra
íhaldsmanna í Reykjavík! Um
leið er alið á svartsýni og-
barlómi, og reynt að rýra
sveitirnar og bændur öllu
sjálfstrausti. Á slíkum ó-
ánægjuöldum ætla Framsókn
arherrarnir að fleyta sér í ráð
herrastólana. En hvar er hug-
ur og dugur, kjarkur og fram-
sýni? Hann fyrirfinnst sjald-
an í Framsóknarflokknum,
enda fellur hann ekki inn í
framaákvarðanir Framsókn-
arleiðtoganna.
Framsóknarflokkurinn og
þunglyndisáróður hans er
meinsemd í íslenzkum stjórn-
málum. Því ástandi verður að
linna, það verður að snúa við
blaðinu.
DAGUR LEIFS
EIRÍKSSONAR
Johnson, Bandaríkjaforseti,
staðfesti á dögunum tilskip
un, sem þingið hafði sam-
þykkt, um að 9. október skuli
framvegis opinber hátíðisdag-
ur í Bandaríkjunum til minn-
ingar um Ameríkufund Leifs
Eiríkssonar fyrir tæpum 1000
árum. Lét forsetinn svo um-
mælt, að hin hetjulegu ævin-
týri norrænu víkinganna,
hlytu að vekja hljómgrunn í
hjörtum allra Bandaríkja-
manna.
Forsetinn og þing Banda-
ríkjanna hafa með þessu við-
urkennt landafund hinna ís-
lenzku sjómanna, sem sigldu
um hið óþekkta haf til Vín-
lands hins góða. Hefur stjórn
Bandaríkjanna raunar áður
veitt íslendingum viðurkenn-
ingu fyrir landafundinn með
gjöf styttu Leifs Eiríkssonar
á þúsund ára afmæli Alþingis
og áletruninni á bakhlið stytt-
unnar.
Hátíðisdagurinn er mikill
heiður norrænum mönnum og
ekki sízt íslendingum, því að
óþarft ætti að, vera að deila
um þjóðerni Leifs Eiríksson-
ar, þótt hið íslenzka þjóðerni
hans sé mörgum útlendingum
ókunnugt.
31. ágrúst, sama dag og ráðstefnan um friðsamlega notkun kjar norkunnar hófst í Genf, lét sov-
ézka fréttastofan Tass frá sér fara þessa mynd af sjálfstæðu kjarnorkuveri sem smíðað var í
kjarnorkurannsóknastöð Rússa. Stöðin kal'ast TEC-3 og er orka hennar 1.500 kwt. í orðsendingu
til ráðstefnunnar sagði Krúsjeff forsætisráðhera að Sovétríkin vildu að kjarnorkan væri ein-
vörðungu notuð til að stuðla að tækniþróun í heiminum og bættum lifskjörum manna.
Neðonsjdvorrannsóknii Russo
í Mexikóllóo og Karíbohoii
í stuttu
máli
Hjónaskilnuðum fjölgar.
Stokkhólmi 1. sept. (NTB)
Fjöldi hjónaskilnaða í Sví-
þjóð hefur sexfaldast á síð-
ustu 40 árum dg nú lýkur 22%
allra hjónabanda með skilnaði,
segir í skýrslu, sem sænsku
stjórninni var afhent í dag.
Er skýrsla þessi samin vegna
fyrirhugaðra breytinga á hjú
skaparlögunum frá 1921.
Aukin aðstoð.
Havana, 1. sept. (NTB).
Tilkynnt var í Havana í
dag, að undirritaðir hafi verið
samningar um tækni- og efna
hagsaðstoð Sovétríkjanna við
Kúbu, og nemur heildarupp-
hæð samninganna um 250
milljónum króna (Lsl.) M. a.
munu Sovétríkin senda þurr-
kví til Kúbu sem áætlað er að
kosti 115 millj. króna. Verður
hún dregin til Kúbu, og er
væntanleg til Havana um miðj
an október.
20 OG 40 ÁRA FANGEL.SI
Madrid, 1. sept. (NTB).
Spánskur herréttur dæmdi
í dag átján ára Skota, Stuart
Christie, til 20 ára fangelsis-
vistar fyrir skæruliðastarf-
semi í Spáni. Fertugur Spán-
verji, Fernando Carballo
Blanco, hlaut 40 ára fangelsis
dóm.
Christie var handtekinn í
fyrra mánuði fyrir að hafa
ALVARLEGT
AFBROT
k fbrotaalda virðist ganga
yfir í Reykjavík. Mjög
hefur borið á þjófnaði og
hnupli, en nú tekur í hnúk-
ana, þegar gerð er skipulögð
Miami, Florida, 3. sept, AP.
Kúbanskir útlagar skýrðu frá
því í Miami á miðvikudag, að
sovézk flotadeild hefði hafið neð
ansjávarrannsóknir í Mexikóflóa
og Karíbahafi.
Kúbanska nemendasambandið
DRE sagði, að rannsóknir þessar
sem taldar væru vísindalegs eðh-
is, væru til þess gerðar að leggja
drög að hernaðaráætlun varð-
smyglað sprengiefni til lands
ins. Hann sagði að hann hafi
verið beðinn fyrir tösku með
sprengiefninu, en haldið að í
henni væru áróðursbæklingar
gegn Francostjórninni.
Deilt um Krukkusléttu
París, 1. sept. (NTB).
Souphanouvong prins, leið-
togi Pathet Lao kommúnista
í Laos, hefur neitað að fallast
á tillögu Souvanna Phouma
forsætisráðherra, um að gera
Krukkusléttu að hlutlausu
svæði.
AÐSTOÐ VID S-VIETNAM
London, 1. sept. (AP)
Brezka stjórnin hét í dag
að auka tækniaðstoð sína við
Suður-Vietnam, en tók það
Eldur í Austur-
bar
SLÖKKVTLIÐ'IÐ var kvatt að
Austurbar í Austurbæjarbíó kl.
12.15 í gær. Hafði eldur kviknað
í fitupotti á eldavél í kjallara og
sviðnaði eldhúsið mikið að inn-
an. Urðii talsverðar skemmdir á
því.
tilraun til ráns á götum borg-
arinnar.
Frá því hefur verið skýrt í
blöðum, að tveir menn hafi
veitt afgreiðslumanni í benzín
stöð fyrirsát og reynt að taka
af honum peningatösku með
valdi. Sem betur fór, þá tókst
afbrotamönnunum ekki að ná
peningum þeim, sem þeir
andi hinn óvarða suðurhluta
Bandarí'kjanna. Sagði DRE, að
aðalbækistöð rannsókna þessara
myndi vera á Kúbu sjáifri og
væri ráðgert að kanna hafsvæð-
in undan suðurströnd Bandaríkj-
anna, umhverfis Bahama-eyjar,
Haiti og dóminikanska lýðveldið,
Puerto Rieo, Venezuela, Brezku
Guiana, Jamacia og hluta Mið-
Ameríku.
jafnframt fram að ekki gæti
orðið um neina hernaðarað-
stoð að ræða. Kom þetta fram
í sameiginlegri yfirlýsingu,
sem gefin var út eftir viðræð
-- ur Henry Cabot Lodge, full-
trúa Bandaríkjaforseta við
R. A. Butler, utanríkisráð-
herra Breta.
Ræða við viðskipta
málaráðherra
Indlands
Nýju Delhi, 30. ág. — AP.
GYLFI Þ. Gíslason, mennta
og viðskiptamálaráðherra ís-
lands kom hingað í dag i
tveggja daga opinbera heim-
sókn. í fylgd með ráðherran-
um eru bankastjórarnir Jó-
hannes Nordal og Vilhjálmur
Þór. Viðskiptamálaráðherra
Indlands, Manubhai Shah tók
á móti gestunum Og eiginkon
um þeirra á flugvellinum. ís-
lenzku gestirnir munu ræða
viðskiptamál við Shah ráð-
herra á mánudag.
höfðu augastað á, en það gerir
aðför þessa ekki síður alvar-
lega.
Vonandi er hér ekki á ferð-
inni upphaf frekari rána og
gripdeildar. Allt verður að
gera til þess að hafa hendur í
hári afbrotamannanna, svo að
hvorki þeir né aðrir endur-
taki sjíkan verknað.