Morgunblaðið - 03.10.1964, Side 17

Morgunblaðið - 03.10.1964, Side 17
f Laugardagur 3. okt. 1964 MORCU NBLAÐiÐ 17 — Tækniskólinn 1 Framihald af bls, 16. nr Hallsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, formað ur, Axel Kristjánsson, forstjóri, Gunnar Bjarnason, skólastjóri, Jakob Gíslason, raforkumála- stjóri og Loftur Þorsteinsson, prófessor. Aðalstarf nefndarinn- ar var eins og til stóð að semja reglugerðir bæði fyrir undirbún- ingsdeild að tækninámi og fyrir Tækniskóla íslands. Menntamála ráðherra fól nefndinni ennfrem- ur að gera áætlun um húsnæðis- þörf gkólans með tilliti til þess, að Tækniskóli íslands tæki til starfa haustið 1964. í beinu framhaldi af þessu und irbúningsstarfi verður á þessu skólaári starfrækt í fyrsta sinn íyrrihlutadeild tæknifræðináms, sem þýðir um leið stofnun Tækni skólans. Undirbúningádeild verð- ur einnig starfrækt við skólann, en þetta er þriðja árið í röð, sem alík deild er starfrækt. Tvö sið- astliðin ár hefur þessi deild starf að undir stjórn skólastjóra Vél- skólans. Margt ber að hafa í huga við uppbygigingu tækniskóla. Þvi er eðlilegt og rétt að byggja slíkan skóla upp stig af stigi, eins og verið er að gera hér. Fámenni ©kkar fslendina kemur sennilega til með að verða nokkur fjötur um fót áður en viðunandi tak- marki er náð. Mikilvægt er að rasa ekki um ráð fram, en vanda því meir til þess áfanga í upp- byggingunni, sem hverju sinni er unnið að. Tækniskólar erlendis þróast úr iðnskólum í vélskóla og fjögurra missira húsagerðarskóla og éfram til dagsins í dag, að þeir eru orðnir sex missira skólar víð ast hvar. Menntun sú, sem veitt er í sex missira skólum og kall- ast hér á landi lögum samkvæmt tæknifræðimenntun, telst til æðri menntunar hjá nágrannaþjóðum okkar. Því mætti ætla, að Tækni skóli íslands yrði frá upphafi staðsettur í skólakerfi okkar með al æðri skóla. Nemendafjöldi í skólum þessum miðað við íbúa- fjölda í löndum eins og Dan- mörku og Þýzkalandi er svipað- ur og- lætur nærri, að einn af hverjum þúsund til fimmtán hundruð íbúum stundi að jafn- aði tæknifræðinám. Þetta þýðir, að í dag stunda um 50.000 nám í tæknifræði í Þýzkalandi og um 3.500 í Danmörku. Þegar þetta hlutfall hér á landi er athugað kemur í ljós, að eitt hundrað tæknifræðingar hafa korrvið frá námf erlendis síðustu 30-40 árin. Hlutfallið hérlendis milli fjölda tæknifræðinga og verkfræðinga er öfugt við hlutfallið eins og það er hjá flestum þeirra iðn- tðarþjóða, sem við skoðum sem fyrirmyndarþj óðfélög. Af þessum viðmiðunum er þó ef til vill ekki hægt að draga xieinar ályktanir því að iðnaður okkar er nokkuð frábrugðinn iðn aði þessara þjóða, því að segja verður, að íslenzkur iðnaður hafi verið all einhliða og frumstæður fram á síðustu ár. Hver eru svo störf og verkefni tæknifræðinga að námi loknu? Aðalverksvið þeirra er að vinna að lausn raunhæfra verk- efna, svo sem tæknileg umsjón og stjórn fyrirtækja, rannsóknar störf, kennsla, undirstöðuathug- anir og útreikningar, teikning, uppsetning véla og verksmiðja. Á öllum starfssviðum á tækni- xræðingurinn að geta starfað sjálfstætt og skapandi. Með öðr- um orðum tæknifræðingurinn skipar mikilvægan sess í iðnað- arþjóðfélögum vegna nauðsynjar á sífellt meiri og fjölbreyttri tækni. Þá vil ég ræða nokkuð starf- semi skólans á þessu fyrsta starfs ári hans, sem er að hefjast. Vegna þess, að próf frá undir- búningsdeild og fyrrihluta mið ast fyrst og fremst við það, að seinni hluti námsins fari fram í Danmörku eða Noregi verður námsefni sem næst hið sama og það er nú hjá þessum þjóðum, Sveinn Guðmundsson (tJi.) frá Yélsniiðjunni Héð'ni. afhendir Helga Gunnarssyni gjöf enda er gert ráð fyrir, að próf- verkefni vej’ði valin í samráði við þá aðila, sem þar ráða þess- um málum. Við skólann verða tarfandi þessir kennarar: raungeinum: Stærðfræði, eðlis fræði, efnafræði, teikn. og fl. Bjarni Kristjánsson, vélaverk- fræðingur, Bjarni Steingrímsson, efnafræðingur, Ottó Valdimars- son, rafmagnsverkfræðingur, Sig urður Kristjánsson, bygginga- tæknifræðingur, Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræðingur og Þórður Runólfsson, öryggismála- tjóri. Við málakennslu: Bjarni Einarsson, cand. mag., og dr. Þorgeir Einarsson. Nemendur hér í skólanum verða 61, þar af 48 í undirbún- ngsdeild, sem verður tvískipt, 13 nemendur verða í 1. missiri fyrri hluta. Af þessum nemenda hóp eru 43 iðnlærðir og 18 óiðn- ærðir. Á Akureyri verða 12 nemend- ur í undirbúningsdeild, en hún verður starfrækt þar í annað sinn. Heildarnemendafjöldi hér og á Akureyri er því 73. Vegna þess hve takmarkað húsnæði skólans er hér í Reykjavík má segja, að skólinn sé fullsetinn. Ég vil leyfa mér að bjóða kenn ara og nemendur velkomna til skólans og vona, að samstarfið verði ánægjulegt og starfið árang ursríkt. Húsnæði Tækniskólans yerður hér í Sjómannaskólanum. í aðalbyggingunni fær skólinn þrjár kennslustofur til umráða. Skólinn fær einnig til afnota teiknistofu og eðlisfræðistofu, em byggðar hafa verið við véla sal Vélskólans vegna tilkomu Tækniskólans. Ennfremur er unnið að nýbyggingu við véla- salinn. Þar verður stofa fyrir verklega eðlis- og efnafræði- kennslu og einnig fyrirlestrar- salur." Að lokum sagði Helgi Gunn- arsson: „Möguleikar fyrir tæknifræð- nga ættu að geta orðið miklir hér á landi haldi tækniþróunin áfram eins og verið hefur og hún verður að halda áfram með meiri hraða en nokkru sinni áð ur. Hjá iðnaðarþjóðum, sem angt eru komnar tæknilega séð er sífellt verið að" endurskoða og endurskipulegg j a tæknifræði- menntunina. Ekki er hægt að egja, að iðnaður okkar *sé óplægður akur hvað tækniþróun snertir, en plægja þarf betur og til að halda velli út á við til þess að geta verið samkeppnis færir við aðrar menningarþjóðir er stórt verkefni framundan. verkefni, sem aldrei verður full- unnið, — aðeins bætt við stig af stigi. Eitt af þeim skilyrðum, að svo megi takast er vel menntað lið tæknifræðinga. Því ber að hlúa vel að þessari nýju stofn- un þannig, að hún geti orðið þjóð mni að tilætluðu gagni. Með þess ar óskir í huga leyfi ég mér að segja Tækniskóla íslands settan fyrsta sinn.“ Næstur tók til máls Ásgeir Pétursson, sýslumaður í Mýra og Borgarfjarðarsýslu, en hann var formaður nefndar þeirrar, sem samdi lagafrumvarpið um Tækni kóla íslands, eins og fram hef- ur komið hér að framan. Flutti hann stofnuninni, skóla stjóra, kennurum og nemendum árnaðaróskir fyrir hönd laga nefndarinnar. Síðan sagði hann: „Islenzka þjóðin hefur á þess- ari öld einbeitt sér að því að byggja hér nýtt, frjálst þjóðfélag með bættum lífsbrag og aukna menningu að takmarki. Miklu hefur verið áorkað á skammri stund. Þó hefur reynsluleysi og e.t.v. skortur á yfirsýn stundum tafið eða torveldað framþróun eða valdið því, að framfarir yrðu ekki nægilega jafnar Stundum hafa orðið stórstígar framfarir á tilteknum sviðum þjóðlífsins, en þess eigi ávallt gætt að fylgja þeim eftir með hliðstæðri þróun á öðrum sviðum þjóðfélagsmála. Þetta hefur einmitt átt sér stað á sviði tækni og tækniþekkingar, og er í rauninni ekki annað en eðlilegt einkenni í þjóðlífi fólks, sem hefur fyrst og fremst arf- gengt húmanistiskt viðhorf bænda- og bókmenntaþjóðar. En blómlegt menningarlíf al- mennings þróast bezt á grund- velli góðrar efnalegrar afkomu, og varanlega góður efnahagur fæst ekki , nema atvinnu- og framleiðsluhættir séu byggðir á traustri þekkingu á efni og að- ferðum. Takmarkinu um almennt bættan lífsbrag og aukna menn- ingu verður öruggast náð með því að taka tækni og vísindi í þjónustu framleiðslu atvinnu- veganna, þ.e. byggja víðtækari, fjölbreyttari, aukna og" bætta framleiðslu á þekkingu, ekki sizt tækniþekkingu. Þannig verður dregið úr því, að við eigum allt undir veðri og afla. Landstjórn okkar og alþingi hafa nú að nokkru fyllt upp í þá alvarlegu eyðu, sem verið befur í fræðslukerfi okkar, með því að koma á fót tækniskóla, og hefur með því staðfest þá stefnu í íslenzkum fræðslumálum að veita beri þá almennu menntun í landinu sjálfu, sem kostur er á, og hæfir aðstæðum. Ekki er til lengdar unnt að treysta á að nægilegur fjöldi æskumanna fá- ist til þess að sækja tæknimennt- un til útlanda, enda réttlætir sá tjöldi tæknifræðinga, sem at vinnuvegir okkar þarfnast al- gerlega, að hér sé komið á fót tækniskóla, sem miðist við ís- ienzkar aðstæður, þjóðfélags- háttu og atvinnuvegi. Æskunni er og almennt þörf meiri fjölbreyttni í námsvali, og mun' starfsemi þessa skóla því, án efa, draga úr þeirri þennslu, sem er á menntaskólastiginu og þannig gera fræðslukerfinu í heild nokkurt gagn. • Hér er í dag stigið framfara- spor til eflingar íslenzku mennta- og atvinnulífi — spor, sem mið- ar að því að efla sjálfstæði okk- ar í þessu landi og er til sönn- unar um þann fasta ásetning þessarar þjóðar að treysta fyrst og fremst á sjálfa sig; ,en hafa gott samstarf við aðra. Megi þetta spor reynast gæfuspor.“ Þá tók til máls Gunnar Bjarna son, skólastjóri Vélskólans í Reykjavík. Áranði hann skólan- um allra heilla og sagði það trú sína og von, að skólinn ætti eftir að marka drjúg spor í tækniþró- un íslands. Ýmsir erfiðleikar blöstu við forystumönnum skól- ans, en ef þeir hefðu til að bera hugkvæmni og hagsýni, þraut- seigju og bjartsýni, væri engu &ð kvíða. Hann kvað það spá sína, að skólinn mundi sérhæfa sig íslenzku atvinnulífi, yrði mót aður af islenzkum fræðimönnum við íslenzkar aðstæður, og þá Axel Kristjánsson, formaður Tæknifræðingafélags íslands^ flutti kveðjur frá félagi sínu. Einar B. Pálsson, formaður Verkfræðingafélags íslands, flutti árnaðaróskir íslenzkra verk fræðinga. Sveinn Guðmundsson, forstjóri Vélsmiðjunnar Héðins, færði skólanum stóran bikar að gjöf í minningu um stofnendur Héð- ins, þá Bjarna Þorsteinsson og Markús ívarsson. Á bikarinn er ietrað: „1964. Tækniskóli íslands. Mennt er máttur. Vélsmiðjan Héðinn.“ Guðmundur Halldórsson, húsa smíðameistari, forseti Landssam- bands iðnaðarmanna, kvað tækni- og iðnmenntun ekki allt af hafa verið sýndur nægúr skiln ingur hér á landi. Sá skilningur hefði þá aldrei verið meiri en á síðustu árum. Nú væri meiri þörf á slíkri menntun en nokkru sinni fyrr. Þessi skóli fyllti í eyðuna, sem væri milli háskóla- genginna verkfræðinga annars- vegar og iðnaðarmanna hins veg ar. Færði hann skólanum beztu heillaóskir. Að setningarathöfn lokinni var boðið til gestaboðs. Heillaskeyti bárust frá rektor Háskóla ís- lands, skólastjóra Kennaraskóla fslands og forstöðumanni undir- mundu menn erlendis frá sækja búningsdeildar undir tækninám þekkingu í skólann. á Akureyri. Ábyggilegur sölumaður á íslandi óskast fyrir þekktar danskar gaseldavélar ásamt nýrri gerð af skipseldavélum með innbyggðum jafn vægisútbúnaði fyrir fiskiskip og smábáta. JENNI GASKOMFUR - VESTER AABY - DANMARK. Sölustióri Eitt af stærri bifreiða innflutningsfyrir- tækjuni landsins óskar að ráða sem fyrst ungan, áhugasaman mann til að taka við starfi sölustjóra. Enskukunnátta ásamt almennri verzlunarkunnáttu nauðsynleg. Umsóknir. sem greini menntun og fyrri störf leggist á afgr, Mbl., merkt: „Fram- tíðarstarf — Trúnaðarmál — 4027“. KEXVERKSMIÐJAN 1 Trón SÚKKULAÐI CS?3 I ságSSlB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.