Morgunblaðið - 03.10.1964, Síða 21
í Laugardagur 3. okt. 1964
MORGUNBLAÐID
21
Nauðungaruppboð
sem'auglýst var í 55., 57. og 60. tbl. Lögbirtingablaðsins
1964 á hluta í húseigninni nr. 107 við Bústaðaveg, hér í
borg, talinn eign Þórðar Arasonar, fer fram eftir kröfu
Einars Viðar hrl. og Tómasar Árnasonar hrl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 7. október 1964, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Lögtök
Að undangengnum úrskurði 25. þ. m. verða lögtök
látin fram fara,.án frekari fyrirvara að 8 dögum liðn
um frá biitingu þessarar auglýsingar fyrir eftir-
töldum gjöldum: Ógreiddum tryggingagjöldum til
Tryggingastofnunar ríkisins, sem greiðast áttu í jan
úar og júní sl., framlögum sveitarsjóða til Trygg-
ingastofnunar ríkisins og atvinnuleysistrygginga-
sjóðs á árinu 1963, söluskatti 1. og 2. ársfjórðungs
1964, svo og öllum ógreiddum þinggjöldum og trygg
ingagjöldum ársins 1964 tekjuskatti, eignaskatti^
hundaskatti, sýsluvegasjóðsgjaldi, námsbókagjaldi,
slysatryggingaiðgj aldi, atvinnuleysistrygginga-
sjóðsiðgjaldi, iðnlánasjóðsgjaldi, kirkjugjaldi og
kirkjugarðsgjaldi, sem gjaldfallin eru hér í umdæm
inu. Ennfremur bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bif
reiða og vátryggingagjaldi ökumanns, gjaldföllnum
á þessu ári svo og áföllnum og ógreiddum skemmt-
anaskatti^ gjaldi af innlendum tollvörutegundum, út
flutningssjóðsgjaldi, skipulagsgjaldi af nýbygging-
um, skipaskoðunargjaldi, vélaeftirlitsgjaildi, raf-
stöðvagjaldi, gjöldum til fjallskilasjóðs, svo og ó-
greiddum iðgjöldum og skráningargjöldum vegna
lögskráðra sjómanna.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Sýslumaðurinn í Gullbringu-. og Kjósarsýslu,
29. september 1964.
Björn Sveinbjörnsson, settur.
Vfirverkfræöingur
Stórt fyrirtæki óskar að ráða yfirverkfræðing. —
Þeir, sem áhuga hefðu á starfinu, leggi vinsamlegast
nöfn sín ásamt upplýsingum á afgr. Mbl., merkt:
„Yfirverkfræðingur — 9203“.
Bikarkeppni K.S.Í.
MELAVÖLLUR
f dag, laugardaginn 3. oktober kl. 4 e.h.
k'1—\
Akureyringur — k.B.a
Nú verður það fyrst spennandi!
Hvað skeður nú ?
MÓTANEFND
Allt frá hatti oní skó
HERR4DEILD
— Þingmeirihluti
Framh. af bls. 1.
sögðu ekki að afhenda handritin
sem gjöf heldur vegna þess, að
það sé rétt og skylt. Eru grein-
arhöfundar þeirrar skoðunar, að
þá fyrst sé unnt að ákveða í
þjóðþinginu að gefa íslendingum
handritin, þegar með vissu hafi
verið úr því skorið, að þau séu
dönsk eign. Sömu skilyrði telja
þeir fyrir því, að danskuí dóm-
stóll geti — við málaferli þau,
sem stjórn Árna Magnússonar
stofnunarinnar hefur boðað —
skorið úr um það, hvort um eign-
arnám sé að ræða — og hvort
það er réttlætanlegt eða ekki.
UMMÆLI DANSKRA BLAÐA
Mikið er nú fjallað um af-
hendingu handritanna í dönskum
blöðum. í ritstjórnargrein í „Poli-
tiken“, blaði Radikala, segir í
dag: „Enginn vafi getur leikið
á framkvæmd málsins. Danir
munu afhenda íslendingum, sem
gjöf, þau handrit og skjöl, sem
samkvæmt hljóðan laganna má
telja íslenzkan menningararf. —
Sjálfsagt er, að K. B. Andersen,
fræðslumálaráðherra, leggi fram,
þegar daginn eftir setningu þings
ins, lög þau, sem frestað var að
staðfesta, að kröfu 61 þingmanns.
Augljóst er, að þingmenn flokka
Sósíaldemókrata, Radikala og
Sósíalíska þjóðarflokksins munu
halda fast við þá fyrri afstöðu
sína að mæla með afhendingunni
en atkvæðagreiðslan féll 110
gegn 39 — enda þótt einstöku
nýir þingmenn kunni að taka sér
afstöðu í málinu. Meirihluti þing
manna Vinstri flokksins, undir
forystu Eriks Eriksens, sem
höfðu sömu afstöðu hljóta að
styðja afhendinguna og sama
hlýtur að vera um stuðnings-
menn afhendingarinnar meðal
íhaldsþingmanna, þeirra Hanne
Budtz, Niels Ravn — og vara-
formanns þingflokksins, Knud
Thestrup, dómara. Þótt allir þing
menn Óháðra greiði atkvæði
gegn afhendingunni ásamt flest-
um þingmönnum íhaldsflokksins,
er í fullu gildi sú staðhæfing
Pouls MÖllers, að möguleikar
þingmanna til að hindra afhend-
inguna séu nú fullnýttir.
Það er vel skiljanlegt, að vís-
indamenn, sem starfa daglega við
þessa fornu dýrgripi skuli líta
með sorg og biturleik á þá á
kvörðun að færa Islendingum
þessa gjöf. En það réttlætir ekki,
að þeir leiti nú á vit dómstól-
anna — sem sennilega verður
árangurslaust — til þess að hamla
gegn vilja meirihluta þjóðarinn-
ar, eins og hann kemur fram á
þjóðþinginu.
Þeir hafa haft þrjú ár til þess
að ljósmynda handritin — sem
áfram verður aðgangur að í Rvík.
Þessu máli verður nú að ljúka
á virðulegan hátt — og vísinda-
menn og aðrir geta haft úrslita-
áhrif um það.
„Álborg Amtstidende", blað
Vinstri flokksins, skrifar: „Hand-
ritamálið hefur nú verið dregið
skammarlega á langinn og væri
nú ekki nema sanngjarnt að and-
stæðingar afhendingarinar, burt
séð frá því hversu göfugar hvat-
ir þeirra eru, láti nú af andstöð-
unni og beygi sig fyrir ákvörð-
un þjóðþingsins. Lögin frá 1961
voru sanngjörn og réttlát lausn,
hvað sem líður öllum þeim gagn-
rökum, sefn koma má á fram-
færi með lagakrókum. Því miður
komu fhaldsmenn í veg fyrir
afhendinguna, með stuðningi
Óháðra og einstöku þingmanna
Vinstri flokksins. Þegar lögin nú
verða lögð fram á ný og sam-
þykkt ber andstæðingunum að
beygja sig fyrir þeirri sam-
þykkt.“
„Sjællands-Tidende“, sem einn
ig er Vinstri blað mælir hins
vegar harðlega gegn afhendingu
handritanna. Blaðið vísar til
meðferðar málsins 1961 og seg-
ir: „Án stuðnings Vinstri manna
(og vissulega voru nokkrir
Vinstri menn meðmæltir afhend-
ingunni árið 1961 — en við skul-
um vona, að þeir hafi legið eftir
á kosningavígvellinum á Jót-
landi) geta þeir Krag, K. B. And-
ersen og nýi menningarmálaráð-
herrann — (við fáum nú að sjá,
hvað menning er — hvort það er
menning að ráðstafa dýrgripum
þjóðarinnar eftir eigin geðþótta
— handritunum í dag — sólar-
vagninum á morgun — hvoru
tveggja er okkur jafn mikils
virði) — ekki afhent handritin,
þar sem Krag hefir svarið þess
eið, að þröngva engu máli gegn-
um þingið með stuðningi Aksels
Larsens.
Þarna stendur hann tæpt„
ásamt hinum vængstýfðu Radí-
kölum stuðningsmönnum sínum
og dirfist vænta þess, að Vinstri
flokkurinn byrji nýtt kjörtíma-
bil með því að koma honum til
aðstoðar. Látum hann verða sér
þar til minnkunnar."
Með hinni vonglöðu athuga
semd ritstjóra „Sjællands Tid
ende“ um að þeir Vinstri-þing
menn, sem árið 1961 voru hlynnt
ir afhendingu handritanna, hafi
legið eftir á kosningavígvellin
um á Jótlandi, vísar til hins
mikla taps Vinstri-flokksins á
Jótlandi við þingkosningarnar f
síðasta mánuði, og sigurs flokks-
ins í Kaupmannahöfn. En vart
mun raunveruleg ástæða til að
óttazt að þetta hafi mikil áhrif
á afstöðuna til handritamálsins.
Dagblaðið „Börsen“ — aðal-
ritstjóri þess er hinn nýkjörni
þingmaður J. P. Jensen — segir,
að ýmislegt mæli með því, að
handritamálið sé skoðað í öðru
ljósi en til þessa hafi verið gert.
„Væri því ekki rétt“, segir blað
ið, „að koma á ráðstefnu fulltrúa
íslands og annarra norðurlanda-
þjóða, sem fengi málið til úr-
iausnar. Ef menn gætu fellt sig
við þessa hugmynd mætti losna
við deilur um eignarétt — sem
hafa jaðrað við að vera þras-
kenndar. Jafnframt væri með
þessu hægt að skapa einstaklega
góðan grundvöll fyrir" vísinda-
starf í staðinn fyrir að gera þátt
vísindanna í þessu máli svo fló’k-
ínn. Samnorræn stofnun er hefði
með höndum handritasöfn virð-
ist vera varanlegri lausn þessa
máls en sú er ríkisstjórnin stefn
ír augljóslega að. Væri ekki eðli-
legt að heyra sjónarmið þeirra,
sem til þekkja, á þessum grund-
velli og ræða síðan málið á fundi
Norðurlandaráðs, áður en þjóð-
þingið grípur til hinnar augljós-
ustu útgönguleiðar málsins.“
— Rytgaard —
Lítil íbúð
eða rúmgóð stofa með eldunarplássi óskast, sem
fyrst fyrir barnlaus, ung hjón. — Upplýsingar
í síma 35900. — Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Framtak
Eigendaskipti eru fyrirhugúð á tveirn 3ja herb.
íbúðum að Sólheimum 25. Félagsmenn, er vildu
neyta forkaupsréttar síns; eru beðnir að senda skrif
leg tilboð sín til Jóns Hallssonar, Snorrabraut 30,
fyrir 7. október.
Byggingasamvinnufélagið Framtak.
IKOIKOIKOIKOIKOIKOIKOIKO
Starfsmaður óskast
til hagræðingarstarfa
Fyrir etmt af viðskiptavinum okkar,
sem starfar í timburiðnaði í nÁgreni
Keyícjavíkur, leitum við eftir staröt-
manni.
Verksviðið verður áætla-nagerðir,
skipulagnin-g, tímaathuganir og ón>nur
hagræðingaratarfarfsemi. Til grein*
koma menn með trésm íða réttwvdi,
verzluna r skól a menntun, st údervtspróf
stærðfræðideildar eða mentn me9
hliðstæða eða meiri menntun.
Starfið krefst að auki:
Hæfini til að vin-na sjálfstætt. Haefná
tii samatarfs. Ánægju af meðferð
talna.
Starfið býður:
Nauðeynlega bjálfun í starfinu, bæCH
verklega og með námskeiðum, á ftuAL-
um launum.
Þroskandi verkefni við góð starAe-
skilyrði. Gróð laun. Góðir franvtíðar-
möguleikar fyrir rétta manninn.
Nánari upplýsingar 1 sima 2-44-Tl.
Skrifilegar umsóknir sendwt:
INDUSTRIKONSUL.ENT A. S.
Kaplaskjólsvegi 53 — Reykjavík.
Merkantil o.g teknisk rasjonalisering.
Bygningsteknisik rádgiving.
IKOIKOIKOIKOIKOIKOIKOIKO