Morgunblaðið - 04.11.1964, Qupperneq 21
Miðvikudagur 4. nóv. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
21
'r Undanfama daga hafa stúd-
entar barizt við löigreglu og her
í höfuðborg Bólivíu La Paz, en
í gær tókst að koma á vopnahiéi.
INokkur skothríð varð í dag, en
tókst að stöðva hana áður en í
óefni var komið á ný.
Esoenssoro, forseti Bólivíu
sagðb í útvarpsræðu í dag, að
uppreisnarmönnum í landinu
myndi ekki takast að steypa
stjórninni. Hann sagði, að stjórn-
málaöfl hefðu æst stúdenta og
ikennara geign yfirvöldunum.
SMÍÐI CONCORDE FRESTAÐ?
París, 30. okt. (NTB)
Að afloknum viðræðum full-
trúa brezku og frönsku stjórn-
anna í París í dag, hermdu
áreiðanlegar heimildir, að frest-
að yrði um óákveðinn tíma
Bmíði Concorde-farþegaflugvélar
Innar, sem fljúga á hraðar en
hljóðið. Bretar og Frakkar hafa
nnnið að smíðinni sameiginlega
undanfarin ár. Frestunin er sögð
liður í sparnaðaráætlun brezku
stjórnarinnar, en þar er tekið
fram, að endurskoðuð verði af-
Staðan til Concorde.
BRETAR GAGNRÝNDIR
í GATT
Genf, 30. okt. (NTB) _
Ákvörðun brezku stjómarinn-
»r um tollahækkun, sætti harðri
gagnrýni á fundi Tollabandalags-
ins (GATT) í Genf í dag. Hins
vegar benti ekkert til þess að
sðrar þjóðir, sem aðild eiga að
GATT hygðust grípa til mót-
aðgerða gegn Bretum.
Að loknum fundi fastaráðs
GATT í dag, var frá því skýrt,
&ð kosin hefði verið nefnd til
þess að rannska vandamálin,
sem skapast vegna ákvörðunar
Breta um að hækka toll á flest-
um innflutningsvörum um 15%.
En hækkunin er einn liður í að-
gerðunum, sem stjórnin ætlar
að grípa til til þess að draga úr
halla á viðskiptajöfnuðinum.
DE GAULLE SENDIR
KÍNVERJUM BOÐSKAP
I París, 31. okt.
De Gaulle Frakklandsforseti
hefur sent Chou En-Lai, for-
sætisráðherra Kína, boðskap þess
efnis að Frakkland sé reiðubúið
að taka þátt í öllum ráðstefnum
um kjarnorkuafvopnun.
ENN EINN BROTTREKSTUR
, Moskva, 31. okt.
1 Mikhail Kharmalov, yfir
maður útvarps og sjónvarps
Rússlandi, hefur verið látinn
hætta störfum. Þetta var tilkynnt
af opinberri hálfu, en vestræn-
um fréttariturum hafði verið
kunnugt um brottreksturinn, sem
mun standa í sambandi við fall
Krúsjeffs. Nikolai Mesjatsjev
hefur verið skipaður útvarps- og
sjónvarpsstjóri í staðinn.
|) Moskva, 31. okt.ber NTB-AP
1 Nikita Krúsjeff, fyrrum for-
eætisráðherra, hefur nú verið
vikið úr tveimur síðustu opin-
Petta er fyrsta opinbera myndin af Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta. Hann situr sér viðskrifborð sitt.
hafði á hendi eftir að honum var
velt úr sessi. Hann hefur nú lát-
ið af störfum sem meðlimur í
miðstjórn Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna, og ennfremur
sem meðlimur Æðsta Sovétsins,
þings Sovétríkjanna, að því er
áreiðanlegar heimildir í Moskvu
herma. Þetta hefur það að segja,
að Krúsjeff er nú maður gjör-
samlaga valdalaus í sovézkum
stjórnmálum og heillum horfinn
með öllu.
Góðar heimildir í Moskvu
herma einnig, að hinir nýju
valdhafar í Kreml hafi sent frá
sér umfangsmikla skýrslu um
tildrög þess að Krúsjeff var vik-
ið úr embætti. Ákæruskjal þetta
er sagt í 29 liðum, og er það
kröftugasta árás á nokkurn
Sovétleiðtoga, sem gerð hefur
verið síðan 1956, er Krúsjeff
flutti hina fræigu ræðu sína um
Stalín og opinberaði heiminum
það, sem hann hafði raunar
löngum vitað, að Stalín hafi
verið stórglæpamaður.
Meðal mikilvægustu ákæru-
liðanna í skýrslunni er sá, að
Krúsjeff hafi tekið hreint
„alræðisvald“ í algjöru trássi
við hugmyndirnar um sameigin-
lega stjórn flokksins í þjóðmál-
um, að hann hafi otað vinum og
ættimgjum í háar stöður, sem þeir
ekki voru hæfir að gegna, að
hann hafi gert fjöldamargar
skyssur á sviði utanríkismála er
Súez-deilan stóð sem hæst, svo
og Kúbumálið og deilan við Kín-
verja, og að hann beri ábyrgð
á hinu alvarlega ástandi í land-
búnaðarmálum Sovétrikjanna.
Þessi larngi og ítarlegi listi
yfir mistök Krúsjeffs gefur til
kynna að hann hafi verið settur
af vegna harðrar gagnrýni á ýmS'
um höfuðpunktum stefnu þeirr'
ai, sem hann hefur fylgt síðan
hann settist á valdastól fyrir
nær sjö árum.
í skýrslunni, sem talið er, að
send hafi verið öllum deildum
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, er Krúsjeff þannig gagn-
beru stöðunum, sem hann enn rýndur fyrir að hafa sent eld-
f fyrrl viku vorn mlkll flðð i J úgóslavíu eftlr langvarandi rign-
Ingar og fór allt á flot í mörgum borgum og bæjum. Eignatjón
varð mikið en manntjón hinsv egar litið. — Hér sjást stúdentar
fleyta sér á götum Zagreb.
flaugar til Kúbu, en sfðan orðið
að sækja þær aftur. Deilt er á
hann fyrir að hafa framkvæmt
ýmisleigt í utanríkismálum að
vanhugsuðu máli, og fyrir að
hafa hagað sér ósæmilega bæði
heima fyrir og erlendis! Skýrsla
þessi er sögð 40 síður, og er talið
að hún sé að mestu útdráttur úr
gagnrýni þeirri, sem Krúsjeff
varð fyrir á fund miðstjórnar
kommúnistaflokksins fyrir
tveimur vikum, er hann var sett-
ur rf.
stofnanir og þannig komið ringul-
reið á stjórn landsins. Þá hafi
Krúsjeff reynt að gera forsætis-
ráðherraembætti sitt sem líkast
embætti forseta Bandaríkjanna!
Ennfremur er hann sakaður fyrir
hroka gagnvart ýmsum erlend-
um þjóðhöfðingjum. m.a. Gheor-
ghiu-Dei, forsætisráðherra Rúm-
eníu.
Loks er Krúsjeff gefið að sök
að troða konu sinni, Nínu í stöðu
formanns sovézku kvennasam-
takanna, að hafa veitt syni sín-
um, Sergei, stöðu sem verkfræð-
ingi, sem hann hefði verið alls
óhæfur að gegna, og að hafa
komið • dóttuf sinni, Rödu, í
stöðu við vísindalegt tímarit.
Ekkert hefur verið uppi lát-
ið í Moskvu um tilveru ákæru-
skjals þessa, en í dag, 31. okt.,
lýstu málgögn kommúnista-
flokka Ítalíu og Fr.akklands því
yfir, að þau drægu mjög í efa að
skýrsla þessi væri til, og væri
hér vafalaust um að ræða ýkjur
og uppspuna vestrænna blaða
Bæði málgögnin kváðust hafa
það eftir áreiðanlegum heimild-
um í Moskvu, að skýrslan væri
tiL
KONUNGSSKIPTI
í SUÐUR-ARABÍU
Beirut, 2. nóv. (NTB)
Saud konungur Saudi-Arabíu
hefur lagt niður völd, en við
þeim tekið bróðir hans, Feisal,
sem verið hefur forsætisráðherra
sjúkdómi, sem skemmdi tauga-
kerfið (sclerosis) og, að nýju
valdhafarnir drægju enga dul á,
að mörg mistök Krúsjeffs hefðu
átt rætur að rekja til sjúkdóms-
ins. Ekki vildi Jespersen segja
hvort sjúkdómurinn væri á háu
stiigi, en sagði Krúsjeff á hress-
ingarhæli fyrir utan Moskvu.
Eftirfarandi atriði kvaðst
Jespersen hafa fengið upplýsing-
ar um í Moskvu:
1. Að deilan við Kína hefði
ekki haft áhrif á valdhafaskiptin.
2. Nýju ieiðtogarnir bæru lof
á Krúsjeff fyrir hlut hans í for-
dæmingu Stalíns, en gagnrýndu
hann fyrir að hafa tekið ákvarð-
anir án þess að ráðigazt við aðra
leiðtoga.
3. Vinsældir Krúsjeffs innan-
lands hefðu farið minnkandi
undanfarin ár.
4. Helztu mistök Krúsjeffs
hefðu verið í landbúnaðinum.
5. Stefna Krúsjeffs um frið-
samlega sambúð við vestræn ríki
yrði óbreytt.
6. Nýju leiðtogarnir hygðust
hvorki gagnrýna Krúsjeff opin-
berlega með nafni né bera lof á
hann.
7. Að fregnir um ákæruskjal
á hendur Krúsjeff í 29 liðum
væri uppspuni.
39 FARAST
í JÁRNBRAUTARSLYSI
Berlín, 2. nóv. (AP)
Tvær járnbrautarlestar rákust
á á leiðinni frá Berlín til Rostok
í gær. 39 menn létu lífið í
árekstrinum, en um 100 særðust.
Onnur lestin var farþegalest, en
hin flutningalest.
NORRÆNA HÚSIÐ KOSTAR
RÚMAR 20 MILLJ.
Kaupmannahöfn, 2. nóv.
(NTB)
I umsókn til danska þingsins
um aukna fjárveitingu til Norr-
æna hússins í Reykjavík, segir
Hans Sölvhöj, menningarmála-
ráðherra, að húsið verði helm-
ingi dýrara, -en áætlað var 1962.
Stafi það af verðhækkunum
almennt og því, að húsið verði
stærra en ráðgert hafi verið 1962.
Húsið mun, samkvæmt nýju áætl
ununum, kosta rúmar 20 millj.
ísl. kr. Norðurlöndin greiða
hvert einn sjötta kostnaðarins
nema Svíar, þeir greiða tvo
sjöttu.
Hér bera hinir nýju valdhafar Sovétríkjanna hinn fallna
„félaga“ Sergei Biryuzov, yfirm ann herforipgjaráðsins, til graf-
ar. Fremstir sjást Kosigyn, Brczhnev og Mikojan.
f sambandi við hutgmynda-
fræðideiluna’við Kína er Krúsjeff
sakaður um að hafa hellt olíu á
eldinn með því að ausa Mao
Tse-Tung persónulegum móðg-
unum, og að hafa ekki farið
eftir fyrirmælum ráðgjafa sinna
um betri framkomu. Hann er og
sakaður um að hafa spillt fyrir
áliti Sovétrikjanna útávið með
dæmalausri framkomu sinni, m.a.
vegna hins fræga atburðar er
hann notaði skó sinn sem fund-
arhamar í aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna fyrir fjórum ár-
um, og þess, að hann hafi verið
ósvífinn oig ruddalegur í fram-
komu við kínverska sendinefnd
í veizlu í Moskvu í fyrra.
Varðandi hið alvarlega ástand
í landbúnaðarmálum segir, að
Krúsjeff beri höfuðábyrgð á því,
að landbúnaðarmálastefna hans
og kenningar í þessum efnum
hafi breytzt frá ári til árs, og
jafnvel frá einum mánuði til þess
næsta. Því er einnig haldið fram
í skýrslunni, að álíka lítið sam-
ræmi hafi verið í efnahagsmála-
stefnu Krúsjeffs.
Þá er Krúsjeff harðlega gagn-
rýndur fyrir að hafa sent tengda-
son sinn Alexei Adsjubei í ýmsar
vandasamar sendiferðir til Bonn
og Páfagarðs án þess að utan-
ríkisráðuneytið samþykkti það.
Þá er hann sakaður um að hafa
skipað menn í ýmsar stöður eftir
eigin geðþótta og smekk, sett á
lagigirnar ýmsar nýjar sjórnar-
landsins. Það var rikisstjórn
landsins, sem ákvað, að skipt
skyldi um konung. Feisal er
mjög hlynntur Vesturveldunum
og hefur ferðazt víða sem full-
trúi lands síns.
Hinn nýi konungur Saudi-
Arabíu er 59 ára, þremur ,órum
yngri en Saud, fyrrv. konungur.
1956 varð Feisal forsætisráðherra
og bar mesta ábyrgð á stefnu
lands síns í innan- og utanríkis-
málum. Saud konungur tók við
þessu embætti af bróður sínum
1960, en tveimur árum síðar
varð Feisal forsætisráðherra á
ný. Ekki er vitað hvort hann
hyiggst gegna embættinu áfram
eftir að hann er orðinn konung-
ur.
Saud konungur hefur verið
við völd í Saudi-Arabíu frá 1953,
°n þá tók hann við konungsdómi
að föður sínum látnum. Hann
hefur verið heilsuveill síðustu
ár m.a. þjáist af of háum blóð-
þrýstingi og hjartasjúkdómi.
DEILAN VIÐ KRÚSJEFF ÁTTI
EKKI ÞÁTT í FALLI KRÚSJEFF
Kaupmannahöfn, 2. nóv. (AP)
Formaður danska kommúnista-
flokksins, Kund Jespersen, hélt
fund með fréttamönnum í dag og
skýrði frá ýmsum upplýsingum
um fall Krúsjeffs, sem hann
hafði fengið i Moskvu. Hann
sagði, að Krúsjeff þjáðist af
Myndin sýnir prófessor Dorothy
Crawfoot-Hodgkin, 54 ára, en
hún starfar við Oxfordháskóla i
Bretlandi. Henni voru veitt efna-
fræðiverðlaun Nóbels í ár, og er
hún þriðja konan, sem Nóbels-
verðlaun hlýtur fyrr og síðar.