Morgunblaðið - 11.11.1964, Síða 1
24 sáður
!0míwm*fa
51 ár«angur
255 tbl. — Miðvikudagur 11. nóvember 1964
Prentsmióji; Mo’-gunbla8sina
Forsætísróð-
herro kom
í gær
FORSÆTISRÁÐHERRA-
HJÓNIN, frú Sigriður
Björnsdóttir og Bjarni
7Benediktsson komu til
Reykjavíkur úr ísraelsför-
inni kl. 16.15 í gær með
flugvél frá Flugfélagi ís-
lands. Þau lögðu af stað
heimleiðis .frá ísrael á
mánudagsmorguninn. —
Eshkol, f.orsætisráðherra
jísraels, og kona hans
fylgdu þeim á flugvöllinn
og voru þjóðsöngvar heggja
landanna leiknir þar.
Forsætisráðherra sendi
Eshkol, forsætisráðlierra,
skeyti úr flugvélinni með
þökkum fyrir ógleyman-
lega gestrisni og vináttu.
Myndina tók ljósmynd-
ari Mbl., Ól. K. M., þegar
forsætisráðherrahjónin
komu heim í gær. Á henni
sjást forsætisráðherrahjón-
7in og Gunnar Thoroddsen,
sem tók á móti þeim, og
auk þess tvær dætur þeirra.
Adenauer i Paris:
//
Megum þakka Guði
fyrir De Gou//e"
PARÍS, 10. nóvember. — (NTB — AP) —
DR. KONRAD Adenauer, fyrrum kanzlari Vestur-Þýzka-
lands, fór í dag síðdegis aftur heim til Bonn eftir tveggja
daga viðdvöl í Frakklandi og viðræður við de Gaulle, Frakk-
landsforseta. Áður en hann steig upp í flugvélina, er flutti
hann heimleiðis, sagði Adenauer: „Það var gott að ég kom.
Árangurinn af viðræðunum mun koma í ljós einhvern
næstu daga“.
Sú var opinber ástæða París- [ væntanlegur til Parísar í janúar
arheimsóknar Adenauers, að n.k., hafði falið fyrirrennara sín-
taka sæti í frönsku stjórnmála-
akademíunni, en Adenauer kom
ýmsu öðru í verk í ferðinni, þótt
kominn sé til ára sinna (hann
vantar tvo í nírætt). Á mánu-
dag ræddi hann við de Gaulle
lengi vel og sat hádegisverðar-
boð forsetans og í dag, þriðju-
dag, hittust þeir aftur að tilmæl-
um Adenauers og ræddust við í
klukkustund eins og fyrri daginn.
Þá sat Adenauer hádegisverðar-
boð fransk-þýzka félagsins í
París í dag og hélt þar ræðu og
eins heimsótti hann Louvre-safn-
ið og hitti að máli ýmsa vini og
kunningja í höfuðborg Frakk-
lands. Moskvu, 10. nóv. — (NTB)
Ludwig Erhard, kanzlari Vest- MÁLGAGN sovézku stjórn-
ur-Þyzkalands, sem sjalfur er
um í embættinu að leitast við að
brúa bil það sem myndazt hefur
milli Frakka og Þjóðverja og fer
óðum breikkandi, er stafar af
'ósamkomulagi varðandi verðlag
á kornvörum innan Efnahags-
bandalagsins og varðandi fyrir-
hugaðan kjarnorkuflota NATO,
sem skipaður á að vera bland-
aðri áhöfn úr aðildarríkjunum.
Framh. á bls. 23
SOVÉZKUR starfsmaður'
iMenningarmálastofnunar SÞ,1
(UNESCO) í París, Vladimir
Ponomarev, sem saknað hef-,
ur verjð síðan í september,
hefur undanfarið dvalizt í
Bretlandi oig hefur nú fengið
þar landvistarleyfi, sem póli-
'tískur flóttamaður.
Ponomarev er 39 ára gam-
all, kvæntur maður og á einn
son barna. Kona hans er ekki
með honum í Bretlandi og son
urinn er í Sovétríkjunum.
Ponomarev hafði verið starfs
maður kennslumáladeildar
UNESCO í París síðan 1959
og hvarf fyrir hálfum öðrum
mánuði eftir að hann sat fund
í Stokkhólmi um kennslu full
orðinna 20-28 september sl.
Ponomarev sat fund þennan
af hálfu UNESCO og hvarf á1
brott frá Svíþjóð 25. septem-i
ber. Hann hafði áður sagt
yfirmanni sínum í París að
hann vildi segja starfi sínu
lausu í októberlok, og þegar
hann ekki kom aftur til vinnu|
5. október, var ráð fyrir því.
gert að hann væri hættur
störfum. Að söign talsmanns
UNESCO í París, hafði ekki
heyrzt frá honum eitt eða
neitt síðan hann fór frá Stokk
hólmi. Kona Ponomarevs
hvarf úr íbúð þeirra hjóna 5.
október og er talið að hún(
hafi farið aftur til Sovétríkj
anna.
Rússar ásaka Bandaríkin um
hernaðarlegar ögranir í Laos
og
fyrir að beita þróunar-
löndin hörðu
Gengur hvorki né rekur í Moskvu
þó báðir lýsi sig fúsa til sátta
Moskvu, 10. nóv. AP.
í DAG fóru fyrstu sendinefnd-
irnar frá Moskvu og aðrar fara
á morgun, en óvíst er enn um
brottfarardag sumra þeirra, þar
á meðal kínversku sendinefnd-
arinnar. Þrátt fyrir opinberar
yfirlýsingar um einingu komm-
únistaríkjanna og samhug flokk-
anna, er ekki að sjá að neitt
miði í átt til samkomulags á hin
um leynilegu fundum Chou En-
lais og Leonids Brezhnevs. —
Pravda, málgagn sovézka komm
únistaflokksins hvatti í dag aft-
ur til alheimsráðstefnu kommún-
ista, sem Peking-stjórnin hefur
lýst sig andvíga.
Fyrstir fóru frá Moskvu Jiri
Hendryeh, helzti hugmyndasér-
fræðingux tékkneska kommún-
istaflokksins, flokksritari og
tékkneska sendinefndin öll. —
Næstir sigldu í kjölfarið Júgó-
slavar og svo hverjir af öðrum.
Walter Ulbrieht, flokksleiðtogi
austur-(þýzkra kommúnista fer á
miðvikudagsmorgun, en í dag
rœddi utanríkisráðherra Austur-
Þýzkalands, Lothar Bolz, við
sovézka utanríkisráðherrann
Andrei Gromyko.
Ekkert var um það sagt, hve
nær Chou En-lai, hinn kínverski
myndi fara, en getum leitt að
því að hann myndi dvelja í
Moskvu í a.m.k. tvo daga enn til
frekari viðræðna. Wladyslaw
Gomulka, leiðtogi pólskra komm
únista, var sagður vilja miðla
málum milli sovézkra og kín-
verskra og sögðu alla jafna áreið
anlegar heimildir að hann myndi
verða áfram í Moskvu eins lengi
Framhald á bls. 23.
arinnar, Izvestia, ásakaði í
dag Bandaríkin fyrir hernað-
arlegar ögranir í Laos og fyr-
ir að undirbúa umfangsmikla
sókn hægrisinna í landinu.
í grein, sem ber fyrirsögnina:
„Hver blæs lífi í glæðurnar?“
skrifar Izvestia, að fréttir þær
sem berist frá Laos veki mönn-
um ugg og kvíða. Bandaríkja-
menn og útsendarar þeirra hafi
aukið hernaðarlegar ögranir sín-
ar gegn herliði Pathet Lao og
hægrisinnar í landinu undirbúi
nú mikla sókn í Suður-Laos og
dragi saman mikið fótgöngulið
en yfir fljúgi flugvélar Banda-
ríkjamanna og hafist' drjúgum
að, og sé þetta allt freklegt brot
á vopnahléS-samningunum, sem
gerðir hafi verið.
Þá ber Izvestia Bandaríkin enn
þeim sökum í dag, að þau beiti
þróunarlöndin hörðu og vitnar
þar til hótana Bandaríkjanna
um að inna ekki af hendi eins
og áður greiðslur í Framfarasjóð
SÞ, ef Sovétríkin ekki greiði sinn
Framh. á bls. 23
iiiniiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiimnii
| Kína eflir I
I her sinn I
= Hang Kong, 10 nóvembeir, =
| NTB. |
j= KÍNA hefur ákveðið að efla =
= enn herstyrk sinn, þar sem §j
= stjómin telji herinn enn ö£l- =
= ugra vopn en . kjarnorku- =
ssprengjuna sem sprengd var =
1=16. október s.l., að því er út- §§
S varpið í Peking sagði í dag. §§
H Var ákvörðun þessi tekin á =
|= stjórnmálafundi nýverið, þar =
= sem bent var á hið mikilvæga =
§§ hlutverk hersins á þeirri =
H stundu er landið standi and- =
H spænis ógnunum heimsveidis-
§§ sinna og byltingarmainna er- S
g lendra. Einnig sé herinn mjög S
H til eflingar hinu „lýðræðis- =
= lega einræði" í landinu, einss
= og komist var að orði í frétta M
S tilkynningu útvarpsins um =
S fundinn. Þá var lögð á það S
= áherzla á fundinum, að eink- s
S um bæri að efla herinn í s
= landamæraihéruðum og þeims
= hémðum sem að sjó liggja. M
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiuiinm