Morgunblaðið - 11.11.1964, Page 8

Morgunblaðið - 11.11.1964, Page 8
MORGU N BLAÐID Miðvikudagur 11. nóv. 1964 . 8 Dömur F}rir Pressubaliið Ný sending: Siðir samkvæmiskjólar Stuttir kvöldkjólar Kvöldtöskur Herðasjöl Hanzkar háir og lágir. Skartgripir Hjá Báru Austurstræti 14. Hagaganga — Fóðrun Get tekið nokkra hesta í hagagöngu og fóðrun í vetur á Álftanesi. Upplýsingar í síma 51286 eftir kl. 6 í kvöld og næstu kvöld. TSofl/tíflS vömr Kartöflumús — Kakómalt Kaffi — Kakó MATARBÚDIN, Hafnarfirði GÓLFTEPPI & LAGNINGAR HREINSUN Gólfteppi og húsgögn hreinsuð á öllum tím- um sólarhringsins í heimahúsum. Sækjum og sendum laus teppi. Filtgúmmí og gadda- listar til lagninga á teppum. BÚTAR og TEPPI seld með 25—40% afslætti. Söluumboð fyrir Vefararm bf. HREINSUN H.F., Bolholti 6. — Sími 35607. Jonína Elíeserdóttir Minning AÐ KVÖIjDI 3. nóvember lézt hjartkær vinkona mín á Heilsu- verndarstöðinni. Hún Jóna litla hestakona. Jóna litla með stóru hreinu sálina. Sjúkdómur og jarðvistarbasl að baki. Fram- undan hið óþekkta. Fyrir mínum sjónum var þessi einstæða kona, mikilmenni í einstæðingsskap sín um og auðug í fátækt sinni. Eftir því sem ég þekki hana meir og betur fannst mér meira til henn- ar koma og vænna um hana. Hún var fædd norður í Húna- vatnssýslu, ekki man ég á hvaða bæ foreldrar hennar bjuggu. Húmsagði mér sjálf að sig minnti að um vorið þegar faðir hennar dó, hafi hún verið á þriðja ári Og bróðir hennar Lárus á fyrsta. Grimm örlög dæmdu hana til öryggisleysis og einstæðinCTt- skapar. Staðirnir misjafnir eins og gengur. Svo fékk hún kíghóst- ann sem nærri reið henni að fullu. „En eitthvað þeim til líkn- ar leggst sem ljúfur Guð vill bjarga“. Hún var tekin á heimili þar sem henni leið svo guðdóm- lega vel, eins og hún sjálf orðaði það. f>ar fékk hún gott og mikið að borða og mátturinn kom smátt og smátt. Þarna var hún höfð til sendiferða, þótti fljót, viljug og trú. En trúmennskan var eitt af hennar aðalsmerkjum. Föður- bróðir hennar Jósep bjó á Sign- ýjarstöðum í Borgarfirði. Hann var giftur Ástríði Þorsteinsdótt- ur frá Húsafelli. Með honum flutti hún í Borgarfjörðinn og átti athvarf hjá þeim æ síðan, meðan þeirra naut við. Og svo eignast hún sinn fyrsta hest og hesta, og alltaf eftir það átti hún hesta. Það var lífsins akk- erið, athvarfið. helgilundurinn. Bikarinn sem af var teygað. til- hlökkun. gleði og þróttur, og þá oft mikið erfiði sem geta má nærri, þar sem hún aldrei hafði neitt jarðnæði. Henni þótti svo eaman í glöðum hóp. Hún gat líka ferðazt ein og fór þá oft langar dagleiðir. Hún var sérlega góður ferðafélagi, ósérhlífin, vökul og árrisul. Mikilli sorg og erfiðlei'kum olli það henni þegar vesælum mann- eskjum tókst að koma inn hjá henni að hestar hennar væru teknir ófrjálsri hendi. Sjálfri var henni svo fjarri hrekkir og undirferli að henni datt ekki annað í hug en þetta væri satt. Þetta él birti upp eins svo mörg önnur. Síðast var hún í skjóli góðra hjóna sem kunnu að meta hana og voru henni afar góð. Síðasta ferðin hennar Jónu var með bil norður í land til að færa vinum sínum þar einhvern glaðning. Sársjúk var hún, en hún vildi koma þessu, annars var ekki víst að það kæmist. Nokkrum dögum síðar var hún flutt á sjúkrahúsið til að heyja sitt erfiða dauðastríð. Stuttu áður en hún veiktist felldi hún annan hest sinn Faxa, m hwin dásamlegi Blesi á nú að falla og fylgja eftir húsmóður sinni. Eg býst ekki ,við að veraldarsjóðirnir hennar Jónu séu digrir en góðverkin hennar voru stór og mikil og unnin af heilu hjarta. Þessi orð eiga að vera tilraun til að þakka henni allt það góða í orði og verki. Svo bið ég Guð föður föðurlausra og skjól munaðarlausra að taka barnið sitt í faðminn og leiða á óþekktu löndunum til meira ljóss og nýrra starfa. Helga Larsen. Innheimtumaður Óskum eftir að ráða innheimtumann nú þegar. r * Jéhann Olafsson & Co. Hverfisgötu 18. Clœsilegt einbýlishús Einbýlishús í Túnunum til sölu. Hæð og kjallari. Á hæð: skáli, stórar og sólríkar stofur, eldhús með harðviðar innréttingum og borðkrók, harðviðar- hurðir, tvöfalt gler, svalir með tröppum niður í fal- legan garð. Allar innréttingar nýjar. Rimla-glugga tjöld. í kjallara: 4 svefnherbergi og snyrting. — Sérstakega skemmtilegt hús. IHIÐBORG Eignasala - Lœkjartorgí Sími 21285 Nœturvarð vantar á Hótel Borg. Málakunnátta nauðsynleg. Hudson sokkarnir ^vkomnir. Bankastræti. Stúlka óskast til vélritunarstarfa hálfan daginn (kl. 1—6 e.h.) Bolholti 6. f B A LLE RUP 1 MASTER MIXER LUÐVIG STORR Hrærivélar Master Mixer Og Ideal Mixer hrærivélar — fyrirliggjandi — Seldar gegn afborgun Eins árs ábyrgð Ballerup- vélarnar eru öruggasta og ódýr- asta húshjálpin. Varahlutir Stmi 1-3333 1-1620 ávallt fyrirliggjandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.