Morgunblaðið - 11.11.1964, Side 23
Miðvíkuclagur 11. nóv. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
23
Japanir vilja láta meira
að sér kveða í alþj.málum
Tókíó, 10. nóv. (NTB-AP).
HIN N nýi forsætisráffherra
Japans, Eisaku Sato, sagði á
biaðamannafundi í dag, hinum
fyrsta er hann heldur síðan hann
tók við embætti af Hayato Ikeda,
p,ð Japanir hefðu til þessa ekki
látið nógu mikið að sér kveða á
alþjóðavettvangi, en nú myndi
Verða þar breyting á. „Japanir
hafa haft miklu minna að segja
í alþjóðamálum en efnahagsað-
- Narfi
Framhald af bls. 24.
Kotfcbuss, sem var á þessum slóð
um, höifðu Rússarnir aflað þarna
um eina milljón tonna á sl. árL
Þarna voru um 100 rússneskir
togarar, sem veiddu síldina mest
megnis í flotvörpu.
Af Georgs banka hélt Narfi
norður á fiskibankana út af Nova
Sootia og var afli þar yfirleitt
tregur. Þar sem langt var liðið
á veiðiferðina var fyrirhugað að
reyna að aflaj karfa og var farið
austur á svokallaðan Greenbank.
í þriðja holinu sem Narfi tók þar,
fengust nokkrar lúður. Þá var
farfð að reyna fyrir sér á ýmsu
dýpi og fengust fná einum og
upp þrj-á poka af stórlúðu. í
fyrstu holunum var slangur af
mockhake, en að öðru leyti var
ekkert annað en lúða. Þykir þetta
lýigilegt, en þó landaði togarinn
G5 tonnum af stórlúðu, en þó
hafði ekki aMur lúðuaflinn verið
veginn er skipið fór frá Grims-
by.
Erfiðlega gekk að frysta lúðti-
aflann um borð vegna þess hve
mikið aflaðist á skömmum tíma.
Voru um 26 tonn sett í ís ti*l
geymslu og var ísinn fenginn í
St. Johns. Togarinn varð að ísa
aflann utan 12 mílna Iandhelgi
Kanada, þar sem Narfa hafði
verið neitað að koma með afla á
dekki til hafnar.
Bftir þetta hélt Narfi til Grims
by, þar sem hann landaði fuli-
fermi. Kom hann heim á laug-
ardagskvöld og lauk þar með
rúmlaga tveggja mánaða veiði-
ferð.
— 3 banaslys
Framhald af síðu 24
Eggertssonar, húsgagnasmiðs,
Heiðargerði 76, einnig 8 ára að
aldri hafði hlotið höfuðkúpúbrot
og var mikið marinn um allan lík
amann. Voru meiðsli hans enn í
rannsókn á Landsspítalanum í
gærkveldi. en honum leið eftir
atvikum vel og hafði fulla með-
vitund.
Hauðaslys við Silfurtún.
Kona varð fyrir bifreið á Hafn
arfjarðarvegi skammt frá Silfur-
túni um kl. 17,30 í gærdag. Var
hún á leið austur yfir veginn að
biðskýlinu hjá Ásgarði sunnan
við Silfurtún, er bifreið úr
Reykjavik, sem var á leið til
Hafnarfjarðar, ók á hana. Féll
konan á veginn og var látin, er
ejúkrabifreiðin kom með hana í
Slysavarðstofuna.
Ökumaður bifreiðarinnar
kveðst hafa verið að mæta öðr-
um bíþ er hann hafi séð konuna
skammt framundan bíl sínum,
en um seinan.
Kona fyrir híl á Hringbraut
Þá varð það slys seint í gærdag,
að fuilorðin kona varð fyrir bif-
reið á Hringbraut. Konan var á
leið suður yfir Hringbrautina, er
bifreið kom akandi vestur göt-
una og lenti framhorn bifreiðar-
innar á henni með þeim afleið-
ingum, að hún kastaðist í götuna.
Sjúkraibifreið flutti konuna á
Elysavarðstofuna, en síðar var
hún flutt á Landsspítalann.
Meiðsli konunnar munu vera al-
varleg og var hún enn á skurðar
borðinu, er síðast spurðist tiL
staða þeirra gefur tilefni til“sagði
hinn nýkjörni forsætisráðherra,
og bætti því við, að engin ástæða
væri til þess að láta varðveizlu
heimsfriðarins eftir - kjarnorku
veldunum einum. Einkum ætti
þetta þó við um Asíu, þar sem
Japanir hefðu til þessa alla jafna
í samskiptum sinum við önnur
lönd þar um slóðir einblínt um of
á verzlun og viðskipti.
Forsætisráðherrann kvaðst
myndu fyligja stefnu fyrirrenn-
ara síns í öllum atriðum, styðja
samninginn við Bandaríkin um
öryggismál og heimsóknir banda
rískra kjarnorkukafbáta til jap-
anskra hafnarbonga, sem hefur
verið mjög umdeilt mál í Japan.
Varðandi samskiptin við Kína,
kvaðst Sato búast við auknum
verzlunarviðskiptum og menning
arsamskiptum við Peking-stjórn
ina, en saigði að stjórnmálaleg
afstaða Japan til Kína myndi
efcki breytast. Japanir viður-
kenna sem kunnugt er stjórn þjóð
ernissinna á Formósu.
Helzta vandamálið innanlands
sagði Sato vera verðbólgu og of-
þennslu í efnahagslífinu, sem
væri í svo örum vexti, að erfitt
væri að hafa hemil á því. Kvaðst
Sato í þeim efnum myndu fylgja
stefnu Ikeda, og átaldi landa
sina fyrir „óhóflega eyðslusemi“,
og sagði í gamni að þeir hefðu
mátt taka sér til fyrirmyndar að-
haldssemi erlendu gestanna á hin
um nýafstöðnu Olympíuleikjum í
Tókíó.
Eisaku. Sato náði kosningu sem
forsætisráðherra eftir harða bar-
áttu við keppinauáa sína um em-
bættið, Ishiro Kono og Aichiro
Fujiyama. Stjórn Satos, sem sór
embættiseið sinn á mánudags-
kvöld, er skipuð sömu mönnum
og áður sátu í stjóm Ikeda, utan
hvað mannaskipti hafa orðið í
tveimur minniháttar ráðherra-
embættum.
— Alþingi
Framh. af bls. 17
Að lokum tók Ágúst aftur til
máls og sagðist ánægur yfir, að
von væri nýrra jarðræktarlaga.
Taldi samt, að úrbætur þær, sem
ráðherrann hefði nefnt, hnigju
í þá átt, sem Framsóknarmenn
hefðu bent á áður og hlytu
Framsóknarmenn að fagna þvL
Önnur atlaga að stjórn
Verkamannaflokksins
London, 10. nóvember, AP.
t KVÖLD, þriðjudagskvöld,
gerði íhaidsflokkurinn aðra
atlögu sina að Verkamanna-
flokksstjóm Wilsons, en stjórnin
hrósaði sem kunnugt er sex at-
kvæða sigri í fyrstu atlögunni
í gær og lét engan bilbug á sér
finna í dag þó um alla stefnu-
sk|rá flokksins væri að efla.
Að atkvæðigreiðslu lokinni
hafði stjórnin 21 atkvæðis meiri
hluta, og kom þar til óvæntur
stuðningur frjálslyndra. Var
vantrauststillaga íhaldsmahna
felld með 315 atkv. gegn 234.
Frjááslyndir gáfu Ihaldsmönn-
um atkvæði sín níu í gær,
þegar um þjóðnýtingu stáliðnað-
arins var að ræða, en höfðu lofað
að gera annaðhvort að sitja hjá
í kvöld eða fylgja stjórninni að
málum. Hefði stjórnin beðið
ósigur nú, hefði hún neyðzt til
að segja af sér.
Á pappírnum er meirihluti
Wilsons ekki nema fimm þing-
metm af 350, sem í neðri mál-
stofunni sitja. Veikindi hafa
minnkað þennan meirihluta
niður í þrjá þingmenn og brezka
þokan fræga var nærri búin að
gleypa hann með öllu á mánu—
dagskvöldið, þegar tveir tugir
þingmanna flokksins sátu veður
tepptir í Glasgow, en ktomust þó
suður um síðir í tæka tíð fyrir
atkvæðagreiðsluna.
— Moskva
Ilyggjíist endur-
nýja hljóðfærin
HAFNARFIRÐI — Nýlega
var haldinm aóalfiundur Lúðra-
sveitiar Ha{n.arfjarðar, etn unnið
er nú af mikluim krafti ininan
sveitarinniar, því að mikið sibend
ur til í janúarmániutði næstkom-
and.i. Þá etru liðin 15 ár frá stofn
utn lúðrasvteábarinnar og hyggst
hún haldta hljóiml'eika í því til-
efni. Er nú unnið að því að
endurnýjta og bætia við hljóð-
færakostinn og sefingar í fullum
giangi.
En hljóðtfæri kos>ta mifcla pen-
inga nú á dögum og riis sveitin
ekki undir kostnaðinum nema
tiil komi aðs'toð bæjarbúa. Gefst
þeim nú tíastur á að gera&t
styrktairfélaigax og verða kort
seld á 70 krónur, en þau gilda
á eina hljómleika árlega. Verða
styrktarkortin til sölu í bókabúð
um bæjarins og auk þass hjá
Æélögum sveitarinnar.
Stjótrn féiagsins sikipa þessir
m/enin: Eina.r Sigurjómstson l!or-
maður, Eiríkur Jóhannestson
ritarL Stigur Herlúfsetn gjatd-
keri, Ævar Hjaltason vairafonm.
og Rútur Hanuaes.. | >n meðstjórn-
andL
Stjómandi Lúðrasveitar Hafn-
arfjarðar er Hans Ploder Frans-
son, sem starfiair í Súit£ón.íulhljóim
sveit íslanids, G.E.
Framhald af bls. 1
og kínverski forsætisráðherrann.
Er Chou sagður vilja heimsækja
bæði Leningrad og Kiev að lok-
inni veru sinni í höfuðborg
Rússaveldis, en engar fregnir um
brottförina hafa fengizt staðfest
ar til þessa.
í gærkvöldi var sendinefndun
um haidið kveðjuhóf í Kreml,
og drakk Brezhnev þar til „ein-
ingu kommúnista“ af miklum
móði, en hafði fyr um daginn
rætt við Chou En-lai í tvær stund
ir samfleytt um skort á þeirri
hinni sömu einingu, að því er
fregnir herma. Ekkert var til
marks um að saman gengi með
þeim á fundunum, sem nú hafa
staðið yfir öðru hvoru í fjóra
daga.
Pravda ræddi í dag í ritstjóm-
argrein um hina aliþjóðlegu ráð-
stefnu kommúnista, sem áform-
uð var og Kínverjar vildu
hvorki heyra né sjá og sagði að
hana hefði átt að halda fyrir
löngu. Til þess var tekið, að
Sovétstjórnin kvað aðeins meiri
hluta hinna 81 kommúnista-
flokka heims fylgja sér að mál-
um, þrátt fyrir hina sögulegu
helgarfundi, sem taldir eru hafa
miðað að því að afla málinu
fylgis. en kunnugir teLja að litlu
eða engu hafi komið til leiðar.
— Rússar
Framh. af bls. 1
hluta af kostnaði við friðar-
gæzlustörf SÞ í Austurlöndum
nær og í Kongó.
„Þetta jafngildir því“, segir
Izvestia, „að Bandaríkin setji
þróunarlöndunum úrslitakosti að
því er varðar atkvæði þeirra,
þegar gengið verður til atkvæða
um þá tillögu Bandaríkjanna að
beita nú skuldunauta SÞ og þar
á meðal Sovétríkin, því ákvæði
stofnskrár samtakanna, að svipta
þá atkvæðisrétti á Allsherjar-
þinginu, nema tilskildar greiðsl-
ur verði inntar af hendi áður en
árið er úti.
Þingsályktanir.
Vigtun bræðslusíldar.
Matthías Bjarnason og 4 aðrir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eru flutningsmenn þingsálykt-
unartillögu um vigtun bræðslu-
síldar. Efni hennar er, að Al-
þingi álykti að skora á ríkis-
stjórnina að skipa fimm manna
nefnd til þess að athuga mögu-
— Adenauer
Framhald af bls. 1
í ræðu sinni í hádegisverðar-
boði þýzk—franska félagsins í
París í dag sagði Adenauer, að
hann myndi skýra Erhard svo
frá, að hann hefði átt góð skipti
við ráðamenn í París og að sam-
vinna Frakklands og Þýzkalands
myndi eflast og batna. Einnig
lýsti Adenauer ánægju sinni yf-
ir viðræðum Heinrichs Krone,
ráðherra án stjórnardeildar, sem
fór með honum til Parísar og
átti þar viðræður við Georges
Pompidou, forsætisráðherra og
Pierre Messmer, varnarmála-
ráðherra.
Skýrt var frá því í Bonn í
dag, að Adenauer myndi gefa
Erhard kanzlara skýrslu um við-
ræður sínar á miðvikudagsmorg-
un og Erhard síðan leiða stjórn
sína í allan sannleika um
heimsóknina og árangurinn af
henni á regiulegum stjórnarfundi
síðdegis á miðvikudag.
f viðtali við Hamborgarblaðið
„Die Welt“ sagði Adenauer í
dag, þriðjudag, að Vestur-Þýzka-
land myndi áfram vera í nánum
tengslum við Bandaríkin innan
Atlantshafsbandalagsins, en
sagði að kjarnorkuflotinn, sem
fyrirhugaður værL yrði að hafa
á sér evrópskt snið og kvaðst
gera ráð fyrir breytingum í þá
átt í áætlunum um hann.
í ræðu sem Adenauer flutti í
gærkvöldL bar hann mikið lof
á de Gaulle og sagði að hann
væri mikilmenni. „Við megum
þakka guði fyrir að hafa gefið
okkur de Gaulle,“ sagði Aden-
auer. „Mér þætti gaman að vita
hvernig heimurinn, og þá eink-
um og sér í lagi Evrópa, myndi
líta út í dag, ef de Gaulle hefði
ekki notið við.“ Þá lét Adenauer
og að því liggja að drottinn al-
máttugur hefði haft hönd í bagga
með að sætta Frakka og Þjóð-
verja, það hlyti að hafa verið
hans vilji að sættir næðust.
Fulltrúi frönsku ríkisstjórnar-
innar í veizlu þessari, sem hald-
in var til heiðurs Adenauer, var
Maurice Couve de Murville, ut-
anríkisráðherra. Flutti hann þar
einnig ræðu og sagði að Aden-
auer væri sá sem lagt hefði
drögin að sáttum milli landanna
tveggja.
leika á því, að síld, sem lögð er
í sildarverksmiðjur til bræðslu,
verði keypt eftir vigt.
Skal nefndin kynna sér, á
hvern hátt sé hentugast að koma
þessari skipan á, og láta fram-
kvæma áætlun um kostnað, er
leiddi af þessari breytingu, og
leggja álit sitt og tillögur fyrir
ríkiisstjórnina eigi síðar en 1.
okt. 1965. Ef álit nefndarinnar
verður á þann veg, að vigtun
bræðslusíldar verður tekin upp,
verði að því stefnt, að hin nýja
skipan verði komin í fram-
kvæmd fyrir sumarsíldveiðar
árið 1966.
Ræktun skjjólbelta.
Oddur Andrésson, Sigurðut
Bjarnason og Hermann Jónas-
son eru flutningsmenn þings-
ályktunartillögu um ræktun
skjólbelta. Er hún þess efnis, að
Alþingi álykti að skora á ríkis-
stjórnina að undirbúa og leggja
fyrir næsta reglulegt Alþingi
frumvarp til laga um stuðning
við kerfisbundna ræktun skjól-
belta í landinu.
Segir í greinargerð með til-
lögunni, að við ræktun garð-
ávaxta og korns séu skjólbelti
fullkomin nauðsyn. Allar þjóðir
um norðanverða Evrópu láta sér
ekki til hugar koma að erja
jörð án skjólbelta á næðissömum
stöðum. Mun nauðsyn skjóls enn
ríkari hér á landL Uppskeru-
brestur kartaflna og korns á s.l.
sumri hefði ekki orðið nærri eins
tilfinnanlegur og raun varð á,
ef skjólbelti hefðu verið um
akurlöndin.
Frumvörp.
Kostnaður við skóla.
Oddur Andrésson er flutnings
maður ásamt 2 öðrum þingmönn
um Sjálfstæðisflokksins að
frumvarpi um breytingu á lög-
um um greiðslu kostnaðar við
skóla, sem reknir eru af ríki
og sveitarfélögum. Efni þess er,
að laun ráðskonu og önnur
vinnulaun, sem þarf til mats-
eldar í heimavistum við barna-
og ungiingaskóla skyldunámsins,
greiði ríkissjóður að öllu leytL
Segir í greinargerð með frum-
varpinu, að það sé flutt til þess
að taka af öll tvímæli um vilja
löggjafans, að sama fyrirgreiðsla
gildi um allt skyldunám.
Bamaheimi og fóstruskóli.
Einar Olgeirsson og Geir
Gunnarsson eru flutningsmenn
frumvarps um ríkisaðstoð við
reksutr og byggingu almennra
barnaheimila og um fóstruskóla
Fyrirspurnir.
Kjarnorkufloti Allanshafs-
bandalagsins.
Ragnar Arnalds hefur borið
fram fyrirspurn til utanríkisráð-
herra um kjarnorktuflota At-
lantshafsbandalagsins. Er hún í
tveim liðum.
1. Hver er afstaða ríkisstjórn-
arinnar til fyrirhugaðs kjarn-
orkuflota Atlantshafsbandalags-
ins (MLF — Multilateral force)?
2. Hvernig hyggst ríkisstjórn-
in beita atkvæði fslands á ráð-
herrafundi NATO, ef áformin
um kjarnorkuflota Atlantshafs-
bandalagsins verða borin þar
undir atkvæði?
Ilérðaslæknar.
Ásgeir Bjarnason hefur flutt
fyrirspurn til heilbrigðismála-
ráðherra um héraðslækna. Er
þar spurt, hvaða ráðstafanir
hyggst ríkisstjómin gera til þess,
að öll lögákvæðin læknishéruð
landsins verði skipuð héraðs-
læknum?
Utför föður okkar
ÁSGEIRS SIGURÐSSONAR
fyrrv. forstjóra,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. nóv.
kl. 1,30 e.h.
Rudolf Ásgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson,
Sigurður Ásgeirsson, Guðrún Ásgeirsdóttir,
Anna Edda Ásgeirsdóttir.