Morgunblaðið - 06.12.1964, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 6. des. 1964
r
JENNIFÍR AMES:
Hættuleg forvitni
v.
— Er þér alvara, Grant^ Viltu
gifast mér? stamaði hún og um
leið hafði hann faðmað hana að
sér. — Ó, Grant, ég hafði ekki
hugmynd um að þér þætti nokk-
uð til mín koma — svona.
— Hvernig átti ég að geta tal-
að um það, úr því að þú, varst
sýknt og heilagt með þessum
Brett Dyson? Ég hélt að þú elsk-
aðir hann. Hann hafði svo margt
að bjóða þér — peninga og
skemmtanir og að njóta lífsins
hérna. Og einu sinni sagðir þú
mér, að þú ætlaðir að setjast að
hérna_ eystra.
— Ég veit það, Grant. — Hér
er állt svo töfrandi og ginnandi
á yfirborðinu. En undir yfirborð
inu er margt, sem ég hef geig
af. Hér gerist margt hryllilegt.
>ú getur ekki hugsað þér hvað
ég hef upplifað úm helgina! Ég
er öll í uppnámi.
— Ert þú í uppnámi? í>ú sem
alltaf virðist svo huguð og róleg!
En ég þóttist skilja að eithvað
hefði komið fyrir þig — ég sá
það á þér þegar þú komst inn.
Viltu ekki treysta mér — og
trúa mér fyrir því öllu saman?
Gail sagði honum í sem fæst-
um orðum frá öllu því sem gerzt
hafði og hann hlustaði á með
skelfingu. Hann hélt henni fast-
ar og fastar að sér og hugleiddi
hve litlu hefði munað að hann
missti hana.
SJONV ARPSSKOR
margar gerðir
Laugavegi 11
Blaðburðafólk
óskast til blaðburðar í eítirtalin hverfi
Laugavegur frá 1—32
Grettisgata frá 2-35
Fálkagata
Grandaveg — Þingholtsstræti j
Hringbraut frá 92-129
Sími 22-4-80
— Ef eitthvað hefði komið
fyrir þig, elskan mín, þá held ég
varla að ég hefði lifað það af,
hvíslaði hann. — l>ú getur ekki
gert þér í hugarlund hve mikið
ég hef barizt við að láta þig
ekki. sjá, hve heitt ég elskaði
þig. Guði sé lof að þú ert heil
á húfi. Ég verð að hitta þennan
Ameríkumann til þess að þakka
honum persónulega.
Síðan sagði hún honum frá
hvernig Tom Manning hefði með
gengið að hann hefði svikið for-
eldra hennar og sölsað undir sig
fyrirtæki föður hennar. En nú
var þetta fyrirtæki orðið hennar
eign, og það var engum blöðum
um það að fletta, að hún var
orðin rík.
— En hvað hefurðu þá við fá-
tækan vísindamann að gera?
sagði hann. — Þú, veizt að ég
verð aldrei loðinn um lófana.
— Vísindamennirnir vinna
þrekvirkin samt, sagði hún alvar
leg.
— Ertu viss um að þú elskir
ekki þennan Dyson-pilt? spurði
hann eftir nokkra stund. — Ég
hef verið svo hræddur við þig
fyrir honum, en ég held að þetta
sé allra bezta grey, og alveg
hrekkjalaus. En þú, verðu? að
fullvissa þig um, að þú verðir
eklki hamingjusamari með hon-
um en mér! Ég hef svo lítið að
bjóða þér......
Gail hló — lágt og innilega,
og þrýsti sér að honum.
— Elsku bezti Grant, þú mátt
aldrei láta þér um munn fara að
ég geti orðið hamingjusöm með
nokkrum öðrum manni en þér.
Því að það er ekki hægt. Ég hef
elskað þig frá fyrstu stund og
ég hefði aldrei farið með þér
hingað austur ef ég hefði ekki
elskað þig. En þú varst að jafn-
aði kuldalegur og fálátur og mér
fannst þú fara með mig eins og
ég væri vél. En samt sem áður
var ekki nema einn maður til,
sem ég vildi eiga — og það varst
þú.
Fyrsti kossinn þeirra varð
langur og þau gleymdu bæði
stund og stað. Svo var drepið
varlega á dyrnar og Bobby
Gordon rak hausinn inn í gætt-
ina og var fljótur að sjá að hann
mundi gera ónæði.
— Já, þú truflar okkur óneit-
anlega, sagði Grant og hló. —
En komdu inn samt. Hún Gail
var að lofa því að verða kionan
mín. Eða gerðirðu það ekki?
spurði hann eins og hann ætti
erfitt með trúa því.
Jú, ég hlýt að hafa gert þáð,
svaraði hún og hló á móti, og
svo sneri hún sér að Bobby.
— Við erum svo sæl og rugl-
uð að við vitum varla hvað við
erum að segja. Vilt þú ekki
gleðjast líka, okkur til samlætis?
Það var öfundarsvipur á
Bobby, en svo óskaði hann þeim
til hamingju.
— Þið getið treyst því að ég
óska ykkur til hamingju af heil-
um hug — þig eruð þær tvær
manneskjur, sem mér þykir
vænst um. Ég held að ég geti
sagt með sanni að ég elski ykkur
bæði.
— Það er unaðslegt að vera
alskaður, svaraði Grant. — Og
hvernig ætti ég að geta skilað
aftur jafn miklu og ég hef feng-
ið — alveg óverðskuldað?
Hann las svarið úr augurn
Gail.
ENDIR.
m
COSPEB, -33Vf
—Og þér eruð kona. Það hefði mér aldrei dottið í hug
Timbur — /órn
Vil kaupa notað timbur og járn. —
Upplýsingar í síma 23878 eftir kl. 6 í dag.
Kaupmenn — Kaupfélög
Linck's 2 minute Dry Cleaner
Nýkohiið kemiskt blettahreinsiefni á
sprautukönnum. — Áhrifaríkasta hreinsi
efni á markaðinum. — Hreinsar rússkinn,
föt og áklæði. — Skilur ekki eftir hringi.
PÓLARIS h.f.
Hólatorgi 2 — Sími 21085
Skrifstofan:
Hallveigarstíg 10.
Vöruafgreiðslan
við Shellveg
Sími 2-44-59.
Spónaplötur
Nýkomið:
Mörplötur: 8, 12, 16, 18,
20 og 22 mm.
Novopan: 8, 12, 13, 15,
19 og 22 mm.
Gaboon: 16, 19, 22 og 25 mm.
Stærðir 4x7’—4x8’
og 5x10’.
Birkikrossviður: 5mm.
Furukrossviður: 8mm.
Gatað harðtex: y8” — 4x8’.
Olíusoðið harðtex: y6” — 4x9’
Trétex %” — 4x8’ og 4x9’.
Teakspónn
Eikarspónn
Hljóðeinangrunarplötur
I.ím fyrir
hljóðeinangrunarplötur
Pattéx-lím (sem límir allt).
Teakolía
Plastlakk (glært)
Plastplötur (vinyl) á gólf.
Gólfflísalím
Harðplast á borð og veggi.
Slipimassi
KALLI KUREKI
Teiknari: J. MORA
1. Nú þetta er bara stykki, sem flot ánni.
ið hefur margar mílur niður eftir 2. Eða er ég nálægt gullæðinni.
Kannski hef ég fundið hana.
3. Þessi silla er full af gulli.
AKUREYRI
Afgreiðsla Morgunbtaðs-
ins er að Hafnarstræti 92,
sími 1905.
Auk þess að annast þjón-
ustu blaðsins við kaupend-
ur þess í bænum, er Akur-
eyrar-afgreiðslan mikilvæg-
ur hlekkur í dreifingarkerfi
Morgunblaðsins fyrir Norð-
urland allt. Þaðan er blaðið
sent með fyrstu beinu ferð-
um til nokkurra helztu kaup
staða og kauptúna á Norður-
Iandi, svo og til fjölda ein-
staklinga um allan Eyjafjörð
og víðar.