Morgunblaðið - 08.12.1964, Side 8

Morgunblaðið - 08.12.1964, Side 8
8 MORCU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 8. des. 1964 - ALÞINGI Framhald af bls. 1 snemma í desember. í þessum umraeðum hafi komið fram öll þau sjónarmið, sem máli skipta, m.a. það, að því var þá þegar lýst af hálfu ríkisstjórnarinnar, að hún teldi sig hafa óyggjandi heimildir til þess að gera slíkan samning, sem nú hafi verið gerð- ur og hún mundi gera samning- inn, ef hún teldi það rétt, að at- hugun málsins lokinni. Nú er » þeirri athugun lokið og ríkis- stjórnin hefur í samræmi við fyrri yfirlýsingar gert þetta sam- komulag. Því er haldið fram, eink anlega af Ragnar Arnalds, að þessi samningagerð stangist á við ákvæði stjórnarskrárinnar. Þetta er misskilningur, því að ljóst er, og ótvírætt með öllu, að heimild til slíkrar samningsgerð- ar er í varnarsamningnum frá 1951, sem lögfestur hefur verið með 1. nr. 110 frá 19. des. 1951, en þar segir m.a. í 1. gr.: „í þessu skyni og með varnir á því svæði, sem Nörður-Atlants- hafssamningurinn tekur til, fyr- ir augum, lætur ísland í té þá aðstöðu í landinu, sem báðir að- ilar eru ásáttir um, að sé nauð- synlegt“. Þegar í þessu ákvæði _ og raunar fleiri ákvæðum samn- ingsins, er ótvírætt, að heimild er fyrir hendi, til þessarar samn- ingsgerða, enda hefði Ragnar Arnalds sagt, að þvílíkir samn- ingar hefðu áður átt sér stað. Honum hefði skilizt, að Ragnar teldi veru varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli vera fyrsta dæmi þvílíkrar samningsgerðar af hálfu ríkisstjórnarinnar. En þar fyrir utan, eru mörg dæmi þess, að óátalið af Alþingi hefur varnarliðið fengið stöðvar tfl afnota með samþykki ríkis- ítjórnarinnar og þetta hlyti Ragnari að vera kunnugt. Sem dæmi þess nefndi ráð- herrann loranstöðina á Snæfells- nesi og þess væru einnig fleiri dæmi, sem utanríjdsráðherra hefði gert rækilega grein fyrir í umræðum, sem orðið hefðu um málið í fyrra. Varnarliðið hefði þegar í mörg ár haft svipaða aðstöðu í Hval- firði og hér væri ráðgerð. Ey- steinn Jónsson hefði talað um það, að ef þessi samningsgerð færi fram, ættu menn e.t.v. von á því að sjá varnarstöð við aðal- þjóðveginn um Hvalfjarðar- strönd. Forsætisráðherra kvaðst hafa farið þarna um mörg und- anfarin ár og hefði þá séð varn- arstöð á þessari leið og sér þætti það mjög furðulegt, ef Eysteinn Jónsson hefði ekki séð þessa varnarstöð, sem þarna er á leið- inni. Eysteinn hefði sjálfur áður verið fjármálaráðherra, þegar rikið keypti a.m.k. eina jörð í Hvalfirði til þess að leggja und- Jr þessa varnarstöð, og hann væri nú orðinn léttúðugri um meðferð fjármála, heldur en hann var áð- nr, ef hann væri nú búinn að gleyma því, að hann greiddi tölu- vert fé úr ríkissjóði til þess að þessari stöð yrði komið upp. Það væri ekki nýtt, að varnar- stöð væri í Hvalfirði. Samþykki ríkisins hefði legið fyrir um hana og tiltekinn félagsskapur hefði leigt varnarliðinu mjög sambærilega aðstöðu og notkun á olíugeymum og nú væri ráð- gert. Þrjár radarstöðvar undir her- gæzlu hefðu verið leyfðar af rik- isstjórniinni á mismunandi tím- un, frá því að samningurinn var geeður og án þess að leitað hefði verið til Alþingis um samþykki Jk þeim leyfum, þar af væru tvær enn í notkun, önnur nærri Horna firði, hin á Langanesi og ein á Vestfjörðum, þótt hún sé nú nið- ur lögð. Þessu til viðbótar kemur svo lóran-stöðin á Snæfellsnesi, sem Raignar Arnalds hefði minnst á. Það er þes vegna ekki um það að villast, að bæði orðalag varn- arsamningsins, sjálft efni hans alH saman og óslitin framkvæmd «Ut frá því að hann var gerður, heimilar slíka samningagerð eins og nú hefur verið ákveðin af ríkisstj. Atþingi hefur þagar með 1. gr. varnarsamningsins og varn- arsamningnum í heild, samþykkt á honum, lofað að veita þá að- stöðu, sem nauðsynleg er, og síðan er það á mati ríkisstj. að kveða á um, hvernig — hversu mikil og hvers eðlis sú aðstaða skuli vera hverju sinni. Um þetta verður ekki deilt, þó að hitt sé svo eðlilagt, að menn greini á um það, hvort ríkistj. haldi rétt á valdi sínu í þessu efni eins og ótalmörgum öðrum. Það orkar allt tvímælis þá gert er, og það er ósköp skiljanlegt, að þeir sem eru sannfærðir um það, að varnir séu hér óþarfar og beinlínis skaðlegar eins og Ragnar Arnalds telur, að þeir eru auðvitað á móti því, að varn- irnar séu í skaplegu horfi. Það er eðlilegt, þeir vilja varnirnar burtu, þeir eru á móti öllum þeim ráðstöfunum, sem til þess horfa, að þeir komi að notum. Hitt verður að telja merkilegra að þeir menn, sem að megin- stefnu segja, að þeir séu vörnum samþykkir, lýsi því yfir, að þeir séu þessari ákveðnu ráðstöfun ósamþykkir. Ráðherrann kvaðst vera Ey- steini Jónssyni algerlega sam- mála um það, að það væri alger- lega á valdi íslendiniga sjálfra, hvort þessi samningur er gerður, hvort þetta leyfi er veitt. Það er auðvitað ekki nein herforingja samkunda suður í París eða nein- ir aðrir aðilar, sem um þetta eiga að ákveða, heldur eru það rétt íslenzk stjórnarvöld, í þessu til- felli ríkisstj. í samráði við sína fylgismenn á Alþingi, meiri hluta þm. sem hún vitanlega fullviss- ar sig um, að séu henni sammála í þýðirngarmiklum málum, jafnt þessu sem öðru. Það er ríkistj. að kveða á um þetta. Nú, ef Al- þingi telur, að ríkisstj. hafi mis- farið með sitt vald, þá getur það veitt henni vantraust, látið hana hverfa frá störfum, það má segja, að ríkisstj. hafi gert samn- ing ,sem sé bindandi og þess vegna illviðunandi fyrir ísland, að slíkt sé gert. Hættan því sam fara er þó sáralítil, vegna þess að ef Alþingi veitti ríkisstj. van- traust af þessum sökum og vildi losna við samningagerðina, væri það einfalt mál að segja varnar- samningum upp, svipað eins og ráðgert var að gera hér 1956, en raunar varð þar minna úr heldur en stóru orðin stóðu til. Allþingi hefur því endanlega þetta mál í hendi sér, ef það vill, og vitanlega mundi ekki verða farið að reisa þessa nýju olíu- geyma í Hvalfirði, ef það lægi fyrir, að meiri hluti Aliþingis vildi, að varnarsamningurinn mssti sitt gildi, þá mundu þær framkvæmdir verða látnar eiga sig, svipað eins og var um ýms- ar framkvæmdir á árinu 1956. Tíminn taldi það óvinskapar- bragð af hálfu þáverandi ráða- manna vamarliðsins eða í Washington, þegar ákveðið var að draga úr varnarframkvæmd- um hér á landi vorið 1956 eftir að samþykktin hafði verið gerð í marz, og mátti af því marka, að ekki hefur nú alltaf verið talið, að þessar varnarframkvæmdir væru engum til óþurftar, úr því talið var, að það væri beinlínis fj and.sk aparbragð að draga úr þeim. Vitanlega er það svo matsat- riði, hvaða framkvæmdir hverju sinni eru nauðsynlegar og æski- legar, en þegar á það er litið nú, að þessir oliugeymar, sem nú eru í notkun handa varnarliðinu og jar sem geymdur er forði handa flota Atlantshafsbandalagsins, ef í hart fer, að þar sem þessir geymar eru nú meira en 20 ára gamlir og öll aðstaða umhverfis þá miðuð við það, sem þá tíðkað- ist, þá sé engan veginn óeðlilegt heldur einungis mjög skiljanlegt, að þessi mannvirki þurfi 'endur- nýjunar við ekki síður heldur en önnur mannanna verk og á þetta hljóti þeir að fallast, sem á annað borð telja að það sé til góðs, að varnir séu á íslandi. Þeir Ragnar Arnalds <»g Ey- steinn Jónsson hefðu báðir minnst á það, að nú væri ófriðarhætta mun minni í heiminum heldur en oft áður. Það er rétt, að á yfir borði horfir friðvænlegar heldur en stundum áður. En af hverju kemur það? Það kemur fyrst og fremst af því, að Atlantshafs- bandalagið hefur í þessum heims hluta komið á svo sterkum og öruggum vörnum, að hér hefur ekki nú lengi komði til stórá- taka, og menn vona að svo rnuoi enn haldast. Hinsvegar þurfi ekki annað heldur en að líta til Suður-Asíu, svo að sleppt væri Afríku og svo að sleppt væri bollaleggingum um hvað býr í huga Kínverja, hvað verður ofan á í öðru stórveldi. Kína ekki fjarri. Okkur nægir að líta á þann ófrið, sem þegar er til í heiminum til þess að sjá, hversu fjarri því fer, að enn sé kominn á sá Fróðafriður, sem við óskum. Enn er því miður fullkomin ó- vissa um hvað verða vill, og það er styrkleikinn einn, styrkleiki lýðræðisaflanna, sem hinigað til hefur tryggt friðinn, og nægir þá að minna á átökin út af Kúbu haustið 1962, og sá friður, sem í skjóli þessa styrkleika 'og þess- arar einbeittni býr, hann helzt því aðeins, að ekki sé slakað á, þangað til aðrar örxrggari stoðir fyrir friðnum fást. íslendingar eiga, ekki síður en aðrir að leggja sitt af mörkum til þess að reyna að koma í veg fyrir, að á ný horfi ófriðlegar í heiminum, að á ný verði vegna vangæzlu, vegna þess að menn vilji láta aðra taka á sig óþæg- indi, en skjóta sér undan sjálf- ir, verði vakin von árásaraðila um, að þeir, þrátt fyrir allt séu ekki fyrirfram vonlausir um sig- ur, ef þeir leggi í ævintýri. Um friðarvarnir má segja nokkuð svipað og um eldvarnir, að það er of seint að grípa til þeirra eða að fara að smíða þær réttar sagt, safna þeim saman eftir að elds- voðinn hefur brotizt út. Það verð ur að hafa slökkviliðið til áður, það verður að vera viðbúið til þess að geta kæft eldinn strax í byrjun, ef eldsvarnirnar eiga að koma að gagni. Með sama hætti þá verður vitanlega að bú ast við því fyrirfram að geta staðið á móti árás, ef hún brýzt út, vegna þess að það er eina vonin til þess, að af slíku glap- ræði verði látið, og með því litla framlagi, sem hér er ætlazt til að af hálfu íslands verði unn ið, sé sízt til of mikils fram á farið við íslendinga, enda hefði það komið glögglega fram hjá Eysteini og Ragnari, að þeir við- urkenndu, að hér væri einungis um smáræði að tala, þetta væri í sjálfu sér lítilvægt, þeir óttuð ust að eitthvað annað meira og verra komi á eftir. Ráðherrann sagðist ekki vita, hvað þeir hefðu í huga með þeim efnum, en kvaðst vita það eitt, að þessi samningsgerð af hálfu ríkisstjórn arinnar væri hrein og skýr. Hér hefur ekki verið farið dult með neitt, eins og sést á því, að það var þegar skýrt frá aðalatriðum þessa máls fyrir meir en ári síð- an, og allir sem fylgzt hafa með og hafa viljað fylgjast með, hafa vitað, að síðan hefur málið verið I undirbúningi og ríkisstjórnin hefur talið að þessa aðstöðu ætti að veita, ef athugun sýndi, að hún gæti orðið veitt án þess að valda íslendingum verulegum trafala, en þó komið að gagni, til þess sem mikið er á sig leggj- andi fyrir, og það er að styrkja friðarvonir mannkynsins. ★ Ragnar Arnalds kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í upphafi fundar Neðri deildar og fer hér á eftir útdráttur úr ræðu hans. Hann sagði, að þeir atburðir hefðu nú igerzt er Alþingi hlyti að láta sig nokkru skipta, með því að ríkisstjórnin hefði gert sámninga um oliustöð fyrir h-ersikip Atia-ntshafSbandalagsins í Hvalfir’ði. Hér væri um stórmál að ræða, sem væri stórháskalegt, en varð aði Alþingi einnig vegna þess, að m-eð þessu væri ríkiss-tjórnin að svipta Alþingi vaildi, sem því bæri ótvírætt samkvæmt stjórn- arskránni. Rifjaði Ragnar Amalds upp mótmæli frá Framsóknarfl. og Alþýðubandalaginu strax eftir a'ð rilkisstjórnin tilkynnti í fyrra sumar, að samningaviðræður um Hvalfjörð væru hafnar. Taldi h-ann, að lýðræði og þingræði hiefði verið misn-otað í meðferð þessa máls og bar forseta Neðri deildar það á biýn, að þings- ályktunartillaga, sem komið hefði fra-m í fyrra varðandi heim ild stjórnarinnar til að gera samn inga við NATO, hefði verið stungið un-dir stól og eikki fengið þinglega afgreiðslu. Ríkisstjórnin hefði múlbundið Alþingi, en fengið herforingja- ráði NATO í hendur það hlut- verk, sem Alþingi bar. Með þessu væri ekki aðeins um að ræða móðgun við Alþingi, held-ur lög- leysu og alvarlegt lögbrot. Samn ingurinn um Hvalfjörð væri ó- gildur, vegna þess að sá aðili, sem undirritaði samninginn fyrir íslands hönd, hefði ekkert um- boð til að semja um slík mál, nema Alþingi hefði áður veitt honum heimild. Skírskotaði Ragnar sfða-n til 21. gr. stjórnarskrárinnar, ura kvaðir á landi, og sagði, að þetta atvi-k félli undir þessa gr., enda hefði því ek-ki verið mótmælt áð- ur af utanríkisráðherra, þegar samningar um Hvalfjörð voru til umræðu, að þar væri um kvaðir á landi áð ræða. Ríkiss-tjórnin teldi auðsjáanlega, að með her- verndarsa-mningnum 1951 hefði ihún fengið vald til þess í eitt skipti fyrir öll að gera slíka samn inga. Þetta hefði komið í ljós í sambandi við lóransstöðna á Snæ fellssnesi, en sú samningsgerð hefði einnig veriö stjórnarskrár- brot. Rædidi Ragnar síðan um her- verndarsam-ninginn frá 1951 og sagði, að í honum væri hvergi að finna ákvæði um, að Alþingi afsali sér sl-íkum rétti. Spurði hann, hvort ríkisstjórnin áliti engin ta-kmörk fyrir því, hve miklar kvaðir á la-rxdi megi semja um við NATO og Bandaríkin á grundivelli herverndarsa-mnings- ins. Hann sagði enn fremur, að þingmenn væru raunverulegir hiisbændur ríkisstjórnarinnar, en nú hefði það gerzt, að þjónninn hefði stolið húsbóndaréttinum. Ríkisstjórnin hefði gert samning, sem hún hefði enga heimild til að gera. Kvenfélag Hallgríms- kirkju hefði alveg eins getað gert þennan samning við NATO eins og ríkisstjórnin. Engum ís- lendingi bæri skylda til að virða þennan samning eða afleiðingar hans, hvorki nú né síðar. Með þessum ráðstöfunum væri vísvitandi verið að gera ráðstaf anir til þess að íslendingar drægj ust inn í hugsanlega styrjöld og þá sem mest inn í styrjaldarátök in. Þróunin á undanförnum ár- um hefði stefnt beint í þá átt að gera Hvalfjörð að voldugri flotastöð, enda ættu Bandaríkin um tvær leiðir að velja gag-nvart íslendingum. Volduga herstöð í landinu eða enga herstöð. Að lokum spurði Ragnar, hve nær framkvæmdir myndu hefj- ast í Hvalfirði. — Wilson Framhald af bls. 1 urnar yrðu til þess að styrkja Atlantshafsbandalagið. Talið er að Wilson hafi aðal- lega tvennt í huga í þessu sam- bandi: 1) Að láta Atlantshafsbandalagið ið fá yfirumsjón með kjarn- orkuútbúnaði Breta. 2) Að fá Johnson til að breyta tillögu sinni um sameiginleg- an kjarnorkuflota NATO svo tillagan verði aðgengilegri fyrir hin aðildarríkin. Ekkert er látið uppi um við- ræðurnar á þessu stigi, en búast má við sameiginlegri yfirlýsingu þegar þeim lýkur. EYSTEINN Jónsson talaði næst á eftir Ragnari Arnalds, og sagð ist vilja koma á framfæri, að Framsóknarfl. væri algerlega mótfallinn þess- um nýju flota- mannvirkjum I Hvalfirði. Laa hann síðan upp ályktun, sexn framkvæmda- stjórn Framsóknarflokksins gerðl á sínum tíma varðandi þetta mál, þar sem Framsóknarfl. lýsti sig andvígan auknum herbúnaði i Hvalfirði. Eysteinn sagði enn fremur, að frásagnir stjórnarblaðanna at þessu máli hefðu verið gerðar til þess að villa fólki sýn. Þau mannvirki, sem fyrir hendi væru í Hval-firði væru fullnægjandi fyrir það markmið, sem nú væri sagt, að verið væri að vinna að með því að koma upp nýjum olíugeymum. Bygging hinna nýju geyma stæði ekki í sambandi við það, en hins vegar vantaði í Hval firði aðstöðu til þess að athafna sig með flota og það væri mark- mið hinna fyrirhuguðu fram- kvæmda að skapa hana. Hér væri verið að hverfa frá stefnu fyrri ríkisstjórna, því að áður hefði oft verið léð máls á þessu, en allta-f verið synjað. Framsóknarfl. væri fylgjandi þátttöku íslands í samstarfi vest rænna þjóða og þátttöku íslanda í Atlantshafsbandalaginu. Okkur bæri samt engin skylda til þes* að hafa her hér á landi og an-nan varnarbúnað umfram það, sem við teldum sjálfir nauðsynlegt. Ekkert skuldbindi íslendinga til slíks og ekkert hefði komið fram sem gefið gæti bandamönnum Í9 lands tilefni til að álykta þannig. — Gylfi Þ. Framh. af bls. 28 ráðherra. Var það mál aillra að þeir ha.fi staðið sig með mik- illi prýði oig útskýrt þessar aðgerðir Breta mjög vel. Þeir lýstu því yfir að þetta væru hrei-nar bráðabirgðaráðstaf- anir, sem þeir miu-ndu afnemm mjög fljótlega. Yrði það að- eirns spu-rning um mámuði þar ti-1 byrjað yrði að gera ráð- staifainir þar að lútandi. Hitt málið var stefnam t viðsk ipta má l-u-m í samibarxdi við aðstoð við þróunarlöndin og rædd hvaða stefna væri skynsa-milegust fyrir OECD ríkin ti/1 að hún kæmi þróurv- arlöndiunium að sem mets-t-u gagni. Ályktanir varðarxdi þessi má,l voru samiþykktar sam-hljóða, sagði Gylfi Þ. Gíslason. Daginn eiftir að ráðherra- furxdiinium lauk átti Gylfi Þ. Gíslasom ásaimt Pétri Thorst- einsson sendiberm, viðræður í höfuðstöðvum Menninigar- og vísindas-tlofniuniar S.Þ.. UNESCO, en íslendingar hafá nýlega gengið í þau samtöte. Ráðherrann kom svo heim á la-ugardag. 1 flör með honiuru var Þórhallur Ásgeirssom, ráðuneytisistjóri. Vinnustöðvun i frystihúsi á Skagaströnd SKAGASTRÖND, 7. des. — Fimm dekkbátar og 1 triliubátur sækja.sjó héðan og hefur aflinn farið í frystihúsin tvö. Aflinn hefur verið heldur rýr og gæftir stopular. Frystihúsin hafa átt í erfið- leikum og bæði skuldað vinnu- laun. Á laugardag sendi verka- lýðsfélagið bréf, þar sem sett var stopp á vinnu í þeim báðum frá deginum í dag að telja og er stöðvun hjá frystihúsi Hólaness. Kaupfélag Skagfirðinga setti aftur á móti tryggingu fyrir þvi að vinnulaun yrðu borguð fyrir 15. des. svo ekki kom til stöðv- unar þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.