Morgunblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 14
14
MORGUJNBLABIB
Fimmtudagur 24. des. 19fl4
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustj óri: Sverrir í>órðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
______________í lausasölu kr. 5.00 eintakið._
Gleym eigi
kenning minni
„Son minn, gleym eigi kenning minni,
og hjarta þitt varðveiti boðorð mín.
Því að langa líídaga og farsæl ár
og velgengni munu þau veita J»ér í ríkum mæli.
Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig.
Bíud þau um háis þér,
rita þau á spjald hjarta þíns,
þá munt þú ávinna þér hyllí og fögur hyggindi
bæði í auguni guðs og manna“.
ÞESSI vísdómsorð Salómons konungs Davíðssonar í
Oröskviðum hans, er hollt að hugleiða á jólum.
Það er vegna þess, að stór hluti heimsbyggðarinn-
ar hefur fylgt og trúað á þá kenningu, sem hinn
vitri Salómon leggur mönnum á hjarta, að kristin
jólahátíð er haldin. Ár og aldir líða, og þess kenning
gleymist eigi. Hún er alltaf ung og ný. í krafti henn-
ar kviknar milljónir jólaljósa um allar álfur. Þessi
ljós vekja fögnuð og skapa frið í sálina.
'k
Friðarboðskapur jólanna er eilífur, og hann missir
ekki gildi sitt, þótt skammsýni og vanþroski mann-
anna leiði yfir þá styrjaldir og ófrið. Fæðing frelsar-
ans heldur áfram að skapa birtu og yl um aliann
hinn kristna heim.
Kjarni kristindómsins er trúin á mátt kærleika
og trúfesti. Elskið hver aðra, komið fram við
nágranna yðar eins og þér óskið að þeir komi fram
við yður.
Enda þótt þessi boðorð séu oft fótum troðin, og
eigingirni og sjálfselska móti oft mannleg samskipti,
nær boðskapur hins fórnandi kærleika þó til allra.
Áhrif hans ná til hvers einasta manns, hvort sem
hann vill hlusta á hann eða ekki. Rödd samvizkunn-
ar í brjósti mannsins kemst aldrei hjá því að hrærast
við þennan boðskap og taka tillit til hans í daglegu
lífi og stríði.
Án kærleiksboðskapar kristinnar trúar, getur
mannkynið ekki gert sér von um að halda áfram
sókn sinni til þroska og sannrar farsældar.
k
íslenzka þjóðin þarf eins og aðrar þjóðir á þeirri
kjölfestu að halda í ríkum mæli, sem friðarboðskapur
jólanna skapar, Vér eins og aðrir, þurfum að læra að
taka meira tillit hver til annarra, að sjá menn og
málefni frá fleiri en einni hlið, að bera virðingu fyr-
ir skoðunum og tilfinningum nágrannans. Vér meg-
um ekki láta við það eitt sitja, að víggirða oss innan
þröngra hagsmunasamtaka, sem aðeins einblína á
stundarhag sinn, en skeyta litlu eða engu um, þótt
veggur nágrannans brenni. Réttlæti og mannkær-
leiki nær aldrei að móta líf og starf neinnar þjóðar,
sem berst undir slíku merki. Þess skulum vér minn-
ast, þegar vér höldum nú jól við betri kjör og fjöl-
breytilegri lífsgæði en nokkru sinni fyrr í sögu þess-
arar litlu þjóðar.
k
Morgunblaðið óskar öllum lesendum sínum, sjó-
mönnum á hafi úti, flugmönnum á langferðaleiðum,
allri hinni íslenzku þjóð gleðilegra jóla.
BDWARiD M. KENNEDY,
hinn yngsti þeirra Kennedy-
bræðra, sá er lenti 1 flugslys-
inu um mitt sumar er M5 og
hefur síðan legið á sjúkrahúsi
í Boston, stóð við þau orð sín
í haust, að hann myndi kom-
ast heim fyrir jólin. Á mið-
vikudaginn var kom Joan.
kona hans að sækja hann á
sjúkrahúsið og er þau gengu'
saman þaðan út, fagnaði þeim
mikill mannfjöldi, sem þar
hafði safnazt saman og lét það
ekkert á sig fá, þó hörku-
gaddur ríkti þar þennan
morgun.
Edward Kennedy lét það
verða sitt fyrsta verk utan
veggja sjúkrahússins, að fara
að gröf vinar síns og náins
samstarfsmanns, Edward S.
Moss, sem hafði farið með hon
um í flugferðina í júnt og beð
ið bana í slysinu. Einnig fór
hann að heimsækja eiginkonu
Komst heim fyrir jól
Edvvard Kennedy á heimleið eftir
sex mánaða sjúk rahússlegu
Moss og börn þeirra hjóna
þrjú, sem minntust þess að
einmitt þann dag hefði Ed-
ward Moss orðið 42 ára gam-
all.
Síðan héldu þau Edward og
Joan suður á bóginn. tii Palm
Beach á Flórídaskaga, þar
sem Edward hyggst flatmaga
í sólinni og safna kröftum til
þingsetunnar eftir áramót.
Bandaríkjaþing kemur saman
eftir jólaleytið 4. janúar og
þar á Edward sæti sem þing-
maður Massachusetts, sæti það
er áður átti eldri bróðir hans,
John F. Kennedy, forseti
Bandaríkjanna. Kosið var til
sætis þessa 1 sumar og var
Edward einmitt í kosninga-
ferð er hann lenti í flugsiys-
inu, en Joan, eiginkona hans,
hijóp þá undir bagga með
manni sínum og vann ötullega
að sigri hans í kosningunum
sem var giæsilegur.
Þessi fallega mynd er frá Dublin af barnakér, sem var að æfa jólasálmana skémmu fyrir jnlin,
Myndin var tekin á íyrstu búningaæfingunni og börnin virðast kunua vcl við sig í skikkjunum
með geislabauga ttg vængi.