Morgunblaðið - 24.12.1964, Side 28
Sipaghettt
iE LEKTROLUX UMBOÐIÐ
ÍAUÖAVEGI 69 aTml 21800
8 þús.
tunnur
í IMorðursjó
MBL. fékk í gær þær upplýsin;-
ar hjá útgerð Jörundar II. og
Jörundar III., sem nú stunda síld
veiðar í Skagerrak, að þeir hefðu
fengið 1100 tunnur kvöldið áður.
Voru þeir að landa aflanum í
gser.
Alls hafa þeir þá fengið 3.000
tunnur. Tunglsljós hefur nokkuð
tafið veiðarnar, því að síldin
stendur djúpt. þegar bjart er.
Einnig hafa þýzkir togarar með
síidartroll viljað tæta torfurnar
í sundur og spillt með því veið-
um fyrir öðrum.
Dregur til
suðlægrar nttur
Í»EGAR Mbl. hafði samband
við Veðurstofuna í gaer, var ekki
gott að spá um veðurfar al-
mennt hér á landi um hátíðarn-
ar. Norðanáttin var þó greini-
lega heldur farin að ganga niður
og komið sæmilegt veður á
Vestfjörðum. Allar líkur voru á
því, að til suðulægrar áttar
drægi síðdegis í dag, aðfanga-
dag, a.m.k. á landinu vestan-
verðu. Var því búizt við mildara
veðri en verið hefur.
Listamenn í
Kopavogi
sýna
LISTAMENN búsettir í Kópavogi
halda málverkasýningu í bóka-
safni Kópavogs í Félagsheimilinu
daigana 26. des. til 1. janúar að
báðum dögum meðtöldum. Sýn-
ingin verður opnuð á annan í jól-
um kl. 2 e.h. og verður opin alla
daga frá kl. 2-10 e.h. nema gaml-
ársdag til kl 6.
J>eir sem taka þátt í sýningunni
eru: Barbara Árnason. Benedikt
Gunnarsson, Hafsteinn Áust-
mann, Hrólfur Sigurðsson, Magn-
ús Á. Árnason og Sigurður Sig-
urðsson. Sýnd verða 5-6 verk
eftir hvern.
Minnisblað lesenda
MORGUNBLAÐIÐ hefir nú
að venju leitað nokkurra
upplsýinga, sem handhægt
getur verið fyrir lesendur að
grípa til um jólahelgina. Auk
þeirra almennu upplýsinga,
sem eru í dagbókinni, skal
þessa getið:
Slysavarðstofa
Sjá Dagbók.
Læknar
Sjá Dagbók.
Tannlæknar
Sjá Dagbók.
Lyfjaverzlanir
Sjá Dagbók.
Messur
Sjá Dagbók.
Útvarpið. Dagskráin er í heild
á öðrum stað í blaðinu.
Rafmagnsbilanir tilkynnist í
sima 2-43-61.
Símabilanir tilkynnist í sima 05
Hitaveitubilanir
síma 1-53-59.
tilkynnist í I
Matvöruverzlanir verða
opnar sem hér segir:
Aðfangadag til kl. 12 á hádegi.
Lokaðar báða jóladagana.
Gamlársdagur til kl. 12 á hád.
Söluturnar verða opnir
sem hér segir:
Aðfangadagur til kl. 13.00.
Lokað allan jóladag.
Opið á 2. jóladag frá kl. 8.00
tilkl. 23.30.
Gamlársdag til kl. 13.
Nýársdag til kl. 23.30.
Benzínsölur verða opnar sem
hér segir:
Aðfangadag frá kl. 7:30 til
16:00.
Jóladag lokað allan daginn
2. jóladag frá kl. 9:30—11:30
f.h. og frá 13:00—15:00.
Eiginkonan heyrði neyðarkailið
MBL. talaði í gær við Hjálm-
ar Theodórsson á Húsavik,
sem Jenti í sjóhrakningum á
Skjálfandaflóa sl. sunnudag.
Var hann einn á báti, þegar
mikill leki kom að bátnum,
en tókst að koma skilaboðum
til eiginkonu sinnar um tal-
stöð.
Hjálmar kvaðst hafa verið
einn á báti sínum, Ver, sem
er sjö tonna bátur, hálfdekk-
aður. Var hann að draga lín-
una í miðjum Skjálfandaflóa
á sunnudagsmorguninn. 5 — 6
vindstig voru á suð-vestan.
— Þegar ég hafði dregið
rúman stokk, kom hnútur á
bátinn. Ekki kom mjög mikið
inn af sjó, en báturinn hnykkt
ist snöggt við. Rétt á eftir sé
ég, að allt er á floti. Rauk ég
í að dæla með handdælu, en
sjórinn minnkaði mjög lítið
við það. Var þá kominn flæð-
andi leki að bátnum.
— Ég hætti þá við að draga,
setti stefnuna til lands, batt
stýrið fast og einbeitti mér að
því að dæla. Hafði ég ekki
undan, því að frekar jókst lek
inn. Aðstaðan var lika erfið
með stýrið fastbundið.
— Þegar þetta gerðist, vant
aði klukkuna tíu minú.tur í
tólf, en ég hafði beðið kon-
una að hlusta eftir mér í tal-
stöðinni kl. 12. Bað ég hana
nú að senda bát á móti mér
frá Húsavík. Hún brá þegar
við, hitti skipstjórann á Kára
og sagði honum, að ég hefði
beðið um aðstoð. Kári var við
bryggju á Húsavík og hélt
þegar til móts við mig. Þegar
við hittumst, kom maður af
Kára yfir til mín og tók til að
dæla, en ég settist undir stýri.
Komumst við svo klakkiaust
heim í höfn.
— Komið hefur í Ijós við
lauslega skoðun, að alibreið,
tveggja metra löng sprunga
er á kjalsiðunni.
— Ég tel það sérstakt lán,
að ég skyldi hafa beðið kon-
una hlusta eftir mér á
þessu m tíma, því að annars
er hætt við, að illa hefði
farið.
Gamlársdagur frá kl. 7:30
til 16:00.
Nýjársdagur frá 13:00—15:00
Mjólkurbúðir verða opnar sem
hér segir:
Aðfangada'' 8:00—13:00.
Lokað jóladag.
2. jóladag 10:00—12:00.
Gamlársdag 8:00—13:00.
Lokað á nýjársdag.
Ferðir Akraborgar:
Aðfangadag til Akraness
7:45 og 13:00.
2. jóladag 10:00 og 15:00.
Gamlársdag 7:45 og 13:00.
Hvorki er siglt á jóladag né
nýjársdag en 2. janúar eru
ferðir til Akraness ki. 9:00
og 15:00.
Framhald á bls. 27.
„juiaire i sioiu sienaur,
stjörnuna glampar á“ ■—
þessa mynd tók Ólafur K.
Magnússon i gær af ungum
herramanni í hátíðaskapi.
Hann heitir annars Palli og
er bezti vinur ljósmyndarans.
Myndin var tekin á Vöggu-
stofu Thorvaldsensfélagsins i
gær — og á bls. 3 eru fleiri
myndir frá heimsókn okkar
þangað í gær.
Jeppi
endastingst
UM kl. níu á Þorláksmessumorg-
un endastakkst jeppi á veginum
milli Stokkseyrar og Eyrar-
bakka. Ökumaður slasaðist eitt-
hvað, skarst m. a. á enni, en
tveir farþegar munu ekki hafa
meiðzt teljandi. Jeppinn var
þarna á hraðri ferð, og missti
bílstjórinn vald á honum í
beygju.
Stórþjófnaður
í Hafnarfirði
Þorskanetaslöngum stolið
EINHVERJA hóttina í vikunni
var brotizt inn í Hafnarfirði og
stolið þorskanetaslönigum fyrir
marga tugi þúsunda króna.
Þorskanetaslöngurnar voru
geymdar í skúr, þar sem Báta-
félag Hafnarfjarðar geymir veið-
arfæri, og stendur við Vestur-
götu rétt hjá Svendborg.
Allir, sem einhverjar uppiýs-
ingar gætu gefið um þjófnað
þennan, eru vinsamlega beðnir
að láta lögregluna í Hafnarfirði
vita.
Mýtt 259 tonna skip
til Eskifjairðar
Eskifirði, 22/12. 1964.
NÝTT 259 tonna fiskiskip, Krossa
nes, kom til Eskifjarðar 20. þm.
smíðað í Boezenburg í A-Þýzka-
iandi. í skipinu er 660 h.k. List-
er dieseivél, 2 Lister ljósa-
véiar, 2 asdic teeki annað
með 2500 m. leitarskala, en hitt
með 1200 m., og dýptarmælir,
Frystigeymsla fyrir 30—40 línu-
stampa. í reynsluför gekk skipíð
10,5 sjómílur. Mæling var getrð
á skrúfuihávaða. — G.W.