Morgunblaðið - 09.02.1965, Side 5
Þriðjudagur 9. febrúar 19fí5
MORGUNBLAÐIÐ
5
MÁLSH ATTALEIKUR
Gamáll vinur Morgunblaðsins ■
eendi okkur í tilefni af birtingu ;
nDálsháttanna hér í Dagbókinni
eftirfarandi frásögn um máls-
háttaleik. Við færum honum
beztu þakkir því miður vill hann
ekki láta nafns síns getið.
„í gamla daga“ get ég nú sagt,
gerði ég það vegna leiks, sem
gaman var að leika þar,' er sam-
etilltur hópur kunningja var sam
an kominn t.d. við handavinnu,
tem ekki þurfti að einbeita hug-
enum við. Leikur þessi var kall-
aður: „Málsháttaleikur" og fór
þannig fram að einn maðurinn
fór fram fyrir (út úr herberg-
inu), en hinir skiptu ni'ður á sig
einum málsihætti þannig, að
hver maður fékk eitt orð úr
málshætti til varðveizlu. Hafði
evo einn þeirra, sem inni voru
orð fyrir þeim, var eins-konar
íramsögu-maður.
Þegar sá, er fram fór, kom inn,
eagði framsögu-maðurinn hon-
um hvar hann ætti að byrja,
hvaða röð hann ætti að fara og
hvar enda. Nú átti sá inn komni
etð spyrja hina, í röð, leggja fyrir
þá spurningu, og þeir að svara
og hafa í svarinu orðið (úr máls-
hættinum), sem þeim var falið
að varðveita — og helzt að hafa
nvoiuviuva 1 kou naiægi rveyajaviK. A. JViayer. 183ti
það óbreytt ef þess var kostur
(þ.e. í réttu falli eða hætti). Ef
hann var í vandræðum með orð-
ið í beinu svari, mátti hann
spyrja spyrjandann til baka á
einhvern hátt. — Væru fleiri orð
í málshættinum heldur en inní
þátttakendur voru, mátti léta
málsháttinn ganga á annan hring
eftir þörfum. — Reynt var að
hylla þannig til, og þá raða svar-
endum, þannig að þeir, er lík-
Kvöldvaka á Grímsstöðum á Fjöllum. A. Mayer. 1836
legri voru tíl að geta vel falið
orð sitt í svari, hefðu erfiðari
(sérkennilegri) orðin til varð-
veizlu, en hinir veikari aftur smá
ofðin, sem allsstaðar og alltaf
koma fyrir í flestum setningum,
eins og t.d.: að, er, var, og, um,
þá, o.s.frv.
Þegar samstætt fólk verður
leikið í þessum leik, er hann af-
ar skemmtilegur — og lærdóms-
ríkur. —
Man ég alltaf eftir því þegar
málshátturinn: „Kapallinn geld-
ur þegar keyrissveinn er reiður“
var falinn svo rækilega í svör-
unum að spyrjandinn gafst upp |
við að finna hann (og kunni þó
málsháttinn þegar til kom).
En þá má segja að svörin væru
nærri því „fyrjrlestrar".
Hitt vissi ég líka, að spyrjandi
sem aldrei hafði heyrt fyrri máls
háttinn: „Þegar fara á betur en
vel, fer oft ver(r) en illa“ fann
hann þegar í fyrstu lotu. Þó eru
í honum eingöngu algeng, stutt
orð, sem flest liggur beint vi'ð að
nota í svörum við all-mörgurri
spurningum. — í hvorutveggja
tilfellinu: að spyrja og velja orð-
in út úr svörunum, svo og, ekki
síður, að svara, gildir málshátt-
urinn: „Það verður hverjum að
list, sem hann æfir.“ Og líka:
„Æfingin gefur listina.“
Nýjasta aðferð mín við chok-
lækningar er einfaldlega sú, að
senda sjúklingnum strax reikn-
inginn, áður en aðgerðin á að
hefjast.
AKranesIerSir með sérleyfisbílum Þ.
P Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá Reykja
vík alla virka dags kl. 6. Frá Akra-
nesi kl. 8, nema á L,augardögum ferðir
frá Akranesi kl. 8 frá Reykjavík kl.
2, Á sunnudögum frá Akranesi kl. 3.
Frá Reykjavík kl. 9.
Akraborg: Fer frá Rvík kl. 8 og 18.
Frá Borgarnesi kl. 13. Frá Akranesi
kl. 14:45 og 10:30. Miðviikudagur frá
Rvík kl. 7:45; 11:45 og 10. Frá Akra-
nesi kl. 9:13 og 19:30.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla kemur við í Kaupmannahöfn i
dag fer síðdegis áleiðis til Ventspils.
Askja er væntanleg til Messina í dag.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja fer
frá Rvík i dag vestur um land 1
hringferð. HerjóLfur fer frá Vest'
mannaeyjum i kvöld til Rvíkur. I>yrill
er í Weast. Skjaldbreið er á leið frá
Húnaflóa tl Rvíkur. Herðubreið er í
Rvík.
Hafskip h.f.: Laxá kemur til Bvíkur
í dag. Rangá er í Rvík. Selá fór frá
Vestmannaeyjum í gær til Hornafjarð
ar
H.f. Jöklar: Drangajökull fór frá
Hanko i gærkveldi til Norrköping og
íslands. Hofsjökull fer annaðkvöld frá
Gdynia til Gdansk. Hamborgar og
Rvikur. Langjokuil er í Caen og fer
þaðan annað kvöld til Rotterdam og
Rvíkur. Vatnajökull fór í gærkvöldi
frá Vestmannaeyjum til Norðfjarðar.
Flugfélag islands h.f. Millilandaflug:
Sólfaxi kemur til Rvikur frá Kaup-
mannahöfn og Glasgow kl. 16:05 í dag.
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup
mannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlaö að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Sa.uðárkröks, Húsavikur
og ísafjarðar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Húsavíkur, ísafjarðar og
Egilsstaða.
Skipadeild SÍS: Amarfell er í New
Haven, fer þaðan til Rvikur. Jökulfell
er í Camden. Dísarfell er í Antwerpen
fer þaðan á morgun til Rotterdam.
Litlafeil fór 1 nótt frá Reykjavik til
Austfjarða. Helgafell er væntanlegt til
Aabo 11. HamrafeU er væretanlegt til
Aruba 17. fer þaðan til Rvíkur. Stapa-
fell fer væntanlega frá Brombrough I
dag til Austfjarða. Mælifell fer vænt-
anlega 11. frá Cabo de Gata til íslands
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka-
foss fer frá Ardrossan 8. 2. til Dublin
og Avonmouth. Brúarfoss fer frá
Hamborg 10. 2. til Hull og Rvíkur.
Dettifoss er í Wilmington, fer þaðan
til NY. Fjallfoss fer frá Kotka 9. 2.
til Ventspils og Gdynia. Goðafoss kom
til Rvíkur 7. 2. frá Leith. Gullfoss kom
til Rvíkur 8. 2. frá Leith og Thors-
havn. Lagarfoss fer frá Rvík kl. 22:00
í kvöid 8. 2. til Vestmannaeyja og
þaðan til Gdynia, Kotka og Ventspils.
Mánaíoss fer frá Kaupmannahöfn 9.
2. til Gautaborgar. Reykjafoss er i
Hamborg. Selfoss er i NY. Tungufoss
fer frá Sauðárkróki í dag 8. 2. til
Húsavíkur, Akureyrar, Norðfjarðar og
Bskifjarðar. Utan skrifstofutíma eru
skipafréttir lesnar í sjálvirkum sím-
svara 2-14-66.
\tlO li
Punkturinn yfir i-ið
Kínverskur spekingur hefur
geít eftirfarandi samanburð á
hjónaböndum Kínverja, þar sem
foreldrar ráða giftingum barna
sinna, og hinum vestrænu hjóna-
böndum:
Giftingu í Kína má líkja við
það, þegar ketill með köldu vatni
er settur yfir eld. Brátt fer vatn-
ið að sjó’ða og helzt heitt áfram.
Vestrænum hjónaböndum má
líkja við það þegar ketill með
sjóðandi vatni er settur yfir
kalda eldavél. Suðan hættir fljótt
og — vatnið kólnar.
Málshœttir
Þaðan er góðs að vænta, sem
er gott fyrir.
Þann er hægt að lokka, sem
sjálfur vill brokka.
sá NÆST bezti
Leikfélag Reykjavíkur var að leika „Ævintýri á gönguför", í
gamla daga, og lék Gestur Pálsson, bróðir Hreins Pálssonar söngv-
ara, Ejbæk stúdent. Það orð lék á, að Gestur sy-ngi ekki sem hrein-
ast í fyrsta þætti.
Eitt kvöld kom Haraldur Á. Sigurðsson „bak við“ til þess a’ð
heilsa upp á leikarana, því að hann lék ekki með að þessu sinni.
Til þess að stríða Gesti sagði hann eftirfarandi s-ö-gu:
„Á bekk fyrir framan mig sátu tveir menn. Þegar Gestur hafði
lokið við söng sinn, sagði annar vi'ð hinn:
„Hann er ekki hreinn“.
Hinn svaraði:
„Nei, þetta er bróðir hans.“
Athugið
Æðardúnssængur 1. flokks
fyrir hendi. Mjög þekktar
og vinsælar. — Verð það
sama og áður. Sími 17. Vog
ar. —
Kvenarmbandsúr
tapaðist 1. febrúar við Rétt
arholtsskólann eða á leið-
inni niður á Bústaðaveg. —
Uppl. í síma 34127.
Sveit
Kona með tvö börn óskar
að komast sem ráðskona í
sveit. Svar óskast sent Mbl.
merkt: „Sveitavinna —
6808“.
Saxafónn — Rifflar
Til sölu er nýr tenórsaxa-
fónn (Selmer), Homet riff-
ill með kíki og Bruno riff-
ill 22 cal. UppL í sima 33919
næstu kvöld.
Ungur maður
með Verzlunarskólapróf,
óskar eftir atvinnu úti á
landi. Tilboð, sem farið
verður með sem algijört
trúnaðarmál, sendist afgr.
Mbl. fyrir 6. marz merkt:
„6804“.
Ódýrt lakaléreft
og sængurverkadamask.
Verzl. H O F
Laugavegi 4.
SJÓNVÖRP
-K
*
X-
*
Fyrir bæiii kerfin
Skörp mynd - góður hljómur
Þægilegur myndbiær
Langdrægni
>t Viðgerðaþjónusta
Sölustaðir:
Gunnar Ásgeirsson h.f., Suðurlandsbraut 16.
Radíóver, Skólavörðustíg 8.
Stapafell, Keflavík.
Aðalumboð:
GIINNAR ASGEIRSSON H. F.
Suðurlandsbraut 16 — Reykjavík.
íbúðir til sölu
Tvær fokheldar íbúðir til sölu við Þinghólsbraut
í Kópavogi. Mjög hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 40810.
Einbýlisliús vib Selvogsgrunn
Af sérstökum ástæðum er til sölu nýtízku einbýlis-
hús við Selvogsgrunn. Húsið er hæð, 136 ferm., með
svölum og sólbyrgi. Kjallari er undir hluta hússins
og er þar kyndiklefi, stórt geymsluherbergi o. fL
Á hæðinni eru tvær samliggjandi stofur, 3 svefnher-
bergi, þar af tvö á efri palli, eldhús með borðkrók,
búr og þvottaherbergi. Ræktuð og girt lóð.
Allar nánari upplýsingar gefur
IMýja fasteixfnas^lan
Laugavegi 12 — Sími 24-300.
kl. 7,30—8,30 e.h. — Sími 18546.