Morgunblaðið - 11.03.1965, Side 12
12
MORCU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 11. marz 1965
Fjölbreytt starfsemi æskulýðsráðs
til fundahalda og þessháttar.
Þrátt fyrir það og .þá starf-
semi, sem við rekum hér, er
húsið ekki enn fullnýtt. Við
höfum semsé ótal möguleika
til þess að auka starfsemi okk-
ar, og það erum við smám
saman ^ð gera.
— Þið standið einnig fyrir
félags- og tómstundastarfsemi
í gagnfræðaskólum borgarinn-
ar.
— Já, við gerum menn út aí
örkinni til þess að leiðbeina
igagnfræðaskólanemum í
í ýmiss konar félags- og tóm-
stundaiðju, og fer það fram í
sj'állfum gagnfræðaskólunum.
— Hefur þátttaka verið góð
í þessu starfi?
— Við reyndum þetta í
fyrsta skipti í fyrravetur, en
þá voru þátttakendur rúm-
lega 1000 í öllum skólum. Við
bindum miklar vonir við þetta
starf, því á þennan hátt verða
hin glæsilegu húsakynni skól-
anna eins konar hverfisheim-
iii.fyrir unglingana, og þurfa
þeir því ekki að sækja félags-
og tómstundastörf langar leið-
ir. Skólarnir fá á þennan hátt
betri aðstöðu til þess að fylg-
ast með tómstundastarfi nem-
enda sinna.
— Hvernig líkar þér svo að
standa í öllu því stappi, sem
hlýtur að fylgja því að vera
framkvæmdastjóri æskulýðs-
ráðs?
— Það er rétt, að starfið er
bæði erfitt og erilsamt, en það
er mjög skemmtilegt. Ég hef
alveg prýðisgott samstarfs-
fólk, sem eru þau Hrefna
Tynes, sem sér um skrifstof-
una, Haukur Sigtryggsson,
sem er umsjónarmaður með
starfinu hér í húsinu og Jón
Pálsson, sem hefur umsjón
með starfinu í skólunum.
Reynir Karlsson, framkvæmdastjóri æskulýðsráðs.
— Er nokkuð sem þú vilt
segja áður en við kveðjum?
— Ég vfí aðeins segja þetta:
Við, sem störfum að æskulýðs-
málum höfum nokkrum sinn-
um sætt harðri gagnrýni fyrir
að laða unglingana of mikið
frá heimilunum. Við gerum
okkur fulla grein fyrir rétt-
mæti þessarar gagnrýni, en
við höfum einmitt reynt af
fremsta megni að kenna uragl-
ingum þeim, sem koma til
okkar, einhverja tómstunda-
iðju, sem þeir geta unnið að á
heimilum sínum. Okkar starf
getur verkað á tvo vegu, en
við gerum það sem við getum
til þess að ganga hvorki of
langt né of skammt í starfi
okkar.
ÆSKUI.ÝÐSRÁÐ Reykjavík-
ur er nú sífellt að auka starf-
semi sína. Rekur það nú um-
fangsmikla starfsemi að Frí-
kirkjuvegi 11, en auk þess eru
á þess vegum rekin ýmiss kon
ar klúbbastarfsemi í gagn-
fræðaskólum borgarinnar á
kvöldin. Til þess að forvitnast
nánar um alla þessa starfsemi
hittum við Reyni Karlsson,
framkvæmdastjóra æskulýðs-
ráðs, og ræddum við hann
stutta stund.
Rætt við Reyni Karisson, framkvæmdarstjora
Á námskeiði í radiovinnu.
miðstöð í Fossvogi, en það hef
ur strandað á ýmsu. Ég er
samf bjartsýnn um að slík
miðstöð komist upp einhvern
tíma á næstunni. Einnig ætl-
um við að koma upp góðu
tjaldstæði í págrenni Reykja-
víkur þar sem ungliAgar geti
komið og slegið upp tjöldum.
— Hvað starfar æskulýðs-
ráð á sumrin?
— Á sumrin er hér starf-
rækt ferðamiðstöð, þar sem
hægt er að fá alls konar upp-
lýsingar um ferðalöig. Þá er
ýmsum hópum veitt aðstaða
til þess að selja hér miða fyrir
ferðalög o.þ.h. Á sumrin starf
ar Stangaveiðiklúbbur ung-
linga. Semur æskulýðsráð þá
um ódýr veiðileyfi í Elliða-
vatni eða Þingvallavatni og er
farið þangað með hópinn.
Einnig hefur klúbburinn
stundum gefizt kostur á að
stunda sjóstangaveiði.
Eitt á ég eftir að nefna og
það er hið svonefnda „opna
hús.“ Við höfum sem sé opið
hús hér að Fríkirkjuvegi 11 á
hverju kvöldi. Unglingar, 16
ára og eldri geta þá komið
hingað með kunningjum sín-
um og spilað hér eða teflt. Hér
er líka hægt að spila borð-
tennis og „bob“ eða bara sitja
og ræða heimsvandamálin.
Þessi „opnu hús“ hafa náð
geysimiklum vinsældum og til
dæmis voru hér í gærkvöldi
um 130 manns.
— Þetta segir þú að sé ætl-
að unglingum eldri en 16 ára.
Hafið þið þá eitthvað samsvar-
andi fyrir yngra fólkið?
— Við höfum því miður
orðið að vísa frá, þegar það
kemur hingað á kvöldin og
vill fá að vera með. En við
verðum að fylgja lögum oig
reglum um útivist barna á
kvöldin. Til allrar hamingju
eru þessi lög nú í endurskoð-
un og ég vona að þeim verði
breytt á þá lund, að sem flest-
ir verði ánægðir. Út af þessu
atriði hafa orðið talsverð
blaðaskrif að undanförnu og
margir foreldrar hafa talað
við mig um þetta. En að sjálf-
sögðu getun æskulýðsráð ekki
leyft yragra fólkinu að vera
með hinum eldri á kvöldin, ef
það brýtur á bága við lög.
— En hvað hafið þið þá að
bjóða unglingum undir 16 ára
aldri?
— Þeim er að sjálfsögðu
heimil þátttaka í öllum nám-
skeiðum, sem fara fram á okk-
ar vegum, en héf er einnig
opið hús frá kl. 4—7 á sunnu-
dögum. Þá er dansað á neðstu
hæðinni, og geta þau þá geng-
ið um allt húsið eins og þeim
sýnist. Á þennan hátt getum
við bætt þeim það upp að
nokkru að fá ekki að taka
þátt í skemmtunum hinna
eldri hér á kvöldin.
STÓRBÆTT AÐSTAÐA
— Hvernig er aðstaða æsku-
lýðsráðs til félags- og tóm-
stunastarfs eftir að það fékk
þetta hús til afnota?
— Aðstaðan hefur stórbatn-
að við það. Húsið er svo stórt,
að við getum veitt fjölmörg-
um æskulýðsfélögum aðstöðu
MOpið hús“ að Fríkirkjuvegi 11.
Reynir er ungur í starfi, hef
ur verið framkvæmdastjóri
æskulýðsráðs í tæpt ár. Hann
var áður kennari við Voga-
akóla.
— Við hittum hann á skrif-
stofu hans að Fríkirkjuvegi 11.
Síminn hringdi án afláts og
urðum við að reyna að skjóta
inn orði og orði milli hring-
inga.
— Hvað getur þú sagt okk-
ur í stuttu máli um starfsemi
æskulýðsráðs?
— Æskulýðsráð er fyrst og
fremst ráðgefandi stofnun, en
eins og kunnugt er, hefur það
einnig séð um ýmiss konar
félags- og tómstundaiðjú
sjálft.
— Hvers konar tómstunda-
iðju?
— Það er nú sitt úr hverri
áttinni. Við höfum leitazt við
að kenna fólki ýmsa tóm-
stundaiðju, sem það mundi
ekki læra annars staðar. Við
höfum hér, að Fríkirkjuvegi
11, námskeið í ljósmyndaiðju,
málm- og radíóvinnu og frí-
merkjasöfnun. Einnig höfum
við hér námskeið i teppahnýt
ingum fyrir ungar stúlkur.
Þátttaka er mjög igóð í öllum
þessum námskeiðum. Einnig
eru að- hefjast námskeið í
postulínsmálun, leðurvinnu og
tauþrykki. Við ætlum svo að
halda sýningu á þessu starfi
í haust.
SJÓVINNUNÁMSKEIB
— Er það ekki rétt, að þið
hafið hönd í bagga með félags
og tómstundastarfsemi annars
staðar en hér að Fríkirkjuvegi
11?
— Jú. Við stöndum fyrir
sjóvinnunámskeiði að Lindar-
götu 50, þar sem ungir piltar
læra ýms sjóvinnubrögð. Nám
skeiðin þar taka þrjá mánuði
hvert. Mangir þessara pilta
verða sjómenn síðar og reynsl
an hefur sýnt, að þeir eru
miklu hæfari til þeirra hluta
en þeir sem ekki hafa fengið
neina þjálfun.
í Golfskálanum starfar Vél-
hjólaklúbburinn Elding á okk
ar vegum. Þar hafa piltar að-
stöðu til þess _að gera við hjól-
in sín sjálfir og þar eru haldn
ir fræðslufundir um umferð-
ina o.s.frv. Nokkrir piltar úr
þessum ’ klúbb stofnuðu með
sér klúbb, sem þeir nefna Bif
reiðaklúbb Reykjavíkur.
Æskulýðsráð hefur reynt að
aðstoða piltana eftir föngum,
en F.Í.B. hefur einnig sýnt
áhuga á málinu. Nú vilja pilt-
arnir koma sér upp verkstæði
og góðakstursbrautum, en
vantar aðstöðu.
NÝJUNGAR
— Hafið þið eitthvað nýtt
á prjónunum?
— Við höfum áhuga á að
koma upp siglinga- og róðra-