Morgunblaðið - 11.03.1965, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.03.1965, Qupperneq 12
12 MORCU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 11. marz 1965 Fjölbreytt starfsemi æskulýðsráðs til fundahalda og þessháttar. Þrátt fyrir það og .þá starf- semi, sem við rekum hér, er húsið ekki enn fullnýtt. Við höfum semsé ótal möguleika til þess að auka starfsemi okk- ar, og það erum við smám saman ^ð gera. — Þið standið einnig fyrir félags- og tómstundastarfsemi í gagnfræðaskólum borgarinn- ar. — Já, við gerum menn út aí örkinni til þess að leiðbeina igagnfræðaskólanemum í í ýmiss konar félags- og tóm- stundaiðju, og fer það fram í sj'állfum gagnfræðaskólunum. — Hefur þátttaka verið góð í þessu starfi? — Við reyndum þetta í fyrsta skipti í fyrravetur, en þá voru þátttakendur rúm- lega 1000 í öllum skólum. Við bindum miklar vonir við þetta starf, því á þennan hátt verða hin glæsilegu húsakynni skól- anna eins konar hverfisheim- iii.fyrir unglingana, og þurfa þeir því ekki að sækja félags- og tómstundastörf langar leið- ir. Skólarnir fá á þennan hátt betri aðstöðu til þess að fylg- ast með tómstundastarfi nem- enda sinna. — Hvernig líkar þér svo að standa í öllu því stappi, sem hlýtur að fylgja því að vera framkvæmdastjóri æskulýðs- ráðs? — Það er rétt, að starfið er bæði erfitt og erilsamt, en það er mjög skemmtilegt. Ég hef alveg prýðisgott samstarfs- fólk, sem eru þau Hrefna Tynes, sem sér um skrifstof- una, Haukur Sigtryggsson, sem er umsjónarmaður með starfinu hér í húsinu og Jón Pálsson, sem hefur umsjón með starfinu í skólunum. Reynir Karlsson, framkvæmdastjóri æskulýðsráðs. — Er nokkuð sem þú vilt segja áður en við kveðjum? — Ég vfí aðeins segja þetta: Við, sem störfum að æskulýðs- málum höfum nokkrum sinn- um sætt harðri gagnrýni fyrir að laða unglingana of mikið frá heimilunum. Við gerum okkur fulla grein fyrir rétt- mæti þessarar gagnrýni, en við höfum einmitt reynt af fremsta megni að kenna uragl- ingum þeim, sem koma til okkar, einhverja tómstunda- iðju, sem þeir geta unnið að á heimilum sínum. Okkar starf getur verkað á tvo vegu, en við gerum það sem við getum til þess að ganga hvorki of langt né of skammt í starfi okkar. ÆSKUI.ÝÐSRÁÐ Reykjavík- ur er nú sífellt að auka starf- semi sína. Rekur það nú um- fangsmikla starfsemi að Frí- kirkjuvegi 11, en auk þess eru á þess vegum rekin ýmiss kon ar klúbbastarfsemi í gagn- fræðaskólum borgarinnar á kvöldin. Til þess að forvitnast nánar um alla þessa starfsemi hittum við Reyni Karlsson, framkvæmdastjóra æskulýðs- ráðs, og ræddum við hann stutta stund. Rætt við Reyni Karisson, framkvæmdarstjora Á námskeiði í radiovinnu. miðstöð í Fossvogi, en það hef ur strandað á ýmsu. Ég er samf bjartsýnn um að slík miðstöð komist upp einhvern tíma á næstunni. Einnig ætl- um við að koma upp góðu tjaldstæði í págrenni Reykja- víkur þar sem ungliAgar geti komið og slegið upp tjöldum. — Hvað starfar æskulýðs- ráð á sumrin? — Á sumrin er hér starf- rækt ferðamiðstöð, þar sem hægt er að fá alls konar upp- lýsingar um ferðalöig. Þá er ýmsum hópum veitt aðstaða til þess að selja hér miða fyrir ferðalög o.þ.h. Á sumrin starf ar Stangaveiðiklúbbur ung- linga. Semur æskulýðsráð þá um ódýr veiðileyfi í Elliða- vatni eða Þingvallavatni og er farið þangað með hópinn. Einnig hefur klúbburinn stundum gefizt kostur á að stunda sjóstangaveiði. Eitt á ég eftir að nefna og það er hið svonefnda „opna hús.“ Við höfum sem sé opið hús hér að Fríkirkjuvegi 11 á hverju kvöldi. Unglingar, 16 ára og eldri geta þá komið hingað með kunningjum sín- um og spilað hér eða teflt. Hér er líka hægt að spila borð- tennis og „bob“ eða bara sitja og ræða heimsvandamálin. Þessi „opnu hús“ hafa náð geysimiklum vinsældum og til dæmis voru hér í gærkvöldi um 130 manns. — Þetta segir þú að sé ætl- að unglingum eldri en 16 ára. Hafið þið þá eitthvað samsvar- andi fyrir yngra fólkið? — Við höfum því miður orðið að vísa frá, þegar það kemur hingað á kvöldin og vill fá að vera með. En við verðum að fylgja lögum oig reglum um útivist barna á kvöldin. Til allrar hamingju eru þessi lög nú í endurskoð- un og ég vona að þeim verði breytt á þá lund, að sem flest- ir verði ánægðir. Út af þessu atriði hafa orðið talsverð blaðaskrif að undanförnu og margir foreldrar hafa talað við mig um þetta. En að sjálf- sögðu getun æskulýðsráð ekki leyft yragra fólkinu að vera með hinum eldri á kvöldin, ef það brýtur á bága við lög. — En hvað hafið þið þá að bjóða unglingum undir 16 ára aldri? — Þeim er að sjálfsögðu heimil þátttaka í öllum nám- skeiðum, sem fara fram á okk- ar vegum, en héf er einnig opið hús frá kl. 4—7 á sunnu- dögum. Þá er dansað á neðstu hæðinni, og geta þau þá geng- ið um allt húsið eins og þeim sýnist. Á þennan hátt getum við bætt þeim það upp að nokkru að fá ekki að taka þátt í skemmtunum hinna eldri hér á kvöldin. STÓRBÆTT AÐSTAÐA — Hvernig er aðstaða æsku- lýðsráðs til félags- og tóm- stunastarfs eftir að það fékk þetta hús til afnota? — Aðstaðan hefur stórbatn- að við það. Húsið er svo stórt, að við getum veitt fjölmörg- um æskulýðsfélögum aðstöðu MOpið hús“ að Fríkirkjuvegi 11. Reynir er ungur í starfi, hef ur verið framkvæmdastjóri æskulýðsráðs í tæpt ár. Hann var áður kennari við Voga- akóla. — Við hittum hann á skrif- stofu hans að Fríkirkjuvegi 11. Síminn hringdi án afláts og urðum við að reyna að skjóta inn orði og orði milli hring- inga. — Hvað getur þú sagt okk- ur í stuttu máli um starfsemi æskulýðsráðs? — Æskulýðsráð er fyrst og fremst ráðgefandi stofnun, en eins og kunnugt er, hefur það einnig séð um ýmiss konar félags- og tómstundaiðjú sjálft. — Hvers konar tómstunda- iðju? — Það er nú sitt úr hverri áttinni. Við höfum leitazt við að kenna fólki ýmsa tóm- stundaiðju, sem það mundi ekki læra annars staðar. Við höfum hér, að Fríkirkjuvegi 11, námskeið í ljósmyndaiðju, málm- og radíóvinnu og frí- merkjasöfnun. Einnig höfum við hér námskeið i teppahnýt ingum fyrir ungar stúlkur. Þátttaka er mjög igóð í öllum þessum námskeiðum. Einnig eru að- hefjast námskeið í postulínsmálun, leðurvinnu og tauþrykki. Við ætlum svo að halda sýningu á þessu starfi í haust. SJÓVINNUNÁMSKEIB — Er það ekki rétt, að þið hafið hönd í bagga með félags og tómstundastarfsemi annars staðar en hér að Fríkirkjuvegi 11? — Jú. Við stöndum fyrir sjóvinnunámskeiði að Lindar- götu 50, þar sem ungir piltar læra ýms sjóvinnubrögð. Nám skeiðin þar taka þrjá mánuði hvert. Mangir þessara pilta verða sjómenn síðar og reynsl an hefur sýnt, að þeir eru miklu hæfari til þeirra hluta en þeir sem ekki hafa fengið neina þjálfun. í Golfskálanum starfar Vél- hjólaklúbburinn Elding á okk ar vegum. Þar hafa piltar að- stöðu til þess _að gera við hjól- in sín sjálfir og þar eru haldn ir fræðslufundir um umferð- ina o.s.frv. Nokkrir piltar úr þessum ’ klúbb stofnuðu með sér klúbb, sem þeir nefna Bif reiðaklúbb Reykjavíkur. Æskulýðsráð hefur reynt að aðstoða piltana eftir föngum, en F.Í.B. hefur einnig sýnt áhuga á málinu. Nú vilja pilt- arnir koma sér upp verkstæði og góðakstursbrautum, en vantar aðstöðu. NÝJUNGAR — Hafið þið eitthvað nýtt á prjónunum? — Við höfum áhuga á að koma upp siglinga- og róðra-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.