Morgunblaðið - 19.03.1965, Síða 19

Morgunblaðið - 19.03.1965, Síða 19
FSstudagur 19. marz 1965 MORGUNBLAÐIÐ lö Jón Hnefill Aðalsteinsson; Uppsölum 28. febr. 1965 brigðir hefur lagða. Er þar ok brim fyrir útan, en haf svá 20. þ. m. varði Bo Alm- qvist, fyrrum sendikenn- ari á íslandi doktorsritgerð hér við háskólann um nor- ræn níðkvæði. Fyrsti and- mælandi var prófessor Ein ar Ólafur Sveinsson. Lauk hann miklu lofsorði á rit- gerðina og taldi norrænum vísindarannsóknum að henni verulegur fengur. — Þar sem efni þessarar rit- gerðar er að miklu leyti sótt í forníslenzkar heim- ildir, og sumar niðurstöð- ur dr. Almqvist snerta ís- land sérstaklega, þykir á- stæða til að gera ritgerð- inni hér nokkur skil. NORRÖN NIDDIKTNING, traditionshistoriska studier i versmagi, 1 nid mot furstar av Bo Almqvist; Almqvist & Wikseli 1965, 260 bls. kr. 25.—. Höfundur getur þess í inn- gangi, að frumdrög þessara rannsókna forms níðs séu at- huganir, sem hann hafi gert á íslenzkum kraftaskáldum og ákvæðaskáldum, og mun í framtíðinni fleiri binda að vænta af hans hálfu um þessi efni. Doktorsritgerðin skiptist í fjóra kafla, er svo heita: 1. Um hugtakið níð. 2. Um Níð- vísur Egils Skalla-Grímssonar. 3. Haraldsníð. 4. Jarlsníð. f fyrsta kapítula rekur höf- undur skýringar, sem fram hafa verið settar á orðinu níð og tilfærir síðan úr fornum iögum dæmi um níð og þau viðurlög, sem við því er að ! finna. Kemur fram að greinir níðsins eru einkum tvær: tunguníð og tréníð, eins og það er nefnt; sagt fram eða rist rúnum og táknum. Tungu níðið hefur oftast verið í bundnu máli, og sýna ítarleg og löng ákvæði fornra laga, að mönnum hefur verið gjarnt að igrípa til þessa vopns og þeim, sem fyrir urðu hefur þótt allt annað en gott undir að liggja. Allur er þessi kafli hinn fróðlegasti aflestrar og gefur góða mynd af alvarlegu viðfangsefni fornrar sögu. ; Annar kafli ritgerðar Alm- | qvists er helgaður Agli Skalla- | Grímssyni og viðskiptum hans við Eirík konung og Gunnhildi. Kemur þar fyrst til umræðu níðstöngin, sem Egill reisti þeim hjónum. Leiðir höfundur að því gild j rök að hér hafi um níðstöng verið að ræða, en á það hafa verið bornar brigður. Dæmi úr Vatnsdælu, Gesta Danorum, Gulaþingslögum og Frosta- þirugslögum virðast skera úr um þetta og er niðurstaða höf- undar sú, að slíkar stengur hafi verið reistar til tjóns og háðungur og athöfnin öll verið samslungin trú og töfrum heiðins siðar. Þá eru skýrðar vísur Egils: Svá skyldi goð gjalda, oig Lög- að mestu fylgt fyrri skýring- um, nema hvað því er hafnað að landáss og landalfr geti átt við Þór eða Óðin og telur höfundur að þar beini Egill máli sínu- til landvætta. Haraldsníð heitir þriðji hluti ritgerðarinnar og fjallar um níð íslendiniga mót Har- aldi Gormssyni Danakónungi. Þar er fyrst tekin til athug- Bo Almqvist unar og skýringar vísan: Þás sparn og mó marnar og rakin í því sambandi skyld dæmi úr fornum bókum. Þá er rakin saga þess, er Haraldur kon- ungur hugðist hefna níðsins og sendi mann í hamförum til íslands: Frásögn Heims- kringlu um atburðinn er á þessa leið: Haraldr konungr bauð kunngum manni at fara í hamförum til íslandz ok freista, hvat hann kynni segja honum; sá fór í hvals-líki. En er hann kom til landzins, þá fór hann vestr fyrir norðan landit. Hann sá, at fjöll öll ok hólar váru fullir af landvéttum sumt stórt, en sumt smátt. En er hann kom fyrir Vápnafjörð, þá fór hann inn á fjörðinn ok ætlaði í land at ganga. Þá fór ofan ór dalnum dreki mikill ok fylgðu honum margir orm- ar, pöddur ok eðlur, ok blésu eitri á hann; en hann lagðisk í brot ok vestr fyrir land alt fyrir Eyjafjörð; fór hann inn eptir þeim firði; þar fór móti honum fugl svá mikill, at vængirnir tóku út fjöllin tveggja vegna, og fjölði ann- arra fugla bæði stórir ok smáir. Braut fór hann þaðan ok vestr um landit ok svá suðr á Breiðafjörð ok stefnði þar inn á fjörð. Þar fór móti honum griðungr mikill ok óð á sæinn út ok tók at gella ógurliga; fjölði landvétta fylgði honum. Bott fór hann þaðan ok suðr um Reykjanes ok vildi ganga upp á Vikar- skeiði. Þar kom í móti honum bergrisi ok hafði járnstaf í hendi, ok bar höfuðit hæra en fjöllin, ok mangir aðrir jötn- ar með honum. Þaðan fór hann austr með endlöngu landi — “var þá ekki, segir hann, nema sandar ok örævi mikit millim landanna, segir hann, at ekki er þar fært langskipum." Þá var Brodd- Helgi í Vápnafirði, Eyólfr Valgerðarson í Eyjafirði, Þórðr gellir í Breiðafirði, Þóroddr goði í Ölfusi. Athyglisverðasta niðurstaða höfundar í sambandi við skýr- ingu þessarar sögu, er sú, að verur þær er fóru fyrir gegn sendimanni Haralds hafi ekki verið landvættir. Bendir hann m.a. á, að í frásötgn Snorra, sem tekin er hér, er hvergi sagt, að drekinn, fuglinn, griðungurinn eða risinn séu landvættir. Um griðunginn er það aðeins sagt, að fjöldi landvætta hafi fylgt honum. Að öðru leyti er niðurstaðan fengin af samanburði við aðr- ar heimildir, sem lýsa land- vættum, og mjög á annan veg en framanigreindum verum. f framhaldi af þessu er svo leidd að því rök af samanburði við aðrar heimildir, að ofan- nefndar verur eigi í sögunni að tákna fylgjur eða ham- yngjur umgetinna fjögurra höfðingja. Það skal tekið fram, að fyrsti andmælandi hreyfði mótbárum við sumum rök- semdum höfundar við skýr- ingu þessarar frásagnar. M.a. taldi hann ekki rétt að varpa fyrir róða kenningartilgátu Matthíasar Þórðarsonar að guðspjallatáknin væru fyrir- myndir veranna fjögurra oig eins taldi hann ekki loku fyrir skotið, að Snorri hefði talið hér um landvætti að ræða þó hann nefndi það ekki berum orðum. Síðasti kafli ritgerðarinnar heitir Jarlsmð og fjallar um níð Þorleifs Ásgeirssonar gegn Hákoni jarli Sigurðssyni. Er þar m.a. sýnt fram á hve áþreifanleg áhrif níðið getl haft samstundis. Það leiðir af sjálfú að í fáum orðum er ekki hægt að greina að gagni frá vísindariti eins oig þvi, sem hér hefur verð gert að umræðu. En auk þess efnisyfirlits, sem nefnt hefur verið, fylgir útdráttur á ensku, tilvitnuð heimildarrit eru um 300 tálsins auk óprent- aðra skjala og í bókarlok fylgir skrá yfir forn orð, sem sérstaklega eru skýrð í texta. Eins og áður segir hefur doktorsritgerð Bo Almqvists fengið mjög góða dóma sér- fræðinga. í löngu oig lærðu erindi fann prófessor Einar Ólafur Sveinsson ritgerðinni fátt til foráttu en margt til gildis. Lauk hann máli sínu með því að telja doktorsefni mjög vel að nafnbót sinni kominn. Annar andmælandi, Britt Marie Insulander, FK kvartaði yfir að hafa ekki haft erindi sem erfiði við leit að villum og rangfærslum. Þriðji andmælandi, Göran Rosander FL, mætti til leiks með stöng og hestshauskúpu, en þriðji andmælandi er hér ætlaður til skemmtunar áheyrendum. Jón Hnefill Aðalsteinsson. Háseta vantar á góðan netabát. — Upplýsingar í Fiskmiðstöðinni h.f., símar 13560 og 17857. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsia í Morgunbtaðinu en öðrum biöðum. SVlMING BEIMEDIKTS GUIMIM/VRSSOIMAR BENEDIKT Gunnarsson er með málverkasýningu í Bogasal Þjóð- minjasafnsins og sýnir að þessu sinni 41 olíumálverk ásamt nokkrum „Gríngrafik“ myndum, er hann hefur gert í tilrauna- skyni með eins konar ljósmynda- tækni. Það er orðið nokkuð síð- an Benedikt sýndi seinast, en hann hefur haldið fjórar einka- sýningar, frá því hann hóf list- feril sinn. Benedikt er ungur maður, en hann hefur fengizt við myndlist nokkuð lengi og er því enginn byrjandi. Hann er vel mennt- aður í fagi sínu og er því ekki einn þeirra, sem setið hefur nokkra mánuði á kvöldnámskiði og stokkið síðan til þess að sýna vinum og ættingjum hvað hann geti fært fjallið og húsið ná- kvæmlega upp á léreftið. Havet er blaat, Himlen er graa — segir í dönskum slagara. Því miður eru það allt of margir, sem kalla sig listmálara án þess að hafa nokk- uð til þess unnið. En þetta var smá útúrdúr. Ef maður tæki allt alvarlega sem fram kemur í mál- flralist hérlendis, er ég hræddur um að erfitt yrði að gera sér grein fyrir hvað ar gott og hvað er hismi. Þessi sýning Benedikts Gunn- arssonar er skemmtileg, og ekki sízt fyrir þá, sem fylgzt hafa með fyrri sýningum Benedikts. Svo auðséð er framförin hjá lista manninum. Hann er sístarfandi og hefur þróazt bæði í stíl og vinnubrögðum. Honum hefur nú tekizt að ná miklu betri árangri í litameðferð sérstaklega, en áð- ur fyrr. Nú eru mynddr hans samrýmdari í litnum og ekki eins harðar í tónum og vildi stundum koma fyrir í fyrri verkum Bene- dikts. En einmitt þetta atriði var dálítið erfitt fyrir listamanninn og honum tókst stundum alls ekki að ná samræmi í sterkustu litum, sem honum var gjamt að nota. Hann byggir og þessar nýju myndir á fjörlegan hátt og notar alls konar hryfingar til að leiða augað yfir myndflötin. Mér finnst Benedikt ná sér bezt á strik, þegar hann vinnur ekki á mjög stór léreft. Það er eins og honum hæfi betur að mála meðal stærðir en að glíma við stærri fleti. Þetta er ekki löstur á nein- um listamanni, síður en svo, en það getur tekið nokkurn tíma fyrir listamenn að finna einmitt þær stærðir, sem hæfa þeim bezt. Ekkert listaverk er afrek vegna stærðar, heldur hvernig það er skapað fyrst og fremst. Ég held að þessi sýning eigi eftir að sanna Benedikt sjálfum, að yfirleitt takist honum betur, þeg- ar hann vinnur í smærri flöt. Svo er það annað mál, hvort þessi eða hin stærðin passi fyrir þetta eða það efni sem unnið er með og aðferð. Það er ekki í ofsögum sagt, að erfitt sé að koma saman málverki á sæmilegan hátt. Það er margt, sem spilar með í því orkestra, sem listamaðurinn verð ur að stjórna af allri sinni þekk- ingu og þrótti. Ég hafði ánægju af þessari sýn ingu Benedikts Gunnarssonar, og ég held, að mér sé óhætt að full- yrða, að þetta sé bezta sýning er hann hefur sett saman. Það er mikil framför í þessum verkum, og hvað er ánægjulegra fyrir sanni einmitt þetta. Valtýr Pétursson. Sumarbústaður við Þingvalla- eða Álftavatn óskast til Ieigu. — Aðeins vandaður bústaður kemur til greiná. — Tilboð merkt: „Sumarbústaður — 9987“. Iðnfyrirtæki Iðnfyrirtæki með mjög fullkomnum vélakosti í starf rækslu er til sölu. Húsnæði gæti e. t. v. fylgt. — Upplýsingar í síma 17979 milli kl. 14 og 16 þessa viku. VÉLSTJÓRAR! Landhelgisgæzlan óskar að ráða tvo vélstjóra til starfa á varðskipum. — Umsóknir sendist Land- helgisgæzlunni fyrir 31. þ.m. WEDA BRUNNDÆLUR • Eru fáanlegar með mismun- andi afköstum, allt að 3200 mín./lítrar. • Með eða án sjálfvirks rofa, þannig að dælan vinnur þegar vatn myndast. • Frágangur á mótor er þann- ig, að sökkva má dælunni í vatn. • Jafnt fyrir sjó og ferskt vatn. • Þrýstingur allt að 55 m. hæð. • Hentugar fyrir fiskvinnslu- stöðvar, byggingafram- kvæmdir o. fl. Suðurlandsbraut 16. • Sími 35200. Gunnar Ásgcirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.