Morgunblaðið - 25.03.1965, Síða 22
MQRGU NBLAOIÐ
Fimmtudagur 25. marz 1965
22
Úrslit íslandsmótsins
ráðin í kvöld?
KSt á möguleika á 3. sæti
FH skortir 1 stig í sigur
f KVÖLD fara fram 2 leikir í 1.
deild íslandsmótsins í handknatt
leik og má ætla að úrslit mótsins
verði ráðin í kvöld. Fyrst leika
KR og Fram en síðan Ármann
og FH.
Fram verður að vinna til að
eiga enn sigurmöguleika, en ef
KR vinnur lenda þeir í 3. sæti
mótsins, sem er eftirsóknarvert
sæti fyrir öll lið. Þarna má því
þúast við hörðum slag.
Þá geta FH-ingar tryggt sér
sigurinn í mótinu. Vinni þeir 1
stig, ge,tur ekkert félag náð þeim
og baráttu um íslandstitilinn er
þá lokið — en eftir verður þá að-
eins spenningurinn um hvort
FH vinni alla sína keppinauta.
En takist Ármanni að sigra
FH á Fram enn möguleika (svo
fremi þeir vinni KR) gegn FH.
Ætla má að Framarar jtyðji Ár-
menninga í huganum þó Hafn-
firðingar verði á öðru máli.
II. DEILD
Á dögunum var sagt frá loka-
úrslitum í II. deild í handknatt-
leik karla á íslandsmótinu, þar
sem Valsmenn sigruðu með ein-
stæðum yfirburðum. Þá var birt
lokatafla um úrslitin, en var
röng. Rétt er hún svona:
L U J T Mörk St.
Valur 8 8 0 0 253-149 16
West Ham í
undanúrslitum
ÍVEST HAM United sigraði sviss
neska liðið Lausanne 4:3 í gær-
kvöldi, og komst enska liðið þar
með í undanúrslit um Evrópu-
bikar „bikarmeistara". Fyrri leik
inn vann West Ham einnig með
4:3.
Þróttur 8 2 2 4 191-203 6
ÍBA 8 3 0 5 190-217 6
ÍR 8 2 2 4 194-227 6
ÍBK 8 2 2 4 178-210 6
Magnús Guðmundsson við skiðaþjálfun í Hlíðarfjalli.
Snjór við allra hæfi í Hlíðarfjafli
- og skíðanámskeið í undirbúningi
Husfreyjan þar æfir betur en nokkru sinni fyrr
*
og endurheimtir kannski BsBandsmeistaratitla
Sigurlína leik-
ur með FH
HÉR á síðunni í gær var sagt
frá samskotum FH-inga í því
skyni að fá Sigurlínu Björg-
vinsdóttur, sem nú starfar í
Oslo, til að koma heim og
leika úrslitaleik í kvenna-
flokki með FH. Var þá sagt
að fyrirspurn FH varðamdi
það hvort ekki væri heimilt
að Sigurlína léki hér, þar sem
hún hefur keppt úti í vetur,
hefði verið send HSÍ og þaðan
til ÍSÍ sem ekki hefði gefið
svar.
H e r m a n n Guðmundsson
framkvæmdastjóri ÍSÍ hringdi
í morgun og sagði að ÍSÍ hefði
svanað fyrirspurninni þegar á
fyrsta sólarhring. Hefur svar-
ið verið verið að berast HSÍ
aftur um það leyti sem við
vorum að skrifa fréttina. En
svar ÍSÍ var eins og réttilega
var til getið í frétt okkar í
gær þess efniis, að fyllilega
leyfilegt væri að Sigurlína
kæmi heim og léki með sínu
gamla félagi.
HVER hópurinn af öðrum
kemur og fer, skólanemendur,
skíðafólk og almenningur sem
kann að meta skíöaíþróttina.
Allir virðast vera ánægðir og
glaðir eftir veruna í fjallinu
og allir eru ánægðir með að-
stöðuna sem í Hlíðarfjalli er.
Hér er nægur snjór í öllum
brekkum og mesti msiskilning
ur fréttin í Mbl. á dögunum
lun að snjóinn vantaði. Þeg-
ar svo „Sigmund" gerði grín
að fréttinni með ágætri teikni
mynd, þá skemmtum við okk-
ur vel og úrklippan er víða á
veggjum uppi fyrir norðan.
— Á þessa lei'ð fórust Karó-
línu Guðmundsdóttur hinni
kunnu skíðakonu frá ísafirði
og síðar í röðum KR-inga, en
nú húsfreyju í skíðahóteli
Akureyrar í Hlíðarfjalli, er
við hittum hana hér í bæ í
gær. Við inntum Karolínu
frétta um starfið í Hlíðarfjalli,
en þar hafa Akureyringar
eignast hótel og áðstöðu til
skíðaiðkana sem næsta ein-
stæð er hér á landi. Er þar
vel búið að öllu, glæsiiegt
hús, dráttarbrautir og brekk-
ur við allra hæfi í næsta ná-
grenni. Það starfar fastráðinn
skíðakennari — og stundum
kennarar, og þar hefur síð-
ustu vikur viðrað sérlega vel
til skfðaiðkana.
Frímann Gunnlaugsson,
kunnur handknattleiksmaður
og landsliðsnefndamaður í
þeirri grein og kona hans
Karólína Gúðmundsdóttir ráð
ust s.l. haust til að annast
rekstur hótelsins í Hlíðarfjalli
og fer ekki orð af öðru en
þeim hafi tekizt það prýði-
lega.
— Þetta gengur mjög sæmi
lega, sagði Karolína. Hópur
skólanema úr skólum Akur-
eyrar hafa verið í Hlíðarfjaili
til skiptis 2—3 daga hver hóp
ur. Allir róma aðstö'ðuna og
fara ánægðir. Hér geta verið
um 190 manns í senn í her-
bergjum og í „svefnpokapláss
um“, og skólarnir hafa oft
skipað plássið 5 daga vikunn-
ar.
— Hver greiðir slíka dvöl?
— í skyldunámi mun vera
veittur einhver styrkur til úti
íþrótta nemenda en svo bæta
þau sjálf einhverju við.
— Og hvemig hefur aðsókn
in verið um helgar, þegar skól
arnir eru ekki?
— Aðsóknin er mjög sæmi-
leg bæ'ði af fólki á Akureyri
og einnig hefur fólk komið að
sunnan og dvalist í Hlíðar-
fjalli.
— Þið hafið skíðakennara?
— Já, Magnús Guðmunds-
son, hinn kunni skíðakennari,
hefur verið fastráðinn vi'ð
skíðahótelið í vetur og einnig
hefur Ivar Sigmundsson kennt
þar í vetur. Magnús er fræg-
ur sikíðakennari m.a. frá ýms
um dýrustu hótelum í Banda-
ríkjunum.
— Og hvað er svo fram-
undan næst?
— Við höfum í hyggju að
efna til skíðanámskeiðs í
næstu viku og verður Magnús
kennarinn. Námskeiðið verð-
ur haldið ef næg þátttaka
fæst og þá við hagstæðu verði.
Það myndi hefjast á mánu-
dag eða þriðjudag og standa
í eina viku. Nánari upplýsing
ar er ekki unnt að gefa að
sinni, því kostnaðaráætlun
hafði ég ekki með að norðan.
En þeir sem áhuga hefðu eru
beðnir að hringja sem fyrst í
skíðahótelið í Hlíðarfjalli.
— Og eftir námskeiðið er
svo stutt í páskana og lands-
mótið?
— Já og þá er allt löngu
upppantað utan örfá svefn-
pokapláss. Gestirnix þá verða
allir utanbæjar frá. Það er
mikið kapp í Akureyringum
að undirbúa mótið sem bezt
og ég get fullyrt að'ekkert er
lótið ógert sem gæti aukið á
veg mótsins.
Bergen vann - Rvík nr. 2
UM síðustu helgi fór fram í Voss j í svigi og stórsvigi milli Bergen,
í Noregi hin árlega borgakeppni, Glasgow og Reykjavíkur. — I
Danir unnu Spán-
verja með 23:18
DANIR léku landsleik í hand-
knattleik við Spánverja á laugar-
dagskvöldið og unnu með 23
mörkum gegn 18. Leikurinn fór
fram í Elda á Spáni. Spánverjar
hrósa Dönum vel fyrir góðan leik,
en draga heldur ekki dul á að
spánska liðið hafi átt mun lélegri
leik en búizt hafði verið við,
einkum markverðirnír.
Danirnir höfðu tök á leiknum
allan tímann og er árangursríku
samspili liðsins hrósað og vörn-
in rómuð. Eru markverðirnir báð-
ir lofaðir svo og Mogens Olsen og
Jörgen Petersen. Hjá Spánverj-
um fær Medina (sem hér var)
mest lof fyrir góð langskot.
Danirnar áttu að leika gegn
úrvalsliði Spánverja á sunnudag
og léika síðan annan leiksleik
við Spánverja í gærkvöldi í
Barcelona.
keppninni báru skíðamenn Berg-
en sigur úr býtum í þriðja sinn
í röð, en nú varð Reykjavíkur-
sveitin í öðru sæti.
f svigkeppni þessa „borga-
móts“ náðu skíðamenn Reykja-
víkur yfirleitt góðum árangri,
ekki sízt ef tillit er tekið til lé-
legra æfingaskilyrða þeirra í vet
ur vegna snjóleysis. Reykjavík-
ursveitin hafði í sviginu aðeins
lakari tíma en Norðmenn, en
Skotarnir voru langt á eftir.
í stórvigi gekk Reykvíkingun-
um ver en héldu sæti sínu í
keppninni.
Allstór hópur reykvísks skíða-
fólks fór utan og tókst ferðin hið
bezta, en minna varð um æfing-
ar en ráð hafði verið fyrir gert
vegna slæmrar aðstöðu í Voss.
— Og þú segir að það hafi
verið misskilningur, sem sagt
var hér á síðunni að það vant
aði ekkert í Hlíðarfjall nema
snjóinn?
— Já, fólk misskildi það.
Það héldu allir að það væri
enginn snjór. En hér er næg-
ur snjór. Það er snjór í öll-
um brekkum í Hlíðarfjalli og
eru brekkur við hvers manns
hæfi. Akureyringum fannst
minna um snjó en stundum
áður vegna þess að þeim finnst
aldrei mikill snjór nema
hvergi sjái á dökkan díl og all
ir melar og hryggir séu á kafi.
En snjórinn er góður og ég
get sagt að aldrei hef ég jafn
ríkulega notið skíðaíþrótt-
arinnar og nú í Hlíðarfjalli.
— Þú ætlar a'ð endurheimta
íslandsmeistaratitlana?
— Það er nú of mikið að
taka svo til orða — en ég hef
aldrei notið eins góðrar þjálf
unar og haft eins góða aðstöðu
til æfinga — og aldrei æft
eins og nú.
— Og þú keppir þá fyrir
Akuneyri?
— Já, það geri ég. Ég þjálfa
hjá þeirra þjálfara og hjá
þeim og þá er éðlilegt að
keppa fyrir þá líka.
— Og Frímann húsbóndi
kannski líka?
— Nei, hann fer aldrei á
skíði — en börnin 5 eru öll á
skiðum og tveir þeir elztu
byrjaðir að keppa. — A.St.
Enshu
knutlspyrnnn
Úrslit l^ikja í ensku deilida-rkeppn-
inni, sem fram fór s.l. laugardag urðu
Arsenal — Birmingham frestað
Aston Vilia — N. Forest 2-1
Blackburn — West Ham 4-0
Blackpool — W. B. A. 3-0
Chel-sea — Sheffield U. frestað
Leeds — Everton 4-1
Leicester — Burnley 0-2
Liverpool — Fulham 3-2
Sheffield W. — Manchesfcer U. 1-0
Sunderland — Tottenham 2-1
Wolverhampton — Stoke 3-1
2. deild
Charton — Cardiff frestað
Crystal Palaoe — Southaimpton 0-2
I>erby — Bolton 2-3
Leyton O. — Coventry frestað
Manohester City — Preston 4-3
Norwidh — Northampton 1-1
Portsmouth — Ipswich 0-2
Rotherham — N-ewoastle 1-1
Swansea — M iddilesbrough 1-2
Swindon — Plymoufth 1-3