Morgunblaðið - 25.03.1965, Síða 23
Fimmtudagur 25. marz 1965
MORGUNBLAÐID
23
t
Göngumenn komnir
til Montgomery
Montgomery, Alabamt 24.
marz (NTB).
UM 4 ÞÚS. hvítir menn og þel-
dökkir með Nóbelsverðlauna-
hafann Martin Luther King í
fararbroddi, gengu syngjandi inn
i Montgomery, höfuðborg Ala-
bama í kvöld.
Gangan sem farin er til a’ð
leggja áherzlu á kosningarétt
þeldökkra, lagði af stað á sunnu-
daginn frá Selma áleiðis til
Montgomery. í nótt gista göngu-
menn í tjöldum í garði kaþólsks
skóla í útjaðri Montgomery, en
þaðan halda þeir á morgun til
stjórnarráðsbyggingarinnar og
þar endar gangan.
Fná skólagarðinum til stjórnar
ráðsins er 6 km leið. Talið er áð
mjög margir bætist í gönguna
síðasta áfangann.
Hermenn og menn úr þjóð-
varnarliðinu héldur vörð við
leiðina, sem göngumenn fóru um
til að verja þá hugsa.itegum á-
rásum, en í dag gekk allt árekstra
laust.
■ Óíært sjólesöina
Framhald af bls. 24
eiga að fara til Norðurlands.
Hvað gert verður er enn ó-
ráðið. Til greina kemur að
bíða og sjá hvað gerist næstu
daga, eða þá að láta skipin
losa á einhverri Austfjarða-
hafna, en flytja svo vörurnar
síðar á ákvörðunarstað. Þetta
er mikið vandamál og hefur
stórkostlegan kostnað í för
með sér. Nú er algjörlega ó-
siglandi fyrir Langanes.
— Þá vil ég lýsa þeirri skoð
un minni, að ískönnun í þágu
skipanna er mjög bágborin og
algjörlega ófullnægjandi. Það
þarf að fljúga yfir íssvæðið á
hverjum degi sem skyggni
leyfir og leiðbeina skipunum
og gefa þeim upplýsingar um
hvernig ísinn hagar sér. —
Gæzluvélin Sif hefur farið
öðru hverju, en hún er svo
störfum hlaðin, að hún hefur
ekki getað annað þessu hlut-
verki til fullnustu.
— Það virðist svo sem við
kunnum ekkert til verka í
þessum efnum, enda hafa slík
viðhorf ekki verið hér frá ár-
inu 1902. Þær fréttir sem
birtar eru af ísnum í útvarpi
virðast almenningi glöggar,
en sjómenn eru annarrar skoð
unar af fenginni reynslu. Um
aldamótin og raunar árið 873
tíðkaðist að menn færu upp á
fjöll og hæðir til að gæta að
ísnum. Þetta virðist vera aðal-
aðferðin til að kanna ísinn nú
til dags, að því viðbættu að
sérlega er tekið fram í frétt-
um, að menn hafi haft með
sér sjónauka.
— Við sem stöndum í þessu
teljum þetta fyrirkomulag ó-
fullnægjandi og nauðsynlegt
sé að skipa þessum málum
þannig, að nútímatækni sé
notuð til öryggis sjófarendum
og siglingum almennt.
Áætlun Ríkisskips í molum
vegna íssins
GuSjón Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðar ríkisins, sagði:
— Herðubreið var á leið
frá Kópaskeri í morgun og
ætlaði austur fyrir land með
viðkomu á Austfjarðahöfnum.
— Þegar skipið var komið
að Rauðanúpi var þar ófært
vegna íssins og ekkert viðlit
að halda siglingu áfram.
— Skipstjórinn ákvað að
snúa við á auðan sjó, en hann
bjóst við því, að þurfa að
halda til Húsavíkur og bíða
þar og sjá hvort ekki rættist
úr.
— Áætlunarsiglingar Ríkis-
Skips eru í molum vegna íss-
ins, en reynt að beina skipun-
um á þá staði þar sem fært er
hverju sinni.
íbúðarhús skemmist
af eldi í Hveragerði
HVERAGERÐI 24. marz. _ Um
10 leytið í morgun var slökkvi-
liðinu gert aðvart um að kvikn-
oð væri í íbúðarhúsinu við Lauf-
ekóga 9 hér í Hveragerði, en þar
búa Sigurbjörn Ármannsson og
Anna Hróðrnarsdóttir með þrem-
ur börnum sínum.
Húsið er einlyft timburhús,
rúmlega 60 ferm. og var eldur-
inn mest í millistoppi. Þurfti að
rífa norðausturgaflinn til að
sprauta vatninu inn, og var
slökkvistarfi ekki lokið fyrr en
kl. 12. Tókst að verja nærliggj-
andi hús, en strekkingsvindur
var.
Eldsupptök eru ókunn. AUt
innbú var óvátryggt, en skemmd-
ir urðu miklar á eldhúsi og syefn
herbergi og missti fólkið öU sín
föt, en innbú bjargaðist skemmt
Eigandi hússins er Böðvar Sveins
son á Hrauni í Ölfusi. Húsið
sjálft var vátryggt fyrir 250 þús.
kr. — Georg,
Ekið á Vatnajökul
UM HELGINA óku tveir
jeppar 15—20 km inn á Vatna-
jökul. Þar voru á ferðinni
Guðmundur Jónasson, fjalla-
bílstjóri á Landroverbíl sínum
og Carl Eiríksson, símaverk-
fræðingur á Landrover, sem
hann hefur útbúið þannig að
setja má á hann 4 aukahjól til
aksturs í snjó. Var harðfenni
og hægt að aka á 30—40 km
hraða alla leið.
Farið var úr Reykjavík á
laugardag kl. 3 og naldið inn
í Landmannalaugar. Allir
skaflar voru mjög harðir og
hægt að aka um allt hálendið.
Farin var Dómadalsleiðin £
Landmannalaugar.
Á sunnudagsmorgun var
haldið inn yfir Tungnaá við
Hófsvað á glærum ísi og í
Tungnaárbotna, en þetta er í
þriðja skiptið, sem Guðmund-
ur kemur þangað um vetur.
Eftir stutta viðdvöl var svo
haldið upp á Vatnajökul og
yfir ána á ísi. Að sögn Guð-
mundar var jökullinn mikið
til sléttur niður og hægt að
aka hann viðstöðulaust langt
upp eftir.
Þegar komið var í 1000 m
hæð, fór færðin að þyngjast
og jepparnir áð sökkva í, en
haldið var áfram í 1250 m
hæð. Þá voru bílarnir staddir
norðvestur af PáLsfjalli, um
15—20 km inni á jökli, en ekki
er óhætt að fara nálægt fja.Il-
inu vegna sprungna, sem þar
hafa verið að myndast undan-
farin ár.
Carl setti tvöföld hjól á sinn
bíl, en hann hefur látið jitbúa
bíhnn þannig að 4 hjól má
skrúfa á. óku þeir héldur
lengra á honum. En hörð skán
var ofan á og lausasnjór undir
og dugðu þau ekki heldur.
Þeir félagar óku um 45 km
vegalengd um jökulinn, fóru
niður undir Langasjó og með
jaðrinum til baka.
Ekki hafa margir farið á bíl
á Vatnajökul, þó munu menn
hafa ekið 14 km inn á Dyngju
jökulinn árið 1947.
ll
...jj
4
Hljómleikar
Guðrúnar
GUÐRÚN Tómasdóttir söngkona
endurtekur hljómleika sina í
kvöld i Gamla bíó kl. 7,15, vegna
góðra undirtekta áheyrenda. Guð-
rún Kristinsdóttir leikur undir.
— Alþingi
Framh. af bls. 8.
þjóðum í samningum okkar.
Þetta er því vitað mál.
Að lokum vil ég segja fá orð
um sjálfa gæzlu íslenzku land-
helginnar.
Tvennt hefir þar verið ákveð
ið, sem máli skiptir. í fyrsta
lagi höfum við ákveðið að kaupa
þyrlu tii gæzlunnar. Það var gert
í samvinnu við Slysavarnafélag
íslands — og fór vel á því. Til
helminga er þessi þyrilvængja
keypt. Rekstur hennar mun að
öllu hvila á landhelgisgæzlunni.
Þá var það ákveðið í ríkis-
stjórnmni í september sl. að láta
byggja nýtt varðskip. Rökin fyr-
ir því eru fyrst og fremst þau,
að Óðinn og Þór eru farnir að
eldast. Ægir er orðinn alltof gam
all, enda meira en 30 ára, og
sú vafasama hugmynd um litia
varðbáta hefir gengið sér til húð
ar.
Vænta má, að þetta nýja skip
verði fullsmíðað um það bil að
tveim árum liðnum og mun þá
bera merki landhelgsigæzlunnar
við varðgæzlu við strendur lands
ins.
Margar fleiri umbætur hafa átt
sér stað við landhelgisgæzluna á
siðari árum. Merkastar eru flug-
ið, sem verður sívaxandi þáttur
í gæzlunni, sem og önnur ný
tækni, sem landhelgisgæzlan hef
ir tileinkað sér, svo sem myndrat
sjáin, sem sagt var frá í blöðum
nýverið.
Það er okkar sómi að varðveita
og gæta þeirrar landhelgi, sem
okkur auðnast að fá viðurkennda
á hverjum tíma. Það skyldu allir
vita. Það er að sjálfsögðu eitt
okkar mesta mál.
-- XXX ---
f þessum umræðum um land-
helgina tóku margir þingmanna
til máls og verður nánar greint
frá þeim umræðum síðar hér í
blaðinu.
*
— Isinn
Framhald af bls. 24.
ur frekar gisinn og bar talsvert
á nýjum lummuís (Pancake).
Að minnsta kosti syðsti hiuti
tungunnar var á hraðri hreyfingu
í suður.
Skyggni var yfirleitt slæmt og
allhvöss og hvöss norðlæg átt".
ísinn á hraðri ferð suður
Borgarfjörður Eystri var í gær
fullur af ís. Einnig var ís á Loð
mundarfirði, en hafði lónað út
aftur. Mbl. átti tal við fréttarit-
ara sína á fjörðunum þar fyrir
sunnan.
Fréttaritarinn á Neskaupstað
sagði: Samfelld breiða af ís er frá
Dalatanga fyrir Horn að sjá og er
ísinn á hraðri ferð suður. En eng
inn ís er kominn inn svo heitið
geti. Mjó ísspöng kom í morgun
og lónaði með landi úti í flóan-
um. Látlaus straumur af fólki er
á ferðinni til að sjá ísinn, en í
honum virðast heilmiklir borgar
ísjakar. Erum við uggamdi um að
hann geti lokað fyrir fjörðinn.
Stærri skip eru engin hér. Trill
ur eru allar á landi og tveir bátar
liggja við legufæri. Við höfum
hér þriggja vikna birgðir af olíu,
en vonum að Þyrill, sem var við
Dyrhólaey í morgun, komist hing
að inn með viðbót. — Ásgeir.
Enginn ís inni á Seyðisfirði
Seyðisfirði. — Enginn ís er hér
inni á firðinum, en svo er að sjá
sem fjarðarmynnið sé lokað. —
Mjög er kalt, 15 stiga frost.
Skip sem áttu að koma hingað
sneru við. Enginn af stærri bát-
unum er heima, aðeins trillur,
svo bátar eru ekki í neinni hættu.
Grimmdarkuldi með ísnum
Eskifirði. — Ég fór suður á
Hólmahálsinn, sem kallaður er og
þaðan sést ísspöng sunnan við
Reyðarfjarðardýpi. Þennan stutta
tíma sem við stóðum við, um 15
mínútur, sáum við mun á því
hve ísinn færðist í suður. Við
sáum jaka á stangli súður undir
Skrúð. Hér hefur verið grimmdar
kuldi, 12—17 stig og mundi ísinn
frjósa saman, ef vindurinn héldi
honum ekki á hreyfingu.
— G. W. S.
Getur lokast á 12 tímum
Reyðarfirði. — ís er hér mjög
nálægt utan við fjörðinn og fær-
ist hratt að landinu. Bakkafoss
var á Ieið til Siglufjafðar, en
sneri við og kom hingað inn í
morgun. Ég átti tal við einn skip
verjann, sem sagði áð ísjakar
væru inn fyrir Skrúð og ísbreiða
út af svo langt sem augað eygði.
Virtist ísinn 6—7 mílur frá landi.
Var Bakkafoss méð 600 tonn af
vörum, sem áttu að fara norður
fyrir, og er éfcki enn ákveðið
hvort hann skipar þeim á land
hér.
Tveir bátar eru gerðir út hér,
Snæfugl átti að koma í morgun
af veiðum við Suðurland, en
óttaðist að teppast og hætti við
að koma heim. Hinn er nýbúinn
að landa í Vestmannaeyjum.
Ég hringdi út í Vattarnes, sem
er yzti bærinn hér. Sigurður Úlf
arsson var nýkominn af f jallinu.
Sagði hann að ísspöng væri land
föst við Seley. Væri hún um 300
metra breið, og talsvert af stök
um jökum væri fyrir austan
eyna. Taldi Sigurður siglingu úti
lokaða þarna. Voru stórir jakar
í ísbreiðunni.
Úlfar faðir hans kvaðst muna
eftir að ís hafi lagt um aban
Reyðarfjörð árið 1910. Og árið
1918 kom ísinn um páskaieytið
og stóð fram til 7. viku sumars.
Taldi hann að ef ekki drægi
til A- eða SA áttar; þá mundi ís-
inn reka inn fjörðinn.
Straumarnir hér ú,ti. fyrir
hggja þannig að isinn getur lok
að firðinum á hálfum sólarhring.
— Arnþór.
Svipað ástand á Ströndum
Mbl. átti tal við fréttaritara
sinn á Siglufirði, sem sagði að
þar væri engan ís áð sjá núna,
enda dimmt yfir. Fært væri frá
Siglufirði til Akureyrar og til
Sauðárkróks, en þangað er mjólk
in sótt. Á Sigtuhrði var 17 stiga
frost í gær.
Einnig áttum við tál við frétta
ritara okkar á Hólmavík, sem
sagði ástandið svipað á Ströndum
og verið hefur. ísinn fyllir ada
firði, en rokkar ofurlítið til. í
gær var 12 stiga frost á Hóima-
vík og ísinn á Steingrímsfirði að
frjósa saman.
Menn eru nú að búa sig í burtu
í atvinnuleit og sumir famir, því
yfir engu er áð vera á Hólmavík
meðan bátamir sitja fastir, þó
öruggir séu-í höfninni á Hóima-
vík, en strengurimn fyrir höfn-
inni heldur ísnum í burtu.