Morgunblaðið - 13.04.1965, Page 25
Þriðjudagur 13. apríl 1965
MORGUNBLAÐIÐ
25
Þýzkalands. Við vitum að Loft
leiðir hafa mikil viðskipti við
Þýzkaland í gegn um stöð
sína í Luxemboung. Lufthansa
er ekkert andsnúið Loftleið-
um, telur að það sé líka rúm
fyrir þetta íslenzka félag á
flugleiðinni milli Evrópu og
Ameríku.
— Um þessar mundir held-
ur Lufthansa upp á merkilegt
afmæli. Þann 1. apríl voru
liðin 10 ár síðan Lufthansa
var stofnsett á ný eftir stríðið
og á þessum 10 árum hefur
ökkur tekizt að byggja upp
samgöngukerfi, sem teygir sig
til allra heimshluta. Á afmæl-
isdaginn var farin fyrsta áætl-
unarferðin til Sidney í Ástra-
líu svo að nú er hægt að kom-
ast hvert á land sem er með
Lufthansa. Þá voru líka liðin
0 ár síðan fyrsta erlenda flug-
vélin ienti á Kastrup-flugvell-
inum í Kaupmannahöfn. Og
það var flugvél frá Lufthansa.
Þetta er því margfalt afmæli,
a.m.k. hjá okkur í Kaupmanna
höfn.
— Nú eru Boeing-727 flug-
vélar okkar daglegir gestir á
Kastrup-flugvelli. Og þeir,
sem fara um Kaupmannahöfn
— t.d. á leið til Frankfurt, geta
nú farið með Boeing þotum
þar á milli. Lufthansa á nú 12
þotur af Boeintg-727 gerðinni
og fimm eru í pöntun. Þessar
þotur eru notaðar á meðallöng
um flugleiðum um alla
Evrópu og hafa reynzt mjög
vel. Þær taka 96 farþega, 64
í ferðamannafarrými, 12 í
fyrsta farrými. Félagið á líka
12 þotur af gerðinni Boeing-
707-430 (Intercontinental), en
þær eru notaðar á lengri flug-
leiðum, t.d. yfir Atlantshaf.
yfir norðurpólinn til Tokyó,
til annarra Asíulanda, Ástra-
líu, S-Ameríku o.s.frv. Við er-
um enn með 7 flugvélar af
Viscountgerð, jafnmangar
Super-Constellation. Tvær
Super-Star-Constellation og
11 tveggja hreyfla Metropoli-
tan flugvélar, sem notaðar eru
á stuttum flugleiðum, eins og
t.d. milli Kaupmannahafnar
og Hamborgar.
— En fyrir nokkrum dög-
um gerðist það, að Lufthansa
undirritaði samninga við
Boeing um kaup á nýrri þotu-
tagund, Boeing-737, og á hún
að taka við af Metropolitan á
stuttu flugleiðunum. Keyptar
verða 21 þota af þeirri gerð og
verða þær fyrstu teknar í
notkun árið 1967. Þær taka 70
farþega í sæti, verða einungis
með ferðamannafarrými. Eftir
tvö ár verðum við sem sagt
með þotu á leiðinni Kaup-
mannahöfn-Hamborg, sagði Ib
Kam að lökum.
hjh.
Lufthansa — risavaxið
flugfélag á 10 árum
Viðtal við Ib Kam umboðs-
mann Lufthansa í Kaupm.höfn
fljúga til. Einkum á flugleið-
unum milli Kaupmannahafn-
ar, Hamborgar og Frankfurt.
— Hingað til hefur Luft-
hansa ekki flogið til annarra
borga á Norðurlöndum en
Kaupmannahafnar og Stokk-
hólms, en á næstunni verða
hafnar reglubundnar ferðir til
Osló og Helsingfors. Við er-
um ekki að hugsa um að hefja
flugferðir til íslands að svo
komnu máli. En við mundum
bjóða Flugfélag íslands vel-
komið til Frankfurt, ef — eða
þegar það verður tilbúið að
hefja flugferðir þangað. Flug-
félagið er búið að setja á stofn
skrifstofu í Frankfurt og er
ekki ólíklegt, að það skref gæti
orðið undanfari frekari tíð-
inda. En það væri sennilega
ekki hyggilegt fyrir félagið að
fljúga til Frankfurt um Kaup-
mannahöfn, því Lufthansa og
SAS hafa samvinnu um mjög
tíðar ferðir þar í milli. Senni-
legra yrði öllu vænlegra að
fljúga um — t.d. Glasgow á
Skotlandi — til Frankfurt. Ég
gæti trúað að það væri hægt
2-3 ferðir í viku a.m.k. — Ann
ars er ég viss um að hægt væri
að auka ferðamannastrauminn
frá Þýzkalandi til íslands stór
lega. Þar í landi er tiltölulega
mikill áhugi á íslandi, en mjög
mikill skortur á bæklingum
og öðru efni til kynningar
landinu. Ferðaskrifstofa ríkis-
ins ætti að verja örlítið meira
fé til útgáfu kynningarbækl-
inga, sem yrðu þegnir með
þökkum í Þýzkalandi og víð-
ar.
— Annars fara þýzkir ferða
menn aðallega suður á bóg-
inn í sumarleyfi sínu — til
Spánar, Ítalíu, Grikklands og
fleiri landa. En Þýzkaland er
sjálft fremur ódýrt ferða-
mannaland og þangað kemur
geysimikill fjöldi ferðafólks á
hverju ári. Rínarhéruðin eru
einkar vinsæl, Frankurt er
orðin ein helzta viðskiptamið-
stöð í Þýzkalandi og flugvöll-
-urinn í Frarikfurt er sá þriðji
stærsti í Evrópu. Kemur næst-
ur á eftir París og London.
Og umferðin þar fer stöðugt
vaxandi.
— Eins og ég sagði áðan
höfum við ágæta samvinnu
við bæði íslenzku fluigfélögin
og við vonumst til að sú sam-
vinna fari vaxandi: Að við
getum sent íslendingum fleiri
farþega — og þeir sendi okk-
Ib Kam, fulltrúi Lufthansa
í Kaupmannahöfn.
ur æ fleiri á komandi árum.
Bæði íslenzku flugfélögin hafa
lagt niður ferðir sínar til
Þýzkalands, en það liggur
beint við að fara um Kaup-
mannahöfn milli íslands og
Lufthansa á 12 þotur af gerðinni Boeing-727 (stærri þotan) og 5 eru í pontun. Félagið hefur
pantað' 21 þotu af gerðinni Boeiug-737 (minni þotan) og verða þær notaðar á stuttum flug-
leiðum.
HÉR var staddur á dögunum
fulltrúi þýzka flugfélagsins
Lufthansa, danskur maður Ib
Kam að nafni, en hann er aðal
umboðsmaður Lufthansa í
Danmörku, Noregi og íslandi
— með aðsetri í Kaupmanna-
höfn.
— Hingað kem ég þrisvar
til fjórum sinnum á ári, sagði
Ib Kam í viðtali við Mbl., því
viðskipti þau, sem tengd eru
íslandi, fara stöðugt vaxandi
hjá -okkur. Við höfum góða
samvinnu við bæði íslenzku
flygfélögin, Flugfélag íslands
er umboðsaðili okkar hér —
og á ferðalögum mínum hing-
að hef ég ekki aðeins sam-
band við flugfélögin, heldur
einnig ferðaskrifstofurnar —
bæði í Reykjavík og á Akur-
eyri.
— Bæði ferðamenn og kaup
sýslumenn, íslenzkir og ann-
arra þjóða, fljúga mikið með
Lufthansa til og frá þeim borg
um, sem íslenzku flugfélögin
FHJGM/\LooiooFERÐAMAL—ta.
— Aðalfundir
Framh. af bis. 23
Aðalfimdur Fél.
ísl. kjötiðnaðar-
niaima
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
kjötiðnaðarmanna var haldinn 3.
marz sl. aðfélagsheimilinu, Stór-
holti 9. Lesin var skýrsla stjórn-
ar um starfsemi félagsins á liðnu
ári.
Reikningar félagsins voru lesn-
lr og skýrðir og samþykktir sam-
hljóða.
Skýrt var frá kosningu stjórn-
ar. Stjórn félagsins skipa nú:
Formaður Arnþór Einarsson,
varaformaður Jens Cr. Klein, rit-
*ri Geir M. Jónsson, gjaldkeri
Ólafur B. Þórðarson, og með-
Stjórnandi Þórir Jóhannsson.
Ttrúnaðarmannaráð félagsins
skipa nú eftirtaldir menn: Þórð-
ur Adólfsson, Jóhann Magnússon,
Hinrik Hansen og Sigurður
Bjarnason.
Endurskoðendur: N. Maríus
Blomsterberg og Ingvar Ágústs-
son.
Félagið opnaði skrifstofu á ár-
inu að Stórholti 19, sér hún um
alla innheimtu og rekstur sjúkra-
sjóðs félagsins; skrifstofan er op-
in alla fimmtudaga kl. 5—7 e. h.
Sjúkrasjóður félagsins hóf
bótagreiðslur 1. janúar sl.
Fullgildir félagar eru nú 45 að
tölu.
Aðalfundur Fél.
útvarpsvirkja
ÞRIÐJUDAGINN 6. apríl var
haldinn aðalfundur Félags út-
varpsvirkja í Reykjavík.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa fóru fram umræður um
lagaberytingar, m.a. um breyt-
ingu á heiti félagsins, sem raun-
verulega er landsfélag útvarps-
virkja, en sú lagabreyting nær þó
ekki fram að ganga fyrr en á
næsta félagsfundi.
Fráfarandi formaður, Einar
Stefánsson, baðst undan endur-
kosningu og einnig fráfarandi rit
ari, Þórmundur Sigurbjarnason.
Núverandi stjórn skipa: Vil-
berg Sigurjónsson, formaður, Jó-
hannes Helgason, ritari, og Bjarni
Karlsson, gjaldkeri.
Aðalfundur
Málarafélags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Málarafélags
Reykjavíkur var haldinn í Lind-
arbæ þriðjudaginn 23.marz sl.
Skýrsla stjórnar um starfsemi
félagsins og reikningar félagsins
voru lesnir upp og samþykktir.
Tveir menn úr fráfarandi
stjórn, sem lengi . höfðu gegnt
trúnaðarstörfum fyrir félagið,
þeir Leifur Ólafsson, varaform.,
og Magnús Stephensen gjaldkeri,
báðust undan endurkosningu:
í stjórn voru kjörnir:
Formaður: Sigursveinn H. Jó-
hannesson, varaformaður: Jón D.
Jónsson, ritari: Rúnar Ágústsson,
gjaldkeri: Símon Konráðsson, rit
ari stjórnar: Kristján Magnús-
son. Varastjórn: Einar Kristjáns-
son og Róbert Gestsson.
Trúnaðarmannaráð:
Þorsteinn B. Jónsson, Guð-
mundur Þ. Bjömsson, Lauri Hent
tinen, Jón Í.Ragnarsson, Haukur
Sigurjónsson, Þórir Skúlason og
Lárus Bjarnfreðsson. Til vara:
Ingólfur Jökulsson, Sæmundur
Bæringsson, Sigurður H. Þor-
steinsson, Elí Gunnarsson, Hans
A. Clausen, Hjálmar Gunnarsson
og Leifur Ólafsson.
Endurskoðendur: Grímur Guð-
mundsson og Gestur K. Árnason.
Á fundinum voru einnig rædd
kjaramál og samþykkt að segja
upp kaup- og kjarasamningi fé-
lagsins við atvinnurekendur.
Aðalfundur
Sveinafél. húsa-
gagnasmiða
AÐALFUNDUR Sveinafélags
húsgagnasmiða í Reykjavík var
haldinn 16. marz sl.
Á fundinum flutti Bolli A. Ól-
afsson, formaður félagsins,
skýrslu um starfsemi félagsins á
liðnu starfsári, og gjaldkerinn,
Ólafur E. Guðmundsson, lagði
fram reikninga félagsins. Félagið
gerðist á sl. ári einn af stofnaðil-
um Sambands byggingamanna.
Á árinu var hafinn undirbúning-
ur og athugun á því hvort ekki
væri hægt að taka upp ákvæðis-
vinnu í húsgagnasmíði hér á
landi.
Hagur félagsins er mjög góður.
Árgjald félagsmanna er krónur
1560.00. Félagsmenn eru nú 89.
f stjórn félagsins voru kjörnír:
Formaður Bolli A. Ólafsson, vara
formaður Eyjólfur Axelsson,
gjaldkeri Ólafur E. Guðmunds-
son, ritari Jón Þorvaldsson og að-
stoðargjaldkeri Ottó Malmberg.
í varastjórn: Jón V. Jónsson,
Haukur Pálsson. f trúnaðar-
mannaráð voru kosnir auk stjóm
ar: Guðmundur Benediktsson,
Guðmundur Samúelsson, Auðunn
Jóhannesson og Sveinn Helgi Sig
urðsson. Endurskoðendur: Guð-
mundur Benediktsson og Auðunn
Þorsteinsson og varaendurskoð-
andi Þórólfur Beck.
Sveinafél. húsgagnasmiða hef-
ur aðsetur að Skipholti 19.