Morgunblaðið - 05.05.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.05.1965, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ r Miðvikudagur 5. maí 1965 SUMARIÐ er komið til ftalki. Bændur hafa þegar slegið sín tún og hirt góða töðu. Á milli slátta plægja þeir nýja jörð með hvít- um uxum. Kirsuberjatrén eru blómstruð og rósir, túlipanar og orkideur láta lífið i kílómetravís fyrir elskandi og miskunsamar konur ..... Morgunsól otg sumar í Rám. Elskuleg hundgá, einsog í ágúst á Bjarkarlundi. Öskrandi skelli- nöðruvæl, einsog við Borgartún. Yndislegur íuglasöngur, einsog Veturliði Gunnarsson. prestur í Reykjavik. Og þúsund svölur leika sér í sólstöfunum. Ein þeirra sér hreiður hér í gluggakistunni. Brennandi hita- byllgja frá Afríku líður yfir borg- ina og allt í einu er dembandi rigning einsog þegar mest rign- ir á bíómyndum. Síðan þrurnur og eldingar, einsog Thor og Kristmann í réttarsal, og kon- urnar tvær sem setið hafa fyrir utan fegurstu skartgripaverzlun heims, með sitthvort vaskafatið, fullt af sígarettustubbum, búandi til nýjar úr biblíublöðum Síon- ista, neiðast til að hlaupa í skjól að hlaupa í skjól á kaffihúsið þar sem kannski Neró, Soffía Loren og Thor Vilhjálmsson hafa set- ið!!! Tveir fjöruigir náungar láta ekki þrumur og eldingar trufla sig. Þeir eru dumbrauðir í and- liti af útigangi, einsog brenni- steinsalda í slagviðri. Þeir koma gangandi og spilandi á þesskonar hljóðfæri sem vart verður lýst. Annað er einskonar flauta með útskornum stelpukroppum og flagsandi dúskum. Sipp og höj. Hinn hefur fundið sprungið 'bíl- dekk á Via Appía og igert sér lúður! úr helming slöngúnnar. Hann líkist í fasi Jóni mínum í Möðrudal, sem líka getur spilað brúðarsöng Bretadrottningar aft- urábak!! 1 miðri Róm, rétt við spönsku tröppumar, þar sem báturinn strandaði, Via Condottin, beint á móti Café Greco, þar sem Thor- valdsen, Byron, Goethe, Davíð og Kjarval, Einar Ben., Mark Twain og fleiri góðir menn komu daglega, er Skandinavísk For- ening til húsa. Það var stofnsett 1860 sem samkomustaður fyrir norræna listamenn og vísinda- menn sem hér dvöldu við nám. íbúðin er á fimmtu hæð, með svölum til allra átta. Það eru þrjú herbergi, eldhús, bað og W.C. Þrjár stórar stofur ásamt Isiand sérstökum lestrarsal með nýjum daighlöðum Norðurlanda. Bóka- safnið er mjög fyrirferðarmikið og vandað, með helstu verkum norrænna höfunda, utan íslands. Öllum er heimjll aðgangur. Á laugardagskvöldum eru samkom- ur hér og kemur þá hver með sinn mat og vín, og ef einhver merkilegur maður er á ferð, er hann gjarnan fenginn til að tala um sitt merkilega áhugamál. Nú vill svo til, að íslenzkum lista- mönnum hefur verið boðið eitt herbergi hér í tvö ár oig eru þeg- ar ákveðnir 6 eða 8 málarar. Nú hefur stjóm þessarar stofnunar farið þess á leit við mig að segja nokkur orð hér á samkomu um fsland, þetta mikla menningar- land sem enginn kannast við. Ég sé mig í anda, sem prédikandi listfræðing, en hef þá afsökun, að málarinn Rúbens hafði líka fyrir hobby að vera ambassadör Belgíu í Madrid. Jafnframt ræðu- haldinu vildi ég sýna litskugga- myndir af íslenzkri myndlist og landslagsmyndir. Og svo þeigar klappinu löksins verður lokið, langar mig til að afhenda stofn- uninni gjöf frá íslendingum. Mér hefur dottið í hug bækur, hljóm plötur, litskuggamyndir. Þar sem íslenzk menning er að mestu leyti innflutt ítölsk menning, finnst mér þetta sjálfsögð þakk- arskuld. Ég nenni ekki að telja upp nöfn ítalskra snillinga, það yrði stærri bók en símaskráin. Og hér kemur kjami málsins. Það þarf duiglega menn til að framkvæma þessa 'hugmynd. Út- vega fegurstu landkynningar- bækur íslenzkar á norrænu máli, (öðru en íslenzku) t.d. eftir Samivel og aðra bók tekna af þýzkri konu, bók Hjálmars Bárð- arsonar, Sigurðar Þórarinssonar, ítalíu Einars Pálssónar, Róma- veldi eftir Will Durant, lista- verkabækur Helgafells, skáld- sögur beztu höfunda okkar þýdd- ar á frönsfcu, norsku eða sænsku. Hljómplötur með íslenzkum þjóð- lögum, og gjarnan plötur með Bréf frá Veturliða GunnarssYni listmálara léttum nútíma íslenzkum dæg- urlögum. Því ekki það. Vegna heilsuleysis er ég neyddur til að fara héðan 15. maí. Fyrir þann tíma verða þessir hlutir að vera komnir hinigað. Ég treysti á ís- lenzka listunnendur, elskendur Italía ítalíu, að halda fund og skipa framtakssama menn í nefnd, sem vinnur að þessu með ítölsfc- um hraða. Sem sagt: STRAX. Ég leyfi mér að nefna nokkra menn, sem ég veit að elska ítaliu, aðrir eru beðnir afsökunar vegna ítalsks hraða. Kjarval, Kiljan, Thor Vilhjálmsson, Ragnar í Smára, Einar Pálsson, Þuríður Pálsdóttir, Steinunn Briem, Ólöf Pálsdóttir, Árni Jónsson söng- vari, Guðmundur Steinsson, Ein- ar Kristjánsson, Gísli Sigurðsson ritstjóri Vikunnar, Guðmundur á Moecacafé, Stefanó, Jón Óskar, Engilberts, Jón Leifs, Tómas Arfleiddi Elliheimili Akureyrar að 200 þúsund krónum Elín óladóttir ELÍN ÓLADÓTTER fædd 19. september 1877, dáin 13. septem- ber 1063, mælti svo fyrir í erfða skrá sinni að Elliheimili Akureyr ar skyldi móttaka kr. 200.000.00 til minningar um foreldra henn- ar, Sigráði Magnúsdóttur og óla Guðmundsson, snifckara á Akur- eyri og skal fénu varið til út- búnaðar á herbergi, sem bæri þeirra nafn. Elín Óladóttir réðist í vist til Stefáns skólameistara Stefáns- sonar og konu hans, Steinunnar Frímannsdóttur að Möðruvölium í Hörgárdal árið 1897. Árið 1930 flutti hún á heimili Valtýs Stefánssonar ritstjóra og Kristín ar Jónsdóttur og vaxui þar að Guðmundsson, Einar Kristjáns- son, Gylfi Þ. Gíslason og Gunnar Thoroddsen. Viljið þið gjöra svo vel og þakka ítalíu fyrir Verdi, Titian, Medici, Magnelli, Dante, Galileo, Leonardo, Montessori.. Beztu ljósmyndir sem ég hef séð teknar í litum á íslandi eru eftir áhugamenn, Rannveiigu Tómasdóttir, Magnús Jóhannes- son, Guðmund Björnsson lækni, Þorvald Ágústsson, Guðmund Vilhjálmsson, Rafn HafnfjörS, Eirík Smith, Benedikt Gunnars- son, Hákon Sigurgrímsson, Ós- vald Knudsen, o.fl. o.fl. Má ég líka biðja ýkkur að senda þessari stofnun svona tvær myndir hver. íslenzka peningamenn bið ég ekki um neitt. Aðeins Ragnar i SmáFa mun tafcast að vekja þá upp frá andlegum dauða. Distiti saludi da Roma. Beztu kveður. VeturliðL hússtörfum af sömu árvekni og áður þar til yfir lauk. f minningargrein sem frú Hulda Á. Stefánsdóttir skrifáði um Elínu Óladóttur segir m.a. „Með hljóðlátri iðju sinni vann hún merkilegt ævistarf. f 66 ár studdi hún að uppeldi þriggja ættliða, vakti yfir velferð þeirra og gaf þeim fagurt fordæmi." Þessari rausnarlegu gjöf hef- ur verið veitt móttaka. (Frá Elliheimili Akureyrar). 4 báfar með 2500 toivn Stokfcseyri 3. maí. AFLI hefur verið mjög sæmi- legur hjá Stokfcseyrarbátum und anfarna daga, frá 10 og upp í 30 tonn á bát i róðri og eru sjómenn orðnir almennt ánægðir með út- komuna á vertíðinni frá því sem á horfðist. Heildaraflinn frá því um áramót, miðað við daginn 1 dag, er 2500 tonn af fjórum bát- um. Hæstir eru Fróði með 677 tonn og Hólmsteinn með 665 tonn. — Steingrímur. • FÁNASTENGUR Á hátíðisdögum er það áber- andi hve fá hús í Reykjavík hafa fánastöng. Úti á landi tíðk- ast víða að fánastöng sé við nær hvert hús. Auðvitað getur verið of mifcið af því góða, þegar fáni blaktir við hvert hús, ekki sízt þar sem þau standa þétt. En mér finnst, að Reykvíkinigar ættu að sinna því meira að fcoma upp fánastöngum við hús sín og nota þjóðfánann við há- tíðleg tækifæri. • ÚTVARPSFRÉTTIR Það er venja íslenzka út- varpsins sem annarra útvarps- stöðva að býrja fyrst á þeim fréttum, sem merkastar verða að teljast — þegar fréttalestrur fer fram. Þess vegna fannst mér það smekkleysa, sem ástæðu- laust er að þaga yfir, er út- varpið byrjaði á ómerkilegri frétt frá Skagaströnd í innlenda fréttalestrinum í hádegisútvarp inu á sunnudaginn — en sagði síðan frá flugslysi því er olli dauða fimm Bandaríkjamanna hér skammt suður af Reykja- vík. • FERÐAMÁL f lok vikunnar fer fram að Þingvöllum ferðamálastefna, hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Kominn er tími til að allir þeir, sem vinna að ferða- málum, leiði saman hesta sína og hefji meira samstarf en hinig að til hefur verið. Meðal þess, sem nú er þörf á að gera á sviði ferðamála er að stofna ferðamálafélög í öll- um helztu kaupstöðum og byggð arlögum landsins. Með meiri og skipulögðum viðbúnaði úti á landsbyggðinni yrði ekki að- eins hægt að færa út svið ferða málanna hér, heldur gætu hin ýmsu byggðarlög hagnazt á því að mörgu leyti. • ÞRJÁR ÁSTÆÐUR Slifc skipulögð starfsemi gæti flýtt fyrir margs konar. uppbyggingu og nauðsynlegri þróun á hverjum stað varðandi veitinga- og gistihúsarekstur. Aukin ferðalög innanlands leiða til endurbóta á samgöngukerf- inu, ekki aðeins til hagsbóta fyrir ferðamennina sjálfa, held- ur og fyrir þá, sem búa úti um allt land. í þriðja lagi veitir ferðamannastraumurinn fólki tekjur, skapar atvinnu á ýmsum sviðum — og náinn samganigur við aðra landshluta jafnt sem útlönd víkfcar sjóndeildarhring- inn. Ferðamálasiefna veldur e.t.v. engum stökkbreytingum á þessu sviði, en vafalaust getur hún stuðlað að framgangi margra nauðsynjamála. • MJALDUR Skátarnir í Hafnarfirði hafa hval til sýnis um þessar mund- ir, mjaldur, sem Guðmundur Halldórsson frá Tjörnesi banaði á dögunum. Mjaldur mun frem- ur fágæt skepna. Samt sem áð- ur finnst mér vafasamur ávinn- ingur í að sýna dauðan hval. í Hitt er svo annað mál, að Hafnarfjarðarskátar hafa sýnt lofsverðan áhuga á þessum mál- um, fyrst og frémst með fiska- sýningunni í vetur — qg von- andi kemur sá dagur, að hér rís vel búið fiskasafn — safn lif andi fiska. Ef mjaldur þeirra Hafnfirðinga er eitt skrefið 1 þá átt er varla hægt að amast við því. Það hefði a.m.k ekki verði á færi þeirra að sýna sfcepnuna lifandi BO S C H þurrkumótorar, þurrkuarmar og þurrkublöð. BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesturgötu 3. — Sími 11467. 6 v 24 v 12 v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.