Morgunblaðið - 05.05.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 05.05.1965, Síða 8
8 MORGUNBLABIB Miðvikudagur 5. maí 1965 VerSur loðdyraræhtarrnimvuruiA ai löpm? f GÆR lauk 3. umræðu um frum varp um loðdýrarækt í Neðri deild, en þó var atkvæðagTeiðslu frestað. Báru andstæðingrar frurr.varpsins fram ýmsar breyt- ingartillögur við fnunvarpið og urðu enn um það miklar um- ræður. Sökum þess að skammt er nú til þinglausna, er óvíst, hvort frumvarpið fái fullnaðar- afgreiðslu á þessu þingi, því að Efri deild á eftir að ræða það. Má telja fullvíst, að andstæð- ingar frumvarpsins þar kapp- kosti að tefja það eftir mætti, en auðsætt er, að þeir hafa reynt eftir mætti að hindra framgang þess í Neðri deild. Er ljóst, að afstaða þingmanna til frumvarps Ins fer fyrst og frerrst eftir per- sónulegri afstöðu þeirra til frum varpsins en ekki flokkslegri, því að talsvert hefur gætt andstæðra viðhorfa gagnvart frumvarpinu innan viðkomandi stjórnmála- flokka. Loðdýrarækt Benedikt Gröndal (Allþfl.) tal- aði fyrstur í umræðunum um frumvarp tim loðdýrarækt. — Sagði hann, að atfgreiðsla þessa máls við 2 umræðu hetfði leitt í ljós að meiri hluti þingmanna í Neðri deild væri frumvarpinu fylgjandi og einkum hefði það komið í ljós, að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins vseru málinu fylgjandi. Gerði Benedikt síðan grein fyr ir breytingartillögum við frum- varpið, sem hann flutti nú, um að bætt verði inn í frumvarpið málsgrein þess efnis, að leyfi til minkaræktar verði aðeins veitt í þeim sveitarfélögum, þar sem minkurinn hefði þegar náð ör- uggri fótfestu að dómi veiði- málastjóra. I»essi tillaga væri í samræmi við helztu rök flutn- ingsmanna frumvarpsins um, að minkurinn væri hvort sem er fyr ir í landinu. Einnig bar Benedikt fram breytingartillögu um, að greiða skuli í útflutningsgjald 4% af fob verði þeirra minka- skinna, sem flutt yrðu út og skyldi gjaldið renna til vísinda- legra rannsókna á lifnaðarhátt- um villimdniksins. Skúli Guðmundsson (F) sagð- ist hafa í hyggju að leggja fram breytingartillögu við frunwarp- iS. Fór hann þess á leit við for- seta deildarinnar, að sér gæfist tóm til þess að ganga frá tillög- um sínum og bað hann um, að umræðum um frumvarpið yrði frestað og það tekið fyrir á næsta fundi deildarinnar. For- seti deildarinnar, Sigurður iBjarnason sagði, að þar sem mjög skammt væri til þingslita, þá yrði að ljúka umræðunni þennan dag, ef þess ætti að vera nokkur kostur, að mélið fengi afgreiðslu í Efri deild. Var fundi síðan frestað um stundarfjórð- ung til þess að Skúli Guðmunds- son gæti gengið frá breytingar- tillögu sinni en siðan var fund- ur settur að nýju. Þar gerði Skúli Guðumndsson grein fyrir breytingartillögum sínum. Sagðist hann vera sam- mála tillögu Benedikts Gröndals um útflutning.sgjaldið og kvaðst mundu greiða atkvæði með henni. Hann gæti hins vegar «kki fellt sig við fyrri breyting- artillögu Benedikts. Þá skírskot- aði hann til bréfs frá dr. Finni Guðmundssyni, forstöðumanni Náttúrugripasafnsins og las nokkur atriði úr því, þar sem sagði í niðurlagi, að ekki væri kunnugt um þjóðhagslegt gildi minkaræktarinnar. í þessu bréfi kom fram sú tiillaga að minka- rækt yrði aðeins leyfð í Vest- mannaeyj um, með því að þá yrði komið í veg fyrir tjón á náttúru landsins að mestu leyti og í Vestmannaeyjum félli til hivað mesti fiskúrgangurinn í landinu. Skýrði Skúli síðan frá breyting- artillögu sinni, sem var á þá leið, að við ákvæði til bráða- birgða í fruinvarpinu bættist við, að minkabú, sem leyfð kynnu að vera, sikulu vera stað- sett í Vestmannaeyjum. Hins vegar kvaðst Skuli ekikert vita um það, hversu Vestmannaey- ingar yrðu hrifnir af því, að £á minkinn til sín. Guðlaugur Gislason (S) kvaðst hafa greitt atkvæði með frum- varpinu, ekki vegna neinnar flokkslegrar afstöðu heldur vegna þess að hann væri frum- varpinu fullkomlega samiþykk- ur, með því að hér væri um arð- bæra atvinnugrein að ræða. — Hann tók það fram, að hann áliti kveðju Skúla Guðmundssonar til Vestmannaeyinga fremiur kalda, þar eð Skúli áliti minkinn skað- ræðisvald, en samt væri það í lagi, þótt Vestmannaeyingar hefðu hann. Vilhjálmur Hjálmarsson (F) kvaðst hafa orðið undrandi við afgreiðslu málsins í gærdag, hive miklu fylgi þetta frumvarp ætti að fagna. Sagði hann, að með till liti til þeirrar reynslu, sem ís- lendingar hefðu haft af innflutn ingi erlendra dýra, þá þyrftu veigamiklar ástæður að vera fyr- ir hendi til þess að leyfa iim- flutning minka. Það yrði að vera unnt að sýna fram á, að siikt hefði eitthvert þjóðhagslegt gildi. Kvaðst Viihjálmur vera efins í, að íslendingar myndu geta gert sér mimkinn arðsam- an á borð við aðrar þjóðir, sem mikla reynslu hafa í minkaræikt. Pétur Sigurðtsson (S) sagði m.a., að ákaflega fátæikieg gagn- rök hefðu komið fram gegn þeim veigamiklu rökum, sem fyrir hendi væru fyrir minkarækt- inni. Þá gagnrýndi Pétur vara- tillögu þá, sem fram hafði kom- ið í bréfi dr. Finns Guðmunds- sonar um, að veita einungis heimild til þess, ef til kœmi, að hafa minkarækt í Vestmannaeyj- um og kvað slíkt lýsa lítilli um- byggju gagnvart fuglalífinu þar. Sagði Pétur enn fremur, að þær breytingartillögur, sem fram hefðu komið, ættu ekki erindi inn í frumvarpið. Kvaðst hann álíta að minka- ræktin myndi hafa í för með sér miklu meiri ágóða en tjón. Hannibal Valdimarsson (Alþ bl.) sagði m.a. að svo virtist, sem útvegsmenn og bændur hefðu sameinazt um þá skoðun, að bæði sjávarútvegi og landbún aði yrði mikið bjargræði að minkaræktinnL A.m.k. hefði það komið í Ijós meðal þingmanna við aðra urnræðu frumvarpsins. Kvaðst Hannibal undrast það, að þetta mál yrði gert eitt af aðaláhugamálum þingsins á síð- ustu dögum þess nú. Sagðist hann álíta það miklu brýnna að sinna öðrum málum, og væri betra að fresta þessu máli til næsta þings og undirbúa það bet ur. Bar hamn að lokum fram breytingartillögu um, að í stað loðdýraræktar í heiti frumvarps ins komi minkarækt. Sagði hann tilögur Benedikts Gröndals sjálf sagðar, en þó væri tillagan um að heimila minkarækt einungis þar, sem minkur væri nú þeg- ar fyrir, fullþröng. Skúli GuðmundsSon (F) and- mælti ýmsum ummælum Péturs Sigurðssonar og Guðlaugs Gísia- sonar. Sagði hann, að Guðlaugur hefði frekar átt að flytja þakk- arávarp til sín í stað þess að bera sér það á brýn að hann væri að senda Vestmannaeyingum kald- ar kveðjur, með því að hann vildi þó veita minkaræktinni smugu með því að leyfa hana á einum stað, þ.e.a.s. í Eyjum. Lauk þannig þriðju umræðu frumvarpsins, en atkvæða- greiðslu var frestað. ÖNNUR MÁL. Gylfi >. Gíslason, menntamála- ráðherra, mælti fyrir frumvarpi um Húsmæðrakennaraskóla ís- lands, og var því síðan vísað til 2. umræðu og menntamálanefnd- ar. Frumvarpið hefur þegar ver- ið samþykkt í Efri deild. Frumvarp um breytingu á lög- um um tékka var afgreitt til Efri deildar. Benedikt Gröndal, ,gerði grein fyrir áliti menntamálanefndar um frumvarp um breytingu á lögum um Listasafn íslands, sem vísað var til þriðju umræðu. Sigurður Ingimundarson gerði grein fyrir nefndaráliti um frum varp um eftirlaun alþingismanna, og var það afgreitt til þriðju um- ræðu. Jónas Pétursson gerði grein fyrir áliti landbúnaðarnefndar um frumvarp um sölu landsspildu úr Garðatorfunni og var því vísað til þriðju umræðu. Birgir Finnsson gerði grein fyrir áliti sjávarútveigsnefndar um frumvarp Lúðvíks Jósepsson- ar um breytingu á lögum um bann gegn botnvörpuveiðum, sem snertir sektarákvæði laganna. Sagði Birgir Finnsson, að sjávar- útvegsnefnd hefði orðið sam- mála um að visa málinu til ríkis- stjórnarinnar. í umræðum um frumvarpið tók einnig til máls Guðlaugur Gíslason og Lúðvík Jósepsson og kvaðst hinn síðar- nefndi hafa fallizt á þessa af- greiðslu málsins. Á síðari fundi neðri deildar, sem haldinn var strax að loknum fyrra fundi deildarinnar, var frumvarp um breytingu á lögum um Listasafn íslands oig frum- varp um eftirlaun alþingismanna bæði tekin til þriðju umræðu og síðan afgreidd til Efri deildar. EFRI DEILD. Tekjuskattur og eignarskattur. Ólafur Björnsson gerði grein fyrir áliti meirihluta fjárhags- nefndar um frumvarp um breyt- ingiu á lögum um tekjuskatt og eignaskatt, og sagði hann m.a., að meiri hlutinn leggði til, að frum- varpið yrði samþykkt til þriðju umræðu, «n svo yrðu nokkur at- riði tekin til athugunar milli Helgi Bergs og Björn Jónsson gerðu grein fyrir áliti minni hlutanna, isvo og breytingartillög- um. Var.frumvarpinu síðan visaij til þriðju umræðu og allar breyt- ingartillögur dregnar til baka til þeirrar umræðu. ÖNNUR MÁL. Jóhann Hafstein iðnaðarmála- ráðherra mælti fyrir -frumvarpi um lausaskuldir iðnaðarins. Þetta frumvarp hefur þegar verið samþykkt af neðri deild. Var það síðan samþykkt til annarrar um- ræðu, og iðnaðarnefndar. Þá gerði Jóhann Hafstein einnig grein fyrir frumvarpi um dráttar brautir og skipasmíðastöðvar, og frumvarpi til ljósmæðralaga, sem vísað var til annarrar umræðu og nefnda. Loks var frumvarpi varðandi skólakostnað vísað til annarrar umræðu og nefndar. Ásgeir Pétursson, sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, þriðji varámaður landskjörinna þingmanna Sjál fstæðisiflokksins tók í gær sæti á Alþingi í stað Davíðs Ólafssonar, sem er á för- um til útlanda. Fór fram rann- sókn á kjörbréfi Ásgeirs Péturs- sonar og var það síðan samþykkfc samhljóða. Búrfellsvirkjunin rædd gær í efri deild SÍÐDEGIS 1 gær hófst 1 Efri deild 1. umræða um írumvarp ríkisstjórnarinnar um Búrfells- virkjun. Mælti Ingólfur Jónsson, raforkumálaráðherra fyrir frum- varpinu í ýtarlegri og yfirgrips- mikilli ræðu, en af hálfu stjórn- arandstöðunnar töluðu þeir Helgi Bergs og Gils Guðmundsson. Var frumvarpinu síðan vísað sam- hljóða til 2. umræðu og fjárhags- nefndar. Ingólfur Jónsson hóf ræðu sína með því að rekja virkjunarfram- ivæmdir hér á landi til þessa dags í stórum dráttum, og sagði, að þetta frumvarp væri fram komið eftir niklar og ná- kvæmar rann- sóknir, sem gerð ar hefa verið á síðustu árum á vegum raforku- málaskrifstofunnar: Ráðherrann vék síðan að rekstursgjöldum í sambandi við virkjuniní og sagði, að samkv. áætlun, sem gerð hefði verið um þau, kæmi í ljós, að stórvirkjun upp á 210 þús. kw. væri ódýrust í rekstri og miðað víð þá virkjun yrði virkjunarkostnaður meir en helmingi lægri, en ef miðað væri við smávirkjanirnar. í Þjórsá allri væri talið vera talsvert á 2. millj. kw., sem mætti virkja með góðu móti eða fjórði partur af virkjanlegu vatnsafli á landinu. Sérfræðingar teldu þó, að þrátt fyrir marga virkjunarstaði Þjórs- ár verði Búrfellsvirkjun það hag- stæðasta, sem við ættum yfir að ráða. Virtist öruggt að rannsókn- ir, sem framkvæmdar hefðu ver- ið, hefðu verið þannig úr garði gerðar, að byggja mætti á þeim, og þess vegna væri írumvarpið flutt Ráðherrann gerði síðan grein fyrir efni frumvarpsins í einstök- um atriðum og komst þar m. a., svo að orði að ekki mætti selja til einstakra iðjufyrirtækja raf- orku á það lágu verði, að það gæti orðið til þess, að gera raf- orkuverið til almennings dýrara en annars hefði orðið. Undir k>k ræðu sinnar sagði hann ennfrem- ur, að nauðsynlegt væri að fá þetta frumvarp lögfest nú áður en þingi lýkur, til þess að mögu- legt verði að skipa þessu nýja fyrirtæki stjórn og að stjórnin geti farið að undirbúa fram- kvæmdir, gera útboð á mann- virkjum og hefja undirbúnings- framkvæmdir, Það er gert ráð fyrir því, að ef virkjuð veifía 70 þús. kw. í fyrsta áfanga, þá geti virkjunarfrámkvæmdum ver ið lokið í árslok 1968. Verði hins- vegar virkjuð 105 þús. kw í fyrsta áfanga og samningar hafa tek' við aluminíum.verksmiðju, er . .. t ráð fyrir því, að virkjun- inni verði ekki lokið fyrr en á mioju ári 1969. Hinsvegar er gert ráð fyrir því, að í árslok 1968 væri fullgerð ein vélasamstæða, þannig að það mætti þá í árslok 1968 veita raforku frá þessari nýju virkjun til almenningsnota um Suður- og Suðvesturland. Að lokum skýrði ráðherrann frá því, að ástæðan fyrir því, að frumvarpið kæmi svona seint fram, væri, að málið hefði verið í undirbúningi alveg fram til nú. Nánar verður skýrt frá ræðu Ingólfs Jónssonar hér í blaðinu síðar. Með þessu frv. væri lagt til, að heimilað verði að virkja 210 þús. kw. Það hefur verið rætt um það, að gera samninga við Svisslendinga um alunnínvei'k- smiðju eÆ þeir samningar eru £á- anlegir, samningar, sem við get- um gengið að. Aí því leiðir, að við virkjun með öðrum hætti heldur en annans væri, í L á- fanga 105 þús. Er miðað við það, að reist væri strax 30 þús. bortna aluminverksmiðja, sem tæki þá ca. helminginn af þessari virkj- un í 1. áfanga. Síðar, ef samn- ingar fást við Svisslendingana er gert ráð fyrir, að alumín- verksmiðjan yrði stækkuð upp I 60 þús. tonn og þá verði búið að virkja upp í 210 þús. kw og alumínverksmiðja af þeirri stærð tæki ca. eða rúmlega helm ingirm af Búrfellsvirtkj'uninni fullvirtkjaðri. Nú er ekkert vitað um það enn þá, hvort samningar fást um alumínveriksmiðjuna. Samning- arnir eru ekki komnir á það stig, að við getum nobkuð fullyrt um það. En þá er sá möguleiki að virkja við Búrfell með öðrurn hætti og þá verður fyrsti áfang- inn 70 þús. kw. Og þá verður hiver kw.stund 12.9 aurar. í smá- virkjunum hér á landi er reikn- að hins vegar með að meðalverð sé 20 aiura kw.stundin, t.d. hér í Soginu og er því Ijóst, að um allmikinn verðmismun er að ræða. Helgi Bergs kvað það sannar- lega ekki vonum fyrr að ríkis- stjórnin legði fram frumvarp um nýja virkjun. Ekki hefði verið ráðizt í neina stórvirkjun frá þvi að virkjun Efra-Falls í Sogi hófst fyrir 7 eða 8 árum, en sú virkjun hefði verið tekin í notkun árið 1960 og verið um 27 þús. kw, Miðað við orkuþörfina í landinu hefði þessi síðasta stórvirkjun ekki dugað til að halda í horf- inu nema fram til ársins 1963, Svo hefði þó verið fyrir að þakka, að eftir hefði verið að fullnýta írafoss og að nokkru leyti Ljósafoss. Nú væri það hins vegar uppurið og enn væru 3 til 3y2 ár þar til landsivirkjunin kæmi til notkunar. Helgi kvað þegar vera orðinn Framh. á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.