Morgunblaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 28
Lcmg síærsta og íjölbreyttasta blað londsins Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 125. tbl. — Föstudagur 4. júní 1965 ^ ' "í v. www- /W.VWÍ-/-- // (WV'VWW "W ts-fS/‘/ ■'■■ .“/■/ . að rannsóknar- dómarinn vlki úr sæti VERJANDI Jósafats Arngríms- sonar, Áki Jakobsson, hrl., krafð ist þess þann 28. maí s]., að rann- sóknardómarinn í málinu ákæru valdið geign Jósafat Arngríms- syni og fleirum viki sæti sem dómari í málinu. Aðalrök verjandans eru þau. að óeðlilegt sé að rannsóknar- Z ^ - I Oður hundur j f drepur lömb j | Á ÖÐRUM tímanum í gær j | var kært til lögreglunnar yfir = | því, að óður hundur hefði | | drepið 2 lömb að Bústaða-1 i bletti 3. Lögreglumenn fóru i 1 þegar á vettvang og náðu þeir | | hundinum, sem þá var farinn i i að éta lömbin. Hundurinn var \ \ settur í geymslu til vörzlu- i | manns bæjarlandsins. Ekki er i | vitað, hver eigandi hans er, i | en eigendur lambanna hafa i Í fullan hug á að fá bætur fyrir \ | tjón sitt. IMMMMUIIIIilllltllllllllllllllllmillllMIIIIIMMIMIIimilllll dómari kveði sjálfur upp dóm í máli, sem hann hefur sjálfur rannsakað. Auk þessa hafi þetta mál vakið svo stórfelldar umræð ur í blöðum, sem talin verði æsi- skrif, þannig að aðstaða rann- sóknardómarans sé orðin erfið til að geta verið hlutlaus. í gær kvað rannsóknardómar- inn, Olafur Þorláksson, upp úr- skurð, þar sem hann synjaði beiðninni. Úrskurður dómarans hefur verið kærður til Hæstaréttar og hefur verjandinn leitað leyfis saksóknara lögum samkvæmt til að sú kæra megi verða tekin fyrir af Hæstarétti. MIKIÐ gos hefir nú orðið skammt frá Surtsey og er þar að myndast ný eyja. Gos- sstöðvarnar nýju hafa verið nefndar Syrtlin,gur. Sturla Friðriksson jurtaerfðafræðing ur tók meðfylgjandi myndir. Hin myndin sýnir fyrstu plöntuna af æðri jurtastofni, ’ sem nemur land í Surtsey, en það er fjörukál. Þykir þetta mikill og merkur líffræðileg- ur fundur í Surtsey. Skipstjóri Jarlsins dæmdur í 300 pd. sekt Einkaskeyti til Mbl. London 3. júní — AP, BREZKUR sjóréttur dæmdi í dag Magnús Bjarnason, skipstjóra á Jarlinum, í 300 sterlingspunda sekt fyrir að hafa óvirt réttinn. Auk þess var skipstjóranum gert að greiða kostnað sakarinnar. Magnús var sekur fundinn um að hafa siglt skipi sínu frá Bridgewater 18. maí sl. á meðan skipið var í haldi sjóréttar. Hewson dómari, sem kvað upp dóminn í dag, sagði að skipið hefði verið í haldi vegna skuld- ar, sem greidd hafi verið að vísu daginn, er skipið lét úr höfn. Hinsvegar hafi skipið farið án opinbers leyfis. Dómarinn kvað tillit hafa verið tekið til að- stæðna við ákvörðun refsingar. Ráðningar JÓNA Guðmundsdóttir, Austur- brún 4, hefur verið ráðin yfir- hjúkrunarkona við Slysavarð- stofu Reykjavíkur. Einnig hefur Magnús Þorsteins son, Stóragerði 11, verið ráðinn deildarlæknir við barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavík- ur. Nýtt gos I GÆRKVOLDI átti blaðið samtal við Sturlu Friðriks- son, jurtaerfðafræðing, um borð í Lóðsinum frá Vest- mannaeyjum, þar sem skipið var á leið til lands úr Surts- eyjarferð með sérfræðinga til rannsókna þar á eyjunni og skoðunar á hinu nýja gosi, sem nú er æði kraftmikið úr gíg, er fræðirpenn hafa nefnt Syrtling. Samtalið fór fram um kl. 18.30. — Við erum á leið til Eyja, sagði Sturla. — Enn er engin eyja komin upp af gosi Sytlings, en gosið er talsvert kraftmikið og fallegt. Er það nákvæmlega eins og smækkuð mynd af upp- hafi Surtseyjargossins og eins- konar vasaútgáfa af því. — Sjálf Surtsey er nú afar doðaleg og liggur gos þar niðri. — I>essi ferð okkar til Surts- eyjar í dag bar þann merka árang ur að við fundum fyrstu 3 plönt- urnar af æðri tegundum jurta, tvær þeirra voru fjörukál, en hina þriðju höfum við ekki ákvarðað, þar sem hún var ekki enn farin að bera nein blöð, sem sé á algeru frumstigi tilveru sinnar. í för með okkur eru fugla og fiskifræðingar í leit að rann- sóknarefni. — Hér er gott veður og miklar vikurhrannir á sjónum allt um kring. Um kl. 11 í gærkvöldi voru vísindamennirnir komnir hingað til Reykjavíkur og átti blaðið þá samtal við Sturlu á ný. Sagði hann að er þeir voru á leið til lands hefði Syrtlingur gosið geysi háum gosum og svo virtist sem alda bryti á nýju landi skammt undir yfirborði sjávar. Blaðið hafði ennfremur spurn- ir af því frá flugmönnum er fóru hjá gosinu í gærkvöldi að eyjan væri greinilega að koma í ljós og gosstrókarnir væru allt upp í 1000 feta hæð og sáust greinilegar eidglæringar í gos- <i>mekkinum. Reikningar Reykjavíkurborgoi fyrir 1964: Hrein eign jókst um 223,5 millj. kr. og er nó 1300 millj. REIKNINGAR Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1964 voru lagð- ir fram á fundi borgarstjómar í gær. Að venju eru þeir mjög ítar legir og hafa inni að halda ná- kvæmlegar sundurliðanir og greinargerðir um öll helztu fjár- hagsmálefni borgarinnar. Af reikningunum kemur fram, að hrein eign Reykjavíkurborgar jókst á árinu um 223,5 millj. kr. og er nú orðin 1,3 milljarður. Eru þá ekki meðtalin framlög borgar innar til nýrra gatna og hol- ræsa, en til þeirra var varið 109,4 millj. kr. en það er miklu meira en á undan förnum árum hvort heldur er talið í krónum eða miðað við hundraðshluta af heildarútgjöldum. Eignarhluti Reykjavíkurborgar í Soginu er hins vegar nú í fyrsta sinn færð- ur til eignar hjá borgarsjóði, en hann er 49,2 milljónir króna. Þá sést einnig af reikningunum, að rekstrargjöld borgarinnar urðu aðeins um 3,3 millj. kr. hærri en áætlað var eða 0,7%, þrátt fyrir að verulegar kaup- og verðlags- hækkanir urðu eftir að fjárhags áætlunin var endanlega samin. Samkvæmt borgarreikningunum urðu tekjurnar alls 24,8 millj. kr. hærri en áætlað var, en þá ber þess að gæta, að gera má ráð fyrir, að ekki verði innheimt öll álögð útsvör á árinu 1964 fremur en áður. Geir Hallgrímsson borgarstjóri hafði framsögu fyrir reikningun- um við I. umræðu í borgarstjórn í gær. Verður nánar skýrt frá ræðu hans og borgarreikningun- um hér í blaðinu. Ekki tóku aðrir en borgarstjóri til máls við þessa 1. umræðu um borgar- reikningana, og voru þeir sam- þykktir samhljóða til 2. um- ræðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.