Morgunblaðið - 15.07.1965, Qupperneq 24
157. tbl. — Fiirmit«da£ur 15. júlí 1965
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
— í engú sambandi við nýgerða
kjarasamninga
Frá blaðamannafundinum í fær: Dr. Jóhannes Nordal, Seðlabaruk astjóri og £. Kodriguez, fulltrúi
Alþjóðalánastofnunarinnar í VVa shington.
Á FUNDI borgarráðs Reykjavík-
borgar sj. þriðjudag var lögð
fram tillaga um hækkun á gjald
skrám Strætisvagna Reykjavík-
ur og Hitaveitunnar og var sam-
þykkt að leggja til við borgar-
stjórn, sem kemur saman til
fundar í dag, að gjaldskrá Stræt-
isvagna Reykjavíkur verði hækk
uð að meðaltali um 15.9%, en
gjaldskrá Hitaveitunnar um 10%.
Xillagan um hækkun gjald-
skránna var samþykkt í borgar-
ráði af fulltrúum Sjálfstæöis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins, en fulltrúi Alþýðubandalags-
ins lagði fram tillögu um, að
Alþjóðalánastofnunin leggur fram
hlutafé í einkafyrirtæki
— Fulltrúi IFC staddui hér á landi
AÐ undanförnu hefur dvalizt hér
á landi á vegum Seðlabankans,
fulltrúi Alþjóðalánastofnunarinm
ar í Washington (International
Finance Corporation, IFC), E.
Rodriguez. IFC er starfrækt á
vegum Alþjóðabankans í Was-
hington og er hlutverk stofnun-
arinnar að efla atvinnuvegi í
þátttökurikjunum með lánveit-
ingum t>l einkafyrirtækja og með
öðrum heppilegum hætti. Hr.
Rodriguez hefur kynnt sér að-
stæður hér á landi og kannað
möguleika á aðstoð IFC til upp-
byggingar atvinnuvega hérlendis.
Á fundi með blaðamönnum í
Takinarkaðar
bifreiðastöður
gær kynnti dr. Jóhannes Nordal
hr. Rodriguez og skýrði hann
nokkuð frá starfsemi IFC og
heimsókn sinni hingað. Hann
kvað þetta vera fyrstu heimsókn
fulltrúa Alþjóðalánastofnunarinn
ar til íslands, en Alþjóðabankinn
hefði áður staðið að lánaveiting-
um til landsins. IFC er önnur
af tveimur hliðarstofnunum Al-
þjóðabankans, en hin er IDA
(International Developement As-
sociation), sem einkum starfar í
þróunarlöndunum svokölluðu og
mikla þörf hafa fyrir erlent fjár-
magn til uppbyggingarstarfs, svo
sem Indland og Pakistan.
Alþjóðalánastofnunin var stofn
uð 1956 í þeim tilgangi að stuðla
að efnahagsiþróun og atvinnu
uppbyggingu meðlimaríkjanna,
en þau eru flest hin sömu og
aðild eiga að Alþjóðabankanum,
en þó nokkru færri.
komandi fyrirtækis, í öðru lagi
hlutafjárframlög til fjárfestingar
iánastofnana atvinnuveganna og
í þriðja ia^ veitir IFC fjármagns
mörkuðum aðstoð í sambandi við
lánsútboð o. fl.
lllutaf járframlög
til einkafyrirtækja
Aliþjóðalánastofnunin er eina
stofnunin í heimi, sem starfar á
þann hátt að leggja fram hlutafé
til einkafyrirtækja og stuðla
þannig að vexti þeirra. Yfirleitt
er þessi starfsemi einungis miðuð
við einkafyrirtæki, en í sérstök-
um tilvikum getur verið um að
ræða framlög til fyrirtækja, sem
ríkið er takmarkaður aðili að.
IFC vill ekki eiga meira hlutafé
í þeim einkafyrirtækjum, sem
það kaupir hluti i en 20% af
hlutafénu og óskar engrar aðild-
ar að stjórn fyrirtækjanna. Stofn
unin tekur engar tryggingar fyrir
hlutáfjárframlagi sínu, en kemur
fram sem hver almennur hlut-
hafi og tekur áhættuna af rekstr-
inum. Þegar starfsemi fyrirtækj-
anna er komin vel í veg, selur
IFC hlut 'sinn.
Hr. Rodriguez sagði, að þessir
starfshættir hefðu mjög stuðlað
að trausti fólks til stofnunarinn-
ar. IFC tekur heldur engan þátt
í atkvæðagreiðslum til stjórnar
eða önnur mál á hluthafafundum
og grípur einungis inn í rekstur
fyrirtækjanna, ef þau eru að
gjaldþroti komin.
Framhald á bls. 2
Samningafiiiiclir
BNGIR samningafundir voru í
gær, en í dag kl. 4 verður fundur
með Farmanna- og fiskimanna-
sambandinu og kl. 5 verður samn
ingafundur á Selfossi með full-
trúum verkalýðsfélaganna í Ár-
nessýslu. Engir fundir hafa verið
boðaðir með járnsmiðum o. fl.
gjaldskrárnar yrðu ekki hækkað
ar að svo stöddu, heldur yrði
málinu frestað um skeið.
Gjaldskrár SYR og Hitaveit-
unnar hafa ekki hækkað síðan í
desember 1963, en síðan hafa
hækkanir á rekstrarkostnaði
þessara fyrirtækja orðið miklar.
Xillagan um hækkun gjald-
skránna stendur í engu sambandi
við þá kjarasamninga, sem ný-
lega hafa verið gerðir og þæf
kauphækkanir, sem í þeim fel-
ast, heldur byggist hún eingöngu
á hækkunum, sem höfðu orðið,
áður en nýgerðir kjarasamning-
ar voru gerðir.
Þegar núverandi gjalds'krá
SVR tók gildi var söluskattur
3% af keyptum vörum, en hefur
sdðan hækkað tvisvar, fyrst i
5.5% og siðar í 7,5%. SVR hef-
ur teki'ð þessa söluskattshækkun
á sig, án þess að innheimta hana
í auknu.m fargjöldum hingað til.
Grunnkaup fastra starfsmanna
hefur hækkað um 6,6% og að
auki verðlagsuppbót 3,66%. Loks
hefur verið lagður á launaskatt-
ur 1%.
Hækkun á rekstrarkostnaði
SVR hefur því orðið mikil síð-
an í desember 1963.
Gjaldskrá Hitaveitunnar var
einnig hækkuð síðast í des. 1963,
en á þeim tíma sem liðinn er
hefur rekstrarkostnaður hennar
aukizt mikið. Þann 21. des. 1963
hæk'kaði tímavinnu- og viku-
kaup um 15% og 1. júlí 1964 um
5%. Orlof hefur hækkað úr 6%
í 7%. Eru breytingar þessar tald
ar jafngilda 22,07% hækkun
kaupgjalds.
Á tímaibilinu hefur kaup borg-
arstarfsmanna hækkað um 6.6%
óg síðar greiddar 3.66% verðlags
uppbót. Heildanhaekkun á launa
greiðslum Hitaveitunnar síðan
gjaldskrá hennar var hækkuð í
des. 1963 er því 24.2%.
Á fundi borgarstjórnar í dag
verður lagt til að gjaldskrá
Strætisvagna Reykjavíkur hækki
Framhald á bls. 2
Hækkun á gjaldskrá
SVR og Kitaveitunnar
við höfnina
UMFERÐARNEFND hefur sam-
þykkt að verða við óskum hafn
arstjóra og leggja til að bifreiða
stöður verðí bannaðar á Mið-
bakka hafnarinnar, í Geirsgötu
við TojJstöðvarskýlið og
geymslubragga Ríkisskip.
Hugmyndin með stofnun IFC
var sú, að þessi stofnun ætti hlut
að fjármagnsútvegunum til einka
fyrirtækja án ríkisábyrgðar.
Starfsemi stofnunarinnar nú er
einkum " þríþætt: í fyrsta lagi
bein fjárveiting hennar í at-
vinnufyrirtækjum og er þá
venjulega bæði um að ræða lán
og hlutafjárframlög IFC til við-
Forsætisráðherra
minnist Stevensons
MORGUNBLAÐIÐ hringdi í
gær til Bjarna Benediktssonar,
forsætisráðherra, eftir að
fréttin um fráfall Adlai Stev-
ensons spurðist og sagði for-
sætisráðherra m.a. um hinn
látna stjórnmálamann:
— Adlai Stevenson varð
fyrst kunnur utan Bandarikj-
anna þegar hann var í fram-
boði til forsetakjörs í heima-
landi sínu.
— Vakti hann þá mikla at-
hygli vegna drengskapar síns
og mikilla mælskuhæfileika.
í Bandaríkjunum er algengt
að aðrir menn skrifi ræður
frambjóðendanna, en um
Stevenson var vitað, að hann
samdi ræður sínar sjálfur.
— Hin síðari ár var hann
sendiherra þjóðar sinnar hjá
Sameinuðu þjóðunum og var
sem slíkur talsmaður frelsis
og friðar í heiminum.
— Um áhrif hans á stjórnar-
stefnu Bandaríkjanna er ekki
mikið kunnugt, en hann verð-
ur lengi minnzt sem stjórn-
málamanns, mælskumanns og
góðs drengs.
Sigurður Bjarnason
kjörinn formaður
Norræna félagsins
Gunnari Thoroddsen þökkuð dgæt forysta
AÐALFUNDUR Norræna félags-
ins í Reykjavík var haldinn í
Tjarnarbúð í gærkvöldi. 1 upp-
hafi fundarins flutti Magnús
Gíslason, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, fundinum kveðjur og
árnaðaróskir frá Gunnari Thor-
oddsen, sendiherra, sem verið
hefur formaður félagsins síðan
árið 1954.
Fundarstjóri var kjörinn Sig-
urður Magnússon, fulltrúi, og
fundarritari Sveinn Ásgeirsson,
hagfræðingur.
Þá flutti Magnús Gíslason
skýrslu um starfsemi félagsins á
liðnu ári, en hún hafði verið
fjölþætt.
Þá gerði gjaldkeri félagsins,
frú Arnheiður Jónsdóttir, grein
fyrir fjárreiðum þess og voru
reikningar þess síðan samþykkt-
ir.
Síðan fór fram stjórnarkosn-
ing. Var Sigurður Bjarnason, rit-
stjóri, kosinn formaður með
samhljójia atkvæðum. Úr stjórn
félagsins áttu að ganga þeir Páll
ísólfsson, tónskáld, frú Arnheið-
ur Jónsdóttir og Sigurður Magn-
ússon. Voru þau öll endurkjör-
in með samhljóða atkvæðum.
Aðrir í stjórn félagsins eru: Vil-
hjálmur Þ. Gíslason, útvarps-
stjóri, Thorolf Smith, fréttamað-
ur, og Sveinn Ásgeirsson.
Endurskoðendur voru kjörnir
þeir Lúðvíg Hjálmtýsson og Óli
J. Ólason.
Síðan flutti hinn nýkjörni for-
maður stutt ávarp og að lokum
var samþykkt að aðalfundurinn
Sigurður Bjarnason.
sendi Gunnari Thoroddsen,
sendiherra, skeyti með þökkum
fyrir ágæta forystu og starf í
þágu félagsins.
í deildum Norræna félagsins á
íslandi eru nú 3000 félagar, þar
af 1000 í félaginu í Reykjavik.