Morgunblaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 15
Sunnudagur 5. sept. 19(55 MORCU NBLAÐIÐ 15 FUIGFAR STRAX FAR GREITT SÍDAR TRYGGID FAR MEÐ FYRIRVARA NEGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HEIM LOFTLEIÐIS LANDA AMILLI Fyrir tæpum 1000 árum fundu Islendingar, fyrstir hvítra manna, meginland Norður- Ameríku. Fyrir um 100 árum hófst íslenzkt landnám á ný í Vesturheimi. Fyrir um 10 árum hófu Loftleiðir fastar áætlun- arferðir milli íslands og Banda- ríkjanna. Þá hófst ný íslenzk landnámssaga með kynnis- og orlofsferðum íslendinga til eevintýra-og sögustaða Banda- rikjanna. Meðalflugtími hinna nýju Rolls Royce 400 Loftleiða milli l\lew York og fslands er 6 klst. 35 mín. í júlímánuði árið 1885 komu 92 íslendingar til Winnipeg eftir 25 daga ferð frá fslandi og var það mettími þá. Það kostar ekki nema 7613 kr. (án söluskatts) að fara héðan til New York og aftur heim, ef ferðast er með 21 dags far- gjaldakjörum Loftleiða. Það er ekki dýrara að fijúga til New York en margra stórborga Evrópu Það er ekki dýrara að dvelja í Bandaríkjunum en ýmsum Evrópulöndum. Það kostar ekki nema 99 dali að aka um gervöll Bandaríkin með Greyhound og Continen- tal Trailways langferðabílum og má ferðast ótakmarkað í 99 daga. Þrettán bandarísk flugfélög bjóða sameiginlega ótakmark- aðar flugferðir í 21 dag fyrir aðeins 150 dali. Bandaríkin eru í rauninni stór og fjölbreytileg heimsálfa. Þar má því finna sumarveðráttu allan ársins hring. Ef íslendingar vilja njóta lífs- ins í nokkra daga í New York og skoða t. d. heimssýning- una, en halda síðan til Florida og endurnærast þar á sólgulln- um leikvangi auðmanna, þá kostar hálfsmánaðar ferð hingað og héðan ekki nema tæpar 20 þús. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.