Morgunblaðið - 11.09.1965, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLADID
Laugardagur 11. sept. 1965
Myndin sýnir vel hvernig íahellan hefur sigið og ísinn sprungið frá við harmana. Ljósm. E.Pá.
íshellan sprungin frá
í GÆR var flogið inn jrfir
Vatnajökul, til að kanna leið-
ir á jöklinum fyrir snjóbila
vegna leiðangurs þess, sem
sem ætlar að freista þess að
komast í Grímsvötn, til að
kanna hlaupið þaðan. Frétta-
maður frá Mbl. var með í flug-
vélinni. Flogin var sama leið
og ætlunin er að fara upp á
jökulröndina hjá Jökulheim-
um í Tungnaárbotnum. Ekkert
hefur snjóað á jökulinn þar,
en Gunnari Guðmundssyni
frá Jöklarannsóknarfélaginu
leizt ekki illa á að komast
mætti þarna upp á snjóbílum.
k Þó yrði erfitt fyrstu 12 km
í og þyrfti þar að finna leiðir
/ fram hjá sprunguhausum. En
ur þvi mundi verða sæmilega
greiðfært í björtu alla leið í
skálann á Grímsfjalli.
Þoka var að venju á Svína-
hnjúkum, þar sem skáli fé-
lagsins er, en þó hægt að
fljúga yfir Grímsvötnin. ís-
þekjan á þeim er greinilega
mikið sigin, og. hefur rifnað
frá með sprungum við barm-
ana, en ekki er þar enn eins
hrikalegt og oft áður í hlaup-
um, enda ójöfnur á botninum
ekki enn farnar að stingast
upp í ísþekjuna á vötnunum
og krossprengja hana. Hvort
hlaupið heldur áfram og vötn
in að tæmast undir ísþekjunni,
með tilheyrandi afleiðingum í
umbyltum ís, er ekki gott að
segja.
>á var flogið niður yfir
Skeiðarár, þangað sem vatns-
flaumurinn kemur undan
jöklinum. Fyrir þá, sem ekki
hafa séð þetta fyrr, virðist
þarna mikið vam hríslast um
breiða spilldu á Skeiðarár-
sandi, allt frá því fyrir neðan
bæinn Skaftafell, þar sem áin
breiðir úr sér, og að ósum. En
þeir sem séð hafa flóðið fyrir
nokkrum dögum segja það
ekkert vera orðið og greinilega
í rénun. Hvort það orsakast af
tímabundinni stíflu á leið
vatnsins undir jöklinuim er
ekki vitað, eða hvort Skeið-
arárhlaupið ætlar í þetta sinn
ekki að verða meira.
Við Griðarhom í Grímsvötnum.
— Fellibyljir
*
LngKngameLtaramót Is-
lands á Sauðárkróki
Framhald af bls. 1.
urnar voru stráðar bílflökum,
föllnum trjám, glerbrotum, hlut-
um úr húsþökum, símalínum
o. fl. Fimm hafskip slitnuðu
upp í höfninni, og rákust sum
þeirra oft saman í ólátunum.
Fellibylurinn Shirley í Japan
hefur orðið Bétsy mannskæðari,
en í Japan hafa nú 34 látið lífið
í fellibylnum, 12 er saknað og
557 slasaðir. Um 6.000 manns
hafa misst heimili sín.
Shirley hélt yfir vesturhluta
Japan í dag, og var vindhraóinn
mestur 274 km. á klukkustund..
Þessu næst hélt feilibylurinn j
út á Japanshaf. 1
UNGLINGAMEISTARAMÓT ís-
lands 1965 í sundi fer fram á
Sauðárkróki á morgun, sunnu-
daginn 12. september og hefst kl.
3 e.h. Keppnisgreinar eru: 50 m.
baksund, 50 m. bringusund, 50 m.
skriðsund telpna og sveina 14
ára og yngri, 100 m. bringusund,
100 m. skriðsund, 50 m. baksund,
50 m. flugsund fyrir drengi 16
ára og yngri, 100 m. bringusund,
50 m. skriðsund, 50 m. baksund,
50 m. flugsund fyrir stúlkur 16
ára og yngri, 4x50 m. fjórsund
fyrir stúlkur og drengi.
Þátttakendur á mótinu verða
um 80, víðsvegar af landinu og
mú búast við harðri keppni um
bikar þann, sem Sundsamband
íslands gaf tíl keppni fyrir
tveim árum, en hann hlýtur það
félag, er flest stig hlýtur á mót-
inu. Ármann hefur unnið bikar-
inn í bæði skiptin, sem um hann
hefur verið keppt.
Einnig verður keppt í tveim
aukagreinum, 100 m. bringu-
sundi karla, og 200 m. skriðsundi
karla, en þar mun Davíð Val-
garðsson reyna að slá íslenzka
metið.
LSA skorar
á Frakka
— að leggja fram ákveðnar tillögur um
breytingar á NATO — Boðskap de Gaulle
þunglega tekið á Vesturlöndum
Washington, 10. sept. — AP
BANDARÍKIN skoruðu í dag
á Frakkland að koma fram
með ákveðnar tillögur í þá
átt að endurskipuleggja At-
lantshafsbandalagið (NA
TO). Kom þetta í kjölfar yf-
irlýsingar de Gaulle, Frakk-
landsforseta, á blaðamanna-
fundi í gær, en á fundinum
sagði de Gaulle að Frakkland
mundi telja sig laust við all-
ar skuldbindingar við NATO
1969, ef ekki væru þá fram
komnar skipulagsbreytingar
á samtökunum,
De Gaulle kallaði þetta á
fundinum að Frakkland mundi
hætta „undirgefni sinni við
NATO“ 1969. Nokkrum klukku-
stundum síðar tilkynnti Lyndon
Johnson Bandaríkjaforseti, að
hann myndi senda nýjan sendi-
herra til aðalstöðVa NATO í því
skyni að styrkja samtökin.
Yfirlýsing de Gaulles um hugs
anlega úrsögn Frakka úr NATO
þykir benda til þess, að ágrein-
ingur Frakka og Bandarikja-
manna sé mjög djúpstæður, og
hafi farið hríðversnandi.
Blaðafulltrúi bandaríska utan
rikisráðuneytisins, Robert Mc
Closkey, sagði á blaðamanna-
fundi í dag að hann hefði ekk-
ert um ummæli de Gaulle að
segja annað en þetta: „Við höf-
um oftlega áður sagt að ef nokk
urt NATO-ríki hefur sérstakar
breytingartiilögur fram að færax,
myndum við, ásamt öðrum
meðlimum bandalagsins, vera
meira en reiðubúnir til að vega
og meta þær tillögur í góðri
trú.“
Yfirleitt fá ummæli de Gau'.le
á blaðamannafundinum í gær
þungar viðtökur á Vesturlönd-
um.
Wessin hershöfðingi
fiuttur úr landi
Santo Domingo, 10. sept. —(AP)
ELIAS Wessin Y. Wessin, hers-
höfffingi, einn helzti og herská-
asti leiðtogi andkommúnista í
Dóminikanska lýðveldinu, var
settur í varðhald í gær og síðan
um borð í bandaríska flugvél,
sem flutti hann til bandaríska
svæðisins við Panamaskurð. —
Skýrði talsmaður Samtaka Am-
erikuríkja (OAS) frá þessu í
Santo Domingo í dag. Wessin
Y. Wessin er sagður munu verða
aðalræðismaður lands síns á
Miami í Flórída.
Stjórnin mun hafa boðið
Þórw fylgir
„Stellu44 til Eyja
VARÐSKIPIÐ Þór kom í gær að
vb Stellu frá Vestmannaeyjum,
sem var með bilaða vél NV af
Færeyjum. Upphaflega var ætl-
unin að taka bátinn í tog og
draga hann til Eyja, en í stað
þess gerðu Þórsmenn við vélina,
og kl. 16 í gær voru bæði skipin
á leið til íslands með átta sjó-
mílna hraða á klukkustund. Gekk
ferðalagið að óskum, og var gert
ráð fyrir því, að skipin kæmu til
Eyja í kvöld, laugardagskvöld.
Wessin sérhvert það starf, sem
hann óskaði eftir utan landsins,
en hershöfðinginn, sem stóð fyr
ir því að Juan Bosch, forseta var
steypt af stóli 1963, og lagðist
gegn uppreisnarmönnum, sera
styðja jBosoh, vildi hvergi fara.
Á fimmtudagskvöld héldu
æðstu menn gæzluliðs Ameríku-
ríkja til heimilis Wessin Y.
Wessin, og skömmu síðar var
hann fluttur úr landi. Góðar
heimildir herma að hershöfð-
inginn verði aðalræðismaður
Dóminkikanska lýðveldisins I
Miami.
flrbæjarsafni
lokað annað
kvöld
ÁRBÆJARSAFNINU verður
lokað á sunnudagskvöld, og er
þetta því síðasta helgin, sem það
er opið. Á sunnudaginn verður
þar glímusýning.
Mjög mikil aðsókn hefur verið
að safninu í sumar. Sennilega
hafa gestir verið nálægt 18 þús-
undum og 6 þús. hafa druikikið
kaffi í Dillonshxisi.
upp vestan til á landinu. Þar svæðið yrði komið að landinu
mátti sjá áhrif skilanna og seinni hluta nætur.
úrkomusvæðisins á Græn-