Morgunblaðið - 11.09.1965, Síða 10
10
MOHGUNBLADIÐ
Laugar'dagur 11. sept. 1965
Hflargrét Þorbjörg Thors
F. 6. 7. 1935. — D. 19. 8. 1965.
Mín sál er svo þyrst á lifenda
landi,
þótt ljós allra himna hún drekki.
Af jarðneskum hljqm seðst ekki
minn andi.
Eilífð, ég þjáist sem fangi í bandi.
Tíbrá er frjáls, en mitt hjarta ber
hlekki.
Himnesku strengir, ég næ ykkur
ekkL
ÞEIM er erfitt uta vik í mann-
heimum, þungt um andardrátt —
sálunum sem líkt er farið og
skáldinu mikla, er söng þannig
burt okið sem á því hvíldi. En
fáir eru útvaldir — fáir geta veitt
stökum strengjum samhljóm —
lyfting — um leið og þeir kveða
sig úr viðjum hins takmarkaða,
jarðneska, þess er heftir og þving
ar.
Ég veit að í hug og hjarta Mar-
grétar Thors, leyndust eðalstein-
ar sem biðu þess eins að verða
gulli greyptir — en sá fjársjóður,
sá dýri málmur var óunninn er
hún snögglega kvaddi jarðheim
— ein síns liðs í framandi landi
— aðeins þrítug að aldri.
Lát hennar varpar myrkum
skugga, sökum þess að sál henn-
ar var svo bjöft og tær. Það varð
svalt — í hásumarhitanum.
Margrét bar glögglega ættar-
mót foreldra sinna, ytra sem
innra, þeirra Elísabetar Ólafsdótt
ur (Björnssonar ritstjóra) og
Hilmars Thors, lögfræðings
(yngsta sonar Thor Jensens) en
hann lézt ungur að árum, 1939.
Hún var falleg stúlka, fáguð í
framkomu svo af bar, fíngerð.
Röddin lág og mjúk. Fjarrænt
augnaráðið og ennissvipurinn
minnti á helgimyndir gömlu
ítölsku meistaranna. Hún var
eins og blóm meðal blóma. Orð-
vör var hún — og fáorð — en
sérlega einbeitt og föst fyrir —
þegar hún lét í ljós skoðanir sín-
ar. Feimin, hlédræg og dul —
þessi þrjú lundareinkenni, sem
voru ókunnum hvað mest áber-
andL mynduðu um hana hjúp —
að vísu fallegan — en um leið ó-
aðgengilegan. Öll hennar barátta
til birtingar sjálfrar sín, til sam-
félagskenndar í umheiminum,
snerist í innhverfa sálarreynslu
— innbyrgðan sársauka.
Hún bar ávallt allt ein — alein.
Þannig sálir eru ekki einmana í
einveru — en sökum þess að sá
heimur sem þær byggja sér og
lifa í, er lokaður öðrum, verða
þær einmana innan um aðra.
Margrét Thors útskrifaðist úr
Kvennaskólanum í Reykjavík ár-
ið 1953. Hún var listelsk og list-
ræn í eðli — unni sérlega músík
og málaralist. Oft skreytti hún
bréfin sín — til ættmenna og
vina — skemmtilegum, vel gerð-
um teikningum. Rithöndin var
afburða falleg — og veitti hún
ein innsýn í ævintýralegan hug-
arheim hennar. Orðalag og stíll
bréfanna bar blæ hins fágæta.
Skopskynið, sem hún átti í rík-
um mæli, birtist þar á heillandi
hátt. Hún var mikill ög einlægur
náttúruunnandi — bæði íslenzkr-
ar og erlendrar — opin fyrir því
sérstæða í formi — litum og
ljósL
Margrét ferðaðist töluvert — á
milli þess sem hún vann við skrif
stofustörf hér heima — og var
prúðmennska hennar og sam-
vizkusemi á vinnustað rómuð af
öllum.
Vetrarlangt dvaldi hún í boði
síns ástkæra föðurbróður, Thor
Thors, og Ágústu konu hans, á
heimili þeirra í Washington og
tæpt ár var hún í Vínarborg á-
samt systur sinni og mágL Síðan
lá leiðin heim aftur.
En útþráin var henni í blóð
borin. Enn lagði hún land undir
fót — nú var förinni heitið til
Bretlands. Þar féll henni vél að
vera og starfa. Þar var hún stödd
í fyrra vetur er hún fékk vit-
neskju um alvarleg veikindi syst-
ur sinnar. Brá hún þá skjótt við,
kom heim og tók að sér umsjá
heimilisins, eiginmanns og barna,
sem hún annaðisL mánuðum sam
an, af stakri natni og ástríki.
Þannig var fórnfýsi hennar, það
var eins og hún vildi útþurrka
sjálfa sig fyrir hvern þann sem
hennar þurfti með.
Þegar hún lagði af stað á ný
til London — gerði hún ráð fyrir
að leggja stund á hjúkrunarnám.
Hún hafði unnið þar í sjúkrahúsi
— og til starfa í sjúkrahúsi var
hún ráðin í þetta sinn. En líkam-
inn var veikbyggður, heilsan
tæp — svo varla hefði úr því
orðið.
Og nú er hún horfin burtu af
jörðinni — inn í hlýjan, bjartan
heim. Þar er gott að vita hana —
„því eðlið var spunnið af öðrum
toga —
þess ör átti ei streng á sinn
boga“.
Yndislegri móður hennar, syst-
ur og bróður, bið ég blessunar
guðs í þungum harmi — svo og
öðrum ástvinum.
Steingerður Guðmundsdóttir.
HÚN hét Margrét Þorbjörg
Thors og var skírð í höfuðið á
ömmu sinnL Þegar ég sá hana
fyrst, var hún kölluð Lilla Siss.
Hún var nokkurra vikna gömul
og lá í vöggu og átti systur, sem
var tveim árum eldri og kallaði
hana fljótlega þessu nafni —
Lilla Siss. Það var hún enn köll-
uð í daglegu tali, er hún þriggja
ára sat á stigaþrepi í húsi afa
síns við Fríkirkjuveg og ég var
að kveðja hana og kyssti spé-
koppann í öðrum yanga hennar,
og hún brosti þá þegar dálitið
kankvísu brosi og veifaði til mín
lítilli hendL þegar ég fór.
Hún var kölluð Tobba, er ég
sá hana aftur 7 árum seinna.
Þá var hún alvarleg, feimin og
hlédræg 10 ára stúlka — hlé-
dræg svo að áberandi var. — Af
hverju kallið þið fallega litla
stúlku þessu nafni? varð mér á
að spyrja. En nafnið var orðið
fast við hana ,því varð ekki út-
rýmt, og undarlegt var, að mér
fór að þykja það fallegt, af því
að á bak við það var svo indæl
lítil stúlka.
Tobba óx og varð fullorðin.
Hún losnaði ekki við hlédrægn-
ina. Ef hún var með öðrum, var
eins og hún vildi helzt fela sig
og láta sem minnst á sér bera.
Hún var fámál og feimin. En
hún hafði samt ýmislegt að
segja, og kom það fram, er hún
skrifaði bréf, sem voru fjörleg
og full af kímni og skemmtileg-
um athugasemdum. Þá gat hún
notið sín — þá var hennar ytri
persóna ekki fyrir henni.
Bömin elskuðu Tobbu. Eng-
in sýndi þeim meiri þolinmæði
og skilning og var reiðubúnari
að hlusta á þau og taka þátt í
lífi þeirra. Nú gráta litlu syst-
urbömin hennar og vilja ekki
trúa, að hún komi ekki til þeirra
aftur.
Nokkrar vikur dvaldi hún á
heimili okkar. Hæglát, eins og
alltaf, reyndi hún að láta sem
minnst fyrir sér fara. En hljóð-
látt og eins og í laumi sýndi hún
hlýjan hug og sífellda löngun til
að vera til góðs og kom oft á
óvart með ýmsu, sem hún hafði
lagt hönd á svo lítið bar á, og
vissL að mundi vekja gleði. Ef
hún sá, að hún gat orðið að liði,
var hún ekki lengi að veita hjálp
sína.
Þannig var Tobba. Hún bað
aldrei um neitt og krafðist einsk-
is, en gaf það, sem hún gat gefið
af ósérplægni og einlægni. Eng-
in furða, þótt lítil böm gráti
frænku sína og stórt fólk finni
til saknaðar eftir hana, sem gaf
meir en við gerðum okkur Ijóst
meðan hún, hæglát og hlédræg,
var með okkur.
Orðtakið: „Þer deyja ungir,
sem guðirnir elska“, hefur mér
alltaf fundizt fátækleg og innan-
tóm huggun, þegar ungt og gott
fólk fellur í valinn. En kannski
er það huggun í sambandi við
Margréti Þorbjörgu, sem hverf-
ur úr heimi, þar sem allt virð-
ist fyrst og fremst snúast um
að gera kröfur og heimta -r- hún,
sem alltaf vildi taka tillit til
annarra og hlaut því alltaf að
verða fyrir hnjaski.
K. Ó. H.
Á ÞESSU síðsumars kvöldi, þeg-
ar dagurinn óðum styttist og
húmið breiðir sig yfir borgina
skrifa ég mitt síðasta bréf til
þín, elsku Þorbjörg mín. Minn-
ingarnar hrannast upp í huga
mínum, svo ótal margar, ljúfar
og góðar og hversu mörg skyldu
öll þau bréf vera, sem við höf-
um skipzt á á þessari stuttu ævi
okkar. Nú verða þau ekki fleiri,
þetta sviplega andlát hefur bund
ið svo skyndilegan enda á það,
að engin mannleg hugsun getur
ráðið þá torráðnu gátu, sem
skapar lífinu svo sár örlög.
Fátt lýsir betur hinu innra
eðli mannsins heldur en sendi-
bréf góðs vinar, sem skýrir frá
atburðum og gjörðum sínum af
einlægni og trúmennsku. Jafn
létt og skemmtilega skrifuð bréf
hefi ég vart fengið. Trygglyndi
þínu var viðbrugðið og hjálp-
semin í garð þeirra, sem bágt
áttu var ætíð í fyrirrúmi. hvern-
ig sem á stóð og hvar sem þú
varst stödd. Göfuglyndi þitt var
svo fölskvalaust og eðlilegt og
ánægjan lýsti sér í hinu fíngerða
og yndislega andliti þínu, þeg-
ar þú komst færandi með falleg
blóm og listilega skreytta gjafa-
böggla. Þeir eru ekki fáir, sem
notið hafa gjafmildi þinnar og
góðvildar og því munu allir,
sem kynntust þér náið, minnast
þin með þakklæti og sárum sökn
uði.
Með þinni einstöku ljúf-
mennsku og fáguðu framkomu
lagðir þú ætíð gott til málanna
og aldrei heyrðist nokkurt
styggðaryrði né hallmæli af þín-
um vörum í garð annara. Hið
fagra og listfengna kunnir þú svo
vel að meta og dást að, enda
einkenndust handbrögð þín af
stakri vandvirkni og listhneigð,
sem verk þín bera ljósast vitni
um, þótt þú héldir þeim lítt
á loft og fáir urðu aðnjótandi.
Þannig var Muggur frændi þinn
og þannig eru svo margir af þínu
góða og gáfaða frændfólki.
Langdvölum dvaldir þú er-
lendis við nám og störf og þar
kvaddir þú þennan heim fjarri
ástvinum þínum og ættingjum.
---------------o----
Ég varð þess aðnjótandi að
vera samtímis þér bæði í Lond-
on og París og ég mun ávallt
minnast þeirra stunda, þegar við
reikuðum um listasöfnin og dáð-
umst að verkum meistaranna eða
hlustuðum á fagra tónlist í hljóm
leikahöllum þessara stórborga.
Ekki síður verður mér minnis-
stætt, þegar við tifuðum léttar
í spori eftir breiðgötum Paris-
ar og létum okkur dreyma um
dýrindis djásn og falleg föt.
Hversu unaðslegt var ekki einn-
ig, þegar við stikluðum á hraun-
hellunum í Heiðmörk og Þing-
völlum og dáðumst að hinum
islenzka gróðrL seiglu hans og
harðgervi. Hugleikin voru þér
slík ferðalög.
Það var mér mikið happ að
hafa kynnzt þér, Þorbjörg mín,
við áttum svo margar skemmti-
Framhald á bls. 11.
Halldór Sigurðsson:
AÐ LTAINI
Barátta gegn fáfræði
8. SEPTEMBER s.l. hófst í
Teheran í íran alþjóðleg
ráðstefna um ólæsi og mun
hún standa í 11 daga. Það
er Menningar- og vísinda-
stofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO), sem beit-
ir sér fyrir ráðstefnunni
og hefur boðið til henn-
ar menntamálaráðherrum
allra ríkja, sem aðild eiga
að stofnuninni. Svíar,
Finnar, Norðmenn og Dan-
ir senda allir sendinefndir
á ráðstefnuna. (Islendingar
i taka ekki þátt í henni. —
Innskot Mbl.)
Á ráðstefnunni í Teheran
verða ræddar nýjar aðferðir
til að útrýma einum af verstu
óvinum mannkynsins, fáfræð-
inni, og þá fyrst og fremst
I vankunnáttu í lestri og skrift.
Þetta vandamál þekkist
ekki lengur í okkar heims-
hluta — Norður-Evrópu —
þar sem aðeins 1—2% íbú-
anna er ólæs (þ.e.a.s. sam-
kvæmt skýrslum). En við
þurfum ekki að fara lengra
en til Suður-Evrópu til að
finna lönd, þar sem mikill
hluti íbúanna hefur aldrei
fengið tækifæri til að ganga i
skóla. í Portúgal eru t.d. 38%
íbúanna ólæs og í vanþróuðu
löndunum getur talan komizt
upp í 80—90%.
Raunverulega er ólæsið eitt
mesta félagslega vandamálið í
heiminum, því að ekkert land
getur komizt á viðunandi þró-
unarstig, ef stór hluti íbúanna
i er ólæs. Það er tilgangslaust
að tala um lýðræði meðan
minnihluti þjóðarinnar hefur
ekki aðstöðu til að sækja
skóla. í vanþróuðu löndunum
heyrist oft sagt, „að hinir fá-
tæku nenni ekkert að læra.“
Þetta er ekki rétt. Ástæðan er
oftast sú, að hinir fátæku
hafa ekki efni á að láta börn
sín læra, því að annað hvort
kostar skólagangan peninga,
eða þeir mega ekki missa börn
in frá deglegum störfum á
heimilinu. Og stundum vantar
einfaldlega skóla og kennara.
UNESCO telur, að af þeim
þremur milljörðum manna,
sem byggja heiminn, séu 700
milljónir algerlega ólæsar og
talan er áreiðanlega miklu
hærri, því að margir reiknast
læsir, sem aldrei hafa lært að
lesa og skrifa.
Árið 1960 var ástandið þann
ig í 85 löndum Asíu, Afríku
og Suður-Ameríku, að aðeins
110 millj. af 260 millj. barna
á skólaskyldualdri gengu í
skóla. í borgum S.-Ameríku
eru aðeins skólar fyrir 56%
barna og í sveitunum er á-
standið ennþá verra. Þar
kemst aðeins eitt af hverjum
fjórum í skóla.
Einnig er vert að geta þess,
að helmingur þeirra barna,
sem hefur skólanám er ekki
nema þrjá vetur í skóla og
fjögur hverra fimm barna
ljúka ekki barnaskóla. Þannig
er ástandið einnig víða í Asíu
og Afríku og jafnvel í Suður-
Evrópu.
Niðurstöður könnunar, sem
banki einn í New York lét
gera, sýna, að fé, sem lagt er
í skólanám vaxtast vel. Þar
segir, að fyrir hvern dollar,
sem varið sé til skólanáms í
Bandaríkjunum hækki launin
um 12% árlega það sem eftir
sé ævi mannsins. Hagfræðing-
ur einn hefur ennfremur
reiknað út, að 20% af aukn-
ingu þjóðartekna Bandaríkj-
anna á árunum frá 1929—
1957 hafi beinlínis stafað af
„aukinni þekkingu.“
★
UNESCO bendir á, að til-
raunir þær, sem til þessa hafa
verið gerðar til að vinna bug
á ólæsinu hafi mistekizt. Á
hverju ári eykst tala hinna ó-
læsu í heiminum um 25 millj-
ónir. Helztu ástæðurnar eru
skortur á skólum og kennur-
um. Hefur Efnahagsstofnunin
(OECD) gert könnun, sem
sýnir, að kennurum yrði að
fjölga um 2 milljónir, ef vel
ætti að vera.
Ráðgert er, að á yfirstand-
andi ráðstefnu í Teheran verði
rædd áætlun um að taka upp
nýja aðferð í baráttimni gegn
ólæsinu. í stað þess að reyna
að leysa vandamálið með því
að kenna öllum ólæsum, allt
frá börnum til gamalmenna,
undirstöðuatriðin eins og t.d.
var gert á Kúbu, er ráðgert
að koma af stað alþjóðahreyf-
ingu, sem miði að því að
kenna yngra fólki betur að
lesa. Þrjátíu og fimm lönd
hafa þegar tilkynnt UNESCO,
að þau hyggist leggja fram
skerf til þessarar baráttu, en
hún verður ekki ódýr og Sam-
einuðu þjóðirnar eiga um
þessar mundir enga peninga.
busar tollvarðastöður
Þar sem fyrirhugað er að auka starfslið tollgæzl-
unnar, eru nokkrar stöður tollvarða við tollstjóra-
embættið í Reykjavík lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. september 1965.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Æskilegt er að umsækjendur hafi stúdentspróf,
verzlunarskólapróf eða aðra hlðistæða menntun.
Umsóknareyðublöð fást hjá skrifstofustjóra toll-
stjóra, Arnarhvoli, og tollgæzlustjóra, Hafnarhús-
inu, og skulu umsóknirnar sendar til annarhvors
þeirra.
Tollstjórinn í Reykjavík.