Morgunblaðið - 28.09.1965, Page 28

Morgunblaðið - 28.09.1965, Page 28
28 MORGUNBLAQIÐ Þriðjudagur 28. sept. 1965 PATRICK QUENTIN: GRUNSAMLEG ATVIK Sylvia sneri s'ér að henni og inalaði eins og kisa: — Já, góða mín. Ég man, að þessi sölt voru einu sinni talin vera alveg vit- laus en nú eru þau það bezta, sem hægt er að nota. Þessi dá- samlegi maður .... og hann er auk þess góður vinur minn. Hann er alveg snillingur. Klukk an hálfsex á slaginu opna ég bara kranann og.......En Annie elskan, ekki langar þig til að heyra þetta, sem aldrei hefur verið nema skinnið og beinin. Hún stóð upp í öllum flaks- andi pilsunum, því að nú ýttu þjónarnir inn vögnum, hlöðn- um ágætis mat. Þegar máltíðin dróst á lang- inn og ekkert skeði, fór ég smámsaman að verða ofurlítið rólegri. Var það hugsanlegt, að nýja vaxtarlagið og handtaka Ronnies í næstu íbúð væri það eina, sem Sylvia vildi halda sýn ingu á? Hafði mamma á réttu að standa, þegar hún var að tala um þennan neikvæða hugs- unarhátt minn? Enn einu sinni á ævinni, rak ég mig á það, hve hættulegt það er að varpa frá sér áhyggj- unum of snemma, því að sek- úndu seinna gerðist það, að Sylvia, sem þrátt fyrir lofræð- ur sínar um, að hún æti allt, hafði ekki gert annað en súpa smávegis á kaffibollanum, tók upp skeið og lamdi henni ofur- laust í glasið sitt. — Elskurnar mínar! sagði hún, — nú þegar þið hafið borðað og hresst uppá kraftana ykkar, er tími til kominn að koma ykkur gleðilega á óvart. Ég var ákveðin í því, að þið, blessað fólkið, skylduð fyrst fá að heyra það. Þetta er ykkar merkisdagur. Líka okkar. Við Ronnie ætlum að giftast. Það var dauðaþögn. Allir voru agndofa. Að minnsta kosti hélt ég það. Ég leit á Ronnie. Hann sat þarna axla- siginn og horfði niður fyrir sig á óétna vöflu. Ég leit svo á mömmu, því að hún var sú, sem mest var mark á takandi, ef vanda bar að höndum. En hún hafði sett upp sviplausa andlit- ið sitt. Þegar þögnin var orðin vandræðalega löng, sagði Cle- onie, sem var gædd aðdáanlegri samkvæmisgáfu: — Gvö.... ! Var það ekki aldeilis dásam- legt? Ungfrú La Mann og hr. þið ættuð bara að sjá þegar ég fer að segja henni frú Johnson frá þessu. — Þakka þér fyrir, elskan, sagði Sylvia. Hún hafði á með- an verið að borða Ronnie í gegn með sínu blíðasta brosi til þess að sannfærast um, að hann félli ekki saman, en játaði sig sigr-' aðan. Nú færði hún blíðubros- ið yfir á mömmu. — En, Anny mín, það er eitt í veginum með þetta, þótt lítið sé, og þar lang- ar okkur að biðja þig að hjálpa okkur, af því að þú varst nú elzta og bezta vinkonan bless- unarinnar hennar Normu sál- ugu, og sú eina, sem við getum treyst. Nú er ég alveg viss um, að hún Norma hefði aldrei vilj- að láta okkur bíða lengi með þetta. Svo göfuglynd var hún alltaf, blessunin. Haldið þið bara áfram, hefði hún sagt. Grípið þið hamingjuna meðan hún býðst, börnin mín. Ég finn, að við ættum að fljúga til Mex- ico á morgun og láta verða af þessu. En elskan hann Ronnie er nú svo viðkvæmur í sér, að honum finnst, að við ættum að bíða ofurlítið, eða þangað til við erum búin með Ninon, og JÁMES FISHER hrósar Animals ’-HINU HEIMSÞEKKTA TÍMARITIUM DÝRALIF Fuglafræðmgurinn James Fisher, sem er heimskunnur vísinda- maður, og hefur starfað hér á landi, segir m. a. um ANIMALS: „Sem ráðunautur ANIMALS eru mér vei kunnugir erfiðleik- arnir á útgáfu myndskreytts vikurits um dýralíf heimsins og tryggja í senn, að þar sé rétt með farið, og að efnið sé smekk- legt og fróðlegt. Ritstjórn og öðrum starfsmönnum hefur samt tekist þetta Ég veit ekki hvernig, en allir, sem ég hef talað við, Ijúka upp einum munni um þetta — og ekki-sízt um ágæti lit- myndanna. sem hafa tekið öllu öðru fram, sem ég hef séð. Prentun er líka til fyrirmyndar. En mest finnst mer þó til þess koma hversu fjölþætt efni þessa eftirlætistímarits míns hefur verið frá upphafi vega. Boðskapur ANIMALS um náttúruvernd er mjög timabær, og heimurinn hefur þess vegna þörf fyrir að fleira fóik lesi ANIMALS að staðaldri. ANIMALS birtir vikulega greinar og mynrtir um margvíslegar hliðar dýraiífs um allan heim, breytingar þess og þróun, marg- breytileika þess og fegurð. í hverju hefti eru 16 litmyndasíður, og a. m. k. jafn margar svarthvítar. ANIMALS er áreiðanlegt heimildarrit, því að viðurkenndir dýrafræðingar og náttúruunnendur um allan heim sjá því fyrir efni. Kaupið hefti af AllÍITialS strax í dag. Fæst hjá bóksölum um land allt. verð kr. 21,50 jafnvel hinar myndirnar líka, sem við ætlum að gera saman. Ég hafði aldrei getað hugsað mér, að höggormar gætu bros- að fallega, en brosið var nú samt á andlitinu á Sylviu, og hún var eins höggormsleg og ef einhver indverskur herramaður hefði setið beint fyrir framan hana og blásið í hljóðpípu. — Svo að við höfum hugsað okkur, Ánny mín, að láta þig ákveða þetta. Hvað sem þú seg ir, elskan . r . . Hún þagnaði og tungan — sjálfsagt klofin tunga — lék um efrivörina á henni. — Vitanlega er þetta nú ekki eins mikið vandamál, af því að við höfum þetta síðasta bréf hennar Normu í höndun- um eða finnst þér það? Mér finnst sannarlega, að við ætt- um að fara að eins og bréfið seg ir fyrir um. Ég býst nú við, að Ronnie hafi lesið byrjunina á því, elskan, en svo er svo margt fleira 1 því..... — Fleira? Orðið vár dottið út úr mér áður en ég vissi, en ég gat bara ekki að því gert. Fallega höndin á Sylviu með frammjóu fingrunum færðist upp að hálsinum á henni, rétt eins og hún ætlaði að stinga sér undir smaragða-hálsfestina. En svo hélt hún áfram, og fram hjá bollunni hennar Cleonie og greip veskið. Hún smellti upp lásnum og kíkti ofan í það, og ekki einu sinni að líta á blaðið til þess að sjá, að þarna var komin önnur ljósmynd. Hún hallaði sér fram fyrir Cleonie og veifaði blaðinu að mömmu. dró síðan mjúklega upp saman brotna pappírsörk. Ég þurfti — Annie elskan, finnst þér ekki ég ætti að lesa þetta fyrir þig. Ég er alveg viss um, að það getur hjálpað þér til að ákveða þig. Vitanlega er þetta algjört einkamál. Ættum við ekki að koma inn í svefnherbergið? — Þið afsakið okkur, elskurn ar mínar? Við komum aftur í hvelli og þá skulum við, Ronnie elskan, fara að eins o-g hún Anny segir okkur. Hún stóð upp og veifaði blað- inu framan í okkur en þó eink- aniega Cleonie. En þá þaut Ronnie' upp og sneri sér að mömmu. — Anny, hún hefur ekki einu sinni lofað mér að lesa það. Hún....... En mamma bara lagði hönd- ina á handlegginn á honum og fylgdi Sylviu til svefnherberg- isins, orðalaust. Þessi stund meðan þær voru í svefnherberginu var hrein- asta kvöl ekki einasta fyrir Ronnie og mig, heldur einnig fyrir hin, sem voru líka farin að skilja málið og fá nóg af. En Ronnie var sannarlega stórkost- legur. Einhvernveginn tókst honum að eiga langt samtal við Cleonie um einhverja frænku hennar sem var nýbúin að gifta sig í Philadelphia. Og loks eftir stundarfjórðung komu þær aft- ur, mamma og Sylvia. Ronnie sneri sér að mömmu með æðisgenginn vonarsvip í augunum, en vonin hvarf brátt úr svipnum, og mín von um leið, þegar ég sá þær báðar. Mamma gekk eins og stúlkan í Desert Wind, eftir að hún hafði ákveðið að gerast nunna og Sylvia var, þrátt fyrir megurð- ina einna líkust bóaslöngu, sem er nýbúin að gleypa heiian vatnavísund. Um leið og þær nálguðust okkur, leit hún sigrihrósandi á mömmu. Mamma hreyfði eng- um andmælum en gekk til Ronnie. — Ronnie minn, sagði hún daufri röddu, — þetta er erf- itt. Auðvitað er það erfitt. En ég held, að þetta sé rétt hjá henni Sylviu. Ég held, að Norma mundi hafa skilið það, ef þið flygjuð til Mexico á morgun og........ — Já, en, Anny......... — Nei, elskan mín. Það er allt ákveðið. Ég get ekki...... Ég á við, að .... Og það var rétt eins og hún þyldi ekki að horfa á hann leng ur,því að hún sneri sér á hæli frá honum. Og innan fimm mínútna vorum við öll þotin út úr íbúð 32. Jafnskjótt sem við vorum komin inn í höllina okkar hvarf mamma inn í svefnherbergið sitt. Lukka og Pam voru upp- fullar af forvitni og spurning- um, en mér tókst að sleppa frá þeim og barði á dyr hjá mömmu. — Það er ég, mamma. — Nikki? Nikki, elskan? Ég gekk inn. Hún sat á rúm- inu. Ég gat varla séð hana fyr- ir blómum, sem Steve Adriano lét bera þarna inn daglega. Ég gekk yfir til hennar og um leið og ég settist við hliðina á henni vafði hún mig örmum og þrýsti mér að sér. Ég hafði aldrei vitað til þess, að mamma gæti grátið. Ég á við, að ef ég hefði nokkurn- Royal instant pudding , pii riuiHC k, -'yvvv Unffir og aldnir njóta þess að borða köldu Royal búðingana. Bragðtegundir: — Súkkulaði. karamellu, vanillu og jarðarberja. tíma hugsað um það, þá hefði ég komizt að þeirri niðurstöðu að hún ætti alls ekki til þessa kirtla, eða hvað það nú er, sem menn gráta með. Mér leið al- deilis fjandalega. — Æ, vertu ekki að gráta, mamma! — Já, en ég elska hann, Nikki! — Mamma! — Ég veit, að þetta er vit- leysa. Hvernig ætti ég að geta elskað nokkurn, eftir öll þessi ár? En veslings bjáninn hann Ronnie! Hvað hef ég gert hon- um! Hvað ég hef reynzt hon- um hræðilega illa! Hún þrýsti mér enn fastar að sér, en lét svo fallast aftur á bak og gróf andlitið í kodd- unum. Rúmfötin voru auðvitað ljósrauð. Steve Adriano hafðá haft vit á að láta mömmu fá ljósrautt svefnherbergi. Um stund sat ég bara og horfði á hana með armæðusvip, en allt í einu datt mér í hug, að þrátt fyrir allt ósamkomulag, hafði mamma alltaf verið hellubjarg- ið í öllu lífi mínu. En þegar það hellubjarg var hrunið, hvar stóð ég þá? — Gaztu ekkert gert, mamma? Eitthvert uml heyrðist úr koddunum: — Það var ein blaðsíða til! — Ég veit það. — Sylvia trúði ekki Denker almennilega, og setti bara fyrri blaðsíðuna í skápinn hjá hon« um. Hina síðuna — frumritið — geymir Jiún þar sem við mun- um aldrei finna það. Ó, þessi andstyggðar kerling! — En þarf Ronnie endilega að giftast henni, mamma? — Já, elskan mín. Já. — En hvað stóð á seinna blað inu? — Og, það er svo hræðilegt. — Um hann Ronnie? Hún þagði lengi en tautaði svo, og það var tæpast, að ég heyrði það: — Um mig. — Um þig? Nú, þú átt við þessa leynilegu giftingu þína og höfðingjans? Hún hreyfði höfuðið. Augun höfðu verið lokuð, en nú lyft- ust löngu augnhárin upp og sigu svo jafnskjótt aftur. — Ó, Nikki, ef þú bara hefðir séð hana meðan hún var að lesa ljósmyndina af bréfinu! Þessi andstyggilegi sigursvipur á henni! — Ég fer til Mexico á morgun, elskan, sagði hún, — eða þá þú ferð í steininn fyrir tetíma. Það væri rétti tíminn. Heldurðu, ekki, að það mundi vekja eftirtekt: „Anny Rood handtekinn rétt fyrir sigur sinn í Las Vegas, fyrir morðið á Normu Delaney“. — Að þú verðir handtekin! æpti ég. — En, mamma, hver heldurðu, að trúi því, að þú hafir farið að myrða hana, bara til að giftast honum Ronnie. Hvað ef maðurinn þinn fyrr- verandi hefur gerzt sekur um tvíkvæni? Það var ekki þér að kenna. Þú hefur ekkert gert af þér. Þú......En svo komu, mér til mikillar skelfingar, allar þessar ónærgætislegu grun- semdir aftur upp í hugann. — Var ekkert annað í bréfinu, mamma?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.