Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 30
MQRGUNBLAOID Þriðjudagur 28. sept. 1965 ..................................................................................................................... ........ Keflavík l\lýr úrslitaleikur rnilli KR — Akraness KR-ingar heppnir að ná jafntefli og aukaleik ÞRIÐJA LEIKNUM, sem hefði getað bumdið enda á íslands- mótið, lyktaði á sunnudaginn þannig, að lok mótsins eru enn ráðgáta. Á sunnudaginn skildu lið KR og ÍBK jöfn en sigur fyrir annað hvort liðið hefði þýtt lok mótsins. Fyrra sunnu- dag vann ÍBK lið Akraness, en sigur Akraness, eða jafnvel jafntefli, hefði þýtt sigur í mótinu fyrir Akranes. Og loks hefði KR getað bundið endi á mótið með leiknum við Akra- nes — en þá gekk allt í baklás hjá KR og liðið tapaði 1—4. En nú standa þeir einir uppi gömlu „vinirnir“ eða gömlu keppinautarnir, KR og Akranes og heyja hreinan úrslitaleik næsta sunnudag. En leikur KR og ÍBK var einn skemmtilegasti leikur sum- arsins, haráttuleikur sem úrslitaleikur væri, og spennandi eins og hvort liðið um sig gæti unnið íslandsbikarinn. En það gátu aðeins KR-liðið í þessum leik, og því kom hin óvænta barátta Keflvíkinga í síðari hálfleik jafn óvænt og rauðber á rjómaköku frá ísl. bakara. Strax í upphafi leiksins voru Keflvíkingar ágengnir og áttu mun meira í leiknum fyrsta stundarfjórðunginn. En þeim tókst aldrei að skapa góð faeri — aðeins spil að vítateig og þar féll allt í kyrrstöðu. KR-ingar á.ttu færri upphlaup og þau einkenndust mjög af þeim leik er KR-liðið hefur tekið upp í sumar — með langspym- um fram völlinn og síðan á Bald vin miðherji að sjá um enda- hnútinn. Aðferð þessi hefur gefið KR mörg mörk, einkum fyrst í sumar, þegar hún var óþekkt, en um leið hefur hún drepið niður allan samleik í framlínunni til stórskaða fyrir liðið. Gangur leiksins. Keflvíkingar áttu strax í byrj- un meira í leiknum. Samleikur þeirra úti á vellinum var betri en KR-inga en Keflvíkingar megnuðu ekki að gera sér mat úr þeim ótal upphlaupum er þeir hófu að marki KR. En KR átti oft sínar sóknar- lotur í fyrri hálfleik. Kom það íyrst og fremst af leikaðferð KR — að senda langspyrnur fram og treysta á L. og B. í heild átti Keflavík ekki minna í fyrri hálfleik, knatt- spyrnulega séð. Tækifærin voru hins vgar KR-inga en 2—0 voru of mikil uppskera miðað við leik inn. í síðari hálfleik réðu Kefl- víkingar lögum og lofum. Á 23 mín. sneru þeir taflinu við^ og voru komnir í forystu 3—2. Þeir Það er ekki lítil ferð á Bjarna í heild séð áttu þeir leikinn. KR ingar máttu hrósa happi að ná jafnteflj. Eftir öllum gangi leiks ins hefði hann fremur átt að enda 4—3 fyrir Keflvíkinga. Dómari í leiknum var Hannes Þ. Sigurðsson og var alls ekki nógu ákveðinn. Þegar í fyrri hálf leik tók hann leikinn ekki nógu föstum tökum og voru dómar hans of óákveðnir. í síð- i hálfléik galt hanri" þess. Þá færðust brotin til hins grófara. Það kom vítadómur, sem hann réttilega dæmdi, og annar, sem hann og dæmdi — en undirrit- aður telur hinn þriðja gegn KR hafa verið jafn augljósan og hina enda bróðirinn fallinn og allt í voða. — Myndir Sveinn Þorm. 16. mín- Ellert er með knöttinn á vallarhelm. KR. Baldvin kall- ar, veifar og hleypur af stað. Ellert hlý'ðir kallinu. Boltinn svif ur yfir varnarleikmenn IBK sem standa út undir miðju. Þá þegar hefur Baldvin hlotið 5 m forskot að minnsta kosti. Magnús Péturs son sem var línuvörður .veifar ekki rangstöðu þó sumum þætti um rangstöðu að ræða. Baldvin óð upp völlinn óáreiddur og átti aúðvelt með að skora- Á 34. mín urðu mistök í vörn IBK. Varnarmenn áttu tækifæri til að hreinsa en tókst ekki og leikurinn barst inn í teiginn þar sem „nýliðinn” Einar ísfeld lék að marki og skoraði. Svona öruglega lá vítaspyrna Högna í marki KR réðu gangi leiksins á öllum þeim tíma og misstu af tækifærum, sem hefðu tryggt þeirra sigur. Enska knattspyrnan 10. UMFERÐ ensku deildar- keppninnar fór fram sl. laugar- dag og urðu úrslit leikja þessi: 1. DEILD: Arsenal — Manchester U. 4-2 Aston Villa — Tottenham 3-2 Burnley — W.B.A. 2-0 Cíhelsea — Newcastle 1-1 Leeds — Blackburn 3-0 Liverpool — Everton 5-0 Northampton — Sheffield W. 0-0 Slheffield U. — Leicester 2-2 Stoke — N. Forest 1-0 Sunderland — Fulham 2-2 West Ham — Blackpool 1-1 2. DEILD: Bolton — Birmingham 1-2 Bristol City — CJhardiff 1-1 Charlton — Huddtrsfield 0-2 Coventry — Carlisle 3-2 Manchester City — Derby 1-0 Norwich — Ipswich 1-0 Piymouth — Mjddlestorough 2-2 Portsmouth — Leyton O. 4-1 Preston — Crystal Palace 2-0 Roterham — Southampton 1-0 Wolverhampton — Bury 3-0 í Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi: Celtic — Aberdeen 7-1 Dundee — Rangers 1-1 Dunfermline — Kilmarnock 1-0 St. Mirren — Dundee U. 1-2 Staðan er þá þessi: 1. DEILD: 1. Burnley 14 — 2. Leeds 14 — 3. Sheffield U. 14 — 4. W.B.A. 13 — 5. Stoke 13 — tvo, en hann var ekki dæmdur. En að dæma slíkan leik er ekki heiglum hent, en Hannesi varð á --- aldrei slíku vant — að taka ekki leikinn ákveðið þegar í upp hafi — og það réði framhaldinu. 2-0 var ststðan í hálfleik. Á 5. mín. síðari háhfl. Þá brást vörn KR gersamlega. Jón Jóh- komst í ágætt færi fyrir miðju marki en missti af oig Rúnar náði tækifærinu og afgreiddi me'ð föstu jarðarskoti í netið. 2-1. ” Á 12. mín átti Jón Jóth. skot I þverslá, eftir mjög gott upphlaup IBK. Á 17. mín eiga Keflv. upp- hlaup- Jón Ólafur sendir fyrir frá hægri og Jón Jóh. er í góðu færi — en boltinn fer himinhátt yfir. Á 20. mín hefur Sig. Alberts- son upphlaup á miðju. Hann send ir fram miðjuna, það verður þvaga við KR markið og vörnin er í upplausn. Jón Jóhannessoa nær knettinum og skorar. Á 23. mín er dæmd vítaspyrna á KR fyrir brot gegn Jóni Jóth- Högni skorar öruglega. Á 32. mín er dæmt víti á IBK Jyrir brot Ólafs Marteinssonar, Ellert Schram skorar öruiglega og jafnar fyrir KR og trygg'ði með þvi marki aukaleik við IA, því fleiri urðu mörk ekkL , Liffin KR liðið reyndist alls ekki eins Framh. á bls. 31 Þióðverjor unnu Svíu 2-1 SVIAR töpuðu fyrir Þjóðverj- um í knattspyrnu í Stokkhólmi á sunnudaginn með 1—2. Þar með er eiginlega lokið möguleik- um Svía til að komast áfram í heimsmeistarakeppninni —- 1 úrslitakeppnina og er þeim að sjálfsögðu sárt þar eð lið þeirra varð nr. tvö í lokakeppninni 1953 — en þá fór hún fram í Sví- Þjóð. ^ Jón Ólafur t.h. fær sigraff Heim i og sent fyrir. Hörffur er of seinn — Jón Jóh, skorar í tómt mark. Jafntefli hjá Dön- um og Norðmönnum NOREGUR og Danmörk skildu jöfn í knattspyrnulandsleik á sunnudag. Bæði liðin skoruðu tvö mörk. í fyrri hálfleik áttu Norðmenn leikinn og NTB frétta stofan segir að réttlát úrslit hálfleiksins hefðu verið 5—1 en þau urðu 2—1 Norðmönnum í vil. í siðari háifleik tókst Dön- um að jafna. Með þessum úrslitum hlutu Danir sigur í keppni Norður- landaþjóðanna fjögurra í ár. Norðmenn og Danir háðu 4 leiki A, B, unglinga og drengja- keppni um síðustu helgi. Héildar úrslit í mörkum . urðu 15—10 fyrir DanL . . . og Keflvíkingar fagna, en KR-ingar eru heldur niffurlútir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.