Morgunblaðið - 04.12.1965, Blaðsíða 19
Laugardagur 4. des. 198S
MORCU N BLAÐJÐ
19 .
Nelly Sachs hlýtur friöarverðlaun
þýzkra bókaútgefenda
„Ég trúi á hina nýju kynsfób
Þýzkalands" — segir skáldkonan
NELLY Sachs, 74 ára þýzkur
rithöfundur af gyðingaættum
sem býr í Svíþjóð hefur verið
veitt friðarverðlaun þýzkra
bókaútgefenda og bóksala.
Hún meðtók verðlaunin við
sérstaka athöfn, sem fram fór
í Páiskirkjunni í Frankfurt.
Þetta er í fimmtánda skiptið,
sem verðlaun þessi eru veitt,
en í fyrsta skipið, sem kven-
maður hlýtur þau. 1 skjali því,
sem fylgdi verðlaununum,
stóð meðal annars: „Rit Nelly
Sachs eru tileinkuð þeim
þjáningum, sem Gyðingar
gengu í gegnum á ómannúð-
legu tímabili, og reynir hún
að samræma eiginleika Þjóð-
verja og Gyðinga".
Nelly Sachs er fínigerð smá-
vaxin og virðist vera brothætt.
En orð hennar búa yfir meiri
þrótti en margra karlmanna.
í einni setningu dregur hún
saman innihald og eiginleika
allra sinna ljóða:
„Við sem höfum meðtekið
náðargjöf orðsins, rífum það
upp með rótum, sendum það
út um gjörvallan heiminn,
svo það megi varpa geislum
og beina duldum öflum sínum
í þeirri einu baráttu, sem
framkallar bros- en ekki tár;
baráttunni fyrir friði“.
Hvernig gat Nelly Sachs,
sem árið 1940 varð að hrekjast
vegna nazistanna úr fæðingar
borg sinni Berlín, tileinkað sér
þennan „samMjóðan söngs-
ins?“ Svar hennar er: ,,Líf
mitt var svo sundurtætt af
þjáningum, að það eitt, að
Nelly Sachs.
finna orð til að túlka það sem
ég hefði að öðrurn kosti látið
ósagt, var sem ég sökkti mér
sjálfri í eldhaf. Skriftir voru
mér sem hljóður grátur. Ég
skrifaði vegna þess að mér
fannst ég verða að frelsa sjálfa
mig, og mér tókst það. Á sama
tíma fannst mér það vera
skylda mín að hjálpa til við
byggingu.hins nýja húss ....
Skáldkonan trúir á þetta
nýja hús. Hún opinberar djúp
ar kvenlegar* tilfinningar þeg-
ar hún segir: „Við mæður
syngjum óð friðarins til sér-
hvers hjarta í heiminum“.
Þegar hún lítur til baka, er
henni ljóst að það var þessi
skilningur sem hjálpaði
henni. Vegna þess er hið ótrú-
lega orðið að veruleika; hún
er komin til Þýzkalands aftur.
„Ef ég hef í dag yfirbugað
þann ótta, sem ég hef borið
varðandi aftunkomu til Þýzka
lands, þá er það ekki ein-
göngu vegna friðarverðlaun-
anna. Ég kom til að segja
hinni nýju kynslóð Þýzka-
lands, að ég trúi á hana, og sú
trú yfirstígur alla þá hörmu-
legu atburði sem skeð hafa.
Við skulum í sameiningu
minnast fórnarlamibanna og
leitast við að finna þann fagra
draum, sem í hjörtum okkar
getur orðið að verulei:ka“.
Utan úr heimi
Framhald af bls. 16
Þótt Berry læknir sé höfund
ur bókarinnar „Psychophysio-
logical Aspects of Space
Flight" ásamt Saul Sells, pró-
fessor við sálfræðideild Texas
Christian University, er hann
ekki flugmaður. Berry ferðast
mikið flugleiðis en stjórnar
ekki flugvél. Honum finnst
það hlutverk strákanna, sem
alltaf eru a ðfljúga.
Berry kemst ekki yfir nærri
allt, sem hann vildi gjarna
gera. Hann er að rita bók, og
sífellt er verið að biðja hann
að skrifa greinar í læknablöð;
hann starfar fyrir kirkjusöfn-
uð skammt frá heimili sínu,
og auk þess flytur hann oft
fræðsluerindi í ýmsum félaga-
samtökum.
EDES-BENZ
LP 1413
Vél 140 hestöfl
Burðarmagn 9,8 lonn á gpind
Míöstöö, mötorhemiil, vökvastýri, tvl-
skípt drif, driflás, styrkt grind, styrktar
ffarðir, sturtudrif, ruöusprauta, horn-
gluggar, breiddarljós.
RÆSIR H-F
Hann hefur auga og eyra
fyrir broslegum atvikum —
einnig þeim, er snerta hann
sjálfan, enda glaðlegur maður
í viðmóti. Þegar hann er meðal
vina, ber hann oft fram skarp
legar athuganir. Áfengis neyt-
ir hann hóflega og reykir ein-
göngu pípu eða vindla.
Berry læknir er laglegur
maður, spengilegur á velli, um
180 cm. á hæð en sýnist lægri
Hann stundar hæfilega líkams
þjálfun, en hefur þó tamið sér
það, sem erfiðara er — hóf-
semi. Á þann hátt telur hann
sig færan um að vera ef til
vill meira fyrir geimfarana
en vinur, læknir og leiðbein-
andi — einnig gott fordæmi.
(Lauselga þýtt úr
The Evening Star).
Trját>örfin i
Afriku tvöfald-
ast á 15 árum
Afríkubúar munu hafa þörf
fyrir tvöfalt meira tré árið
1975 en árið 1960. Á sama
tíma minnka skógasvæði álf-
unnar, én það hefur aftur á-
hrif á veiðidýrastofninn og
þar með á ferðamannastraum-
inn, og getur það skapað ýmis
vandamál. Þetta kom fram á
ráðstefnu sem nýlega var
haldin í Naíróbí í Kenýa. Hún
fjallaði um horfurnar í skóg-
ariðnaði Afríku og kom sam-
an að tilhlutan FAO og Efna-
hagsnefndar SÞ fyrir Afríku
(ECA).
í álfunni er samt víðáttu-
mikil gróðurlaus svæði, sem
eru ágætlega fallin til skóg-
ræktar, og er þörf að hagnýta
þessi svæði, að því er ýmsir
fulltrúar á ráðstefnunni sögðu
og lögðu áherbzlu á.
— Sjolokov
Framhald af bls. 6.
gætu skrifað það, sem þeir
vildu, „þess vegna gat ég
skrifað „Lygn streymir Don“.
En rithöfundar verða að gera
sér grein fyrir iþví, hvað þeir
vilja skrifa og hvers vegna“,
sagði hann. Bætti Sjolokov
því við, að hann hefði mætur
á þeim rithöfurídum, sem sæju
Sovétríkin í réttu ljósi og
gæfu bækur út í heimalandi
sínu en ekki erlendis. „Ég
skrifaði mitt aðalverk af
sósíalísku raunsæi, en er þó
alls ekki andvígur sanngjörn-
um nútimastefnum“, sagði
hann að lokum.
NTB - AP: —
LANDVARNARÁÐHERRA
Indlands; Y. V. Chavan skýrði
svo frá á fundi indverska
þingsins í dag, að kínverskir
hermenn hafi á síðustu tíu
vikum farið 33 sinnum inn á
indverskt landssvæði í Hima-
layufjöllum. Sagði ráðherr-
ann, að svo væri að sjá sem
yfirtroðslur þessar væru gerð
ar samkvæmt fyrirfram ákveð
inni áætlun og aukinn styrk-
ur Kínverja á landamærun-
um hlyti að vekja tortryggni
Indlandsstjórnar, enda mundi
hún verða vel á verði gegn yf-
irgangi Kínverja.
Á MORGUN verður leikritið Aft-
urgöngurnar sýnt í 15. sinn í Þjóð
leikliúsinu. Er það næst síðasta
sýningin á leiknum. — Myndin
er af Gunnari Eyjólfssyni og Gu8
björgu Þorbjarnardóttur í hlut-
verkum sínum.