Morgunblaðið - 04.12.1965, Page 30
so
MORCUN BLADID
LaugardagUT 4. des. 1965
Iþrdttahöllin nýja tekiní notkun
Þar
lelka í dag urvalslið Reykjavikur
og tékkneska liðið Karviná
+ SMEKKLEYSA
Hins vegar kemur það spaugi-
lega fyrir að í 52. síðu leikskrár,
sem Fram gefur út í sambandi
við fyrstu fjóra leikina, er fram
fara í hinni nýju og glæsilegu
íþróttahöll, skuli byggingarsögu
hennar, tilgangi eða neins annars
í sambandi við hana ekki vera
getið.
Með tSlkomu hallarinnar er
blað brotið í iþróttasögu
landsins
f DÁG er brotið blað í íþróttasögu landsins. Tekin er í notkun
í fyrsta sinn íþróttahöll, sem fullnægir ströngustu skilyrðum
alþjóðlegs mælikvarða. Erlent lið í fremstu röð félagsliða,
leikur við úrval Reykvíkinga, en Reykjavíkurborg á meiri-
hluta í hinni nýju og glæsilegu íþrótta- og sýningarhöll, sem
opna mun Reykvíkingum almennt og einnig hópum sem
íþróttafólki og iðnaðarfólki svið til aukins frama og jafn-
réttis á við íbúa annarra borga Evrópu.
* GLEÐIDAGUR
í dag mun úrvalslið Reykja-
víkur í handknattleik stíga til
leiks í nýju íþróttahöllinni í
Laugardal og verða Reykvíking-
ar á þann hátt fyrstir til að keppa
við samskonar aðstæður og er-
lend lið hafa haft í áratugi og
fullgildir teljast og krafizt er að
alþjóðalögum íþróttahópa. Dags-
ins í dag mun lengi minnzt. Um
langt árabil hafa forystumenn í-
þróttamálanna barizt fyrir upp-
fyllingu þess draums, er nú ræt-
ist. Þetta er gleðidagur íslenzks
íþróttafólks.
Kl. 4 síðdegis mætast í kapp-
leik úrvalslið Reykjavíkur og lið
tékkneska liðsins Karviná, sem
hér gistir í boði Fram.
Lið Reykjavíkur, sem fyrst ís-
lenzkra liða treður inn í hina
glæsilegu íþróttahöll, er þannig
skipað:.
Þorsteinn Björnsson, Fram.
Helgi Guðmundsson, Víking.
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram.
Karl Jóhannsson, KR.
Hörður Kristinsson, Ármann.
Þórarinn Ólafsson, Víking.
Guðjón Jónsson, Fram.
Sigurður Óskarsson, KR.
Stefán Sandholt, Val.
Sigurður Einarsspn, Fram.
Hermann Guðmundsson, Val.
Dómari þessa fyrsta leiks í f-
þróttahöllinni er Magnús V. Pét-
ursson.
+ NÆSTILEIKUR
Á sunnudaginn verður annar
leikur sömu heimsóknar á sama
stað. Þá leika gestir Fram við
íslandsmeistara FH og má þar
vænta jafnvel enn harðari átaka
af fslendinga hálfu, því FH hefur
nú undanfarið þjálfað með þátt-
töku í Evrópubikarkeppni fyrir
augum.
Það má því með sanni segja að
telja má átök vís þegar í fyrstu
leikjunum í íþróttahöllinni nýju
og víst mun það ósk og jafnvel
vissa fjöldans, að þar muni í
framtíðinni fram fara átök hörð
til eflingar íslenzkrar íþrótta-
æsku.
Myndir þessar eru frá leik
Tékkanna og KR. Tékkarir
unnu þann leik með 28 gegn
25.
Á ld myndinni sézt er Chin-
er er helzt tii um of harkaleg-
ur í vöm.
Á hinni stærri sézt er Sig-
urður Óskarsson einn bezti
línuleikmaður landsins reyn-
ir skot, en gripið er til hans
heldur óþyrmilega og „allt fer
í vaskinn“. Það er vandi að
vera dómari í slíkum leik.
1. des. var góöur dagur hjá ung-
um ÍR-ingum í körfuknattleik
UNGLINGARNIR i körfuknatt-
leiksmótinu héldu upp á skóla-
fríið sitt 1. desember með nokk
uð skemmtilegum leikjum að
Hálogalandi. 1 4. flokki léku KR
og IRa og fóru 1R ingar með
sigur af hólmi 24—4, og ÍRb sigr-
aði Ármann a einnig 4 fiokki
með 28—8, þannig að 1. desember
hefur verið góður dagur hjá þess
um ungu ÍR ingum. Þriðji flokk-
ur IR átti ekki sama gengi að
fagna þennan dag, þar töpuðu
þeir stórt fyrir KR 68—5. í 2.
aldursflokki voru tveir skemmti
legustu leikimir þennan dag.
Sigruðu Ármenningar þar KFR
46—38 í fjörugum leik og KR
vann ÍRb nokkuð óvænt 47—40.
4 fl. ÍRa—KR 24—4
Frá upphafi var einsýnt að ÍR
yrði yfirburðasigurvegari í leikn
um og var aldrei um neina^
keppni að ræða. Flest stig skor-
uðu hjá ÍR þeir Guðmundur 10
og Gunnlaugur 8.
4. fl. iRb—Ármann 12—8.
Annar leikurinn var milli Ár-
manns og b-liðs ÍR og var hann
nokkuð jafn. ÍR tókst að ná fjög-
urra stiga forskoti í fyrri hálfleik
og úr því skiptust liðin á að
skora og endaði leikurinn eins og
fyrr segir 12—8, og tókst Ár-
menningum aldrei að jafna þenn
an fjögurra stiga mun frá fyrri
hálfleik. Hjá ÍR skoruðu Tómoas
og Þorsteinn sín sex stigin hvor,
en Guðjón sex af átta stigum Ár-
manns.
3. fl. KR—ÍRb 68—5.
Þessi leikur var algjör ein-
stefna að körfu ÍR inga og var
um hreinan sýningarleilk að ræða
eins og markatalan gefur glögg-
lega til kynna. Flest stig hjá KR
skoraði Örn eða 20.
2. fl. Ármann—KFR 46—38.
Leikur þessara liða var að
-öllum Mkindum úrslitaleikur um
annað sætið í mótinu, því ÍR liðið
er ta-lið nokkuð öruggt um sigur
og ganga þessi tvö lið næst því
að styrkleika. Var allgóð bar-
átta í þessum leik og höfðu Ár-
menningar forskot í hléi 24:17.
Siðari hálfleikur var öllu jafnari
og náðu KFR ingar að jafna tví-
vegis 32:32 og 34:34, en Ármann
var sterkari á endasprettinum og
sigraði 46:38 og skoraði Halldór
6 af síðustu stigunum og tryggði
liði sínu sigur. Flest stig skor-
uðu fyrir Ármann Rúnar 18 og
náði hann einnig fjölda frákasta
og Hallgrímur 14. Hjá KFR var
Þórir beztur með 26 stig en liðið
var veikara en venjulega því
Rafn vantaði og var þá lítið um
að liðið næði fráköstum í sókn.
2. fl. KR—ÍRb 47—40.
Þetta var allskemmtilegur
leikur og komu KR-ingarnir á
óvart með þessari frammistöðu
því ÍR-liðið er sterkt þó b-lið
sé. í hálfleik var staðan 20:19
fyrir KR og tókst þeirn að auka
þetta forskot í seinni hálfleik
noktouð örugglega með 47 stigum
gegn 40. Var leikurinn vel leik-
inn og fjörugur. Flest stig skor-
uðu Þorlákur hjá ÍR 18 og Stefán
10 hjá KR.
Úrslit
í kvöld
í KVÖLD verður Reykjavíkur-
mótið í körfuknatitleik til lykta
leitt 1 meistaraflokki karla en
iþá leika KR og KFR, en KFR
hefur sigrað alla sína keppinauta
aðra en KR og KR er talið lík-
legt til þess að ganga með sigur
af hólmi gegn ÍR og Ármanni, en
leikjum þeirra er ölokið enn.
Verður væntanlega um skemmti-
lega keppni að ræða í tovöld
að Hálogalandi. KFR hefur
komið á. óvart á þessu móti,
og getur vonandi velgt ís-
landsmeisturum KR undir ugg-
unum. Tveir aðrir leikir fara
fram í kvöld milli KR og Ár-
manns í 2. flokki karla og IR og
ÍS bítast í meistaraflokki.
Skíðamótin
í Reykjavík
í vetur ákveðin
SKÍÐAMÓT veturinn 1966 hafa
nú verið ákveðinn, og verða sem
hér segir:
Milli jóla og nýjárs, Múllermót
við Skíðaskálann í Hveradölum.
Skíðafélag Reykjavíkur sér um
mótið.
9.. 16., og 23. janúar: Innantfé-
lagsmót félaganna ásamt undan-
rás í firmakeppni Skíðaráðs
Reykjavíkur.
30. janúar: Úrslit í firmakeppni
Skíðaráðs Reykjavíkur í Jósefs-
dal. Ármann sér um mótið.
12. og 13. febrúar: Stefánsmót-
ið í svigi og stórsvig Ármanns.
20. og 27. febrúar og 6. marz:
Reytojavíkurmót í svigi, stórsvlgi
o.f-1. Skíðadeild ÍR mun sjá um
mótið, sem haldið verður I
Hamragili við fR-skálann.
20. marz: Mót í Voss í Noregl.
Stefánsmótinu er óráðstafað
sem stendur.
Um páskana verður landsmótið
haldið á ísafirði og um hvíta-
sunnuna verður Skarðsmót á
Siglufirði. Um síðustu helgi í
júií mun 'að öllu forfallalausu
fara fram Kerlingarfjallamót..
Á næstunni munu skíðafélögin
í Reykjavík leita til bæjarbúa
um aðstoð í samibandi við firma
keppni Skíðaráðsins. Hin ártlega
firmaikeppni er orðin fastur
liður í starfssemi skíðafélaganna
í Reykjavík, og vonast skíðafé-
lögin til að bæjarbúar bregðist
vel við, þegar stoíðadeildirnar
biðja þá um aðstoð á næstunni.
Forsala
og oðvörun
SALA aðgöngumiða að leik
Tékkana gegn Rvíkurúrvali og
FH er í bókaverzlunum Lárusar
Blöndal í Vesturveri og Skóla-
vörðustíg 2. Er vakin athygli á
að nota forsöluna til þess að kom-
ast hjá bið og þrengslum við inru
ganginn.
Við iþróttahöllina er takmark-
að bifreiðastæði en aðalbifreiða
stæðið verður við Laugardals-
völlinn.
Við innganginn verður seldur
takmarkaður fjöldi barnamiða.
Áhorfendur verða að aðgæta,
að íþróttahöllin er ekki fullgerð
og margt framlkvæmt til foráða-
foirgða. M.a. er parketið enn há-lf
unnið og eru áhorfendur áminnt-
ir um að ganga ekki út á salair-
gólfið.