Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 8
8 MORGU NBLAÐIÐ Miðvil«idagur 2. marz 1966 Stofnaður verði Listlaunasjóður Fyrirkomulagi á úthlufun listamannalauna verði hreylt f GÆR var mælt fyrir tveimur frumvörpum í efri deild, sem bæði miða að því að breytt verði núverandi skipulagi á fyrirkomulagi á úthlutun lista- mannalauna. Karl Kristjánsson (F) mælti fyrst fyrir sínu frumvarpi, en í því er gert ráð fyrir að stofn- aður verði sjóður, er nefnist Listlaunasjóður íslands og skulu verkefni hans vera, a. að veita viðtöku fé, sem Alþingi ákveð- ur á fjárlögum, að varið skuli úr ríkissjóði til listlauna, og öðru því fé, sem honum kann að berast í sama skyni, svo sem gjafafé. b. að greiða laun lista- manna ár hvert og c. að ávaxta listalaun, sem bíður úthlutun- ar, með því að geyma það í banka. í annarri grein frum- varpsins eru ákvæði þess efnis að árlega skuli veita fé til List- launasjóðs íslands, eigi minni fjárhæð í heild en 5 milljónum króna. Skal sundurliða fjárveit- inguna á fjárlögum til skálda og rithöfunda, myndlistarmanna, tónlistarmanna og leiklistar- manna. í þriðju grein eru ákvæði um launaflokka listlaunasjóðs og einnig um að laun úr Listlauna- sjóði skulu vera skattfrjáls. í fjórðu grein frumvarpsins er kveðið á um að úthlutun launa skulu hafa á hendi fjórar nefnd- balastore Stærðir 45—265 cm. Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13. S. 13879 -17172. Straumlokur í enska, þýzka og ameríska bíla. Sími 11984. Varahlutaverzlun * Jé. Olafsson & Co. Brautarholti 2 Sími 1-19-84. ir, sem úthluti hver fyrir sína listgrein. Skal úthlutunarnefnd skálda- og rithöfundalauna vera skipuð þannig: Menntamálaráð kýs einn mann og er hann for- maður nefndarinnar, Heim- spekideild háskólans tilnefnir tvo menn og Rithöfundasam- band fslands tvo menn. Úthlut- unarnefnd myndlistalauna skal þannig skipuð: Menntamálaráð kýs einn mann og er hann for- maður nefndarinnar. Félag ís- lenzkra myndlistamanna til- nefnir einn mann og Myndlista- félagið annan. Úthlutunarnefnd tónlistarlauna skal þannig skip- uð: Menntamálaráð kýs einn mann, og er hann formaður nefndarinnar. Félag íslenzkra myndlistarmanna tilnefnir einn mann_ og Myndlistafélagið ann- an. Úthlutunarnefnd tónlistar- launa skal þannig skipuð: Menntamálaráð kýs einn mann, og er hann formaður nefndar- innar. Tónskáldaféag fsands, Einsöngvarafélag íslands og Fé- lag íslenzkra tónlistarmanna skulu öll félagi tilnefna tvo menn. Úthutunarnefnd leikistar- launa skal svo þannig skipuð: Menntamálaráð kýs einn mann, og er hann formaður nefndar- innar. Bandalag ísl. leikara til- nefnir einn mann og Félag ís- enzkra leikdómenda einn mann. — Kjör til þessarra nefnda skal gilda til þriggja ára í senn. Gils Guðmundsson (K) mælti því næst fyrir sínu frumvarpL Eru helztu atriði frumvarps hans þau að gert er ráð fyrir nýrri skipan úthlutunarnefndar, Jóhann Hafstein dómsmálaráð- herra mælti í gær fyrir stjórn- arfrumvarpi um breytingu á um ferðarlögunum. Sagði ráðherra að þær tillögur er fram kæmu í frumvarpinu væru komnar frá rannsóknarnefnd umferðarslysa og umferðarnefnd. Gert væri ráð fyrir með frumvarpinu að sett yrðu ný ákvæði og strangari um ökuleyfi. Gert væri ráð fyrir að út yrði gefin bráðabirgða- ökuleyfi til byrjenda og giltu þau í eitt ár. Væri ekki nema eðlilegt að fylgzt væri með hvernig handhafa þessara skír- teina þ. e. byrjendur stæðu sig í umferðinni og væri slíkt væn- legt til að skapa aukið aðhald og koma betri skipan á. Þá væru einnig ákvæði þess efnis að lög- reglustjóra væri heimilt að láta menn sanna við endurnýjun ökuleyfa, að þeir hefðu fullnægt skilyrðum til þess að fá öku- leyfi. Væri flylsta ástæða til að hafa þetta ákvæði, og gæti það stuðlað að því að þeir er fengið héfðu ökuleyfi reyndu að gera sér bet.ur grein tyrir þeim nýj- ungum er yrðu í umferðarlög- gjöfinni hverju sinni. 4 herb. ibúð um 120 ferm. við Brekkulæk •er til sölu. Bílskúrsréttindi og sérhitalögn á nýju og góðu hitaveitusvæði. Uppl. í síma 1-93-95. þar sem þrír aðilar eiga fulltrúa. Háskóli íslands, löggjafarvaldið, og heildarsamtök listamanna. Tiltekinn fjöldi viðurkenndra listamanna njóti fastra lista- mannalauna á fjárlögum. Tiltek- inn fjöldi listamanna hljóti all- ríflega starfsstyrki í tvö eða þrjú ár. Stofnaður verði Listasjóður, sem styðji íslenzkt listalíf með ýmsum hætti. Heildarframlag ríkisins til stuðnings listum og listamönnum verði hækkað veru lega. Nánari ákvæði í frumvarpi Gils eru m. a. þau, að flokkar fastra listamannalauna á fjár- lögum skuli vera tveir. Allt að tíu mönnum skuli veita 120 þús. kr. árleg heiðurslaun ævilangt og allt að tuttugu mönnum 80 þús. kr. árlefe listamannalaim. Eigi skulu færri en 25 listamenn hljóta föst laun á fjárlögum ár hvert. Úr sjóði er nefnist Lista- sjóður Islands og tekur við fé því er Alþingi úthlutar, skal ár- lega úthluta starfsstyrkjum til listamanna. Skulu 5—10 lista- menn njóta starfsstyrkja að upp hæð 120 þús. kr. ár hvert og 15—20 listamenn starfsstyrkja að upphæð 80 þús. kr. Þá skulu einnig af tekjum Listasjóðs vera heimilt að verja fé til stuðnings listum og lista- mönnum t. d. með því að reisa, kaupa eða taka á leigu hús á hentugum stöðum, þar sem lista mönnum yrði boðið að dveljast um skeið við listsköpun og að skipuleggja og kosta kynningu og túlkun góðrar listar sem víðast um land. í efri deild var einnig tekið til 3. umræðu stjórnarfrumvarp- ið um kosningar til Alþingis og það afgreitt til neðri deildar. í annarri grein frumvarpsins væru svo ákvæði um að dómara væri ekki skylt að taka fyrir ökuleyfissviptingar sem lögreglu stjóri hefði ákveðið, nema við- komandi aðili krefðist þess. Þetta ákvæði gæti stefnt að því að flýta og koma betri skipan á þessi mál, en eins og málin hefðu staðið að undanförnu hefði meðferð þeirra tekið mjög langan tíma og þeir sem misst hefðu ökuleyfi hefðu haldið skírteinum sínum, unz þeir voru sviptir þeim með dómi. Málinu var síðan vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar. Ný mál f GÆR var lögð fram fyrirspurn frá Jóni Skaftasyni til ríkis- stjórnarinnar um almennan líf- eyrissjóð. Er fyrirspurnin þannig: Hvað líður undirbún- ingi löggjafar um almennan líf- eyrissjóð samkvæmt þingsálykt- un samþykktri 13. maí 1964? Einnig var lagt fram nefndar- álit frá heilbrigðis- og félags- málanefnd um breytingu á lög- um um Bjargráðasjóð íslands. f neðri deild voru í gær tekin fyrir til þriðju umræðu frumvörpin um iðnfræðslu og eignar og afnotarétt fasteigna. Voru bæði málin afgreidd til Efri deildar. Ný ákvæði verði sett I umferðarlöggjöfina T résmiðaf élag Reykjavíkur Allsherjar atkvæðagreiðsla um menn í stjórn og aðrar trúnaðarstöður í félaginu fyrir árið 1966 fer fram laugardaginn 5. marz kL 14—22 og sunnudaginn 6. marz kl. 10—12 og kL 13—-22. Kosið verður á skrifstofu félagsins að Lauf- ásvegi 8. KJÖRSTJÓRN. Félag kjólameistara Fundur verður haldinn fimmtudaginn 3. marz kl. 8,30 í fundarsal Iðnaðarmanna, Lækjargötu 10 B. Áríðandi mál á dagskrá. Kjólameistarar eru hvattar til að ganga í félagið. STJÓRNIN. Rakarasveinn óskast á rakarastofu í miðborginni nú þegar eða síðar. Tilboð merkt: „Rakarasveinn — 8381“ sendist afgr. Mbl. fyrir 6. þ. m. Atvinna óskast Ungur maður með samvinnuskólapróf óskar eftir atvinnu, er vanur bókara- gjaldkera- og öðrum skrifstofustörfum. Margt kemur til greina t. d. að sjá um bókhald fyrir fyrirtæki. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 5. þ.m. merkt: „8382“. Framtíðarstaða Ungur maður með góða verzlunarmenntun getur íengið mjög skemmtilegt framtíðarstarf við inn- flutningsverzlun. Umsóknir sendist Mbl. merkt: „Framtíð — 8695“. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar að ráða ungan mann eða stúlku til starfa við verðútreikn- inga, tollskjalagerð o. 11. Umsóknarfrestur er til 7. þ.m. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR. Skrifstofustúlka Óska eftir góðri skrifstofustúlku frá kl. 1—5. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Aldur ekki yngri en ca. 24 ára. Upplýsingar á skrifstofunni, en ekki í síma FASTEIGNASALA SIGURÐAR PÁLSSONAR byggingameistara og GUNNARS JÓNSSONAR lögmanns Kambsvegi 32. Jörð til sölu Krónustaðir í Eyjafirði eru til söluó Tilboðum sé skilað fyrir 15. marz n.k. Upplýsingar gefur ábúandi jarðarinnar. TRYGGVI GUNNARSSON Krónustöðum, sími um Saurbæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.