Morgunblaðið - 08.03.1966, Page 8
8
MORGU NBLADID
Þriðjudagur 8. marz 1966
----' FRÁ ALÞINGI:
2 frumvörp samþykkt
sem lög frá Alþingi
I neðri deild Alþingis voru I
gær þrjú mál á dagskrá. Voru
þau fruimvörp um kosningar til
Lyonsklúbbur
Búðardals færir
héraðinu gjafir
BÚÐARDAL, 7. marz. — Laug-
ardaginn 5. marz hélt Lyons-
klúbbur Búðardals sína árlegu
árshátíð (Konukvöld) á Staðar-
felli. Hófst það með sameigin-
legu borðhaldi og var formaður
Klúbbsins, Steinþór Þorsteinsson,
veizlustjóri. Skemmtiatriði önn-
uðst klúbbfélagar sjálfir. Gestir
voru boðnir velkomnir og þar
næst voru 5 nýir félagar teknir
inn. Síðan flutti Hallgrímur
frá Ljárskógum léttmeti, sem
var þula um Lyonsfélaganna. Þá
flutti Magnús Rögnvaldsson
minni kvenna. Síðan kom Björn
Guðmundsson kennari með frum
ortar gamanvísur. Þá var ávarp
sr. Ingibergs Hannessonar á
Hvoli. Milli skemmtiatriða sungu
Lyonsfléagar.
Er skemmtiatriði höfðu farið
fram og fólk búið að borða sig
satt af indælis kræsingum, sem
frú Ingigerður forstöðukona
Staðarfellsskólans undirbjó með
aðstoð námsmeyja, afhenti for-
maður gjafir frá klúbbnum. Var
sýslunni færð talstöð í sjúkra-
bíl, og veitti henni móttöku
Yngvi Ólafsson sýslumaður, sem
þakkaði fyrir hönd sýslubúa.
Þarnæst færði sr. Ingiberg
Hannesson skólanum á Staðar-
felli hrærivél með tilheyrandi,
sem frú Ingigerður veitti mót-
töku. Þakkaði hún þann hlýhug
sem henni og skólanum væri
sýndur, sagði að það, sem skól-
anum væri vel gert væri henni
og vel gert.
Síðan var staðið upp frá borð-
um og dans stiginn fram eftir
nóttu. Hófið var allt mjög
ánægjulegt. — Kristjana.
A X H U G I Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu,
ei' langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Alþingis 1. umræða, Bjargráða-
sjóður íslands 3. umræða og um
hafnargerðir 1. umræða.
Jóhann Hafstein dómsmálaráð
herra mælti fyrir frumvarpinu
um kosningar til Alþingis, og var
því frumvarpi að lokinni um-
ræðu vísað til annrrar umræðu
allsherjarnefndar. Frumvarpið
um Bjargráðasjóð íslands var
siðan samþykkt og afgreitt til
ríkisstjórnarinnar sem lög frá
Alþingi.
Gísli Guðmundsson (F) mælti
fyrir frumvarpinu um hafnar-
gerðir, en hann er flutningsmað-
ur þess auk 6 annrra Fram-
sóknarmanna. Gerir frumavrpið
ráð fyrir þvi að hafnar- og lend-
ingarbótas Xjðum sé skipt í 3
flokka, er nefnist A-flokkur, 3-
flokikur og C-flokkur. Skal skipt
ingin við það miðuð, að hafnar-
sjóðir hafi sem jafnasta fjár-
hagslega aðstöðu til þess að
koma upp undirstöðumannvirkj
um hafnargerðar. Vitamálastjóri
IMý mál
í gær var lagt fram á Al-
þingi stjórnarfrumvarp um með-
ferð, skoðun og mat á sláturaf-
urðum. Fjallar frumvarpið um
sláturhús og heilbrigðisskoðun á
kjöti, auk hins eiginlega gæða-
mats. Helztu breytingarnar sem
frumvarpið gerir ráð fyrir eru:
í gildandi lögum er ráðherra
heimilt að veita tmdanþágu til
slátrunar til eins árs í senn í
húsum, sem eru svo ófullkomin
að gerð og búnaði, að löggilding
getur ekki farið fram. í fram-
kvæmd hefði þetta orðið þann-
ig, að allmörg sláturhús hafa
ekki hlotið löggildingu, en þar
verið slátrað árum saman í skjóli
undanþáguheimildar.
Frumvarpið gerir hinsvegar
ráð fyrir því, að eigi megi veita
slikar undanþágur nema tvisvar
sinnum og þá til eins árs í senn.
Eftir það beri að loka slátur-
húsum þessum, unz þau hafa
verið lagfærð eða endurbyggð.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
að heimilt sé að láta fram fara
endurskoðun á k.jöti og slátur-
afurðum, ef viðkomandi heil-
brigðisnefnd eða yfirdýralæknir
telur ástæðu til. Segir í greinar-
gerð frumvarpsins, að þetta á-
kvæði ætti að veita nokkurt að-
hald um vandvirkni og aðgæzlu,
gerir, verði frumvarpið að lög-
um, rökstudda tillögu um skipt-
ingu hafnar- og lendingarbóta í
flokka, og einnig áætlun til
tveggja ára í senn um fram-
kvæmdir. Veita skal jafnframt
á fjárlögum fé til að standa skil
á ógreiddum framlögum fyrri
ára þannig, að greiðslum þessum
verði að fullu lokið 3 árum eftir
að frumvarp þetta verður að
lögum. Þá gerir frumvarpið einn
ig ráð fyrir því að ríkisframlag
til hafnar- og lendingarbótamann
virkja skuli. unz sett hafa verið
ný lög. vera sem hér segir. 1. Á
s jiðum í A-flokki 50% af kostn-
aði. Á stöðum í B-flokki 60% af
kostnaði og á stöðum í C-flokki
70% af kostnaði.
í efri-deild mælti Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra
fyrir stjórnarfrumvarpinu um
iðnfræðslu, en það frumvarp hef
ur, eins og áður hefur verið
skýrt frá, hlotið afgreiðslu neðri-
deildar. Þá mælti Jóhann Haf-
stein dómsmálaráðherra fyrir
frumvarpinu um eignarrétt og af
notarétt fasteigna, en aþð frum-
varp hefur einnig hlotið af-
greiðslu neðri-deildar. Að lokum
var tekið fyrir í efri-deild frum-
varpið um sölu eyðijarðarinnar
Hálshúss í Reykjafjarðarhreppi.
Var það þriðja umræða og var
frumvarpið þar með afgreitt til
ríkisstjórnarinnar sem lög frá
Alþingi.
þeim, er sjá um meðferð geymslu
og flutning sláturafurða.
Þá er einnig lagt til með frum
varpinu, að bráðabirgðaákvæði
varðandi heimaslátrun stórgripa
verði numið (!ir lögum.
í gær var einnig lagt fram
frumvarp um framleiðnilána-
deild við Framkvæmdabanka ís-
lands og eru flutningsmenn þess
frumvarps þeir Helgi Bergs,
Karl Kristjánsson, Hermann Jón
asson, Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Bjarnason og Ólafur Jóhannes-
son. Gerir frumavrp það ráð
fyrir að stofna við Framkvæmda
banka íslands lánadeild, sem
nefnist framleiðnilánadeild og
skal tilgangur deildarinnar vera
að veita atvinnuvegunum lán um
fram þau, sem fáanleg eru hjá
stofnlánasjóðum, í því sérsfaka
augnamiði að bæta framleiðnina
með aukinni véltækni, fullkomn
ari frameiðsluskipulagi og hag-
ræðingu.
Þá voru og lögð fram tvö
nefndarálit. Frá heilbrigðis- og
félagsmálanefnd efri-deildar um
frumvarpið um sveitarstjórnar-
kosningar og mælir nefndin með
því að frumvarpið verði sam-
þykkt og frá allsherjarnefnd
efri-deildar um frumvarpið ujn
meðferð opinberra mála. Nefnd-
in mælir með því að það frum-
varp verði samþykkt með lítils-
háttar breytingu.
— Stjórnar-
frumvarp
Framhald af bls. 28.
launahækkana, er urðu hér á
landi í árslok 1963, og sem tailið
var, að væru hraðfrystiiðnaðin-
um með öllu ofviða eins og þá
stóðu sakir. Á hinn bóginn var
útlit fyrir, að miklum árangri
mætti ná með endurbótum í
frystihúsunum, og myndu þær
endurbætur ásamt hækkandi
verðlagi á útfluttum afurðum
áður en langt um liði geta gert
frystihúsunum kleift að standa
undir þeim auknu framleiðslu-
kostnaði, sem af launahækkun-
unum leiddi.
Vonirnar, sem menn gerðu sér
um árangur endurbóta í frysti-
iðnaðinum og um hækkandi verð
lag erlendis, hafa að fulilu rætzt.
I ársbyrjun 1965 tóku frystihús-
in á sig að fullu 15% kauphækk-
unina frá 1963, þær viðbótar-
kauphækkanir, sem orðið höfðu
á árinu 1964 og þá 6% fiskverðs
hækkun, sem ríkissjóður hafði
greitt til bráðaibrgða á árinu
1964. Á hinn bóginn var ekki
talið fært, að leggja á frystihús-
in til viðbótar þessu þá 5%%
almennu hækkun fiskverðs, sem
ákveðin var þá af yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
Var því með lögum nr. 34/1965
ákveðið, að framlag til fram-
leiðniaukningar og annarra end-
urbóta í framleiðslu freðfisks
skyldi enn greitt á árinu 1965,
og skyldi það nema 33 millj. kr.
Athuganir þær, er yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins
gerði á afkomu hraðfrystihúsa í
sambandi við ákvörðun fiskverð
fyrir árið 1966, sýndu, að af-
koma frystihúsanna á árunum
1964 og 1965 hafði yfirleitt verið
góð, og bentu til þess, að frysti-
húsin myndu geta tekið á sig
5 Vz % fiskverðhækkunina frá
ársbyrjun 1965 og þær miklu
kauphækkanir, sem urðu á árinu
1965. Komu hér til áhrif er-
lendra verðhækkana og áhrif
umbóta i rekstri. Á hinn bóginn
taldi yfimefndin brýna nauðsyn
bera til þess, að mjög veruleg
hækkun yrði á fiskverðinu til
þess að bátum á þorskveiðum
væri búin eðlileg rekstrarskil-
yrði og sjómönnum á þeim bát-
um sambærileg lífskjör við aðra.
Var niðurstaðan sú, að yfir-
nefndin samþykkti 17% hækkun
á meðalfiskverði. Var samþykkt-
in háð því skilyrði, að útflutn-
ingsgjaldi á sjávarafurðum væri
breytt og framlag til framleiðni
aukningar frystihúsa greitt á ár-
inu 1966 og það jafnframt hækk
að um 17 millj. kr. eða úr 33
millj. kr. í 50 millj. kr. Jafn-
gildir þessi hækkun um 2%
hækkun fiskverðsins. Rí'kisstjórn
in lýsti því yfir í sambandi við
samþykkt yfirnefndar, að hún
mundi beita sér fyrir því við Al-
þingi, að það framlag til fram-
leiðniaukningar yrði greitt á ár-
inu 1966 sem nefndin hafði gert
ráð fyrir. í þessu frumvarpi er
farið fram á heimild Alþingis til
fþess að inna af hendi þessa
greiðslu.
Frumvarpið gerir einnig ráð
fyrir því, að sú 25 aura verð-
uppbót á hvert kíló af línu- og
handfærafiski, sem greitt var á
árinu 1965, greiðist áfram á ár-
inu 1966. I sambandi við ákvörð-
un fiskverðs fyrir árið 1966 féll-
ust fiskkaupendur á það í fyrsta
sinn að greiða hærra verð fyrir
línufisk en annan fisk, eða 26
aura á kíló. Ekki er æskilegt að
greiðsla uppbótar á línufisk af
hálfu ríkissjóðs falli niður undir
þessum kringumstæðum, heldur
komi hún til viðbótar verðhækk
un fiskkaupenda og geti þannig
orðið til örvunar þessari atvinnu
grein, sem undanfarin ár hefur
staðið höllum fæti.
1 lögum nr. 34/1965, var heim-
ild til þess að greiða úr ríkis-
sjóði 10 millj. kr. á áirinu 1965
til verðuppbóta á útflutta skreið
arframleiðslu. Var heimild þessi
notuð á árinu og er í þessu frum
varpi gert ráð fyrir sams konar
heimild á árinu 1966.
Þau framlög, sem greidd hafa
verið til vinnslustöðva sjávaraf-
urða á tveimur undanförnum
árum, hafa verið takmörkuð við
frystihús á árinu 1964 og við
frystihús og skreiðarframleiðend
ur á árinu 1965. I þessu frum-
varpi er lagt til, að þetta verði
einnig gert á árinu 1966. Ástæðan
fyrir því, að ekki hefur verið
talið rétt að framlög þessi næðu
til saltfiskframleiðslu, er fyrst
og fremst sú, að verðþróun salt-
fisks hefur á undanförnum árum
verið miklu hagstæðari en freð-
fisks og skreiðar, og enn fremur,
að hér hefur verið um aðgerðir
að ræða sem ekki hefur verið
ætlunin að stæðu nema skamma
hríð. Frá árinu 1959 til ársins
1964 hækkaði meðalverð á út-
fluttum frystum flökum um
30%, á skreið um 14%, en á ó-
verkuðum saltfiski um 52%. Á
árinu 1965 hafa hins vegar orðíð
meiri verðhækkanir á frystum
fiski en á saltfiski. Vantar þó
enn mikið á, að verðþróun freð-
fisks og skreiðar hafi orðið eins
hagstæð og á saltfiski.
Þær greiðslur ríkissjóðs, sem
gert er ráð fyrir í þessu frum-
varpi munu baka ríkissjóði út-
gjöld að upphæð um 80 millj.
kr., sem ekki er ráð fyrir gert i
fjárlögum. Framlagið til fram-
leiðniaukningar írystihúsa og
endurbóta í framleiðslu frystra
afurða nemur 50 millj. kr., verð-
uppbætur á útflutta skreið 10
millj. kr., en verðuppbót á línu
fisk má áætla um 20 millj. kr.
Hér er um verulegt fjárhagslegt
vandamál að ræða. Ríkisstjórnin
telur ekki rétt að hækka skatta
í því skyni að standa straum af
þessum greiðslum, og ekki telur
hún heldur rétt að draga úr út-
gjöldum til verklegra fram-
kvæmda þeirra vegna. Er því
fyrirhugað að lækka niður-
greiðslur á vöruverðL
Ný bók:
„Dulspeki daglegs lífs“
eftir
Grétar Fells.
Fæst hjá bóksölum.
GARÐAR GÍSLASON H F.
11500 BYGGINGAVÖRUR
Þakjárn
Þaksaumur
Atvinna
Kona óskast til að smyrja brauð, einnig kona til hreingerningar.
Upplýsingar á skrifstofu SÆLACAFÉ, Brautarholti 22 frá kl.
10—12 f.h. og 2—5 e.h. í dag og næstu daga.
Hörður
Stjórnmálanámskeið
Þriðji fundur stjórnmálanámskeiðsins
verður í Sjálfstæðishúsinu við Borgar-
holtsbraut kl. 20,30 nk. miðvikudags-
kvöld 9. marz.
Hörður Sigurgestsson viðskiptafræðingur
leiðbeinir við málfundaæfingu.
Sjálfstæðisfólk velkomið — F.U.S. TÝR KÓPAVOGI.