Morgunblaðið - 08.03.1966, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. marz 1966
Ýmsar nýjungar í
Sementsverksmiðjunni
Ur ræðu Asgelrs Péfurssortar, á
fundi Sjálfstæðisfélags Akraness
Á FUNDI Sjálfstæðisfélagsins á Akranesi, sem haldinn var i fyrra-
dag, flutti Ásgeir Pétursson, formaður stjórnar Sementsverksmiðju
ríkisins, ræðu um starf og stefnu verksmiðjunnar. Fer hér á eftir
frásögn af ræðunni og birtir eru kaflar úr hennL
Stefna verksmiðjunnar
á komandi árum
Ásgeir Pétursson sagði í byrj-
un ræðu sinnar að farsæld hefði
fylgt starfsemi Sementsverk-
smiðjunnar frá upphafi. Þar hafa
engin alvarleg slys orðið á mönn
um og tæki öll og vélabúnaður
reynzt hinn traustasti. Þetta
þakkaði hann m.a. því að verk-
smiðjan hefði frá öndverðu átt
því láni að fagna að hafa traustu
starfsliði á að skipa. Það væri
þýðingarmikið atriði að halda
sem lengst hinu sama starfsliði,
því Ijóst væri að með aukinni
reynslu og æfingu leystu menn
betur störf sín af hendi og lærðu
að þekkja hvað forðast bæri.
Fyrir slíkt starfslið yrði verk-
smiðjan annað heimili þess og
menn fengju áhuga á velfarnaði
fyrirtækisins, báðum til hags.
Þá sagði formaður að jafnan
hefði verið góð samvinna með
stjórn fyrirtækisins og starfs-
mönnum þess.
Hann sagði, að það væru
einkum fjórir þættir, sem ber-
sýnilega verða grundvallaratriði
í stefnu verksmiðjunnar á kom-
andi árum: 1) Bætt dreifingar-
kerfi og aukin þjónusta við við-
skiptamenn, 2) stækkun verk-
smiðjunnar, til þess að unnt
verði að fullnægja eftirspurn eft
ir sementi, 3) afstaða til starfs-
mannahalds í heild, 4) verðlagn-
ing á samkeppnisgrundvelli.
Samskipti viðskiptamanna
og verksmiðju
í því efnL sagði ræðumaður,
er aðalatriðið að gera sér sem
bezta grein fyrir óskum notenda
í sambandi við þá þjónustu, sem
fólgin er í dreifingu og flutningi
sements um landið. Nú hefur ver
ið endurbætt sementssölufyrir-
komulag í Reykjavík, en það var
áður þungt í vöfum fyrir við-
skiptamenn.
Þá greindi ræðumaður frá þvi
að eftir miðjan apríl kæmi hið
nýja sementsflutningaskip, sem
verksmiðjan hefur látið byggja í
NoregL til landsins. Verksmiðjan
annast sjálf alla flutninga á sjó
og eru það um 40 hafnir, sem
hún flytur sement til.
Fram að þessu hefur verk-
smiðjan flutt sementið með leigu
skipum. Ekki ér þó til í siglinga-
flota landsmanna skip, sem er
nægilega hentugt til slíkra flutn-
inga. Hið nýja skip verður um
1250 smálestir að stærð, búið sér
stökum affermingartækjum, sem
færanleg eru eftir þilfari skips-
ins. Með þessum tækjum og með
því að flytja sementið á pöllum,
þarf mannshöndin lítið að upp-
skipun að koma. Skipið sparar því
mjög mannafla við uppskipun,
oft hafa skapazt óþægindi og taf-
ir á höfnum úti á landi, ekki sízt
þegar fólk er bundið við upp-
skipun og aðgerð sjávarafla.
Sá búnaðar er í þessu skipi að
stjórn aflvélar er sjálfvirk frá
brúnni. Og það sem mörgum
mun þykja fréttnæmt, er sú
staðreynd að Vélstjórafélag ís-
lands hefur fallizt á að einungis
tveir vélstjórar verði á skipinu,
sem annist gæzlu véla að öllu
leyti. Ber að fagna því, þar sem
hér verður um mikinn sparnað
að ræða við útgerð skipsins.
Takmark verksmiðjunnar með
þessum skipakaupum er að bæta
þjónustuna við viðskiptamenn
víðsvegar um land.
Aukin sementsnotkun
Sterkar líkur eru á því, sagði
Ásgeir Pétursson, að ekki verði
unnt að fullnægja eftirspurn eft-
ir sementi á þessu ári. Erlendis
er víða gengið út frá því að sem-
entsnotkun tvöfaldist á tíu árum.
Vissulega er eðlilegt að við ger-
um a.m.k. ráð fyrir hinu sama
hér og er þó spurning hvort
sementsnotkun hérlendis muni
ekki vaxa enn örar.
Þeim mun meiri ástæða er að
reyna að hafa yfirsýn yfir eftir-
spurnin er meiri en verksmiðj-
henni fyrir næstu ár, þar sem
afkastageta verksmiðjunnar er
nú fullnýtt og taka verður
ákvörðun um stækkun hennar
innan skamms. Jafnframt verður
að taka afstöðu í því málL hvern
ið haga skuli innflutningi á
sementi þann tíma, sem eftir-
spurnin er meiri en verksmiðj-
an getur annað, iþar sem stækk-
un á afkastagetu hennar yrði
ekki komin til frakvæmda. í
þessu samibandi má benda á að
á síðasta ári var veittur innflutn
ingskvóti fyrir sement að upp-
hæð 5 millj. kr. Þar af var að-
eins notuð 1 millj. til að flytja
inn litað sement.
Stefna verksmðijunnar
í fjárfestingarmálum
Mikilvægt er það að menn
geri sér grein fyrir því að
Sementsverksmiðjan er enn ekki
fullbyggð. Eftir er stór áfangi,
að koma upp sementsgeymslum
og pökkunarstöð í Reykjavík og
aðstöðu til þess að afgreiða laust
sement. Ennfremur iþyrfti að
koma upp geymum víðar í land-
inu.
Verksmiðjan hefur sótt um
leylffi. til ifikisstjórnarinnar til
þess að hefja framkvæmdir í
þeim efnum. Þá veik ræðumaður
að einstökum þáttum í áformum
verksmiðjunnar um 'byggingu af
greiðslustöðvar í Reykjaviík og
sagði að borgarstjórn Reykjavík-
ur hefði úthlutað landi í Ártúns
höfða fyrir stöðifta. Sagði hann
að kostnaður við fyrsta áfanga
í þeirri framkvæmd væri áætl-
aður 27 millj. kr.
Stækkun verksmiðjunnar
Sementsverksmiðjan getur n*ú
framleitt um 110 þús. tonn á ári.
En verksmiðjuna er unnt að
stækka í áföngum, þannig að
framleiðslugetan komist upp í
400-450 þús. tonn á ári. Með
hliðsjón af því sem fyrr var sagt,
sagði Ásgeir, er ljóst að nú er
þess eigi langt að bíða að huga
verði að stækkun verksmiðjunn-
ar. Það er ljóst mál að ekki
kemur annað til greina en að
brúa fyrsta bilið með innflutn-
ingi.
Verksmiðjan gerir ráð fyrir
að fyrsti stækkunaráfangi verði
tekinn í notkun á árinu 1972, en
þá má áætla að ársinnflutning-
ur nemi um 50 þús. tonnum.
Þriðji stækkunaráfangi þyrfti
þá, með svipuðum forsendum að
takast í notkun árið 1982.
Rétt er að taka fram, sagði
Asgeir Pétursson
ræðumaður, að fyrsti stækkunar
áfangi er áætlaður með 150 þús.
tonna afköstum árlega.
Stefnan í starfsmannamálum
í þessum efnum er við marg-
víslegan vanda að etja, ekki sízt
þann, sem stafar af því að marg
ir starfsmenn verksmiðjunnar
falla undir launaflokka opin-
berra starfsmanna, en aðrir lúta
samningskjörum verkamanna og
iðnaðarmanna. Veldur slíkt ó-
samræmi í kjörum. Þá eru og
vandkvæði á því að fá nægilega
marga menn með tækni-
lega — eða aðra menntun til
starfa. Er þar bæði átt við verk
fra^ðinga og starfsmenn í efna-
rannsóknarstofu.
Sérstökum vand'kvæðum hefur
það valdið sagði ræðumaður,
hversu erfitt hefur reynzt að fá
starfsfólk í rannsóknarstörf, svo
kallaða laboranta. Verksmiðj-
an starfar nótt og dag og liggur
mikið við að látlaust fari fram
rannsóknir á framleiðslunni,
Sagði Ásgeir að sér 'hefði kom-
ið til hugar að verksmiðjan færi
þess á leit í samvinnu við ýmsa
aðra aðila við Tækniskóla ís-
lands að hann kæmi upp t.d. eins
árs skólun fyrir slíka aðstoðar-
menn. Þarna gæti líka verið val
ið tækifæri til þess að gefa gagn
fræðanáminu aukið gildi. Gagn-
fræðingar ættu að komast í nám
ið og fá s.lian starfsréttindi.
Margur æskumaður, sem ekki
vill leggja í langt nám, mundi
fagna slíku.
Fjáröflun til framkvæmda
Næst ræddi Ásgeir Pétursson
um fjáröflun til framkvæmda.
Sagði ihann að fyrirfram yrði
að marka stefnuna um það með
hvaða hætti fjár skyldi afla til
þeirra.
Æskilegt er að aðalfjáröflun-
arleiðin liggi í því fé, sem getur
orðið til náðstöfunar í árslok.
Þegar það hrekkur ekki til, þá
ber að grípa til langra lána.
Tvennt kemur til. í jfyrsta lagi
er eigin fjáröflun viðurkennd
sem heilbrigðasta leiðin í þeim
efnum fyrir fyrirtæki almennt,
þótt því miður skorti á slíka að-
stöðu hjá íslenzkum fyrirtækj-
um. Eigin fjáröflun gefur færi
á sveigjanleika og sjálfstæði í
róðstöfunum, fyrir þá menn,
sem bezta yfirsýn hafa yfir við
komandi fyrirtæki. Að sjálf-
sögðu er þá síður hætta á að
fyrirtækið verði bundið á af-
borgunarklafa, sem oft reyndist
erfiður og raunar hættulegur.
Einkum þegar um erlend lán er
að ræða.
í öðru lagi eru aðstæður með
þeim hætti, að þv* er Sements-
verksm. varðar sérstaklega, að
hún er í upphafi fjárhagslega
grundvölluð á löngum lánum, að
langmestu leytL en eigið fé lítið
þannig að afborganir eru óvenju
miklar. Það er talið óæskilegt að
afborganir séu meiri en helming
ur þess f'jár, sem felst í hagnaði
og afskriftum.
Stefnan í verðlagsmálum
Frá öndverðu hefur það verið
meginstefna stjómar Sements-
verksmiðjunnar að verðlag á
sementi skyldi vera lægra frá
verksm. en það myndi vera inn
flutt. Var svo síðast þegar verð
var ákveðið, í febr. 1964, en síð
an hefur sement ekki verið
hækkað í verði.
Verðlagningarvandamál stór-
iðju á borð við sementsverksm.
eru all sérstæðs eðlis. Því veld-
ur sú staðreynd að hin tæknilega
eining verksmiðjunnar er það
stór að hún verður ekki rekin
með ágóða nema með því sem
næst fullri afkastageiu, sagði
ræðumaður.
Hafi slík fyrirtæki toll- eða
innflutningshaftavernd getur ver
ið ástæða til að tryggja að verð-
lagniragu sé haldið á hugsanleg-
um samkeppnisgrundvélli, svo að
ekki komi til einkasöluaðstöðu.
Samkvæmt þessu hefur grund-
vallarstefnan við verðlagningu á
sementi verið sú, að miða verð
þess við hugsanlega samkeppnis-
hæfni frá útlöndum.
Að því er varðar Sementsverk
smiðju okkar, er rétt að hafa í
huga að samkeppnissamanburð
ur hennar við erlendar verk-
smiðjur einkennist af því að hrá
efnisaðdrættir eru hér einkar
erfiðir. Aðalhráefni þarf að
sækja á sjávarbotn á hafi úti,
líparitflutningar eru langir og
oft erfiðir, þegar vegir spillast,
og gips verður að sækja til Pól-
lands. Þá verður að sækja allar
umbúðir til útlanda. Er þá ekki
enn talið það, sem helzt veikir
samkeppnisaðstöðu, en það er
smæð verksmiðjunnar. Á móti
þessu vegur svo kostnaður er-
lendra aðila við það að þurfa að
flytja sement hingað og tollar.
Við eðlileg rekstursskilyrði og
fullnýtta afkastagetu, eins og nú
er fyrir hendi, er verksmiðjan
samkeþpnisfær og hefur því að-
stöðu til áframhaldandi fjárfest-
ingar af eigin fé, við að ljúka
byggingu sementsverksmiðjunn-
ar.
Að vísu hefur Sementsverk-
smiðjan orðið að bera. óeðlilegar
kostnaðarhækkanir miðað við
hugsanlega erlenda keppinauta.
Á það sinn þátt í því að afkoma
verksmiðjunnar varð lakari á ár
inu 1965 en hún var 1964.
En lækkun á hagnaði verk-
smiðjunnar á sl. ári, um nál. 5
millj. kr., verður þó auðvitað
fyrst og fremst skýrð með þróun
verðlags á helztu kostnaðarlið-
um verksmiðjunnar og afurða-
verðs.
Það eru vissulega á því nokkur
varidkvæði að finna út hugsanlegt
samkeppnisverð vegna sveiflna
erlendis á verði og framgjöldum.
í því efni ber hins vegar mjög að
varast að taka tillit til undiriboðs
verðs (dumping), þar sem slík
tilboð gilda einungis til skamms .
tíma og fyrir umframframleiðslu
sem kappkostað er að koma sem
fyrst í verð.
Þá sagði Ásgeir Pétursson, að
raunveruleg innflutningshafta-
vernd sé engin á sementi, þar
sem innflutningskvóti síðásta árs
var ekki notaður.
Tollvernd er einnig í lágmarkL
Tollar á innfluttu sementi eru
35%. Til frádráttar koma tolla-
greiðslur verksmiðjunnar, nálega
15—35%, s.s. olía, pokar, stálkúl-
ur, gips, eldfastur steinn og vara
hlutir í verksmiðjuvélar og flutn
ingatæki. Þar að auki eru afskrift
ir af byggingum og vélum mið-
aðar við kostnaðarverð, þar sem
tollar, 35%, eru innifaldir.
í fljótu bragði má því ætla að
nettótollvernd sé ekki meiri en
20—25%, sem er mjög lágt, fyrir
íslenzkar aðstæður.
Að ræðu Ásgeirs lokinni urðu
umræður og fyrirspurnir. Þessir
tóku til máls: Ólafur Sigurðsson,
Einar Magnússon, Gunnar Ás-
geirsson, Óðinn Geirdal og Jón
Árnason alþm. Að lokum talaði
frummælandi á ný.
Trúloíunarhringar
HALLDOR
Skólavörðustíg 2.
Sementsverksmiðjan á Akranesi séð úr XoftL
(Ljósm. ÓL K. M.)