Morgunblaðið - 08.03.1966, Qupperneq 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. marz 1966
HEIMSMEESTARARNIR í !hand-
knattleik, Rúmenar, mættu ís-
lenzka landsliðinu í fyrri lands-
leik þessara landa sl. laugardag.
Flestir höfðu búizt við stórum
sigri heimsmeistaranna, sem
skömmu áður höfðu bætt þrem-
ur nýjum skrautfjöðrum í hatt
sinn, með þvá að sigra Dan-
mörku í landsleik og Noreg í
tveimur með nokkrum yfirburð-
um. Enda varð sigurinn líka stór
talnalega séð, eða 23-17, þótt 'það
gæfi hins vegar ekki rétta mynd
af gangi leiksins. Leikurinn var
nefnilega hnífjafn þar til 16 mín
voru eftir af leik, en þá skoruðu
Rúmenarnir hvert markið á eftir
öðru, og náðu þessari yfirburð-
arstöðu. Réði þar mestu um, að
landsliðsþjálfarinn okkar, Karl
Benediktsson, skipti ekki rétt
inn á — hafði alla nýliðana í
liðinu inn á, er einna mest reið
á, og kippti þeim ekki út af
fyrr en um seinan.
Fyrri hálfleikur 9-8
Það vóru liðnar fjórar mínút-
ur af leik,, þegar fyrsta markið
var skorað. Var þar Hermann
Gunnarsson að verki — hann
hafði fengið knöttinn inn á línu,
og skoraði óverjandi fyrir rúm-
enska markvörðinn. Hinn snjalli
leikmaður Rúmena, Moser, jafn
aði svo mínútu síðar með eld-
snöggu skoti fyrir utan vörn ís-
lendinga, sem Þorsteinn réð
ekki við.
íslenzka liðið virtist heldur
ákveðnara í byrjun, og lék mjög
hratt og vel, enda þótt Rúmenar
gripu strax í byrjun til þess ráðs
að láta einn leikmann stöðujft
elta Gunnlaug Hjálmarsson. Um
miðjan fyrri hálfleik er staðan
5-2 fyrir ísland, og hafði Gunn-
laugur skorað tvö af mörkunum. 1
Þessi tveggja til þriggja marka
munur hélzt svo, þar til undir
lok hálfleiksins að Rúmenar
sóttu mjög í sig veðrið, og er um
tvær mínútur voru til hlés jafn-
aði JacOb fyrir Rúmena 8-8. En
Gunnlaugur er ekki af baki dott-
inn, því nokkrum sekúndum áð-
ur en dómarinn flautaði hálfleik
inn af, skoraði hann níunda
mark íslands með föstu skoti
aftur fyrir bak, sem kom vörn
Rúmena algjörlega úr jafnvægi.
Síðari hálfleikur 8-15
Sama sagan virtist ætla að
endurtaka sig í síðari hálfleik
og þeim fyrri. íslenzka liðið var
mjög ákveðið framan af, og
skoraði á fyrstu 5 mínútum leiks
ins þrjú mörk á móti einu frá
Rúmenum. En Rúmenar hertu
sóknina og tókst að jafna, og þeg
ar síðari hálfleikur var hálfnað-
ur tókst þeim að ná forystunni í
fyrsta skipti, eða 16-15.
Á.næstu 13 mínútum skoruðu
Rúmenar fimm mörk á móti
einu frá íslenzka liðinu. Mest-
an hluta þessa tímabils voru ný-
liðarnir í íslenzka liðinu inni á
vellinum, en hinir vönu hand-
knattleiksmenn okkar, eins og
Gunnlaugur, Guðjón og Hörður
hvíldu fyrir utan. Reyndust ný- I
Islenzka og þmtnska landsliöið áður en fyrri landsleikurinn hófst á laugardag.
liðarnir — sem von var — ekki
þeim vanda vaxnir að stemma
sti'gu við ágangi heimsmeistar-
anna, og verður því ekki neitað,
að manni fannst Karl Benedikts-
son gera alvarleg mistök, er
hann kippti þeim ekki út af
vellinum, og lét hina vanari
fara inn á, er hann sá hvert
stefndi.
En þegar loks skipt var um
menn, var það um seinan, og
tókst þeim aðeins að skora eitt
mark á móti tveimur mörkum
Rúmena. Urðu lokatölur leiks-
ins því 23 mörk gegn 17.
Liðin
Þessi markamunur gefur þó
alls ekki rétta mynd af styrk-
leikamun þessara liða — því að
hann var of mikill. Sanngjarn-
ara hefði verið, ef leikurinn
hefði endað með tveggja til
þriggja marka mun ,enda eagði
rúmenski þjálfarinn eftir leik-
inn, að lánið hefði elt þá undir
lokin. íslenzka liðið sýndi oft
og tíðum mjög góðan leik —
bæði í vörn og sókn.
Beztu menn íslenzka liðsins
voru þeir Gunnlaugur Hjálmars
son, er skoraði fimm mörk, enda
þótt hans væri sífellt eltur af
einum rúmenska leikmanninum,
Hörður sem skoraði sjö mörk —
þar af fjögur úr víti, og Her-
mann, er skoraði tvö mörk.
Rúmenska liðið er tvímæla-
laust bezta lið, sem okkur hef-
ur gefizt kostur á að sjá hér á
landi. Liðið leikur mjög hratt
í sókn, og er traust sem klett-
ur í vörn. Langskyttur jþeirra
Gruia og Moser, voru beztu
menn liðsins — hinn fyrrnefndi
skoraði átta mörk en sá síðar-
nefndi fjögur. Þá sýndi Jacob
mjög skemmtilegan leik og skor-
aði hann sex mörk.
Síðari leikurinn:
Rúmenar máttu þakka
fyrir sigurinn 16:15
EFTIR fyrri landsleik Rúmena
og Islendinga sem lauk með stór
um sigri Rúmena 23-17 bjuggust
Stjórn ÍSÍ ákveður:
Höfuðstöövar vetraríþrótta á
íslandi, verði á Akureyri
Akureyri, 5. marz.
Forseti Í.S.Í., Gísli Halldórs-
son, og nokkrir aðrir stjórnar-
menn íþróttasambandsins heim-
sóttu Akureyri í gær og sátu
fund með forystumönnum í-
þróttamála og bæjarmála hér í
gærkvöldi. Þar var um það sam-
ið, að stjórn ÍSÍ veitti Akur-
eyri viðurkenningu sína til þess
að verða miðstöð vetraríþrótta
á íslandi, og heitir þar með
margháttuðum stuðningi sínum
við Akureyringa til þess að gera
svæðið í Hlíðarfjalli eins full-
komið til skíðaiðkana og Ij'ik eru
á.
Frá þessu var skýrt í hádegis-
verðarboði, sem íþróttaráð Ak-
ureyrar hélt hinum sunnlezku
gestum og nokkrum öðrum í
dag. Þar flutti forseti ÍSÍ, Gísli
Halldórsson, ræðu, þar sem hann
lýsti helztu atriðum í skipulagi
og starfsáformUm ÍSÍ. Þar kom
m.a. fram, að það er markmið
Sí að koma upp íþróttamiðstöðv
um í öllum kjördæmum lands-
ins, þ.e. aðstöðu til sumarbúða
Framhald á bls. 19
■f"
Uppdráttur að skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. A Skíðahótelið. — B nýtt vegarstæði. — C litla
togbrautin. — D fyrirhuguð tvöföld stólalyfta, 1000 m löng. — G fyrirhuguð svifbraut frá
Strompi og upp undir brún HI íðarf jalls. — Myndin er af uppdrætti eftir Einar Ilelgason, að
mestu skv. tillögum Magnúsar Guðmundssonar.
flestir handknattleiksáhuga-
menn hér við enn stærri sigri
Rúmena í síðari landsleik þess-
ara landa, því að nú hefðu þeir
lært á íslenzku leikmennina. En
því fór fjarri, að sú spá rættist.
Islenzka liðið barðist allan tím-
ann eins og ljón, og máttu Rú-
menar jafnvel þakka fyrir að
fara með sigur af hólmi í þess-
ari viðureign, en leiknum lauk
16-15 Rúmenum í vil.
Fyrri hálfleikur 11-8
íslendingar byrjuðu með knött-
inn, og gerðu snöggt upþhlaup
að marki Rúmena, sem lauk með
því að Hörður skoraði með upp-
stökki fyrir framan vörn Rú-
mena. En örskömmu síðar jafna
Rúmenar og litlu síðar bæta
þeir öðru við. Guðjón jafnar
fyrir ísland, en á næstu mínútum
sækja Rúmenar fast, og er 10
mínútur eru af leik er staðan
orðin 5-2 fyrir Rúmena. Þótti
þá mörgum útlitið vera orðið
ískyggilegt fyrir ísland.
En íslenzka liðið var ekki á
því að leggja árar í bát, og það
sem eftir var hálfleiksins sýndi
íslenzka landsliðið einhvern
bezta leikkafla, sem íslenzkt lið
hefur nokkru sinni sýnt. Smátt
og smátt tóku þeir leikinn í
sínar hendur, og settu hvert
markið á eftir öðru. Á 18. mín
jafnar Hermann fynir fsland,
þannig að þá er staðan orðin 6-6.
Og er um tvær mínútur eru til
loka hálfleiksins er staðan orð-
in 9-8 fyrir ísland. Á þessum
tveimur mínútum sem eftir eru
skoraði svo Gunnlaugur tvö
mörk, þrátt fyrir að hans væri
vandlega gætt, eins og í fyrri
leiknum.
Síðari hálfleikur 4-8
Þegar Rúmenar sáu hvert
stefndi í fyrri hálfleik, skipti
liðið algjörlega um leikaðferð
í þeim síðari. í fyrri hálfleik
hafði liðið leikið eins konar
svæðisvörn, en í þeim síðari lék
liðið „maður á mann“ — þannig
að hver leikmaður fékk það
hlutverk að gæta sérstaks ís-
lenzks leikmanns. Urðu af þess-
um sökum oft miklar stympingar
í vörn Rúmena. Þessi aðferð var
líka áhrifarík, þvd að í síðari
hálfleik skoraði íslenzka liðið
aðeins fjögur mörk, en Rúmenar
átta. Rúmenum tókst þó ekki að
jafna metin fyrr en á 10. min.
þannig að staðan er þá 13-12.
Rúmenar komast upp í 16-14, en
er um tvær mínútur eru til
leiksloka skoraði Hörður 15,
mark íslands, og lauk leiknum
því með sigri Rúmena 16 mörk
gegn 15. Var mark Harðar eina
Framhald á bls. 27.
„Islenzka lands-
lidið sterkara en
það danska
FRETTAMAÐUR íþróttasíð-
unnar hitti þjálfara rúmenska
liðsins, Kunst, snöggvast að
máli eftir landsleikinn á
sunnudag.
Kunst var hinn ánægðasti
með úrslitin í landsleikjun-
um, og kvaðst vera hrifinn
af íslenzka landsliðinu. „ís-
lenzka landsliðið er sterkara
en það danska“, svaraði hann,
er hann var beðinn að gera
samanburð á þessum tveimur
liðum,“ en þið vinnið þá
aldrei með 10 marka mun,
eins og þið þurfið til þess nð
komast í aðalkeppnina“.
Er hann var spurður álits
á einstökum íslenzkum leik-
mönnum, svaraði hann: „F.g
myndi án þess að hika taka
tvo íslenzka leikmenn strax
inn í landslið mitt, og það eru
þeir Gunnlaugur og Hörður.
Hermann Gunnarsson kæmi
líka mjög til greina, því að
þar er góður leikmaður á ferð
inni.
Fyrri leikurínn:
Rúmenar sigruðu
með yfirburðum