Morgunblaðið - 08.03.1966, Page 27
MORGU NBLAÐIÐ
27
1
Þriðjudagur 8. marz T96U
— Austurriki
Framh. af bls. 1.
ur hvöttu kjósendur sína til þess
að styðja Sósíaidemókrata náðu
hinir síðarnefndu aðeins tæpum
þúsund atkvæðum.
Úrslit kosninganna urðu sem
hér segir (þess er getið, að töl-
urnar kunni eitthvað smávegis
að breytast). Tölurnar í svigun-
um eru frá kosningunum 1962:
Þjóðarflokkurinn 2.191.128
atkv. — 48,35% (45,43%)
Sósíaldemókratar 1.928.322
atkv. — 46,46% (44,00%)
Frelsisflokkurinn 242.599
atkv. — 5,35% ( 7,04%)
i
Lýðræðislegi Frelsisflokkurinn
undir stjórn Franz Olalh, sem
aður var í flokki Sósíaldemó-
krata, hlaut 148.521 atkv., eða
3,28% atkv., en það nægði hon-
um ekki til þess að fá sæti á
(þingi. Kommúnistar fengu 0,41%
Frjálslyndi flokkurinn 0,35 og
Marxíst-Leninista flokkurinn
0,11% atkv.
I NTB-frétt frá Vínarborg
eegir, að þess sé vænzt, að Þjóð
arflokkurinn bjóði Sósíaldesó-
krötum áframhaldandi stjórnar-
samvinnu að því tilskildu þó, að
hann fái meiri áhrif í stjórninni
en áður. Verða Sósíaldemókrat-
er því að gera það upp við sig,
hvort þeir vilja sitja áfram í
stjórn og hafa þar minni völd,
eða ganga yfir í stjórnarand-
stöðu.
Leiðtogar Sósíaldemókrata
komu þegar saman til fundar í
dag að ræða kosningaúrslitin
og stefnuna í nánustu framtíð,
og stjórn Þjóðarflokksins mun
halda fundi á morgun, þriðju-
dag. Ekki er búizt við, að framá
xnenn flokkanna hefji viðræður
um hugsanlegt stjórnarsamstarf
fyrr en í lok vikunnar, þegar
forseti landsins, Franz Jonas,
hefur falið Josef Klaus stjórnar-
myndun. Samkvæmt stjórnar-
skránni á hið nýja þing að koma
saman eigi síðar en 5. apríl.
— Landsleikur
Frh. af bls. 26
markið sem skorað var á síðustu
tíu mínútum leiksins.
Liðin
íslenzka liðið átti nú mjög góð
an dag, var mjög ákveðið bæði
í vörn og sókn. Nokkrar breyt-
ingar voru gerðar á liðinu frá
að Jacob skoraði úr vítakasti,
fyrri leik, þannig að inn í það
komu nú Geir Hallsteinsson,
Auðunn óskarsson og Ágúst Ög-
mundsson í stað þeirra Þórarins,
Stefáns Jónssonar og Birgis
Björnssonar. Áttu þeir Auðunn
og Geir báðir ágætan leik. Beztu
menn liðsins voru enn sem fyrr
Gunnlaugur og Hörður, og einn-
ig var Þorsteinn mjög góður í
markinu. Annars átti liðið í
heild mjög góðan leik, og var
óvenju samstillt. Mörkin skor-
uðu: Gunnlaugur 4 (tvö úr víti),
Hörður, Hermann, Geir, Guð-
jón og Karl tvö hver og Stefán
1.
Rúmenska liðið olli mönnum
engum vonbrigðum í þessum
leik, enda þótt sumum fyndist
það ekki taka á öllu því sem það
átti. Furðulegt var að sjá hvern
ig liðið breytti gjörsamlega um
varnaraðferð í síðari hálfleik,
og má eflaust ætla að það hafi
xáðið úrslitum leiksins. Beztu
menn liðsins voru nú Jacob og
Moser, 0g einnig Otelea,
skemmtilegur gegnumbrotsmað-
ur. Gruia naut sín aftur á móti
ekki eins vel í þessum leik og
hinum fyrri, enda var hans bet-
ur gætt nú. Mörk Rúmeníu
skoruðu: Jacob 4, Mosér, Otelea,
Gruia og Costache 3 hver.
Dómari í báðum leikjunum
var Norðmaðurinn Nilson.
Dæmdi hann mjög vel, og er
vafalaust í hópi beztu dómara
sem hingað hafa komið, en þó
virtist manni sem úthaldið væri
eitthvað í ólagi hjá honum, því
að hann gerði sig sekan um
nokkrar alvarlegar skyssur und-
ir lokin i báðum leikjunum.
15 létusf í
jarðskjálfta
Istanbul, 7. marz (NTB)
t Fimnitán manns biðu
bana og a.m.k. 900 heim-
ili eyðilögðust í snörpum
jarðskjálfta, sem varð í aust-
urhluta Tyrklands í morgun.
Stóð jarðskjálftinn aðeins yf-
ir í tíu sekúndur, en varð vart
á stóru svæði, m.a. í bæjunum
Samsun og Trabzom við
strönd Svartahafsins,
Stokkhólmi, 7. marz NTB.
• CHRISTIAN Gúnther,
fyrrum utanríkisráðherra Sví
þjóðar, lézt í gær, sunnudag,
79 ára að aldri. Gúnther hafði
hafði á hendi embætti utan-
ríkisráðherra á árunum 1939
— 45.
— Frakkar
Framhald af bls. 1.
legt, verður því ekki í kring
komið, nema á grundvelli
fransk-þýzka vináttusáttmálans
frá 1963 það er að segja sam-
þykki v-þýzka stjórnin slíka
skipan mála.
Óstaðfestar fregnir frá Bonn
herma, að v-þýzku stjórninni sé
lítt um þessa fyrirtælun de
Gaulle gefið og telji sig þurfa
að ræða hana ýtarlega við
stjórnina í heild. í Washington
er einnig sagt, að ýtarlegar við-
ræður verði að fara fram —
bæði um breytingu á skipan her
stöðva í Frakklandi og þá ekki
síður um framtíðarstöðu Frakk-
lands í Atlanshafsbandalaginu.
— Danmörk
Framhald af bls. 1.
sveitastjórnarmáluni eru aðeins
9970 sæti. Þau eru allmiklu
færri en við sveitastjórnnrkosn-
ingarnar, sem fram fóru 1962, og
stafar það af því, að mörg
smærri sveitafélög hafa verið
sameinuð í svokölluð ,rstórsveita
félög“. Sveitarfélögin eru um
300 færri en 1962.
Þá verður og kosið í 34 amts-
ráð með 301 sæti, en frambjóð-
endur eru 2423. Varðandi amts-
ráðin hafa einnig orðið breyting
ar, því ýmsir smærri kaupstaðir
hafa verið sameinaðir lands-
sveitarfélögum og sett undir
stjórn amtsráðanna, en áður
voru þessir kaupstaðir óháðir
amtsráðunum. Stærri kaupstað-
irnir eru það ennþá. Hinir nýju
kjósendur í kaupstöðunum munu
gera kjörið til amtráðánna mjög
spennandi.
Mikill ágreiningur er uppi um
hversu túlka skuli úrslit sveita-
stjórnarkosninganna landsmála-
lega séð. Er það einkum íhalds-
flokkurinn, sem um þessar mund
ir er í sókn, sem telur sveita-
stjórnarkosningarnar hafa mikla
þýðingu landsmálalega. Telja
íhaldsmenn, að fari svo að
Sósíaldemókratar bíði ósigur á
mörgum stöðum, geta sveita-
stjórnarkosningarnar hrundið af
stað nýjum þingkosningum á
þessu ári. Sömu skoðunar eru
Vinstri og Sósíalíski þjóðarflokk
urinn. Sá síðarnefndi er talinn
munu vinna atkvæði frá sósíal-
demókrötum, einkum í Kaup-
mannahöfn og öðrum stærri
bæjum. Stafar þetta af þvi, að
margir vanabundnir sósíaldemó-
kratar eru óánægðir með þátt-
töku ríkisstjórnarinnar í sam-
komulagi við íhaldsflokkinn,
Radíkal vinstri og Vinstri um
að gefa húsnæðismarkaðinn
frjálsan. Segja þeir samkomulag
ið „ósósíalskt“.
Þegar fyrir kosningamar sjást
merki samstarfsstefnu Radíkal
vintri og VinstrL Hafa þessir
tveir flokkar tekið upp samvinnu
í kosningunum, og Vinstri hef-
ur látið af samstarfi sínu við
íhaldsflokkinn.
— Rytgaard.
.Erfiöara en nokkurn gæti
grunað að leysa vanda Gyðinga1
— segir Píus páfi
stríðsárunum, se:
Róm, 6. marz, NTB, AP.
SÍÐAST í marzmánuði
1943 skrifaði Píus páfi XII í
bréfi til eins biskupa sinna að
það væri „svo erfitt að það
væri hrein þjáning“ að taka
ákvörðun um það hvort for-
dæma bæri nazismann opin-
berlega ellegar láta hann
liggja í þagnargildi og reyna
að bæta í einhverju þótt leynt
færi, hörmungar þær sem af
honum hlytust.
Píusi páfa XII hefur oft
verið borið það á brýn, að
hann hafi ekki verið Gyðing-
um sá haukur í horni sem
hann hefði megnað í hörmung
um þeirra í heimsstyrjöldinni
síðari. Nú hafa verið gefin
út í Róm 124 bréf páfa til
þýzkra biskupa á stríðsárun-
um sem þykja bera vott
þeirri fullyrðingu páfa í einu
bréfanna að það hafi verið
erfiðara en nokkurn gæti grun
að að reyna að leysa vanda
þeirra sem voru hjálpar þurfi
og yfirstíga allar þær hindr-
anir sem stjórnmálaástand
þeirra tíma setti slíkri aðstoð.
f ofangreindu bréfi, sem rit
að er biskupnum yfir Berlín.
Konrad kardínála von Preys-
ing, skýrir páfi einnig frá því
að samtök Gyðinga hafi vott-
að páfastóli innilegt þakklæti
sitt fyrir veitta aðstoð við að
frelsa Gyðinga úr klóm naz-
ista.
f öðru bréfi, sem páfi ritaði
þáverandi erkibiskupi Kölnar
Joseph Frings, sem nú er orð
XII 1 bréfum frá
n komin eru út
Píus páfi XII
inn kardínáli, segir hann að
það hafi gengið sér ótrúlega
nærri og verið slík taugaá-
reynsla að tæplega væri á
nokkurn mann leggjandi að
hvika ekki frá þeirri afstöðu
páfastóls að gera ekki upp á
milli striðsaðila, að halda fast
við þá stefnu að páfastóll gæti
ekki gert slíkt' og þvílikt,
hann væri yfir allar deilur
hafinn. „Það er oft óskaplega
erfitt að skera úr um það,
hvenær varkárni, þögn og
hlédrægni eigi rétt á sér og
hvenær þörf er opinberra yfir
lýsinga og eindreginnar af
stöðu til mála“, segir páfi í
bréfi þessu til erkibiskups
MHMMMR LWnMMM
Kölnar, sem ritað er árið
1944.
Bréf þessi eru eins og áður
sagði, í safni 124 bréfa sem
páfi sendi þýzkum biskupum,
kaþólskrar trúar, ýmist ein-
um og einum eða mörgum
saman, á árunum 1939 til 1944
Eru þau hluti af bréfasafni
páfastóls frá stríðsárunum,
sem nú er verið að gefa út.
Kom fyrsti hlutinn út í des-
ember í fyrra, annar nú og
von er á þriðja bindinu, sem
talið er að muni fjalla nær
eingöngu um Gyðinga og
„Gyðingavandamálið“, síðar
á þessu ári.
Að réttu lagi hefðu þessi
bréf ekki komið fyrir manna
sjónir fyrr en 1989 til 1994, í
samræmi við reglu Páfastóls
að birta ekki opinber skjöl
eða önnur skrif fyrr en að
hálfri öld liðinni. En umtal
það og deilur sem spunnizt
hafa um píus páfa XII og
störf hans á stríðsárunum
hafa orðið til þess að ráða-
menn í Páfagarði hurfu frá
þessari reglu og leyfðu birt-
ingu opinberra skjala og
skrifa páfa á þessum árum
nú. Meðal þess sem hér olli
mestu um var leikrit Þjóð-
verjans Rolfs Hochhuth
„Fulltrúinn“, þar sem vakið
var máls á því, hvort páfi
hefði reynt eftir fremsta
megni að stöðva útrýmingar-
herferð nazista á hendur Gyð-
ingum eða hvort hann hefði
getað gert meira til bjargar
þeim. Eins og kunnugt er,
munu um sex milljónir Gyð-
inga hafa látið lífið af völd-
um nazista í heimsstyrjöldinni
síðari.
— Gin- og klaufa-
veikin
^amh. af bis. 1.
um á Norra Nöbbelov slátrað,
25 kúm og 50 svínum. Voru mörg
dýranna þa illa komin og er
Ijóst, að veikin sem nú herjar
er með versta móti. Af ótta við
smitun var dýrunum slátrað
heima á bænum og þau grafin
í jörð þar skammt frá. Sam-
stundis var einnig boðað „fjós-
bann“ fyrir allt Malmöhus-fylki,
sem þýðir, að einungis íbúar
hvers bæjar um sig mega ganga
að fjósverkum. Yfirmaður dýra-
lækniniga í Svíþjóð, Gösta Björk
man, var staddur á fundi í Osló,
er fréttist um veikina, og fór
hann þegar í stað heim til við-
ræðna við landbúnaðarráðherra,
Eric Holmquist.
Veira sú, sem gin- og klaufa-
veikinni veldur nú hefur aldrei
fyrr fundizt í Svíþjóð og var
ekkert bóluefni til þar. Tíu þús-
und skammtar höfðu verið pant
aðir frá ítalíu, en eru rétt ó-
komnir. í Noregi er heldur ekki
til bóluefni af þessari gerð, en
í dag fengu Svíar frá Danmörku
10.000 skammta til að byrja með.
í Noregi hafa þegar verið
gerðar ráðstafanir til þess að
hindra að veikin breiddist þang-
að. Allir þeir sem koma frá Sví-
þjóð eða Danmörku og hafa haft
þar eitthvað samband við land-
búnað eða búpening, verða að
gangast undir gagngera sótt-
hreinsun og allur faranr,ur
þeirra sömuleiðis. Allur inn-
flutningur landbúnaðarafurða
frá Danmörku og Svíþjóð er
bannaður.
YFIRMAÐUR dýralækninga í
Noregi, Reidar Vollen sagði í
norska útvarpinu í kvöld, að
gin- og klaufaveikin gæti bor-
izt með þokuúða og fuglum frá
einu landi til annars. Væri því
erfitt um vik að gera ráðstafanir
til varnar henni. Veira þessi
sagði Collen að væri ekki fyrr
þekkt í Noregi og bóluefni væri
ekkert til í landinu.
Forsetar Guineu í skyndi-
heimsókn til Mali
23 ríki hafa viðurkennt Þjóðfrelsisráðið í Ghana
Dakar, Accra, Bamako,
7. marz(AP-NTB)
| Forsetar Guineu, þeir Se-
kou Touré og Kwame
Nkrumah, fóru í dag í skyndi
heimsókn til Bamako, höfuð-
borgar Mali, stóðu þar við í
nokkrar klukkustundir og
ræddu við Mobito Keita, for-
seta.
• Ekkert var vitað um þessu
ferð, fyrr en rétt áður en þeir
Toure og Nkrumah komu til
Bamako og engar upplýsingar
voru gefnar um erindi þeirra.
En liklegt þótti, að þeir væru
þangað komnir til þess að leggýi
á ráðin um það, hvernig hagað
skyldi sókninni gegn hinum nýju
valdhöfum í Ghana og Nkrumah
komið aftur til valda. Sem kuntn
ugt er, h,afa þessi þrjú lönd haft
með sér bandalag frá því 1961,
— bandalag, sem átti að verða
upphafið að einingu Afríku, en
aldrei varð neitt úr framkvæmd
þess.
• Hætt er við að Nkrumah
reynist þunigur róðurinn til
valda á ný, þvi að 23 ríki hafa
þegar viðurkennt nýju stjórnina
í Ghana, þeirra á meðal stjórnir
Bretlands, Bandarikjanna og
Frakklands. Emda er haft eftir
byltingarlciðtoganum A. K.
Ocran, í Accra, að hin nýja
stjórn hafi engar áhyggjur af
því, þótt Nkrumah reyni á ný að
ná völdum og muni engar sér-
stakar ráðsfcafanir gera til þess
að tryggja landamæri Ghana.
„Komi Nkrumah aftur til Ghana
munum við ekki hindra för
h.ans“ sagði Ocran.
Þeim Sekou Toure og Nkrumah
var tekið sem þjóðhöfðingjum í
opinberri heimsókn, er þeir
komu til Mamako — með fall-
byssum, heiðursverði og öllu til-
heyrandi. Síðan ræddu þeir
stundarlangt við Mobito Keita,
en héldu heim að viðræðunum
loknum. Ferðuðust þeir í rúss-
neskri Iljushin þotu frá fluig-
félagi Guineu. Að því er varðar
valdastöðu Nkhrumah í Guineu
Framhald á bls. 1U