Morgunblaðið - 02.04.1966, Page 3
LaugsríJsgur 2. apríl 1966
MQRGU N BLAÐIÐ
3
Bssaa
Fréttin um fund nýs mið-
aldakorts, sem birtist hér í
blaðinu í gær, var apríl-
gabb. Flestir virtust þó á-
líta að fréttin um Xhorvald-
sensstyttuna á baksíðunni
hefði verið aprílgabb blaðsins,
en svo var ekki Thorvald-
sensfréttin var í alla staði
rétt. Sumir héldu að ekkert
aprílgabb hefði verið í blað-
inu, til daemis hringdi kona
ein til blaðsins í gærmorgun
og sagði: „Ósköp eruð þið
klénir — að hafa ekkert apr-
ílgabb í blaðinu“. Vonandi
anda hún léttar nú þegar sann
leikurinn er kominn í Ijós.
Þá ber þess einnig að geta,
Thorvaldsensstyttan þar sem hún liggur í áhaldahúsi borgar-
innar og bíður viögerðar, (Ljósm. Ól. K. Magn.)
i
Aprílgabb Morgunblaisins
!
„Miðaldakort Morgunblaðsins.
að greinin um Vínlandskortið
rök að styðjast, en að meg-
inefni birtist hún í „The Sun
inni í blaðinu átti við full
day Times“ í marzmánuði síð
astliðnum.
Það sem fyrir okkur vakti
með aprílgabb var að láta
teikna kort sem likast því
er hefði getað verið fyrir-
mynd Sigurðar skólameistara
Stefánssonar, eða öllu held-
ur tengiliður milli korts hans
og Vínlandskortsins. Flesta
vísindamenn á sviði sagn-
fræði og kortagerðar dreym-
ir áreiðanlega um að fá í
hendur slíkt kort — og ætl-
unin var að gleðja þá og aðra
einn dag. En margt er fall-
valt í sagnfræðinni ekki síð-
ur en lífinu, — en vonandi
hefur það ekki komið að sök
að þessu sinni.
Halldór Pétursson listmál-
ari gerði kortið að fyrirsögn
okkar Morgunblaðsmanna, en
til að koma í veg fyrir frekari
misskilning er nauðsynlegt
að geta þess — að Halldór
teiknaði ekki Vínlandskortið.
Skemmtun fyrir
yngstu borgarana
Fóstrur gangast fyrir barnaskemmtun
sinni. og sungu gömul og þekkt
barnalög, stúlkur úr Fóstruskól-
anum sungu og léku, en börnin,
sem á æfingunni voru ,tóku
ihraustlega undir.
Nú, og svo kom atriði, sem á
eflaust eftir að gera mikinn
fögnuð hjá litlu' börnunum, en
það er saean af honum Láka
I’VÍ verður vart neitað, að ekki
er um auðugan garð að gresja
hér í borginni, þar sem um er
að ræða skemmtanir fyrir yngstu
borgarana. Börn á leikskóla-
aldri, sem ekki eru orðin nógu
stálpuð til þess að fara á þrjú
sýningar á sunnudögum, verða
því að láta sér nægja að fara
í bílferð eða gönguferð um borg-
ina með pabba og mömmu, eða
þó bara einfaldlega að sitja
heima. Og það þykir flestuin
heldur súrt á sunnudögum.
En á sunnudaginn n.k. ætlar
Fóstrufélag íslands að bæta úr
þessu. Þá gengst félagið fyrir
bamaskemmtun í Austurbæjar-
bíó, og hefst hún kl. 1:30. Verð-
ur þar margt gert til gamans, og
verður án efa hin hol'lasta
skemmtun fyrir yngstu börnin.
Mbl. brá sér nú fyrir skömmu
á æifingu hjá fóstrunum', og fylgd
ist með því er þar fór fram.
Fyrst komu þar fram börn úr
Hagaborg ásamt einni fóstru
flutt í sögu og leikritsformi af
nemendum úr FóstruSkólanum
og börnum úr Tjarnanborg. Láki
var eins og allir vita jarðálifur,
sem gerði allt það versta sem
hugsast gat, og þar sem ha-nn
gat ekki verið nógu vondur
niðri í jörðinni, hélt hann upp
Mótmæla bjór-
frumvarpinu
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á fundi kvenfélagsins Hlíf-
ar á Akureyri nýlega:
Fundur haldinn í Kvenfélag-
inu Hlíf, Akureyri 10. marz 1966
beinir þeirri eindregnu ósk til
Alþingis, að bjórfrumvarp það
sem nú er til umræðu, nái ekki
fram að ganga.
Fundurinn lítur einnig svo á,
að áfengisógæfa þjóðarinnar sé
þegar kominn á það stig, að þar
megi engu á bæta.
æfingu......
til jarðarinnar til þess að hrella
fólkið þar, Honum tókst það með
ágætum, en varð löks leiður á
öllum prakkarastrikunum, fór
að gera góðverk, og. . .*. ja, það
kemur í ljós á sýningunni.
En margt fleira verður til
gamans þarna á skemmtuninni,
svo sem söngur barna úr Laufás
borg, leikþáttur sem börn úr
Grænu'borg taka þátt í, fóstru-
nemendur bregða sér í gerfi
Kaspers, Jespers og Jónatans, og
lesnar tvær stuttar sögur.
Formaður skemmtinefndar
Fóstrufélagsins er Þórunn Ein-
arsdóttir, og ræddi MM. stutt-
lega við hana á æfingunni.
— Tilgangururinn með þess-
ari skemmtun, sagði Þórunn, er
fyrst og fremst sá, að skemmta
börnunum, sem eru á leikskóla-
aldri, en okkur finnst alltof lít-
ið gert fyrir þau. Á skemmtun-
inni munu koma fram börn úr
Grænuiborg, Tjarnarborg Haga-
borg og Laufásborg, ásamt fóstr-
um þeirra og nemendum úr
Fóstruskólanum. Við _munu end-
urtaka skemtunina á sunnudag-
inn fyrsta fyrir Sumargjöf.
STAKSTHHAH
Upphaf að vaxandi
átökum
Það er nú orðið ljóst, að stofn
fundur Alþýðubandalagsins, sem
haldinn var síðastliðið miðviku-
dagskvöld er aðeins upphafið að
enn vaxandi átökum innan þess.
SósíalLstafélagið hafði samþykkt
á almenmum fundi á Hótel Sögu
fyrir nokkru að taka þátt í stofn-
un þessa félags, ef Sósíalista-
félagið í heild fengi aðild að
því. Tillaga um það var felld
á stofnfundinum, en mun væntan
lega verða vísað til fulltrúaráðs
félagsins. sem enn hefur ekki
verið skipað. Þrátt fyrir þetta
tók Páll Bergþórsson, formaður
Sósíalistafélagsins, sæti í stjóm
Alþýðubandalagsfélagsins og er
ómögulegt að sjá, að það sé gert
samkvæmt því umboði, sem hann
hefur frá almennum fundi í
Sósíalistafélaginu. Hlýtur þessi
afstaða Páls því að valda miklum
deilum innan Sósíalistafélagsins
og kom raunar í Ijós á fundin-
um í Lídó, að svo mun verða.
Þjóðvarnarmenn
ekki með
Þá er Ijóst, að Þjóðvarnar-
flokkurinn eða Þjóðvarnarmenn
I Reykjavík hafa almennt ekki
tekið þátt í stofnun hins nýja
Alþýðubandalagsfélags. í mjög
einkennilegri áskorun, sem Gils
Guðmundsson birti í blaðinu
„Frjáls þjóð“ fyrir nokkrum
dögum, talaði hann aðeins um
það, að hann sjálfur persónu-
lega mundi gerast stofnandi að
Alþýðubandalagsfélaginu, en þar
kom hvergi fram að miðstjóm
Þjóðvamarflokksins, eða aðilar
að Þjóðvarnarflokkmum liér í
Reykjavík hefðu tekið nokkra
ákvörðun um það. Það mun einn
ig hafa orðið raunin, að sam-
komulag náðist ekki innan Þjóð-
varnarflokksins um þátttöku í
þessu félagi, og mun Gils hafa
verið einn um það. Sýnár það
glögglega ástandið í þessum her
búðum, að ekki skuli einu sinni
hægt að fá jafn lítinn hóp manna
eins og hina wvonefndu Þjóðvarn
armenn til samstarfs um slíka
félagsstofnun.
Kommúnistar
enn við völd
En það er hins vegar ljóst
af öllu, að kommúnistar hafa
enn öll völd í Alþýðubandalag-
inu, þótt tillagan um félags-
aðild Sósíalistafélagsins væri
felld. Margir fundarmenn hafa
sjálfsagt ekki gert sér grein
fyrir um hvað var deilt, og
áskoranir Guðmundar J. Guð-
mundssonar og annarra fundar-
boðenda um að samþykkja laga-
uppkastið óbreytt, hafa sjálfsagt
haft sín áhrif, enda hópurinn
sjálfsagt dálítið ruglaður á því
að fá mismunandi fyrirskipamir
frá helztu forustumönnum sin-
um. Formaður hins nýja Al-
þýðubandalagsfélags er Magnús
Torfi Ólafsson. Hann er flokks-
bundinn sósíalisti, miðstjórnar-
maður í Sósíalistaflokknum, fyrr
veranidi ritstjóri Þjóðviljans, og
starfsmaður kommúnistafyrir-
tækisins Máls og Menningar.
Þarf því ekki frekari vitnanna
við, að Moskvu-kommúnistar
hafa náð lykilstöðum í ' þessu
nýja félagi, eins og þeirra var
von og vísa. En nú munu í vænd
um mikil átök imnan hins nýja
Alþýðubandalagsfélags um skip-
an fulltrúaráðs félagsins sem
telja mun um 100 manns, átök
um væntanlega umsókn Sósía-
listafélagsins um félagsaðild,
átök um skipan væntanlegs fram
boðslista til borgarstjórnarkosn
inga. Um þessi þrjú stórmál
verður að taka ákvörðun á næst
unni, og verður fróðlegt að fylgj-
ast með þeim atburðum sem
leiða til þeirra ákvarðana, sem
teknar verða í þessum efnum.
Það verður sjálfsagt sögulegt.
fyrir barnaskemmtunina á morgun