Morgunblaðið - 02.04.1966, Blaðsíða 27
iaugardagur 2. aprf! 1966
MORCUNBLAÐIÐ
27
i
FLDGVÉL Landhelgisgæzl-
unnar fór í ískönnunarflug í
gær Reyndist isinn næst land
inu 13 mílur norður af Rauðu
núpum. Þaðan liggur ísjaðar-
inn austnorðaustur og er um
40 mílur norðnorðaustur af
Langanesi. Frá 13 mílum norð
ur af Rauðunúpum er stefna
ísjaðarins vestur og er um 5
mílur norðaustur af Grímsey.
ístota teygir sig til suðurs fyrr
ir austan Grimsey og er næst
landi 19 milur norður af
Gjögri.
Isinn er um 50 milur norður
af Skaga, 55 milur norður af
Horni en næstur Vestfjörðum
35 milur norðnorðvestur af
Kögri.
ísinn norður af Skaga og
austar er sundurlaus, 1/10—
3/10 20—30 sjómiiur noröur
fyrir ísjaðarinn. Stangljakar
hafa sézt frá bæjunum Biika-
ióni, Sigurðarstöðum, Núps-
kötlum og Grjótnesi á Sléttu.
Eins og sagt var frá í Morgunbl. í fyrradag féll sextugur mað-
ur niður í malargeymi í sand- og malarnámu við Álftanesveg.
Hlóðst ofan á hann tveggja metra lag af möl. Tók um klukkutima
að moka ofan af manninum, sem slapp tiltölulega lítið meiddur.
— Wilson
Framhald af bls 1
undanfarið, en er þó minni, en
þær hafa gert ráð fyrir.
Endaniegra úrslita er fyrst að
vænta á morgun, laugardag, en
vart verður um neina þá breyt-
ingu að ræða, er þau verða kunn,
sem skipta mun máli.
Stjórnmálafréttp-'-’tarar í Lond
on segja, að T ’ilson, for-
sætisráðherra, geta horft
rólegur til næsiu •_—ö ára, a.m.k.
hvað snertir neðri málstofu
brezka þingsins.
Þegar er ljóst, að meirihluti
Verkamannaflokksins í neðri mál
stofunni verður ekki minni en
100 sæti, og er þar um mikla
breytingu að ræða, frá því, sem
var.
NemeKidaBónleikair
Tónlistarskólans í dag
Shóksveit Bún-
oðnrbankans
f FRÉTTINNI af úrslitum í skák
keppni stofnana sem birtist í
blaðinu í gær, var ekki allskost-
ar rétt með farið er skýrt var frá
hverjir skipa hina sigursælu
sveit Búnaðarbankans en í henni
voru Jón Kristinsson, Bragi
Kristjánsson, Arinbjörn Guð-
mundsson, Stefán Þormar Guð-
mundsson og Guðjón Jóhannsson
sém var varamaður sveitarinnar.
Leiðrétting
í frétt sem birtist í blaðinu í
gær, frá fundi í Hinu íslenzka
náttúrufræðifélagi var ranglega
farið með nafn formannsins.
Stóð í fréttinni, að formaður fé-
lagsins væri Eyþór Einarsson,
en á að vera dr. Þorleifur Ein-
arsson. Eru hlutaðeigendur beðn
ir afsökunar á mistökunum.
— Brynjólfur
Framhald af bls. 1.
sókn. Voru gestir víða að, ofan
úr Connecticut, utani úr Jersey
og lengst utan af eyju, eða af
svæði, sem samsvarar frá Borgar
nesi, austur um sveitir að Sel-
fossi og suður til Keflavíkur.
Mest voru þetta gamlir vinir
frá fyrri mótum en þó voru
nokkrir landar þarna, sem voru
gestkomandi í bænum, Örn Þór
og Halldór Jónatansson, Ásgeir
Magnússon kaupsýslumaður og
hans. Voru þau hjónin að koma
frá Vestur-Indíum enda sólbrún.
Fátt var um flugmenn og kon-
ur, sem þó hefðu verið kærir
gestir.
Islendingafélagið starfar af
miklum krafti undir öruggri
stjórn Sigurðar Helgasonar og
hans meðstjórnanda, Stefáns
Wathne, Halldóru Rúts (Am-
bassa-Dóru) Geirs Torfasonar,
Flemming Thorberg og Þorgeirs
Halldórssonar.
Næsti fagnaður verður 17. júní
og hlakka allir til. Geir.
í DAG kl. 2 heldur Tónlist-
arskólinn í Reykjavík nem-
endatónleika, þar sem ein-
t) ngu koma fram yngri nem-
endur skólans. Þarna koma
fram 26 nemendur, sem munu
leika á píanó, fiðlu, celló,
klirunettu og flautu. Einnig
leikur hljómsveit yngri deild-
ar skólans, undir stjórn Ingv-
ars Jónassonar, en í skólanum
starfa nú tvær nemendahljóm
sveitir. Flutt verða verk eftir
Beethoven, Mozart, Bach, Bela
Bartok o.fl.
Efri myndin er af þremur
ungum piltum, sem munu
leika sexhent á píanó, en
neðri myndin er af stúlku,
sem nemur cellóleik við skól-
ann, ásamt undirleikar? sin-
um.
Isinn er13 mílur
nœst landinu
Wilson, forsætisráðherra,
beindi í morgun þeim tilmælum
til alþýðu manna í Bretlandi, að
hún sýndi samheldni, því að
mörg óleyst vandamál biðu
stjórnmálamanna og þjóðarinn-
ar í heild.
Jafnframt lýsti Wilson því yf-
ir, að hann og stjórn sín kynni
að þurfa að grípa til óvinsælla
aðgerða til þess að rétta efnahag
Bretlands, og auka hlutdeild
Breta í utanríkisverzlun, þ.e.
auka útflutning, en draga úr inn-
flutningi.
Fyrsta ráðstöfun Wilsons, sem
stefnir í þá átt, sem að ofan
greinir, verður að öllum líkind-
um samdráttur í fjárlögum, en
fjárlagafrumvarp verður lagt
fram í Bretlandi innan skamms
tíma.
stjórnar Stálskipasmiðjunnar h.f.
M.s. „Baldur“ mun nú hefja
flutninga til Breiðaifjarðarhafna
og verða í föstum áætlunarferð-
um á milli Reykjavíkur og
Breiðatfjarðar.
Ralph Weymouth
Ræðir öryggis
mál Atlantshafs
ríkja
VARÐBERG og Samtök um vest-
ræna samvinnu halda hádegis-
fund í Þjóðleikhúskjallaranum í
dag, lauagrdaginn 2. april
1966, og hefst fundurinn kl. 12.30.
í því skyni m. a. að minnast
stofndags Atlantshafsbandalags-
stofndags Atl.hafsbandal. og hafa
félögin að þessu sinni boðið á
fundinn yfirmanni varnarliðsins,
rear admiral Ralph Weymouth.
Hann mun ræða um öryggis-
mál Atlantshafsríkjanna og
svara fyrirspurnum.
Flóabáturinn Baldur
afhentur eigendum
FIMMTUDAGINN 31. marz, 1966,
var flóabáturinn „BALDUR'* af-
hentur eigendum sínum, Flóa-
bátnum Baldri h.f., Stykkisbólmi.
Skipið er 180 brúttó rúmlestir
að stærð, byggður úr sfcáli. Yfir-
bygging öl'l, ofan þilfars. er gerð
úr aluminium, bæði þilifarshús,
og stýriahús. Skipinu er skipt í
6 vatnsþétt hól'f. Fremsfc er
stafngeymir og áreksrarþil á
milli hans og íbúðar áhafnar, en
hún telur 6 manns í þrem tveggja
manna klefum. Undir íbúðum er
vatnsgeymir, sem rúmar 9 tonn.
Aftan við íbúðirnar er lesfcin,
ca. 150 rúmmetrar, en skipið ber
145 fcon.n af vörum. Lestin er
öll klædd að innan.
Aftan lestar er vélarúmið, en
þar eru tvær KELVIN diselvél-
ar, 320 hestöfl hvor, og knýja
þær tvær skrúfur. Á framenda
vélanna eru drif, sem knýja 20
kílóvafcta rafal á hvorri vél, og
vökvadæla fyrir vökvavindur á
annarri vélinni. Þá er ennfremur
75 hestafla KELVIN dieselvél
sem hjálparvél og knýr hún 30
kílóvatta rafal, vökvadælu fyrir
vökvavindur og austursdælu.
Þar eru ennfremur aðrar dælur,
miðstöðvarketill fyrir upphitun
aftUrskipsins, en rafmagnshifcun
er i framskipinu. Loftræsting
vélarúms og íbúða er með raf-
knúnum blásurum.
Aftan vélarúms er farþega-
klefi með fimm hvílum og aftan
hans er stýrisvélarúm með vökva
knúinni stýrisvél af TIENFJORD
gerð.
f hvalbak er póstklefi, farang-
ursgeymsla og snyrtiherbergi
áhafnar.
í þilfarshúsi er eldlhús með
kæliklefa, matsalur, snyrtiher-
bergi karla og kvenna og far-
þegasalur, sem rúmar 45 manns
í sæti.
í stýrishúsi er herbergi skip-
stjóra og stjórnklefi. Þar er kom
ið fyrir siglingatækjum, KELVIN
HUGHES rafcsjá og dýptarmæli,
Lilley & Gillie áttavitum, sjálf-
stýringu, TAYO miðunarstöð,
talstöð og ennfremur eru þar
stjórntæki fyrir aflvélar ásamt
mælaborði og aðvörunarkerfi.
Lestarlúga er ein og er henni
lokað með þreföldum stálhlera,
sjiáliflþéttandi. ' Vökvavinda er
fyrir 4 tonn, en bóma fyrir 5
tonna þunga. Þá er ennfremur
vökvaknúið capstanspil og vökva
knúin vinda til þess að hækka
og lækka bómu. Vindurnar eru
frá Vélaverkstæði Sigurðar
Sveinbjörnssonar, Reykjavík.
Auk Stálskipasmiðjunnar h.f.
unnu verktakar að smíði skips-
ins. Skipasmíðastöðin Nökkvi
h.f. sá um alla innréttingu og
trésmíði undir umsjá Hans Lind-
berg framkvstj. og Halldórs
Ámundasonar. Raflagnir annaðist
Áslaugur Bjarnason, rafvirkja-
meistari. Af hálfu Stálskipa-
smiðjunnar h.f. var Árni Mark-
ússon verkstjóri yfir bolsmíði,
en vélaniðursetningu, útbúnað
og allan frágang annaðist Þórir
B. Guðjónsson, vélvirkjameist-
ari, sem jafnframt er formaður