Morgunblaðið - 07.04.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.1966, Blaðsíða 1
AHm&nnagjá skartar snjó einn sólbjartan dag að áliðnum vetri, svei puð snjódyngjum hátt upp á fanndröfnótta hamraveggina. en hand- tm sér í alhvítt Ármannsfell. (Ljósm. Snorri Snorrason). Lögsaga erlends dómstóls í deilumálum íslenzkra borgara — Varðandi gerðardóminn væri það að segja að nú hefði verið sýnt fram á, að það væri síður en svo nokkur undantekning eða einsdæmi, að siíkir gerðardóms- samningar væru gerðir, jafnvel á miili sjálfstæðra rikja og ein- stakra fyrirtækja. Eysteinn Jóns- son hefði vitnað mjög í orð Ól- Framhald á bls. 8 New York, Lissabon, Beira, 6. apríi NTB-AP. HAFT er eftir góðum heimildum í aðalstöðvum SÞ í New York, að nokkur Asiíu-, Afríku- og kommúnístariki muni innan skamms leggja fram tillögu þess efnis, að Öryggisráð SÞ fyrir- skipi aðildarríkjum samtakanna að hefjast handa um allsherjar viðskiptabann á Rhodesíu. Verð- ur tiliagan lögð fyrir ný Leiwlu-^ nefnd samtakanna. Formaður þeirrar nefndar, Gershon Collier frá Sierra Leone segir, að aðildarríkin hafi af því miklar áhyggjur, að Bretar skuli ekki hafa komið í veg fyrir að gríska olíuskipið „Joanna V“ færi til Beira í Mozamfoique með oliufarm, sem ætlaður er Rhod- esiu. Olíuskip þetta liggur nú úti fyrir höfninni í Beira, að því er fréttir þaðan herma. Þar eru uppi háværar raddir um að ann- að oláuskip, „Mahuella" sé á ieið til Beira. Af hálfu grisku stjórnarinnar er sagt, að hún muni leggja hó- ar fésektir á grísk útgerðarfélög er leyfi olíuflutninga til Rhodes- íu. Stjórn Portúgals hefur hins- vegar lýst því yfir, að hún muni ekki skipta sér af olíuflutningurn* þessum. Fulltrúi brezku stjórn- arinnar Walston lávarður er væntanlegur í dag til Lissafoon til þess að reyna að breyt^ af- stöðu Portúgalsstjórnar. samþykkt af vinstri stjórninni — Scigði fofsæiísráðherra Bjarni Benediktsson „Styrjöld við Banda- ríkin yfirvofandi" — segja Kínverfar FJARNI Benediktsson, forsætis- ráðherra, gerði að umtalsefni gagnrýni stjórnarandstæðinga á frumvarpið um álbræðslasamn- inginn í ræðu sinni í neðri deild i fyrradag. Sagði ráðherra að þingmenn hefðu haft góða að- stöðu til þess að fylgjast með gangi málanna og bera fram athugasemdir. Þá væri umsamið rafmagnsverð hér mjög svipað «g víða annars staðar og undir- etrikaði ráðherra að það væri ckki nein undantekning að gerð- ir væru gerðadómssamningar milli sjálfstæðra rikja og ein- stakra fyrirtækja. Forsætisráðherra vék fyrst að þeiín ummælum stjórnarandstæð inga, að það væri óvirðing fyrir Aíþingi að leggja málið fyrir á þann bátt sem gert væri. Sagði ráðherra að sér væri ekki Ijóst með hverjum hætti væri hægt að kanna vilja Alþingis í sliku efni á annan veg en þann, sem hér væri gert. Ekki færi á milli mála, að samningurinn tæki ekki gildi nema Alþingi samþykkti, svo úrslitaráðin væru hjá því. Það væri alkunnugt, að ekki að- cins hefði Alþingi sjálft þannig samþykkt marga samninga ýmis- legs efnis, heldur bæri slíkt við i hvers konar félagsskap, sem á- kvarðanir þyrftu að taka. Ætti forseta A lþý ðusambandsins, Hannibal Valdimarssyni, að vera manna bezt kunnugt um. Álbræðslumálið hefði oft ver- ið til umræðu á Aíþingi á undan Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra. förnum árum, svo þar fhefði kom- ið fram vilji og afstaða þing- manna flokka og einstakra full- trúa á þingi, en auk þess hefði iðnaðarmálaráðherra haft sér við hlið í á annað ár sérstaka þing- mannanefnd, sem hefði fylgzt mun betur með undirbúningi þessa máls heldur en nokkurs annars sambærilegs. Það væri þess vegna staðlausir stafir að tala um þingræðisbrot í bessu efni eða óvirðingu við Alþingi. Ráðherra sagði, að það hefði komið fram, að það væru eink- um þrjú atriði sem stjórnarand- staðan setti út á samninginn. Það væri í fyrsta lagi, að orku- verðið væri of lágt, í öðru lagi gerðardómsákvæðið og í þriðja lagi, að samningurinn væri gerð- ur til of langs tíma. — Vitanlega mætti deila um það, hvort orku- verðið væri of lágt eða ekki, og til þess vitnað að Norðmenn hefðu komizt að hagstæðari samn ingum um raforkusölu. Alfyrir- tækið hefði komið hér fyrir all- mörgum árum og leitað eftir samningum og hefði þá óskað eft ir enn lægra rafmagnsverði. Það hefði verið athugað hér, hvað við gætum boðið, og þá foefðu menn smám saman komizt að þeim töl- um, sem nú væri samið um og væru þær tölur ámóta eins og víða annars staðar og hærri held- ur en viða í Norður-Ameríku g í Afríku. Tókáó Hong Kong, 6. apríl AP - NTB. „DAGBLAÐ alþýðunnar11, opin- bert málgagn Fekingstjórnarinn- ar, þirti á miðvikudag ritstjórn- argrein, þar sem landsmenm voru I Maria I afsalar sér ríkisfangi ■ París, 6. april NTB. : • Haft er eftir áreiðanleg- ■ um heimildum i Farís, að ; hin fræga söngstjarna, Maria « Callas, hafi afsalað sér handa- ; Framhald á bls. 31. varaðir við því, að til styrjaldgr mundi án efa koma við Banda- ríkin. Blaðið staðhæfði að Banda ríkin. Blaðið staðhæfði að Banda ríkjamenn vildu stríð við Kín- verja, og að tal þeirra um að þeir vildu bætta samúð við Kín- verja, væri fleipur eitt og til þess eins ætlað, að veikja mót- stöðu hinma kínversku borgara. Blaðið sagði að sú ákvörðun Bandaríkjastjórnar, að auka her- styrk sinn í Vietnam, væri aðeins spor í þá átt að hefja stríð við Kínverja. Blaðið hvatti lesendur til að íhuga þetta mál, því Kín- verjar yrðu að vera viðbúnir er til tíðinda drægi. „Það eru Bandaríkjamenm, en» ekki við sem viljum styrjöld" sagði í ritstjórnargreininni „og því verðum við að vera viðbúnir, hvort sem um verður að ræða styrjöld í smáum eða stórum stíl. Þessi styrjöld getur hafizt von bráðar. Stór styrjöld mun þýða það, að Bandaríkjamenn munu hvetja alian sinn herstyrk til orrustu. Þeir munu senda milljón manna, jafnvel 10 milljónir til Kína“ segir í blaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.