Morgunblaðið - 07.04.1966, Blaðsíða 31
Fimmtttdagur 7. apríl 1966
31
MORGUNBLAÐID
Áframhaldandi hríðarveður er nú á Norðurlandi. Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var sl.
sunnudag, má sjá að fennt er fyrir aðaldyr og glugga 4 húsa við Höfðabrekku í Húisavík —
Ljósm. S. P. Bj.
9,2 millj. kr. hafa
safnast til HGH
NÚ ER að heita má lokið
fjársofnun þeirri, sem fram fór
á vegum Herferðar gegn hungri
sl. haust. Fjárframlög hafa verið
að' berast fram á þennan dag.
Hafa nú alls safnazt 9.2 millj.
kr., sem samsvarar því, að hver
landsmaður hafi Iagt fram til
söfnunarinnar 48.42 kr. Er söfn-
unin að krónu Hlu til hin mesta,
sem nokkru sinni hefur farið
fram hér á landi, og mesta ein-
staka fjársöfnun í heiminum á
vegum HGH, ef miðað er við
íl) uitölu.
Forráðamenn FAO í Hóm og
aðalstöðvum HGH hafa borið
mikið lofsorð á íslenzku þjóðina
fyrir hið veigamikla framlag
hennar, en söfnunin er fjórum
sinnum meiri en framkvæmda-
nefnd HGH hérlendis hafði gert
sér vonir um. Hafði hún heitið
því, að reyna að safna fé, sem
næmi um 2.2 millj. kr. til á-
kveðins verkefnis á Madagascar,
í Nígeríu og víðar í Afríku. Féð
Kronpriiis
Frederik kemur
KRONPRINS Frederik kemur
til Reykjavíkur kl. 2 siðdegis
í dag. Meðal farþega eru um
20« Færeyingar, sem dveljast
munu á íslandi um páskana.
Kronprins Frederik heldur
aftur til Þórshafnar og Kaup-
mannahafnar á þriðjudagskvöld
n.k.
Rúmenski þjóð-
dansafiokkurinn
kemur ekki
1 RÁÐI var að rúmenskur
þjóðdansaflokkur kæmi hingað
til alnds á vegum Þjóðlekhúss-
ins og sýndi þar 12. og 13. þ.m.
Flokkurinn átti að koma til
Reykjavíkur frá Bandaríkjunum,
nú verið aflýst á Norðurlönd-
en öllum sýningum hans hefur
um og fer flokkurinn beint heim
frá Bandaríkjunum til Rúmeníu.
— Kaupmaðurinn
Framhald af bls. 32
kostnað. Dóminum ber að full-
nægja með aðför að lögum“.
Dóminn kvað upp Ármann
Kristinsson, sakadómari, en mál-
ið var mjög yfirgripsmikið. Var
endurrit úr dómabók 55 folio-
Bíður.
hefur nú verið sent Matvæla
og landbúnaðarstofnun Samein-
uðu þjóðanna.
Það var Æskulýðssamband Is-
lands, sem stofnsetti hina ís-
lenzku framkvæmdanefnd HGH,
og mun taka ákvörðun um frek-
ari starfsemi hennar. Mun nefnd
in brátt leggja fyrir stjórn ÆSÍ
tillögur sínar um frekari starf-
semi samkvæmt þeirri reynslu
sem fengin er. 1 því sambandi fer
framkvæmdanefndin þess á leit
við áhugamenn um málefni Her-
ferðarinnar og vandamál þróun-
arlandanna, að þeir sendi henni
álit sitt og tillögur um það
hvernig haga beri starfseminni
framvegis. Skrifstofa nefndar-
innar er nú sem fyrr að Frí-
kirkjuvegi 11, Reykjavík. Nefnd
ina skipa Sigurður Guðmunds-
son, skrifstofustjóri formaður,
Elías Jónsson, blaðamaður,
Gísli B. Björnsson teiknari,
Magnús Jónsson stud. phil., Ragn
ar Kjartansson framkvæmda-
stjóri, varaformaður, Valur Vals
son stud. oecon., Örlygur Geirs-
son framkvæmdastjóri. Jón Ás-
geirsson hefur frá upphafi verið
framkvæmdastjóri Herferðarinn-
ar, en lætur brátt af því starfi
Mun Magnús Jónsson taka við
af honum.
Afli Vestmanna-
eyjabáta
Vestmannaeyjum, 4. marz.
AFLI Vestmannaeyjabáta hefur
verið mjög lélegur það sem af er
þessari vertíð, enda hafa gæftir
verið mjög slæmar lengst af.
Þó hefur gefið sæmilega á sjó
núna síðustu daga, en afli þrátt
fyrir það verið ákaflega rýr, og
er vart hægt að segja að sést
ha-fi fiskur í nót. — Björn.
Heildarafli
Akranesbáta
3900 tonn
Akranesi, 4. marz.
3900 TONN var heildarafli
Akranesbáta til 1. marz frá ný-
ári. Á sama tíma í fyrra var
hann 4400 tonn. Aflahæst núna
eru Sólfari með 500 tonn og
Sigurborg sömuleiðis með 500
tonn.
137 þúsund tunnum af loðnu
hafði verið landað í Síldar- og
Fiskimjölsverksmiðjuna 1. marz
sl. Svo hafa loðnubátar hér land-
að víðar, t.d. Höfrungur III. í
Reykjavík, í m.s. Síldina í
Ólafsvík og Grunafirði.
Höfrungur II. landaði á sunnu-
dagsmorguninn 18 tonnum af
þorski, Höfrungur I. 14 tonnum,
og Ver 7 tonnum á mánudags-
morgun. Annars taka bátarnir
ís í sig, og eru með þorskanet út
og suður. — Oddur.
Kiikjutónleikar
í Hufnnrfiiði
Á FÖSTUDAGINN langa verða
verða kirkjutónleikar í Hafnar-
fjarðarkirkju og hefjast þeir kl.
8,30 síðd. Kirkjukórinn syngur
lög eftir Jón Leifs, dr. Pál ís-
ólfsson og Friðrik Bjarnason.
Einnig verður fluttur erlendur
páskasöngur, flutt mótetta
„Heyr mitt hróp“ (Hear my
prayer). Einsöng syngur Inga
Eyjólfsdóttir’ auk hennar syngur
Kristjana Kristjánsdóttir. Á und-
an söngnum og eftir leikur Páll
Kr. Pálsson á orgel kirkjunnar
verk eftir Bach, Friðrik Bjarna-
son og Pál ísólfsson.
Aðgöngumiðar að kirkjutón-
leikum þessum verða til sölu í
dag í blómaverzluninni Burkna,
Strandgötu, frá kl. 1—5 og einnig
við innganginn.
Skjalatösku stolið
úr Bronco-bíl
f FYRRINÓTT var farið inn í
Bronco-bifreið hér í borginni, en
gleymzt hafði að læsa aftur
hurð hans.
Á milli framsætanna hafði
eigandinn skilið eftir brúna
skjalatösku, sem hafði að geyma
órr.issandi pappíra og skjöl fyrir
hann, en algjörlega verðlaus
fyrir aðra.
Það eru vinsamleg tilmæli
rannsóknarlögreglunnar til
þeirra, sem kunna að hafa orðið
þessarar skjalatösku varir, að
gera aðvart þegar í stað. Vakt
verður hjá rannsóknarlögregl-
unni alla bæna- og páskadagana.
Afli í Sandgerði
heldur betri í ár
SANDGERÐI, 5. apríl. — 1. apr-
íl er afli kominn á land í Sand-
gerði 14093 lestir í 1032 róðrum.
Þar af er þorskur 6781 lest, loðna
6734 lestir og síld 578 lestir.
I fyrra á sama tíma voru kom-
in á land 12451 tonn í 1306 róðr-
um. Þarna munar að mestu á
loðnunni. Rúm 100 tonn af
þorski hafa komið á land meira
en í fyrra á sama tíma í miklu
færri róðrum. Aflabrögð hafa
því verið heldur betri en í fyrra.
— P.P.
— Callas
Framhald af bls. 1.
riskum ríkisborgararétti. Fylg
ir fregninni að hún hafi af-
hent bandaríska sendiráðinu
í París vegabréf sitt hinn 18.
marz sl., en sendiráðið hefur
ekkert viljað um mál þctta
segja.
Maria Callas er kunn, sem
skapmikil kona og hefur átt
í ýmsum erfiðleikum þess
vegna. Frægð sína á hún ekki
aðeins að þakka frábærum
söng heldur er hún talin með
mestu leikkonum sem fram
hafa komið á óperusviði á síð
ustu áratugum.
Maria Callas er grísk að ætt
og uppruna en fædd í New
York fyrir 43 árum. Hún var
gift Giovanni Meneghini í tólf
ár en yfirgaf hann árið 1959.
Síðustu árin hefur hún haft
náið samband við gríska
skipakónginn Onassis og var
gengið frá skilnaði hennar og
Meneghini á sl. ári á þeirri
forsendu, að samband hennar
og Onassis væri slíkt, að tæp-
ast yrði talið vinátta ein-
göngu.
Frá Geðvernd-
arfélaginu
Aðalfundur Geðverndarfélags
íslands var haldinn í Tjarnar-
búð 24. marz. Var fundurinn
vel sóttur. Formaður félagsins,
Kristinn Bjömsson, sálfræðing-
ur, setti fundinn og kvaddi til
fundarstjóra Kjartan J. Jóhanns-
son, héraðslækni, en til fundar-
ritara kvaddi hann Guðríði
Jónsdóttur fyrrv. forstöðukonu
Kleppsspítalans.
Formaður gaf skýrslu um
störf félagsine á liðnu ári. Störf
félagsins hafa aðallega beinzt að
fræðslu um geðverndarmál á-
samt fjársöfnun til að koma
fram áhugamálum félagsins, svo
sem að efla ungt fólk til þess
að afla sér mentunar fyrir geð-
verndarstflrf og til að köma upp
hvíldar- og endurhæfingarheim-
ili fyrir geðs.Júklinga. Þá var og
hafin útgáfa á tímaritinu Geð-
vernd undir ritstjórn Benedikts
Tómassonar, skólayfirlæknis.
Að loknum umræðum um
skýrslu formanns voru lesnir
upp og samþykktir reikningar
félagsins. Félaginu bárust á ár-
inu margar góðar gjafir, sem það
kann gefendum beztu þakkir fyr
ir.
Þá var gengið til stjórnar-
kjörs. Úr stjórninni áttu að
ganga Kristinn Björnsson, for-
maður, Sigurjón Björnsson, sál-
fræðingur, Tómas Helgason,
prófessor, og Áslaug Sívertsen
Formaður baðst eindregið und
an endurkosningu, svo og Sigur-
jón Björnsson. í þeirra stað voru
kjörnir formaður Kjartan J.
Jóhannsson, héraðslæknir og
Jón Bergs, forstjóri.
Nýkjörinn formaður þakkaði
fráfarandi formanni vel u.nnin
störf í þágu félagsins, svo og
Benedikt Tómassyni fyrir rit-
stjórn tímaritsins Geðverndar og
Jóni Gunnarsssyni, skrifstofu-
stjóra, fyrir að hafa safnað aug-
lýsingum til tímaritsins.
I stjórn Geðverndarfélagsins
eru nú: Formaður Kjartan J.
Jóhannsson, héraðslæknir, vara-
formaður Benedikt Tómasson,
skólayfirlæknir og gjaldkeri frú
Aslaug Sívertsen. Meðstjórnend-
ur eru Grímur Magnússon,
læknir Jóhanna Baldvinsdóttir,
Jón Bergs, forstjóri og Tómas
Helgason, prófessor. í varastjórn
voru kjörin: Ásgeir Magnússon,
forstjóri, Gylfi Ásmundsson, sál-
fræðingur, Jón Gunnarsson,
skrifstofustjóri, Lárus Helgason,
læknir, Pétur Fétursson, for-
stjóri og Vilborg Ólafsdóttir, frú.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Sigurður Helgason, lögfræðingur
og Gunna>: Stefánsson, stórkaup-
maður.
Á laugardagsmorgun gekk yfir Norður-Eittgland versta hriðarveður sem þar hefur komið i 20
ár. Hörkugaddur var og fannkoma og bilar festust umvörpum á vegum úti. Myndin er tekin í
West Riding í Yorkshire, á Standedge Hill.