Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐID Þriðjudagur 3. maí 1966 1. mai ■ Peking: Hatrömmustu árásir Kínverja á Sovétríkin til þessa Chou En Loi vísor ú bug öllum súttutillögum í Vietnum-múlinu 1. MAÍ var hátíðlegur haldinn víða um heim á sunnudag og fóru hátíðahöldin á flestum stöðunum fram samkvæmt hefð undangenginna ára. Ekkert var til nýlundu um hátíðahöldin í Moskvu, engin ný hergögn sýnd og ræður svo keimlíkar ræðum fyrri ára að kalla mátti óbreyttar. í Peking bar það aftur á móti til tíðinda að ráðamenn notuðu daginn og heimsókn forsætisráðherra Albaníu sem átyllu til þess að veitasf harkalega að bæði Sovétríkjunum og Bandaríkjunum, hinum síðari einkum fyrir stefnu þeirra í Víetnam-málinu og hinum fyrri vegna 'endurskoðunar- stefnu“ sinnar og þjónkunar við Vesturveldin, einkum í Víetnam-málinu. Það vakti og töluverða athygli í Peking að hvergi sást þar hinn aldni leiðtogi kínverskra kommúnista, Mao Tse Tung, og veitti byr undir báða vængi fregnum um að hann myndi allur, en ekki fékkst á því nein staðfesting frekar en fyrri daginn. Mao hefur sem kunnugt er, hvergi sést opin- berlega síðan í nóvember í fyrra, og er þetta ekki í fyrsta sinn, sem orðrómur kemst á kreik um að hann muni annað- hvort hættulega veikur eða jafnvel ekki lengur í tölu lifenda. Yfirleitt fóru hátíðahöld í Evrópu fram með venjubundn- um hætti, ræðuhöldum, útifundum og skrúðgöngum verka- lýðsfélaga og bar fátt til tíðinda. í Berlín héldu ræður rétt við borgarmúrinn Wiily Brandt, borgarstjóri, og Per Hække- rup, utanríkisráðherra Danmerkur, sem þar var staddur í heimsókn. í Hóm messaði páfi yfir fjölmennum söfnuði í St. Péturskirkjunni og í Varsjá talaði Gomulka yfir hálfri milljón landsmanna sinna og var sagður sáttfúsari en menn höfðu við búizt og mildari í máli. í Stokkhólmi brenndu unglingar bandaríska fánann úti fyrir dyrum bandaríska sendiráðsins til að lýsa andúð á stefnu Bandaríkjanna í Víet- nam og hefur sænska stjórnin harmað atburð þennan. f Peking héldu menn 1. maí hátíðlegan með skrúðgöngum og látbragðsleikjum þar sem kenna mátti í gervi „bófans“ Johnson Bandaríkjaforseta, sem sýndur var fölur sem nár og skjálfandi á beinunum. Mjög mannmargt var á götum borgarinnar og leiðtogar Kína komu fram við hátíðahöldin að vanda utan Mao Tse Tung, for- manns kínverska kommúnista- flokksins, sem þar var hvergi að sjá og hvergi var á minnzt hvar héldi sig um þessar mundir. Mao hefur ekki sézt opinber- lega síðan í nóvember í fyrra, en kínverskir embættismenn bera til baka allar fregnir, sem fram hafa komið á Vesturlöndum um að Mao sé sjúkur. í dagblöðum í Peking birtust stórar myndir af leiðtogum flokksins, en ekki var að ráða af myndirmi af Mao hvar eða hvenær hún hefði verið tekin. Haft er eftir enska blaðinu „Star“, sem gefið er út í Hong Kong, að það gangi nú fjöiiun- um hærra í Kanton, stærstu borg Suður-Kína, að Mao sé látinn og hafi andlát hans borið að fyrir skömmu í bænum Hangchow í Chekiang-héraði. Engin staðfest- ing hefur fengizt á þessari frétt. Rigning var í Peking á sunnu- dag en borgarbúar létu það ekki á sig fá og flykktust út á göt- urnar að fagna deginum. Engin hersýning var haldin að þessu sinni og engin aðalskrúðganga, en aftur á móti farnar margar smærri skrúðgöngur í einstökum borgarhverfum. Á stærstu í- þróttasvæðum borgarinnar sýndu fjölleikamenn listir sínar og víða var einnig sýndur látbragðsleik- ur, þar sem hæðst var að Banda- ríkjamönnum, einkum í gervi fanginna hermanna og flug- manna, að ógleymdum Johnson forseta, sem áSur sagði frá, og sýndur v^ir fölur og skjálfandi á beinunum. Hatrammar árásir á Sovétríkin Sendinefnd frá Albaníu var stödd í Peking 1. maí, og var fyr- ir henni forsætisráðherra lands- ins, Mehmet Shedu. Óku þeir Chou En-Lai, forsætisráðherra Kína, milli skemmtigarða borg- arinnar og var hvarvetna ákaft fagnað. Setti þessi ökuferð þeirra á daginn og hátíðahöldin töluverðan and-sovézkan svip, þar sem „baráttan gegn endur- skoðunarstefnunni“ var eitt höf- uðmálið. Dagblöð í Peking helga mikið rúm ræðum Chou En-Lais og Shedus á opinberum fundi í Pek- ing á laugardag, en á þeim fundi urðu Sovétríkin fyrir hatramm- ara aðkasti en nokkru sinni fyrr. Sagði Chou m.a. í ræðu sinni á fundinum að hinir nýju leiðtogar Sovétríkjanna væru miklu verri en Krúsjeff, að „aðstoð" sú sem Sovétríkin veittu Víetnam væri ekki annað en stórkostleg svik og prettir og tilgangur hennar að leiða styrjöldina í Vietnam inn á þá braut að Sovétríkin og Bandaríkin geti í sameiningu ráðið öllu um gang hennar. Einnig vísaði kínverski for- sætisráðherrann á bug öllum möguleikum á friðarsamninga- viðræðum í Víetnam, einnig á grundvelli tillagna Mike Mans- fields öldungadeildarþingmanns um að bæði Kína og N-Víetnam skyldu eiga aðild að slíkri samn- ingagerð. Sagði Chou að tillaga Mansfields væri ekki annað en nýtt tilbrigði fyrri tillagna Bandaríkjamanna og til þess ætluð að villa um fyrir almenn- ingsálitinu í heiminum. Chou vék einnig að tillögu Rússa um að leiðtogar Sovétríkj- anna og Kína hittust að máli, annaðhvort í Moskvu eða Pek- íng, til þess að reyna að jafna ágreining sín í milli og sagði að leiðtogar Sovétríkjanna freistuðu nú að mynda ,.and-kínverskan innilokunarhring“ umhverfis Kína. Sagði Chou að innbyrðis- erjur og ágreiningur gerði leið- togum sovézka kommúnista- flokksins erfitt fyrir þótt þeir reyndu að láta sem allt væri með felldu og lét að því liggja að vel gæti dregið þar til tíðinda innan skamms. „Leiðtogar sov- ézka kommúnistaflokksins sitja á eldfjalli", sagði Chou. Um 100.000 manns sóttu fjölda fund þennan á laugardag en eng- inn sendifulltrúa Sovétríkjanna sást þar og ekki við nein opin- ber hátíðahöld vegna komu albönsku sendinefndarinnar. Tíðindalaust í Moskvu Ekkert var til nýlundu við hersýninguna á Rauða torginu í Moskvu á sunnudaginn, engin ný hergögn og engar óvæntar yfir- lýsingar um alþjóðamál. Sýndar voru flestar þær eld- flaugar sem Sovétríkin hafa nú yfir að ráða, m. a. tvær eldflaug- ar, sem ætlað er að hringsóla kringum jörðu og voru allar sýndar við síðustu hersýningu á Rauða torginu, 7. nóvember sl. Síðast fór fram svb tíðindalaus hersýning 1. maí 1963, en þau ár sem liðin eru hafa verið sýnrar á Rauða torginu við ýmis tæki- færi samtals 18 nýjar tegundir hergagna ýmisskonar þar á með- al 12 nýjar gerðir eldflauga. Leonid Brezhnev horfði á her- sýninguna ofan af grafhýsi Len- ins ásamt öðrum leiðtogum að vanda og var til þess tekið að mynd Brezhnevs, sem fest var á rauðan fána var borin töluvert framar í skrúðgöngunni en mynd ir annarra ráðamanna og var haft til marks um aukin völd hans. Rodion Malinovski varnarmála- VORBOÐINN félag Sjálfstæð- iskvenna í Hafnarfirði heldur fund n.k. fimmtudagskvöld kl. 8,30. Á fundinum talar frú Helga Guðmundsdóttir, sem skipar fjórða sætið á D-listanum og Þorgeir Ibsen skólastjóri, en hafnfirskar konur munu gera það að metnaðarmáli sínu í þessari kosningabaráttu að fá hann kosinn í bæjarstjórn og þar með hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar. Ennfremur flytja ávörp á þess um fundi frúrnar, Elín Jóseps- dóttir, Sólveig Eyjólfsdóttir og ráðherra flutti ræðu af stalli grafhýsLsins áður en hersýningin fór hjá og var harðorður i garð Bandaríkjamanna fyrir það sem hann kallaði „óþénlegt bófastríð“ þeirra í Víetnam og sagði að leiðtogar Sovétríkjanna myndu einskrs láta ófreistað að auka varnarmátt landsins. Sagði mar- skálkurinn, sem var hlaðinn heiðursmerkjum eins og oftast nær við slík tækifæri, að Sovét- ríkin reyndu eftir fremsta megni að leggja stein í götu glæpsam- legra áforma árásaraðilanna. „Eins og önnur sósíalistísk lönd styðjum við bræður vora í Ví- etnam“, sagði marskálkurinn. „og munum veita þeim alla þá aðstoð sem kostur er, nú eins og hingað til“. Þá réðist marskálkurinn í ræðu sinnar einnig á það sem hann kallaði „óhugnanlegt samsæri*4 vestur-þýzkra heimsveldissiina. Við borgarmúra Berlínar. I Berlín héldu menn 1. mai Framhald á bls. 3 Kópavogur Sjálfstæðiskvennafélagið Edda heldur basar sunnud. 8. maí n. k., kl. 3 s.d. í Sjálfstæðishúsinu Kópavogi. Þeir, sem vilja styrkja basarinn, hafi samband við Guðrúnu Gísladóttur, Alf- hólsv. 43, Kópav., sími: 40167 og Sigríði Gísladóttur, Kópavogs- braut 45, Kópav., sími: 41286. SeBtjarnarnes Sjálfstæðisflokkurinn hefur opnað kosningaskrifstofu fyrir Seltjarnarnes að Melabraut 56. Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 18 — 22. Sími skrifstofunnar er 2-43-78. Stuðningsfólk Sjálfstæðis- flokksins er beðið að hafa sam- band við skrifstofuna. Sigurveig Guðmundsdóttir. Vor- boðakonur í Hafnarfirði hafa löngum unnið dyggilega fyrir málstað flokks síns og bæjar- félags og svo munu þær einnig gera í þessum kosningum. Vor- boðakonur heita á allar konur að vinna vel fyrir D-listann og vænta þess að félagskonur og aðrar þær konur, sem vilja stuðla að heill og hag Hafnar- fjarðar komi á fundinn n.k. fimmtudagskvöld, en þangað eru allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Fundinum stjórnar frú Jak- obína Mathiesen formaður Vor- I boðans. Stjórnarkjör í Bifreiðastjóraf éla£- inu Frama í dag og á morgun Vorboða-fundur d fimmtudagskvöld UM nónbilið í gær var SV- hiti um eitt stig á Horn- kaldi, skúrir og 7-9 stiga hiti ströndum og annesjum sunnan lands, breytileg átt og nyrðra. þurrt veður austan lands og í Síðdegis var ekki gert ráð innsveitum fyrir norðan, en fyrir verulegum breytingum A^-stipningBkaldá, slydda og á veðri fyrir daginn í dag. Listi lýðræðissinna er A-listinn STJÓRNARKOSNING fer fram í Bifreiðastjórafélaginu Frama í dag og á morgun. Kosið er í skrifstofu félagsins, Freyjugötu 26, og hefst kosningin kl. 1 í dag og stendur til kl. 9 í kvöld. Á morgun (miðvikudag) verður kosið á sama tíma og lýkur stjórnarkjörinu klukkan 9 annað kvöld. Tveir listar eru í kjöri: A-listi stjórnar og trúnaðarráðs undir forystu Bergsteins Guðjónssonar, sem um áratugi hefur haft for- ystu í hagsrnunamálum bifreiðastjóra af dugnaði og framsýni. — B-listinn er skipaður kommúnistum og fylgismönnum þeirra, en í formannssæti á þeim lista er Steingrímur Aðalsteinsson, fyrr- verandi alþingismaður kommúnista. A-listinn er þannig skipaður: Formaður: Bergsteinn Guðjónsson, Bú- staðavegi 77, Hreyfb Varaformaður: Jakob Þorsteinsson, Sigluvogi 16, BSR. Ritari: Narfi Hjartarson, Blönduhlíð 21, Bæjarleiðir. Gjaldkeri: Kristján Þorgeirsson, Háaleitis braut 101, Borgarbílastöðin. Meðstjórnandi: Jón Vilhjálinsson, Ægissíðu 96, HreyfiL Varamenn í stjórn: Páíl Valmundsson, Skólagerði 5, BSR, og Guðmundur Ámunda- son, Fellsmúla 13, Hreyfli. Endurskoðendur: Tryggvi Kristjánsson, Drápu- hlíð 39, Hreyfli, og Þorvaldur Þorvaldsson, Langagerði 124, BSR. V araendurskoðandi: Rósmundur Tómasson, Laugar- nesvegi 66, Bæjarleiðum. Trúnaðarmannaráð: Karl Þórðarson, ÁLftamýri 14, Hreyfli, Jens Pálsson, Sogavegi 94, BSR, Hörður Guðmundsson, Skipholti 10, Bæjarleiðum, og Karl Kristinsson, Bugðulæk 20, Borgarbílastöðin. Varamcnn í trúnaðar- mannaráð: Skúli Skúlason, Skipasundi 12, Hreyfli, og Haraldur Guðjóns- son, Skjólbraut 9, Hreyfli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.